Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020
LÍFSSTÍLL
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Miðnætursólin skín yfir bænum
Kilpisjärvi í norðurhluta Finn-
lands, skammt frá landamærum
Noregs. Þetta er tími hinna
löngu nátta á norðurslóðum.
AFP
AFP
AFP
Sólstöðum fagnað
Víða um heim var sumri fagnað við sumarsólstöður og Jónsmessu, þótt ugg-
laust hafi oft verið meira um manninn en nú á tímum kórónuveirunnar. Í Lithá-
en stukku menn yfir elda og skreyttu sig blómum, Aþenubúar sóttu tónleika
undir berum himni við Akrópólishæð og í Andesfjöllum var samkoma um
miðja nótt í tilefni af vetrarsólstöðum og upphafi ársins 5528.
AFP
Hefð er fyrir því að fagna miðsumri eða Jóns-
messu í Litháen. Í þjóðháttasafninu Rums-
iskes austur af Kaunas kom fólk saman,
skreytti sig blómum og stökk yfir bálköst á
þriðjudag fyrir Jónsmessunóttina.
AFP
Bólivíumenn úr þjóðflokki Aymara hefja hendur á loft í átt til sólar
og fagna nýju Andesári - árinu 5528 - 21. júní í Santiago de Mach-
aca, sem er á bólivísku hásléttunni. Hundruð manna komu saman
til að fagna vetrarsólstöðum og meðtaka sólguðinn Tata Inti.
Fólk dansar í kringum
blómum skrýdda stöng í
þorpinu Sahl nærri Lek-
sand í Svíþjóð fyrir viku í
tilefni af sumarsól-
stöðum. Minna fór
fyrir hátíðahöld-
unum en venju-
lega að þessu
sinni og eldri
íbúar þorpsins
héldu sig heimavið
vegna kórónuveirunnar.
Í Aþenu safnaðist fólk saman
til að hlýða á tónleika við ræt-
ur Akrópólishæðar í tilefni af
opinberu upphafi sumars.
AFP
AFP
Maður lætur mála á
sér andlitið á tónlist-
arhátíð, sem haldin
var í París í tilefni af
sumarsólstöðum í
Villemin-garðinum.
Í Frakklandi er verið
að draga úr höftum
vegna kórónu-
veirunnar.