Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Síða 24
Þegar Hörður Lárusson út-skrifaðist úr grafískri hönnunúr Listaháskólanum árið
2006 skilaði hann lokaverkefni sem
sneri að útlitshönnun upplýsinga-
kerfis fyrir strætókerfi. Nú fjórtán
árum síðar fékk Hörður tækifæri til
þess að hanna slíkt upplýsingakerfi
fyrir alvöru.
„Útskriftarverkefnið mitt var
aldrei notað, enda bara skólaverk-
efni. Þá voru stafrænir skjáir heldur
ekkert inni í myndinni. Í verkefninu
fyrir Strætó vann ég svipað og í því
gamla verkefni,“ segir Hörður, sem í
dag er grafískur hönnuður og einn
eiganda Kolofon hönnunarstofu.
„Ég gróf upp gamla verkefnið og
þar eru nokkrir hlutir sem ég endur-
nýtti en það er að sjálfsögðu margt
breytt með tækninni. En hugsunin
er sú sama; að notendur geti notað
kerfið á einfaldan hátt. Upplýsinga-
verkefni eru þau verkefni sem mér
finnst skemmtilegust og í raun það
fyrsta sem heillaði mig varðandi
hönnun. Þau eru ólík öðrum verk-
efnum; þú þarft að vera praktískari.
Mamma er listræn og þaðan fæ ég
hönnunarhæfileikana og pabbi er
rafmagnsverkfræðingur og frá hon-
um fæ ég rökhugsunina. Það er full-
komin blanda í svona verkefni,“ seg-
ir hann og brosir.
Hvenær kemur strætó?
Beðinn um að útskýra nýja verk-
efnið, segir Hörður: „Verkefnið snýr
að allri upplýsingagjöf um leiðakerfi
Strætó. Þetta tengist ekki auglýs-
ingum þeirra eða ásýnd heldur er
þetta frekar upplýsingaverkefni sem
sýnir fólki hvernig það kemst á milli
staða með strætó. Þetta er sett fram
mjög myndrænt,“ segir hann.
Í dag er hægt að hlaða niður
strætóappi en Hörður segir það ekki
endilega nýtast þegar fólk er úti á
stoppistöð.
„Appið nýtist þér þegar þú ert
heima hjá þér og ert að reyna að
ákveða í hvaða strætó þú ætlar. En
þegar þú ert kominn á stoppistöð-
ina viltu kannski öðruvísi upplýs-
ingar, til dæmis hvað er langt í
strætóinn. Slíkar upplýsingar eru
nú á öllum stafrænum strætó-
skýlum. Þar er niðurtalning á skjá
og sýnir hvað sé langt í strætó. Það
er hluti af okkar verkefni og glæ-
nýtt. Þetta er í raun eins og fólk sér
á stórum lestarstöðvum erlendis,“
segir hann og nefnir að ekki sé nóg
fyrir viðskiptavini að til sé gott
app.
„Strætókerfið hér er auðvitað
líka fyrir ferðamenn og stór hluti
þeirra kveikir aldrei á netþjónustu í
símanum sínum. Appið hefur auð-
vitað sína kosti, en prentið hentar
betur á staðnum. Í þeim strætó-
skýlum sem ekki eru stafræn er til
staðar prentaður rammi með upp-
lýsingum og við endurhugsuðum
með Strætó hvaða upplýsingar
ættu að vera þar.“
Hörður segir að upplýsingar á öll-
um strætóskýlum borgarinnar verði
innan skamms mun skilvirkari en
áður. Þar kemur til með að vera
bæði stafrænt flettispjald og prent-
uð mynd.
„Við breyttum þessu algjörlega,
og er þetta komið upp í strætó-
skýlum í Hafnarfirði. Sumarið og
haustið verður notað til þess að upp-
færa restina af leiðakerfinu. Áður
var sama prentið alls staðar en nú
færðu meiri og nákvæmari upplýs-
ingar, sniðnar að þinni staðsetningu
hverju sinni.“
Framtíðin er komin
Verkefnið er samtengt vinnu sem
stofan hefur unnið fyrir Borgarlín-
una.
„Þegar Borgarlínan er komin
verður þetta auðvitað bara eitt sam-
göngukerfi, Strætó og Borgarlínan.
Við vorum byrjuð á að búa til útlit
fyrir Borgarlínuna þegar Strætó réð
okkur til verksins. Þá var auðvitað
eðlilegast að þróa þetta með Strætó
núna og þegar Borgarlínan kemur
verður kerfið tilbúið. Það sem fór upp
í Hafnarfirði núna fyrir stuttu er nýja
útlitið sem kemur svo seinna til með
að tengjast Borgarlínunni. Heildar-
upplýsingagjöf Strætó, og seinna
Borgarlínunnar, verður einmitt
svona. Þetta er alveg nýtt útlit og ný
hugsun að öllu leyti,“ segir hann og
bendir á að í Bókasafni Kópavogs
megi nú sjá sýningu sem gengur út á
það að sýna hvað Borgarlínan er.
„Á þeirri sýningu erum við að
sýna framtíðina og hvernig þetta
verður, en hluti af þeirri framtíð er
nú kominn inn í Strætó,“ segir hann
og bætir við að sýningin sé opin til 3.
ágúst.
Úti á
stoppistöð
Upplýsingahönnun er það skemmtilegasta sem
Hörður Lárusson veit. Hönnunarstofa hans
Kolofon hefur hannað alveg nýtt útlit fyrir
Strætó sem seinna mun nýtast Borgarlínunni.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Á myndinni má sjá nýja útlitið sem
Hörður hefur hannað fyrir upplýs-
ingaramma strætóskýlanna.
Hér má sjá kort af fyrirhugaðri Borgarlínu um borgina.
Hörður Lárusson hefur
hannað nýtt upplýsinga-
kerfi fyrir Strætó sem mun
koma sér vel verði Borgar-
línan að veruleika.
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020
LÍFSSTÍLL
VIÐSKIPTA
Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og
efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður
ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar
hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi.
Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru
í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum
hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is
VIÐSKIPTAPÚLSINN
VIÐSKIPTAPÚLSINN
NÝTTU
TÍMANN OG
FYLGSTU MEÐ