Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020
LESBÓK
Fyrir
líkama
og sál
L augarnar í Reykjaví k
w w w. i t r. i s
LEÐURBLÖKUR Michael Keaton mun snúa aftur sem Leð-
urblökumaðurinn Bruce Wayne í nýrri mynd um ofurhetjuna
Flash sem áætlað er að komi út árið 2022. Keaton lék Bruce
Wayne í tveimur myndum fyrir hartnær 30 árum. Fyrst var það
Batman 1989 og þremur árum síðar Batman Returns. Mun myndin
fylgja eftir þeim tveimur myndum er varða leðurblökuna. Glöggir
lesendur furða sig líklega á þessu en í vinnslu er einmitt
kvikmynd um Leðurblökumanninn þar sem Robert Patt-
inson mun túlka Bruce Wayne í mynd frá sama framleið-
anda, DC. Ku skýringin vera sú að fyrirtækið ætli að not-
ast við þrjá mismunandi söguþræði þar sem Leður-
blökumaðurinn er leikinn af ólíkum leikurum í hverjum
þeirra. Í þeim þriðja mun Ben Affleck taka upp þráðinn
frá því í Justice League-myndinni sem Bruce Wayne.
Snýr aftur eftir 30 ár
SHERLOCK Dánarbú rithöfundarins Arthur
Conan Doyle hefur stefnt streymisveitunni Net-
flix fyrir brot á höfundarrétti. Tilefnið er kvik-
myndin Enola Holmes þar sem einkaspæjarinn
Sherlock Holmes er tilfinninganæmur og sýnir
konum virðingu. Myndin, með Billie Bobby
Brown í aðalhlutverki, byggist á skáldsögum
Nancy Springer þar sem Holmes á yngri systur.
Fyrri dómur kveður á um að fyrstu skáldsögur
Doyle um spæjarann séu ekki háðar höfund-
arrétti. Í kærunni segir hins vegar að hann
hafi ekki látið í ljós tilfinningar sínar og látið
af kvenfyrirlitningu fyrr en í síðustu 10
skáldsögum Doyle.
Eiga rétt á tilfinningaríkum Sherlock
Conan Doyle er höfundur Sherlock bókanna.
sársaukafullt að
sjá eitthvað sem
þú vannst að í
fimm ár verða
breytt á fimm
sekúndum. Ég
vildi þess vegna
sjá hvort ég gæti
skrifað bók.“
Bókin sem um ræðir, Þögli sjúkling-
urinn, kom út á ensku í febrúar á síð-
asta ári og fór beint á topp metsölu-
lista New York Times og varð næst-
mest selda skáldsagan á Amazon árið
2019. Hún kom út á íslensku á dög-
unum en það er Útgáfan sem gefur út.
Kvikmynd með tvo titla
Alex fæddist á Kýpur árið 1977 og
bjó þar fyrstu 18 ár ævinnar. Móðir
Alex Michaelides var við þaðað gefast upp á ferli sínumsem rithöfundur. Hann
hafði skrifað handrit að þremur
myndum sem voru gerðar, tvær
þeirra komu út, önnur þeirra fór í
kvikmyndahús. Báðar gengu illa þó
úrval leikara hafi tekið þátt.
„Árin voru að líða hjá en mér
fannst ég ekki komast neitt áfram,“
segir Alex. „Í kvikmyndum eru svo
margir sem koma að verkefninu, svo
margt getur farið úrskeiðis og ég sá
það gerast aftur og aftur.“
Síðasta atlaga Alex að rithöfundar-
draumnum var að skrifa sína fyrstu
skáldsögu. Þar gæti hann verið undir
stjórn. „Þegar þú ert rithöfundur á
kvikmyndasetti ertu minnst mikil-
væga manneskjan. Það var því mjög
hans er ensk og faðir hans frá Kýp-
ur. Frá Kýpur fór hann til Cam-
bridge og lagði stund á enskar bók-
menntir. „Ég ætlaði alltaf að verða
skáldsagnahöfundur en missti ein-
beitinguna við það því ég elska leik-
hús og kvikmyndir auk þess sem það
er nokkuð einmanalegt að skrifa
bækur. Í kvikmyndum vinnurðu með
fullt af fólki og það er mjög gaman.“
Hann skrifaði handrit að mynd
þegar hann var 21 árs sem var
framleidd en kom aldrei út því „hún
var ekki mjög góð,“ eins og Alex
orðar það. Hann lærði síðan hand-
ritsskrif í American Film Institude.
Hann skrifaði handrit að mynd-
unum The Devil You Know, sem
Rosamund Pike og Jennifer Law-
rence léku í, og The Con is On, með
þeim Uma Thurman og Tim Roth.
Síðarnefnda myndin var upphaflega
titluð The Brits Are Coming. „Þegar
mynd er með tvo titla veistu að hún
verður hörmuleg,“ segir Alex og hlær.
„Ég fann að ég þurfti að gera eitt-
hvað öðruvísi eða gefast upp,“ segir
hann. „Þetta var erfiður tími.“ Hann
ákvað að reyna fyrir sér í bókaskrif-
um sem hliðarverkefni og tóku skrif-
in um fimm ár.
Vann á geðdeild
Þögli sjúklingurinn fjallar um Alicia
Berenson sem lifir að því er virðist
fullkomnu lífi þar til hún skýtur eig-
inmann sinn fimm sinnum í höfuðið á
heimili þeirra í London. Eftir at-
burðinn segir hún ekki nokkurt orð
og er þess vegna dæmd geðveik og
gert að dvelja á geðsjúkrahúsinu
Lundi. Sálmeðferðarfræðingurinn
Theo Faber vill komast til botns í
málinu og færir sig því frá Broad-
moor-geðsjúkrahúsinu til Lundar.
Rétt eftir þrítugt fór Alex í skóla
og ætlaði að verða sálmeðferðar-
fræðingur. „Ég útskrifaðist ekki því
ég er of sjálfselskur til að vera með-
ferðaraðili; ég verð alltaf rithöfundur.
En ég vann á geðdeild fyrir unglinga
í tvö ár. Og það var mögnuð lífs-
reynsla því ég kynntist fólki með
miklu alvarlegri vandamál en ég
sjálfur. Það var mjög gott fyrir mig.“
Alex þurfti því ekki að fara í mikla
undirbúningsvinnu fyrir skrif bókar-
innar. „Það hefði tekið mig nokkur
ár að undirbúa skrifin byggi ég ekki
yfir minni reynslu,“ segir hann. Fyr-
ir utan námið og vinnuna þurfti Alex
sjálfur á sálmeðferð að halda í um tíu
ár sem ungur maður. „Það var stór
hluti lífs míns í langan tíma.“
Óendurgoldin ást og vanræksla er
meginþema í Þögla sjúklingnum.
Rithöfundurinn Agatha Christie og
glæpasögur hennar höfðu mikil áhrif
á Alex. „Ég vildi skrifa bók eins og
hún hefði skrifað ef hún hefði mína
lífsreynslu. Ég vildi blanda sögu-
þræði bóka hennar við dýpri og
dimmari tilfinningar. Það var það
sem ég hugsaði í hvert skipti sem ég
tapaði þræðinum í skrifunum.“
Hann telur vinsældir bókarinnar
stafa af þessari blöndu. „Mér hefur
verið sagt aftur og aftur af fólki sem
les vanalega ekki spennusögur að
því hafi líkað bókin. Því hún er ekki
bara spennusaga heldur líka sál-
fræðilegs eðlis.“
Af hverju talar hún ekki?
Alex þekkir vel til grískrar goða-
fræði og spilar leikritið Alkestis
„Fannst ég ekkert
komast áfram“
Sálfræðitryllirinn Þögli sjúklingurinn hefur notið mikilla vinsælda um allan
heim síðan bókin kom út í febrúar í fyrra. Höfundurinn, Alex Michaelides,
var misheppnaður kvikmyndahandritshöfundur þar til bókin kom út.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
AFP
Michael
Keaton
mætir aftur
sem Bruce
Wayne.