Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 29
stóra rullu í sögunni um Þögla sjúk-
linginn. „Á Kýpur, þar sem ég ólst
upp, er grísk goðafræði mjög áber-
andi. Manni eru kennd grísk leikrit
og kvæði Hómers á sama hátt og
leikrit Shakespeare eru kennd á
Englandi. Þannig að maður elst upp
meðvitaður um goðsagnirnar,“ segir
hann.
„Ég komst fyrst í kynni við Al-
kestis þegar ég var 13 ára, minnir
mig, í skóla. Það greip ímyndunarafl
mitt. Þessi hugmynd um að kona
deyi fyrir eiginmann sinn, komi svo
aftur til lífsins en tali ekki.“ Í leikrit-
inu fórnar karl eiginkonu sinni svo
hann geti lifað. Það endar á því að
hún er vakin upp frá dauðum en tal-
ar aldrei framar.
„Að það sé engin skýring gefin á
því af hverju hún talar ekki; ég hugs-
aði hvað þetta væri skrítin leið til að
enda leikrit. Ég reyndi að skrifa
þetta sem stuttmynd og svo sem
leikrit. Svo mörgum árum seinna,
þegar ég hafði unnið á geðdeild,
hugsaði ég: „Hvað ef ég gæti sett
söguna upp á geðdeild?““
Að fylgja hjartanu
Vinsældir bókarinnar hafa verið
framar öllum vonum Alex og breytt
lífi hans til hins betra. „En við skrif
fyrstu bókarinnar var engin pressa
því enginn vildi lesa bókina mína. Ég
gat þess vegna eytt eins miklum
tíma og ég vildi í skrifin,“ segir hann
kíminn. Nú sé hann með skilafrest á
næstu bók. „Það er auðvelt fyrir mig
að verða stressaður og hafa áhyggj-
ur af bókinni.“
Hann segir málið þó ekki snúast
um vinsældir eða bókadóma heldur
vill hann ekki bregðast þeim sem
stóla á að hann skili þeim bók á rétt-
um tíma. „Eina sem ég get þó gert er
að gera eins vel og ég get.“
Alex finnst árangurinn enn vera
óraunverulegur. „Stundum líður
mér eins og þetta sé ekki að koma
fyrir mig. Þetta er stundum svolítið
skrítið. Þegar bókin kom út bjóst ég
ekki einu sinni við að hún kæmist á
metsölulista. Ég held að útgefend-
urnir í New York hafi fundið að það
var mikill áhugi en vildu ekki segja
mér frá því. Þegar þeir hringdu og
sögðu að bókin væri efst á metsölu-
listanum hélt ég að þeir væru að
grínast.“
Bókin hefur verið seld í 48 löndum
og Alex beðinn um að skrifa nokkrar
í viðbót. „Það er ótrúlegt að þetta
hafi gerst í kjölfar einhvers sem var
gert til að bjarga ferlinum.“
Hann hefur lært mikilvæga lexíu í
ferlinu. „Það var alltaf lítil rödd í
hausnum á mér sem sagði að þetta
væri það sem ég ætti að vera að gera
en ég hunsaði hana í 30 ár. Ég held
að þetta kenni manni að fylgja hjart-
anu.“
Súrsæt tilfinning
Framleiðslufyrirtækin Plan B, sem
meðal annars er í eigu Brads Pitt, og
Annapurna Pictures hafa tryggt sér
réttinn að kvikmynd um Þögla sjúk-
linginn. Þau unnu saman að Óskars-
verðlaunamyndinni Vice meðal ann-
ars. Alex mun ekki skrifa handritið.
„Ég hafði unnið fimm ár að bók-
inni og ég vildi ekki eyða öðrum
fimm árum í vinnu á handriti fyrir
myndina. Ég hef ekki jafn mikinn
áhuga og ég hafði á þessu sviði.“
Uppboð fór fram á kvikmynda-
réttinum. „Allt í einu voru fram-
leiðendur úr Hollywood að reyna
að hringja í mig seint á kvöldin. Það
var skrítin og súrsæt tilfinning því
ég hafði reynt að hitta þá í 20 ár. Þá
vildu þeir ekki hitta mig en nú vildu
þeir það allir. Ég er ánægður að
þetta kom fyrir mig núna, orðinn
fertugur, en ekki um tvítugt.“
Alex var alltaf ætlað að skrifa
bækur, ekki handrit. „Vinur minn
sem er gagnrýnandi og las bókina og
sagði það augljóst að ég væri skáld-
sagnahöfundur en ekki handritshöf-
undur. Það sem hann meinti var að
ég er betri í að gægjast inn í huga
einhvers heldur en að setja upp at-
riði. Ég nýt þess mjög að skoða
hugsanir fólks í skrifum mínum en
það gerist nánast aldrei í kvikmynd-
um.“
Alex Michaelides var far-
inn að halda að ekkert
yrði úr ferli hans sem rit-
höfundur þegar hann hóf
skrif á Þögla sjúklingnum.
Ljósmynd/Andrew Hayes-Watkins
28.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
ER PLANIÐ SKÍTUGT?
Fáðu tilboð í s: 577 5757
GÖTUSÓPUN
ÞVOTTUR
MÁLUN
www.gamafelagid.is
KRÚNULEIKAR Aðdáendur bóka-
raðarinnar Söngur um ís og eld,
sem Game of Thrones-þættirnir
byggðust á, geta farið að vænta
sjöttu bókarinnar í röðinni. Höf-
undur bókanna, George R.R. Mart-
in, sagði á „ekki bloggsíðu“ sinni að
hann væri vel á veg kominn með
næstu bók, The Winds of Winter.
Hann segist vonast til að bókin
verði kláruð á næsta ári en sú síð-
asta kom út árið 2011. „Þetta verð-
ur risastór bók, ég á langa leið fyrir
höndum,“ sagði Martin.
Ný bók loksins væntanleg
Martin hefur skrifað mikið í kófinu.
BÓKSALA 17.-23. JÚNÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Vegahandbókin 2020 Steindór Steindórsson o.fl.
2
Kennarinn sem hvarf
sporlaust
Bergrún Íris Sævarsdóttir
3 Tíbrá Ármann Jakobsson
4 Þögli sjúklingurinn Alex Michaelides
5 Dauðar sálir Angela Marsons
6 Dóttirin Anne B. Ragde
7
Handbók fyrir ofurhetjur 5
– horfin
Elias/Agnes Vahlund
8 Á byrjunarreit Lee Child
9 Ógnarhiti Jane Harper
10 Þess vegna sofum við Matthew Walker
1 Þögn Yrsa Sigurðardóttir
2 Íslandsklukkan Halldór Laxness
3 Hvítidauði Ragnar Jónasson
4 Stelpur sem ljúga Eva Björg Ægisdóttir
5 Útlagamorðin Ármann Jakobsson
6 Kokkáll Dóri DNA
7 Sjálfstætt fólk Halldór Laxness
8 Þorpið Ragnar Jónasson
9 Urðarköttur Ármann Jakobsson
10
Vegurinn heim lengist
með hverjum morgni
Fredrik Backman
Allar bækur
Innbundin skáldverk
Ég hef alltaf lesið mikið af skáld-
sögum og lengi vel voru glæpa-
sögur efstar á lista en í dag
finnst mér skemmtilegast að
lesa um allskonar fólk og þau
verkefni sem það glímir við í líf-
inu. Ég er í leshóp sem hittist
mánaðarlega og við lesum alltaf
eina bók sem við ræðum en við
ræðum líka bækur sem við höf-
um lesið áður eða erum að lesa.
Það er hvetjandi að hitta aðra
lesara og hefur orðið til þess að
ég hef lesið bækur sem mér
hefði aldrei dottið í hug að
glugga í. Það hefur líka gerst að
ég hef mætt og fundist bókin
sem verið er að lesa leiðinleg
eða óáhugaverð en eftir um-
ræðu kvöldsins les-
ið hana aftur og
upplifað hana á
allt annan hátt.
Ég las nokkrar
góðar í samkomu-
banninu. Eina
þeirra, Sjö dagar
eftir Franchesca
Hornak, var sér-
staklega viðeigandi að lesa í
miðjum kórónuveirufaraldri því
hún segir frá hjónum á miðjum
aldri sem kjósa að vera með
dætrum sínum í sjö daga sóttkví.
Önnur þeirra er læknir, nýkomin
frá Afríku, þar
sem hin skæða og
bráðsmitandi
Haag-veira geisar.
Einangrunin reyn-
ir á og í ljós kem-
ur að ýmislegt
kraumar undir yf-
irborðinu.
Að vetrarlagi
eftir Isabel Allende er dásamleg
lesning um þrjár ólíkar mann-
eskjur frá Bandaríkjunum, Chile
og Gvatemala sem tengjast fyrir
tilviljun. Á meðan þau vinna
saman að því að losa sig við lík
sem fannst í skottinu á bíl eins
þeirra kynnumst við uppvexti
þeirra og ævi. Sagan tekur á inn-
flytjendamálum, mannréttindum
og mannlegri
reisn.
Húðflúrarinn í
Auschwitz eftir
Heather Morris
er byggð á raun-
verulegri sögu sló-
vakísks gyðings
sem fékk það
hlutverk í fanga-
búðunum að húðflúra samfanga
sína með númerunum sem þeim
voru gefin þegar þeir komu í
fangabúðirnar í Auschwitz.
Hræðileg en samt
svo falleg saga af
samkennd, sam-
hjálp, vænt-
umþykju og ást
við ógeðfelldar að-
stæður.
Núna er ég með
tvær góðar á nátt-
borðinu; smásög-
urnar Vetrargulrætur eftir
Rögnu Sigurðardóttur sem lofar
góðu og Fólk í
angist eftir Fre-
drik Backman en
bækur hans eru í
miklu uppáhaldi
hjá mér. Ég get
ekki gert upp á
milli bókanna
hans sem komið
hafa út á íslensku
og hlakka til að lesa þessa.
UNNUR ÓLÖF GUNNARSDÓTTIR
Gott að vera í leshóp
Unnur er sér-
kennslustjóri.