Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2020
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
08.00 Strumparnir
08.20 Blíða og Blær
08.45 Dóra og vinir
09.05 Mæja býfluga
09.20 Adda klóka
09.45 Zigby
09.55 Mia og ég
10.20 Lína langsokkur
10.45 Latibær
11.05 Lukku láki
11.30 Ævintýri Tinna
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.05 Nágrannar
13.25 Nágrannar
13.45 Friends
14.10 Friends
14.30 Friends
14.55 Katy Keene
15.40 Áttavillt
16.05 BBQ kóngurinn
16.40 60 Minutes
17.40 Víglínan
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.47 Sportpakkinn
19.00 Samkoma
19.25 Nostalgía
19.55 Vitsmunaverur
20.25 Rebecka Martinsson
21.15 Prodigal Son
22.00 Pennyworth
22.55 Queen Sugar
23.40 The Nest
00.40 Grantchester
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Uppskrift að góðum
degi á Norðurlandi
eystra
20.30 Eitt og annað úr Gríms-
ey
Endurt. allan sólarhr.
15.30 Charles Stanley
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
20.00 Mannamál (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.00 Helgarviðtalið
21.30 Bærinn minn (e)
Endurt. allan sólarhr.
11.30 Dr. Phil
11.30 The Voice US
13.00 The Bachelorette
14.25 Carol’s Second Act
16.05 Survivor
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves Ray-
mond
17.35 Dr. Phil
17.35 A Million Little Things
18.20 This Is Us
19.05 Með Loga
20.00 The Block
21.20 Madam Secretary
22.10 Godfather of Harlem
23.10 City on a Hill
06.55 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Kefla-
víkurprestakalli.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Bítlatíminn.
15.00 Glans.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sumartónleikar.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Raunir, víti og happ.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Tulipop
07.19 Molang
07.23 Húrra fyrir Kela
07.46 Hrúturinn Hreinn
07.53 Bréfabær
08.04 Lalli
08.11 Stuðboltarnir
08.22 Konráð og Baldur
08.35 Nellý og Nóra
08.42 Robbi og Skrímsli
08.52 Hæ Sámur
09.04 Múmínálfarnir
09.26 Ronja ræningjadóttir
09.47 Sammi brunavörður
09.55 Þvegill og skrúbbur
10.00 Herra Bean
10.25 Söngvaskáld
11.15 Fólkið í blokkinni
11.45 Músíkmolar
12.00 Aukafréttatími: Úrslit
forsetakosninga
12.15 Djók í Reykjavík
12.45 Rjómi
13.45 Menningin – samantekt
14.10 Átta raddir
14.55 Unga Ísland
15.25 Garn
16.45 Veröld sem var
17.15 Draugagangur
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Matarmenning – Gin
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.40 Sumarlandinn
20.15 Þegiðu og syntu
21.30 Músíkmolar
21.40 Viktoría
22.30 Framúrskarandi vin-
kona: Saga af nýju
ættarnafni
23.30 Maximilian og María af
Búrgund
13 til 16 Pétur Guðjóns Góð tónlist og létt spjall á
sunnudegi.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með DJ Dóru Júlíu
Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir vinsæl-
ustu lög landsins á K100. Tónlistinn er eini opinberi
vinsældalisti landsins, unninn upp úr gögnum frá Fé-
lagi hljómplötuframleiðanda.
18 til 00 K100 tónlist Besta blandan af tónlist á
K100 í allt kvöld.
DJ Dóra Júlía talaði um
hinn 7 ára gamla lestr-
arhest Bryan Rumfelt í
Ljósa punktinum á
K100 fyrir helgi. Bryan
sem er búsettur í
Brooklyn hefur undan-
farið haft ánægju af því
að lesa bækur fyrir
krakka sem missa af
sögustund í skóla sín-
um. Skólar í Bandaríkj-
unum hafa nú verið lok-
aðir lengi og þótti Bryan sorglegt að hugsa til þess að
svo margir krakkar misstu af upplestri á skemmti-
legum sögum. Greint er frá þessu á fréttavef Yahoo.
DJ Dóra Júlía finnur ljósa punktinn í tilverunni og
flytur góðar fréttir reglulega yfir daginn í útvarpinu og
á K100.is.
7 ára lestrarhestur leiðir
börn í heim ævintýranna
Lopburi. AFP. | Makakíapar ráða nú
lögum og lofum í bænum Lopburi í
Taílandi og íbúar hafa lokað sig inni.
Aparnir kljást á götum úti og fólk er
varað við að vera á ferli á tilteknum
stöðum í bænum. Sagt er að aparnir
fái kraft úr ruslfæði og fjölgi sér
stjórnlaust.
Kuljira Taechawattanawanna
bendir á net yfir svölum heimilis síns
og kvartar undan apaplágunni í
hjarta bæjarins, sem er frá þrett-
ándu öld og er í samnefndu héraði.
„Við lifum í búri en aparnir lifa utan
þess,“ sagði hún við AFP. „Apaskít-
urinn er alls staðar, lyktin er óbæri-
leg, sérstaklega þegar rignir.“
Prímatarnir eru óttalausir og fara
sínu fram á götunum í kringum
Prang Sam Yod-hofið í miðbæ Lop-
buri. Þeir halda eftirlit ofan á múr-
veggjum og rífa gúmmíeinangrun af
hurðum bíla.
Íbúar bæjarins hafa reynt að um-
bera apana vegna þess að þeir hafa
laðað fjölda ferðalanga þangað og
var vinsælt að fóðra þá og taka sjálf-
ur með þeim. Nú eru ferðamennirnir
hins vegar horfnir vegna kórónu-
veirufaraldursins. Um leið hurfu
bananarnir sem ferðamennirnir
hentu til apanna. Við það breyttist
hegðun þeirra og þeir urðu ofbeldis-
fullir. Taílensk stjórnvöld hafa nú
hafið herferð til að vana apana.
Myndskeið af mörg hundruð öpum
að slást um mat fóru sem eldur í sinu
um félagsmiðla á netinu í mars.
Á þremur árum hefur fjöldi þeirra
tvöfaldast í bænum og þeir eru nú
sex þúsund. Sambúð þeirra við
mennina er orðin nánast óbærileg og
sums staðar hafa þeir einfaldlega
tekið völdin í bænum.
Makakíaparnir hafa gert sér
höfuðstöðvar í yfirgefnu kvikmynda-
húsi. Í sýningarherberginu eru
dauðir apar lagðir til hinstu hvílu.
Reyni maður að komast þangað inn
ráðast aparnir á hann.
Enginn í Lopburi virðist muna þá
tíma að þar hafi ekki verið neinir ap-
ar. Sumir leiða getum að því að þeg-
ar borgin stækkaði hafi skógar-
heimkynnum apanna verið raskað.
Þeir hafi þá fundið athvarf í borg-
inni.
Borgarbúar hafa fóðrað apana til
að koma í veg fyrir átök milli þeirra.
Sumir segja hins vegar að blanda af
sykruðum drykkjum og sætindum
hafi kynnt undir kynhvöt þeirra.
„Því meira sem þeir éta, þeim mun
meiri orku hafa þeir … og fjölga sér
hraðar,“ segir Pramod Ketampai,
sem hefur umsjón með helgidómum
umhverfis Prang Sam Yod-hofið.
Átök milli apanna urðu til þess að
yfirvöld ákváðu að gelda þá. Aparnir
eru lokkaðir með ávöxtum inn í búr
og teknir í dýraklíník þar sem þeir
eru deyfðir, sótthreinsaðir og van-
aðir. Síðan eru þeir merktir með
húðflúri til að það sjáist að þeir hafi
farið í aðgerðina. Í lok vikunnar átti
að vera búið að gelda 500 apa.
Ólíklegt er að það muni leiða af sér
fækkun meðal apanna og yfirvöld
eru með langtímaáætlun um að búa
þeim griðastað í borginni. Ekki er þó
víst að það muni vekja ánægju. Nar-
ongporn Daudduem, sem starfar fyr-
ir yfirvöld, segir að kanna þurfi hug
fólks á svæðinu fyrst: „Þetta er eins
og að henda rusli fyrir utan húsin hjá
fólki og spyrja hvort það sé ánægt.“
Ekki er þó öllum í nöp við apana.
Taweesak Srisaguan, verslunareig-
andi í Lopburi, segist vera vanur að
sjá þá fara um og leika sér á götunni.
„Ef þeir hyrfu allir yrði ég örugglega
einmana,“ segir hann.
Makakíapi klifrar upp á apastyttu
fyrir framan búddahofið Prag Sam
Yod í borginni Lopburi í Taílandi.
AFP
ÁGENGIR APAR Í LOPBURI Í TAÍLANDI
Leggja undir sig
heila borgarhluta
Api situr við hliðina á skilti með merkingunni „Varúð, apasvæði“ í Lopburi.
AFP