Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2020
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
L 206 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 70 Verð 369.000,-
L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 70 Verð 449.000,-
L 202 cm Leður ct. 25 Verð 669.000,-
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
L 224 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
„Samfélagið hér og vinir og ætt-
ingjar hafa safnað fyrir þessu
hjóli, vegna þess að Sjúkratrygg-
ingar Íslands niðurgreiða ekki hjól
fyrir fjölfötluð börn,“ segir Bryn-
dís Hafþórsdóttir, móðir Sig-
urbjörns Boga, átta ára fjölfatlaðs
drengs.
Hjólið kostaði 1,2 milljónir en
Sigurboginn, styrktarfélag Sig-
urbjörns Boga, hafði safnað fé með
áheitum úr Reykjavíkurmaraþoni.
„Svo tóku unglingarnir hér sig
saman og söfnuðu áheitum og þar
söfnuðust sjö hundruð þúsund
krónur sem fóru allar í að kaupa
hjólið.“
Bryndís segir að hjólið muni
koma til með að hjálpa og gleðja
Sigurbjörn Boga.
Hann hló og skríkti
„Hann elskar útiveru og með
þessu hjóli aukum við fjölbreytni
hans. Hann er í hjólastól allan
daginn og það er lítil fjölbreytni í
því. Á þessu hjóli er hann á palli
framan á, í sérstökum stól. Svo
hjólum við með hann og jafnvel
með litlu systur hans aftan á,“
segir hún.
Sigurbjörn Bogi prófaði að sjálf-
sögðu hjólið strax.
„Honum fannst mjög gaman.
Hann hló og skríkti,“ segir Bryn-
dís sem hlakkar til að hjóla með
Sigurbjörn Boga um götur Siglu-
fjarðar í sumar þar sem þau búa.
„Svo getur hann loks verið með
þegar skólinn fer með börnin í
hjólatúra eða útivistardaga, en
hingað til hefur hann alltaf setið
eftir. Þetta mun efla hann fé-
lagslega.“
Sigurbjörn Bogi, sem er fjölfatlaður, fékk nýlega sérhannað hjól og getur nú
farið í hjólatúra um Siglufjörð með móður sinni, Bryndísi Hafþórsdóttur.
„Þetta mun efla hann“
Sigurbjörn Bogi, átta ára Siglfirðingur, er alsæll með nýtt hjól.
Ljósmynd/Aðsend
Sú var tíðin að bensínverð var
háð duttlungum stjórnvalda og
olíufyrirtæki lutu ákvörðunum
verðlagsráðs. Í baksíðufrétt 22.
júní 1985 var greint frá því að
ráðið myndi að öllum líkindum
hækka verð á bensíni næsta
mánudag.
Hafði blaðið komist á snoðir
um að hækkunin yrði umtals-
verð. Jafnframt sagði að yfir-
völd hefðu haldið að sér hönd-
um og viljað bíða til að
hækkunin kæmi ekki beint ofan
í nýgerða kjarasamninga. Hins
vegar hefði beiðni olíufélaganna
um hækkun legið fyrir lengi.
Hækkunin tók svo gildi mið-
vikudaginn 26. júlí og nam
16,5%. Í fyrirsögn Morgunblaðs-
ins þann dag sagði að bens-
ínlítrinn kostað nú 31 kr. og 10
aura.
Nú er verð á eldsneyti mis-
jafnt eftir seljendum og legu
stöðvanna. Eitt hefur þó ekki
breyst þótt verðlagningin sé
ekki lengur í höndum verðlags-
ráðs. Í fréttinni kom fram að
hlutdeild ríkissjóðs í hverjum
bensínlítra yrði 57,5% og hefði í
mörg ár sveiflast á milli 56 og
59%. Enn er hlutdeildin rúmur
helmingur og var í apríl 57,5%
GAMLA FRÉTTIN
Verðlagsráð
ræður verði
Sú var tíðin að Verðlagsráð réð bensínverði. Bensínstöð við Ægisíðu.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Jeff Lowe,
tígrísdýratemjari
Magnús Sigmundsson,
tónlistarmaður
Peter Gabriel,
tónlistarmaður