Morgunblaðið - 16.07.2020, Qupperneq 59
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
©2019 Disney/Pixar
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Hörkuspennandi þriller byggð á sögu
eftir Lizu Marklund og James Patterson
Sýndmeð
íslensku tali
Í TILEFNI AF 40 ÁRA AFMÆLI
FRÁBÆR NÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
90% Variety
Matthías Harðarson leikur á Klais-
orgel Hallgrímskirkju á fjórðu
tónleikum tónlistarhátíðarinnar
Orgelsumars 2020 í hádeginu í
dag, fimmtudag, kl. 12.30. Á efn-
isskánni eru Prelúdía og fúga í a-
moll eftir J.S. Bach, Suite du
Deuxième Ton eftir Clérambault
og Kóral nr. III eftir C. Franck.
Matthías Harðarson hóf píanó-
nám tíu ára gamall við Tónlistar-
skólann í Vestmannaeyjum. Hann
hefur lokið kirkjuorganistaprófi
frá Tónskóla þjóðkirkjunnar og
hefur nú nýlokið kantorsprófi sem
og BA-námi við Listaháskóla Ís-
lands. Þar lærði hann orgelleik
hjá Birni Steinari Sólbergssyni,
kórstjórn hjá Magnúsi Ragnars-
syni og litúrgískan orgelleik hjá
Guðnýju Einarsdóttur, Eyþóri
Inga Jónssyni og Láru Bryndísi
Eggertsdóttur.
Organistinn Matthías Harðarson.
Matthías leikur
á Klais-orgelið
Lokahátíð list-
hópa og Götu-
leikhúss Hins
Hússins fer fram
í dag, fimmtu-
dag. Verða list-
hóparnir, sem
eru 17 talsins,
ásamt Götuleik-
húsinu í mið-
borginni frá
Frakkastíg að
Lækjartorgi milli kl. 16 og 18 með
Vængjaslátt sem er lokasýning
sumarsins. Er fólk hvatt í tilkynn-
ingu til að „gera sér bæjarferð og
eiga stefnumót við listgyðjuna“ en
unga fólkið hefur unnið að verk-
efnum sínum „hörðum en ham-
ingjusömum höndum“.
Lokahátíð listhópa
og Götuleikhúss
Frá sýningu Götu-
leikhússins.
» Hin árlega tónlistarhátíð Hjarta Hafn-arfjarðar hófst á þriðjudag og stendur
fram á föstudagskvöld. Hljómsveitin Manna-
korn reið á vaðið með tónleika í Bæjarbíói þá
um kvöldið, fyrir fullu húsi, og var tónleik-
unum jafnframt streymt í tjaldi á Mathiesen-
torgi svo fleiri gætu notið. Magnús Eiríksson,
Pálmi Gunnarsson og Ellen Kristjánsdóttir
leiddu Mannakorn, eins og þau hafa gert ára-
tugum saman, og nutu tónleikagestir þess að
heyra sveitina flytja mörg dáð dægurlög sem
Magnús hefur samið og lifa með þjóðinni.
Mannakorn lék í Bæjarbíói á hátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar
Hljómsveitin Feðgarnir Stefán og Magnús Eiríksson leika á gítara, Pálmi Gunnarsson á bassa og syngur og Ellen Kristjánsdóttir syngur af list fyrir gesti.
Aðdáendur Bæjarbíó var þétt skipað gestum sem margir hljóta að hafa
hlýtt á sívinsælar dægurperlur Mannakorna í allt að fjóra áratugi.
Hátíðargestir Meðan tónleikarnir fóru fram í Bæjarbíói söfnuðust hátíðar-
gestir saman í tjaldi fyrir utan, hlýddu á tónlistina og spjölluðu.
Forsprakkar Magnús Eiríksson, gítarleikari og lagahöfundur, og Pálmi
Gunnarsson bassaleikari hafa leitt Mannkorn frá upphafi.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson