Morgunblaðið - 28.07.2020, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.07.2020, Blaðsíða 9
Bílaapótek Lyfsalinn hefur opnað bílaapótek við Vesturlandsveg. Lyfsalinn hefur opnað nýtt apótek við hlið Orkunnar við Vesturlands- veg. Um er að ræða hefðbundið apótek en með fjórum bílalúgum, auk þess sem þeir sem það vilja geta komið inn, að því er fram kem- ur í tilkynningu frá Lyfsalanum. Viðskiptavinir Lyfsalans geta nálgast þarna lyfin sín, eða aðrar vörur, frá kl. 10 á morgnana til 10 á kvöldin, alla daga vikunnar. Apótek Lyfsalans í Glæsibæ er áfram opið frá 8.30 til 18 virka daga. Af þessu tilefni eru opnunartilboð í gangi, bæði í Glæsibæ og í bíla- apótekinu til miðvikudagsins 29. júlí. Þetta er annað bílaapótekið sem starfandi er á höfuðborgarsvæðinu en fyrir var Lyfjaval með slíka þjónustu við Hæðarsmára í Kópa- vogi, við Reykjanesbrautina. Bílaapótek komið við Vesturlandsveg  Lyfsalinn starfar við hlið Orkunnar FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 2020 Við Fellsmúla | Sími: 585 2888 ÚRVAL ÚTILJÓSA Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Tekist var á fyrir yfirskattanefnd um hvort enduráætlun ríkisskattstjóra teldist lögum samkvæm. Einkahluta- félag sem skipti um hendur hafði 50- faldast í virði á tveimur dögum. Í úrskurði yfirskattanefndar frá 8. júlí sl. er rakið mál einstaklings sem átti helmingshlut í litlu ferðaþjón- ustufyrirtæki. Í kaupsamningi dag- settum 6. febrúar 2014 var hlutur mannsins seldur til annars félags í hans eigu á 250 þúsund krónur. Degi síðar var sami hlutur seldur til ótengdra aðila á 12,5 milljónir. Í kjöl- farið fór ríkisskattstjóri fram á skýr- ingar á því hvers vegna hluturinn hafði hækkað svo mikið á jafn stutt- um tíma. Ótrúverðugar skýringar Í svari til skattstjóra kom m.a. fram að félagið hefði ekki átt neinar efnislegar eignir heldur hefðu verð- mætin falist í „vinnuframlagi og per- sónu“ eiganda félagsins. Skömmu eftir söluna hefðu fjársterkir aðilar verið að kaupa upp ferðaþjónustu- fyrirtæki hér á landi, sem hefði verið „ófyrirséður vendipunktur“ en félag- ið hefði við þetta „hagnast ágæt- lega“. Í umsókn ríkisskattstjóra segir m.a. að söluverð hlutabréfanna sé „afar tortryggilegt og óeðlilega hátt“ og „ekki í neinu samræmi við raun- verulegt verðmæti félagsins“. Taldi skattstjóri að tilgangurinn með við- skiptunum hefði fyrst og fremst ver- ið skattalegur ávinningur til að kom- ast undan söluhagnaði og greiðslum fjármagnstekjuskatts. Þar sem um málamyndagerning væri að ræða var skattstofn enduráætlaður í rúmar 12 milljónir. Yfirskattanefnd staðfesti ákvörð- un ríkisskattsjóra, þó með lækkun skattstofns í tæpar 11,4 milljónir vegna frádráttarbærra útgjalda. 50-föld verð- mætaaukning  Yfirskattanefnd hafnar útskýringum Morgunblaðið/sisi Skatturinn Yfirskattanefnd stað- festir úrskurð ríkisskattstjóra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.