Morgunblaðið - 28.07.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 28.07.2020, Blaðsíða 27
Morgunblaði/Arnþór Birkisson Árbær Hákon Ingi Jónsson framherji Fylkis skýlir boltanum frá Guðmundi Þór Júlíussyni, miðverði HK-inga, í leiknum í gærkvöld. FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Valsmenn verða á toppi Pepsi Max- deildar karla framyfir verslunar- mannahelgina hið minnsta eftir að þeir lögðu botnlið Fjölnis að velli, 3:1, í Grafarvogi í gærkvöld. KR og Stjarnan hafa þó tapað færri stigum en Hlíðarendaliðið. Óhætt er að segja að Valsmenn hafi tekið við sér eftir skellinn gegn Skagamönnum, 1:4, í fjórðu umferð því í fimm leikjum eftir það hafa þeir fengið 13 stig og skorað þrettán mörk gegn þremur. „Valur er með 19 stig í toppsætinu eftir níu leiki. Þegar liðið hafði leikið níu leiki síðasta sumar var liðið að- eins með sjö stig og í fallsæti. Það er því allt annað að sjá Valsmenn en á sama tíma á síðasta tímabili og er Heimir Guðjónsson greinilega byrj- aður að ná til sinna leikmanna,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. um leikinn á mbl.is. Fjölnismenn sitja hinsvegar sem fastast á botninum og eru enn án sigurs eftir níu umferðir en þeir hafa ekki enn fengið stig á heima- velli.  Patrick Pedersen lék ekki með Val vegna meiðsla í baki sem hann varð fyrir gegn Fylki og Sigurður Egill Lárusson tók stöðu hans sem fremsti maður. Sigurður innsiglaði sigur Vals með glæsilegu þriðja marki liðsins.  Hinn 19 ára gamli Jóhann Árni Gunnarsson er markahæstur Fjöln- ismanna í deildinni í sumar með þrjú mörk en hann minnkaði muninn í 1:2.  Ingibergur Kort Sigurðsson sóknarmaður Fjölnis fékk rauða spjaldið og verður í banni gegn ÍA í næstu umferð. Víkingarnir voru líklegri Stjörnumenn eru áfram ósigraðir en urðu að sætta sig við jafntefli á heimavelli í hörkuleik gegn Víkingi, 1:1. Þeir eiga erfiðan ágústmánuð fyrir höndum þar sem þeir munu spila tvo af þeim þremur leikjum sem frestað var hjá þeim fyrr í sum- ar. En staða liðsins er góð eftir þessa fyrstu sex leiki. „Á heildina litið var jafntefli nokk- uð sanngjörn niðurstaða en Víkingar voru þó líklegri í síðari hálfleik. Þeir áttu fleiri sóknarlotur en voru ekki nógu beittir og hugmyndaríkir til að skapa sér dauðafæri gegn Garðbæ- ingum sem kunna að verjast eins og dæmin sanna. Víkingar fengu til dæmis fimmtán hornspyrnur í leikn- um,“ skrifaði Kristján Jónsson m.a. um leikinn á mbl.is.  Hilmar Árni Halldórsson kom Stjörnunni yfir með sínu 52. marki í efstu deild og því fyrsta síðan í fyrstu umferð deildarinnar.  Óttar Magnús Karlsson skoraði sitt 20. mark í efstu deild þegar hann jafnaði fyrir Víking úr víta- spyrnu. Hann er sjötti leikmaðurinn sem nær þeim markafjölda fyrir Víking í deildinni og er næst- markahæstur í deildinni í sumar með átta mörk. Ósigraðir en ekki sannfærandi FH-ingar eru komnir með sjö stig í þremur leikjum eftir þjálfara- skiptin en þeir máttu þó hafa mikið fyrir því að vinna nýliða Gróttu 2:1 í Kaplakrika. Þessi félög höfðu aldrei áður mæst í deildakeppni meistara- flokks karla. „Það hlýtur að vera áhyggjuefni hversu illa FH-liðið hefur spilað í síðustu leikjum. Þeir eru nú ósigr- aðir í leikjunum sínum þremur undir stjórn Loga Ólafssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen en hafa varla verið sannfærandi, nema kannski í þarsíðustu umferð gegn Fjölni. FH- ingar virðast spila sem einstaklingar frekar en lið og ótrúlegt er að horfa upp á Steven Lennon, einn besta framherja Íslandsmótsins, komast varla í boltann leik eftir leik,“ skrif- aði Kristófer Kristjánsson m.a. um leikinn á mbl.is.  Steven Lennon náði Skagagoð- sögninni Ríkharði Jónssyni þegar hann skoraði sigurmark FH, mínútu eftir að Seltirningar höfðu jafnað metin með sjálfsmarki Hafnfirðing- anna. Þetta var 78. mark Lennons í deildinni, fyrir FH og Fram, en Rík- harður skoraði 78 mörk fyrir ÍA og Fram á sínum tíma. Lennon og Rík- harður deila nú 13. sæti yfir þá markahæstu í deildinni frá upphafi. Valdimar var aðalmaðurinn Fylkir knúði fram sigur á HK, 3:2, í bráðfjörugum leik í Árbænum og Fylkisliðið heldur því vel í við efstu liðin eftir fimm sigurleiki í níu fyrstu umferðunum og sigurinn Árbæing- um kærkominn eftir að hafa tapað 3:0 fyrir bæði KR og Val. HK náði hinsvegar ekki að fylgja eftir sigrinum á Breiðabliki og mátti þola sinn fimmta ósigur. Arnar Freyr Ólafsson lék í markinu á ný en hann meiddist á fyrstu mín- útunum í fyrsta leik HK á tíma- bilinu. Þetta voru sömu úrslit og í viður- eign liðanna í fyrra þegar Fylkir lagði HK 3:2 í Árbænum. „HK-ingar áttu góða keyrslu síð- ustu 20 mínútur leiksins og freistuðu þess að jafna metin og færðist mikill hiti í leikinn þennan síðasta hluta leiks þar sem nokkur gul spjöld fóru á loft á báða bóga,“ skrifaði Þor- gerður Anna Gunnarsdóttir m.a. um leikinn á mbl.is.  Valdimar Þór Ingimundarson var einu sinni sem oftar í aðal- hlutverki hjá Fylki. Hann lagði upp tvö fyrstu mörkin og skoraði sigur- markið úr vítaspyrnu. Hans sjötta mark í deildinni í sumar.  Djair Parfitt-Williams skoraði sitt annað mark í sumar þegar hann kom Fylki yfir á 16. mínútu. Hann er eini Bermúdabúinn sem hefur skorað í deildinni, en aðeins einn landi hans hefur áður spilað hér í efstu deild. Það var Zeiko Lewis sem lék með FH árið 2018.  Valgeir Valgeirsson skoraði bæði mörk HK og hefur nú gert sjö mörk fyrir félagið í efstu deild. Hann er því orðinn annar marka- hæsti leikmaðurinn í sögu félagsins í deildinni, ásamt Mitja Brulc frá Slóveníu sem skoraði sjö mörk fyrir liðið árið 2008. Atli Arnarson er markahæstur HK-inga með átta mörk í deildinni.  Daníel Steinar Kjartansson kom inn á hjá Fylki í sínum fyrsta leik í efstu deild. Á toppnum núna en voru í fallsæti á sama tíma í fyrra Morgunblaði/Arnþór Birkisson Garðabær Tilþrif hjá Brynjari Gauta Guðjónssyni miðverði Stjörnumanna í leiknum gegn Víkingi á Samsung-vellinum í gærkvöld.  Valsmenn óstöðvandi eftir tapið gegn ÍA  Stjörnumenn áfram ósigraðir  Lennon náði Ríkharði  Fylkismenn aftur í þriðja sætið ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 2020 FYLKIR – HK 3:2 1:0 Djair Parfitt-Williams 16. 1:1 Valgeir Valgeirsson 22. 1:2 Valgeir Valgeirsson 29. 2:2 Arnór Gauti Ragnarsson 55. 3:2 Valdimar Þór Ingimundars. 62.(víti) MM Valdimar Þór Ingimundarson (Fylki) M Djair Parfitt-Williams (Fylki) Arnór Gauti Ragnarsson (Fylki) Nikulás Val Gunnarsson (Fylki) Ívar Örn Jónsson (HK) Valgeir Valgeirsson (HK) Birnir Snær Ingason (HK) Ásgeir Marteinsson (HK) Dómari: Pétur Guðmundsson – 8. Áhorfendur: 915. FH – GRÓTTA 2:1 1:0 Þórir Jóhann Helgason 8. 1:1 Sjálfsmark 64. 2:1 Steven Lennon 65. M Daníel Hafsteinsson (FH) Hjörtur Logi Valgarðsson (FH) Steven Lennon (FH) Þórir Jóhann Helgason (FH) Ástbjörn Þórðarson (Gróttu) Karl Friðleifur Gunnarsson (Gróttu) Kristófer Melsted (Gróttu) Valtýr Már Michaelsson (Gróttu) Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 7. Áhorfendur: 882. FJÖLNIR – VALUR 1:3 0:1 Lasse Petry 7. 0:2 Sjálfsmark 39. 1:2 Jóhann Árni Gunnarsson 52. 1:3 Sigurður Egill Lárusson 70. M Hans Viktor Guðmundsson (Fjölni) Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölni) Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölni) Birkir Már Sævarsson (Val) Sebastian Hedlund (Val) Kristinn Freyr Sigurðsson (Val) Sigurður Egill Lárusson (Val) Aron Bjarnason (Val) Lasse Petry (Val) Rautt spjald: Ingibergur Kort Sigurðs- son (Fjölni) 58. Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7. Áhorfendur: Um 800. STJARNAN – VÍKINGUR R. 1:1 1:0 Hilmar Árni Halldórsson 12. 1:1 Óttar Magnús Karlsson 44. (víti) M Haraldur Björnsson (Stjörnunni) Daníel Laxdal (Stjörnunni) Heiðar Ægisson (Stjörnunni) Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni) Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni) Ingvar Jónsson (Víkingi) Sölvi Geir Ottesen (Víkingi) Davíð Örn Atlason (Víkingi) Viktor Örlygur Andrason (Víkingi) Óttar Magnús Karlsson (Víkingi) Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 7. Áhorfendur: 1.158.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. Nágrannaerjur í enska bolt- anum eru ekkert smá mál, enda ná þær alla leið til Íslands! Það er í raun með ólíkindum hve mikil áhrif hæðir og lægðir fót- boltaliða hinum megin við Atl- antshafið geta hafa á sálarlíf okkar hér heima. Við áhugamenn um Man- chester United sleikjum nú sárin og höfum almennt haldið okkur til hlés undanfarnar vikur á með- an „nágrannarnir“ og erkifjend- urnir fagna langþráðum sigri. Mér hefur einfaldlega þótt það viðeigandi að segja sem minnst á þessum erfiðu tímum. Það var því ergilegt þegar fé- lagi nokkur, sem styður óvininn, kallaði eftir hamingjuóskum frá mér, ella væri ég afbrýðisamur og beiskur. Það skal enginn fá að ásaka mig um að lofsyngja ekki þau afrek sem eiga það skilið, og sýna ekki þá virðingu sem hefur verið áunnin. Til hamingju kæru keppi- nautar! Að vinna deildina er ekk- ert smáræði, sér í lagi eftir langa eyðimerkurgöngu, fulla af óbærilegum sársauka og grát- legum töpum á ögurstundu. Eftir langa og erfiða bið, vannst loks sigur. Besta liðið stóð uppi sem sigurvegari og sannir keppinaut- ar sýna á slíkum stundum auð- mýkt og hógværð. Ég hlakka til að sjá okkar tvö frábæru, sögu- frægu knattspyrnufélög taka slaginn á ný á næstu leiktíð. En þangað til að næsta leiktíð byrj- ar, er ekkert annað að gera en að biðjast aftur afsökunar á þess- um seinbúnu hamingjuóskum og ítreka þær enn og aftur. Hjartanlega til hamingju, stuðningsmenn Leeds United með glæstan sigur í B-deildinni! Var það ekki örugglega allt og sumt annars? BAKVÖRÐUR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Manchester United, Manchester City, Chelsea og Wolves fá að hefja keppni í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu síðar en önnur félög, komist þau langt á Evrópumótunum 2019-20 sem ljúka á í ágústmánuði. Sky Sports skýrir frá því að úr- valsdeildin muni setja upp 30 daga ramma fyrir leikmenn þessara liða til að hvílast áður en þeir hefja nýtt tímabil. Málið verði tekið fyrir og gæti verið samþykkt á næsta aðal- fundi deildarinnar sem fram á að fara 6. ágúst. Komist Manchester City eða Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, sem fram fer 23. ágúst, þýð- ir það að viðkomandi lið hæfi ekki keppni í úrvalsdeildinni fyrr en 22. september. Fyrsta umferð deild- arinnar á hins vegar að fara fram 12. september. Manchester City vann Real Ma- drid 2:1 í fyrri leik 16-liða úrslita Meistaradeildar en Chelsea tapaði 0:3 fyrir Bayern München. Manchester United og Wolves eiga möguleika á að komast í úrslita- leik Evrópudeildar UEFA, sem fram fer 21. ágúst, og myndu þá ekki spila í úrvalsdeildinni fyrr en 20. sept- ember. United er með 5:0 forskot gegn LASK eftir fyrri leik 16-liða úr- slitanna og Wolves gerði 1:1 jafntefli við Olympiacos. Gætu byrjað ensku deild- ina seinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.