Morgunblaðið - 28.07.2020, Síða 17

Morgunblaðið - 28.07.2020, Síða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 2020 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Sjávarútvegs- ráðherra hefur með undirritun reglugerðar hækkað aflaviðmið til strandveiða um 720 tonn eða um 7,2%. Í frétt á heimasíðu at- vinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytisins, sem birt var í kjölfarið, segir að með því sé „komið til móts við þá miklu fjölgun báta sem hafa stundað strandveiðar á þessu ári“, er það vel. Niðurlag fréttarinnar er hins vegar eftirfarandi fullyrðing: „Ráðherra hefur að lögum engar frekari heimildir til að auka við afla- heimildir til strandveiða á þessu fisk- veiðiári.“ Nægjanlegt svigrúm Hafi ráðherra rétt fyrir sér hefði hann að mínu mati átt að beita sér fyrir breytingu á lögum um stjórn fiskveiða til að geta komið í veg fyrir þau vandræði sem nú eru í augsýn varðandi strandveiðar, að þær verði stöðvaðar áður en tímabilinu lýkur. Við breytingu á reglugerð, þar sem réttur til að færa hærra hlutfall af óveiddum heimildum til veiða á næsta fiskveiðiári, opnaðist tækifæri til að auka við heimildir strandveiðibáta. Fyrirsjáanlegt var að breytingin hefði í för með sér að minna yrði veitt af þorski á yfirstandandi fiskveiðiári en gert var ráð fyrir. Aukinn afli strandveiðibáta mundi af þeim sökum ekki leiða til að veitt yrði umfram ráð- gjöf á yfirstandandi fiskveiðiári. Jafn- framt yrði aukningin nauðsynlegt út- spil til að mæta vaxandi eftirspurn eftir ferskum þorski þar til nýtt fisk- veiðiár hefst 1. september. Strandveiðar verði í 48 daga Markmiðið með breytingum á strandveiðikerfinu 2018 og aftur 2019 var að jafna aðstöðu milli svæða með því að allir fengju jafnmarga daga, aflaheimildir myndu duga í 48 daga, jafnskipt í fjóra mánuði, maí-ágúst. Til að tryggja það enn betur var meirihluti atvinnuveganefndar ein- huga um, árið 2019, að auka við afla- heimildir með því að ufsaafli gæti ekki leitt til stöðvunar strandveiða. Ufsi ekki meðtalinn Árið 2019 var viðmiðun til strand- veiða 11.100 tonn af óslægðum botn- fiski. Hægt hefði verið að nýta allar þær heimildir til að veiða þorsk þar sem 1.000 tonnum af ufsa hafði verið bætt við botnfiskveiðiheimildir. Hluti verðmæta þessara 1.000 tonna átti að renna til verkefnissjóðs sjávarútvegsins. Þarna var búið að útbúa hvata til að nýta veiðiheimildir í ufsa, sem í mörg ár hafa brunnið inni engum til gagns. Jafnræði sniðgengið Þrátt fyrir fjölgun báta lauk strandveiðum í fyrra með því að aflinn varð nokkru undir út- hlutuðum veiðiheim- ildum. Strax og það var ljóst var ein- sýnt að það sem eftir sat kæmi til viðbótar á árinu 2020, eins og gildir með aðrar úthlutaðar aflaheimildir. Það var því ástæða til bjartsýni með strandveiðar nú í ár, þrátt fyrir fyrir- sjáanlega fjölgun sem að hluta til mátti reka til Covid-19. Aflaheimildir yrðu nægar til að tryggja veiðar í 48 daga Aflaheimildir skertar með reglugerð Við birtingu reglugerðar um strandveiðar 2020 setti þó að manni ugg. Ráðherra hafði ákveðið að skerða heimildir til strandveiða um 1.000 tonn. Viðmiðun í þorski færð úr 11 þúsund tonnum í 10 þúsund tonn. Þrátt fyrir að formaður atvinnu- veganefndar Alþingis hafi bent á að skilningur hennar hafi verið 11 þús- und tonn og það hafi verið það sem Alþingi samþykkti hefur ráðherra verið ófáanlegur til að leiðrétta reglu- gerðina. Betur má ef duga skal Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur í tvígang skorað á ráð- herra að leiðrétta reglugerðina. Áskorunin er hér með endurtekin í þriðja sinn auk þess sem kallað er eft- ir þeim heimildum sem eftir sátu á síðasta ári. Strandveiðimenn trúa ekki öðru en ráðherra verði við ákalli LS og komi með því í veg fyrir stöðvun strand- veiða í ágúst. Strandveiðar út ágúst Eftir Örn Pálsson Örn Pálsson » Jafnframt yrði aukn- ingin nauðsynlegt útspil til að mæta vax- andi eftirspurn eftir ferskum þorski þar til nýtt fiskveiðiár hefst 1. september. Höfundur er framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. orn@smabatar.is Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferða- mála-, iðnaðar- og ný- sköpunarráðherra, rit- ar grein í Morgunblaðið sunnu- daginn 26.7. 2020 í greinaflokknum „Úr ólíkum áttum“ og er greinin með fyrirsögn- inni „Staða Rio Tinto og ISAL“. Í lok greinar sinni skrifar ráð- herrann: (1) „Ástæða er til að ætla að um- hverfisvænar orkulindir Íslands verði áfram eftirsóttar. (2) Við viljum bjóða upp á sam- keppnishæft umhverfi en við gerum að sjálfsögðu líka kröfu um að sala á orkuafurðum úr sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar sé arðbær. (3) Við erum nýbúin að ganga í gegnum langvinna umræðu um þriðja orkupakkann sem snerist að miklu leyti um nauðsyn þess að standa vörð um sameiginlegar orkuauðlindir okkar. Af þeirri um- ræðu hlýtur að leiða að talað sé gegn því að við setjum þær á út- sölu.“ Vil ég gera þessi ummæli hennar að umræðuefni hér og í sömu röð. (1) Í stöðugt breyttum heimi er sú hugsun orðin gamaldags að allir öfundi okkur af endurnýjanlegri náttúruorku til raforkuframleiðslu. Framleiðsla vind-, sólar-, vatnafls- og líforkustöðva í Evrópu á fyrra árshelmingi 2020 var komin yfir 40% af heildarframleiðslu. M.a. af þessum sökum hefur raforkuverð hríðfallið um alla álfuna, raf- orkunotendum til góðs. Svo eru möguleikar okkar hér á landi til framleiðslu á raforku með vatnsafli mikið til upp urnir og einnig er búið er að takmarka verulega sókn í há- hitasvæðin vegna náttúruverndar. (2) Með raforkulögum frá 2003 og aðild okkar að orkupökkum EBS höfum við skuldbundið okkur til að stunda markaðsviðskipti með raf- orku. Með því getum við ekki virkj- að eins og óðir værum og heimtað síðan sama eða jafnvel hærra raf- orkuverð en áður. Það er og hefur verið undanfarin ár umframgeta í raforkukerfinu, en þar er Lands- virkjun ráðandi aðili. Hætta er á að umframgetan fari vax- andi á næstunni vegna slæmrar stöðu hjá hin- um stærri við- skiptavinum Lands- virkjunar og þeir dragi þess vegna úr fram- leiðslu sinni. Þar spilar inn lægra afurðaverð stóriðju og fallandi raf- orkuverð um allan heim og þá sérstaklega í Noregi, sem við ber- um okkur oft saman við. (3) Hugmyndin með orkupökk- unum margumræddu er að raf- orkumarkaður stjórni verðlagi ork- unnar sem aftur hefur áhrif á uppbyggingu framleiðanda t.d. með að hægja á framkvæmdum eða þá herða á þegar þörf er. Á svona markaði verður að gera ráð fyrir sveiflum í raforkuverði, bæði upp og niður. Ef raforkuframleiðandi eykur framleiðslugetu sína úr hófi verður hann kannski að setja raf- orkuna tímabundið á útsölu. Í Nor- egi hefur verið útsala á raforku sem af er þessu ári 2020, sem stafar að- allega af öflugu raforkukerfi og góðri stöðu vatnsbúskapar en magnaðist upp af völdum Covid-19. Ráðherranum getur varla verið alvara með að halda því fram að aukakostnaði við óþarflega mikla uppbyggingu í raforkukerfinu sé bara varpað yfir á raforkunotendur, t.d. með gjaldskrárhækkunum. Þannig sjálftaka ætti að heyra sög- unni til. Hver var að tala um Þjóðarsjóð? Athugasemdir við grein iðnaðarráðherra Eftir Skúla Jóhannsson »Ráðherranum getur varla verið alvara með að halda því fram að aukakostnaði við of mikla uppbyggingu í raforkukerfinu sé varp- að yfir á raforkunot- endur. Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur. skuli@veldi.is Maður veltir því fyrir sér hvað ráðherranum Ásmundi Einari Daða- syni gangi til með ákvörðun sinni um flutning Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) norður á Sauð- árkrók,nema ef vera skyldi persónulegt kjördæmapot eða öllu heldur, á góðri íslensku, eiginhagsmunagæsla og atkvæða- kaup. Það er stutt í kosningar og framsóknarmenn þekktir fyrir að koma óhugsuðum málum í gegn á lokametrum kjörtímabilsins, þrátt fyrir ábendingar þess efnis að þetta sé með öllu ólíðandi þegar sá frábæri mannauður og sú sérþekking sem fyrir hendi er í dag mun glatast, þ.e.a.s. verði þessi flutningur að veru- leika. Eitt er deginum ljósara: starfs- menn þeir sem sinna þessum störfum í dag munu að öllum líkindum ekki láta bjóða sér svona framkomu held- ur eru meiri líkur en minni á að þeir segi upp störfum. Þær eru líka með öllu óskiljanlegar skýr- ingarnar sem ráð- herrann hefur borið á borð þegar hann hefur verið spurður hvað hon- um gangi til með þess- um flutningi. Hann hef- ur sagst vera að ráðast í margþættar aðgerðir til að efla umgjörð bruna- mála og brunavarna á landsvísu! Hvernig má það vera, ef sá frábæri mannauður og þekking er ekki að flytjast með norður í Skagafjörð, hvernig getur ráðherrann þá fullyrt að slíkt haldist í hendur? Kann það að vera raunin að þetta sé óhugsað og gert í flýti, hugsanlega sökum þess að nú er bara tæpt ár í kosningar og gott fyrir þennan sama ráðherra að vera búinn að leggja inn í fjögurra ára sérhagsmuna- kjördæmapotið til að tryggja endur- kjör sitt? Er þetta kannski allt gert til þess eins að skapa óánægju og flótta meðal þeirra starfsmanna sem mestu ábyrgðina bera á að brunamálum og brunavörnum sé fylgt eftir af fag- mennsku, þ.e.a.s. starfsmönnunum sex sem sinnt hafa þessum störfum, sömu starfsmönnunum og nú ætla að öllum líkindum að segja upp og segja skilið við hið góða starf? Fyrir þá sem ekki þekkja til skal þess getið að það var ekki og verður ekki einfalt mál að byggja upp það glæsilega stóra eldvarnasvið og sér- fræðikennslu sem nú fyrirfinnst í þessum málaflokki brunamála í land- inu. Hætt er við að öll þekking hins frábæra mannauðs sex starfsmanna Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í málaflokknum glatist ef af þessari fljótfærnisákvörðun ráðherrans verð- ur. Að lokum vonum við sem til starf- ans þekkjum að sá ágæti ráðherra brunamála Ásmundur Einar Daða- son endurskoði hlutina, þjóðinni allri til góðs. Eftir Sigurjón Hafsteinsson »Hvað með mannauð- inn sem sinnir þess- um störfum í dag; er hann einskis virði í aug- um ráðherrans? Sigurjón Hafsteinsson Höfundur er slökkviliðsmaður. molikarlinn@simnet.is Flutningur HMS norður á Sauðárkrók

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.