Morgunblaðið - 28.07.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.07.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 2020 Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 LEIKFÖNG fyrir allan aldur KERTI úr hreinu bývaxi bambus.is Ný og endurbætt netverslun Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Þetta var rosalega skemmtilegt en við skulum ekki gera þetta aftur,“ segir Magni Ásgeirsson, tónlist- armaður og annar Bræðslustjóra, um Bræluna sem kom í stað tón- leikahátíðarinnar Bræðslunnar á Borgarfirði eystri um síðastliðna helgi. Sú síðarnefnda var blásin af vegna faraldurs kórónuveiru en í stað henn- ar fór tónleikaröðin Brælan fram. Tónleikar hafa lengi vel verið haldnir á fimmtudags- og föstudagskvöldum fyrir Bræðslu en í ár bættu „frænd- ur“ Magna hjá Já sæll ehf., sem reka félagsheimilið Fjarðarborg á sumrin, við tónleikum á laugardagskvöldinu. Þeir komu í stað Bræðslu. Hittast bara á Bræðslu Hátíðin var vissulega smærri í sniðum en venjuleg Bræðsla en Brælan gerði það að verkum að fólk sem jafnan hittist árlega á Bræðsl- unni fékk tækifæri til að koma saman og gleðjast. „Fólk gat hitt vini sína því það er raunverulega til fólk sem hittist einu sinni á ári á Bræðslunni. Þessir fastakúnnar okkar eru orðnir mjög fallegt og fjölbreytt plan,“ segir Magni en í hópi fastagesta er fólk hvaðanæva og úr öllum samfélags- hópum. „Það eina sem við klikkuðum á var að við kölluðum tónleikaröðina Bræl- una sem okkur fannst mjög fyndið en það var eiginlega algjör skítabræla alla helgina – þoka og súld – þannig að þetta stóð algjörlega undir nafni,“ segir Magni. Sólin var þó aftur kom- in á Borgarfjörð eystri þegar blaða- maður náði tali af Magna í gærmorg- un. Bræðslan verður væntanlega hald- in að ári, að sögn Magna, en Brælan var prýðileg lausn á erfiðu ástandi tónleikahaldara vegna veirunnar. „Lífið finnur sinn farveg, það verð- ur að gera eitthvað,“ segir Magni glaðbeittur. Ljósmynd/Hafþór Snjólfur Helgason Tónlist Tónleikaröðin stóð undir nafni en veðrið var leiðinlegt á Borgarfirði um síðustu helgi. Það setti þó ekki svip sinn á tónleikana í Fjarðarborg. Brælan varð til vegna veirunnar Veitingastaðir Icelandic Street Food, sem áður voru til húsa í Lækjargötu og á Laugavegi, færast nú undir sama þak. Verður starfsemin fram- vegis í rými Icelandic Deli sem er í Lækjargötu. Þetta staðfestir Unnar Helgi Daníelsson, eigandi staðanna. Hann hefur undanfarin ár rekið Icelandic Street Food og Icelandic Deli, en staðirnir hafa notið mikilla vinsælda meðal erlendra ferða- manna. Þar stendur ferðamönnum til boða að bragða hefðbundinn íslensk- an mat en um tíma sat Icelandic Street Food á toppi vinsældalista vefsíðunnar TripAdvisor. Ljóst er að heimsfaraldur kórónu- veiru hefur haft slæm áhrif á rekstur fjölda fyrirtækja og eru Icelandic Deli og Icelandic Street Food þar engin undantekning. Að sögn Unnars voru ferðamenn langstærstur hluti viðskiptavina Icelandic Street Food. „Starfsemin byggist á ferðamönnum og þegar þeir fóru þá auðvitað var engin umferð,“ segir Unnar, sem ákvað að bregðast strax við. Í stað Icelandic Street Food í Lækjargötu er nú kominn veitingastaðurinn Pizza Amigo. Þá mun nýr rekstraraðili taka við húsnæðinu á Laugavegi. Segir Unnar að húsnæði Icelandic Deli bjóði upp á meiri möguleika fyr- ir fyrirtækið. Húsnæðið sé umtals- vert stærra og þannig verði hægt að færa alla starfsemina undir sama þak. „Við verðum með bakarí og hádeg- ismat auk bars. Þarna ætlum við að reyna að sameina þetta allt. Þetta er stærra hús og því hægt að vera með meira þar,“ segir Unnar. Icelandic Street Food-staðirnir nutu mikilla vinsælda meðal ferða- manna áður en faraldurinn skall á. Spurður hvort viðbúið sé að stöðun- um fjölgi að nýju þegar faraldurinn tekur að lægja kveður Unnar nei við. „Við höfum aðeins verið að sjá um- ferðina aukast eftir að landamærin voru opnuð. Vonandi verður fram- hald á því, en nú snýst þetta um að halda dampi miklu frekar en að hugsa um að stækka.“ aronthordur@mbl.is Færa alla staðina undir sama þak  Pizza Amigo kemur í stað Icelandic Street Food Rekstur Veitingastaðurinn Icelandic Street Food var áður til húsa í Lækj- argötu 8. Þar hefur pítsustaðurinn Pizza Amigo nú hafið starfsemi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.