Morgunblaðið - 28.07.2020, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bílar
Toyota Landcruiser 1/2018
33” breyttur með snorkel.
Loftdæla - krómgrind ofl.
Sjálfskiptur. Ek. 76 þ. Km.
Ný yfirfarinn og þjónustaður.
Verð: 8.890 þús.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryðbletti á þökum
og tek að mér
ýmis smærri verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur Kuldabola ehf., kt. 430285-0179,
Hafnarskeiði 12, 815 Þorlákshöfn, verður
haldinn miðvikudaginn 12. ágúst 2020
kl. 11:00 á kaffistofu félagsins
Dagskrá
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag félagsins og
rekstri þess á liðnu starfsári.
2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið
rekstrarár.
3. Kosning stjórnar félagsins.
4. Kosning endurskoðanda félagsins.
5. Ákvörðum um hvernig fara skal með
hagnað eða tap og um arð og framlög í
varasjóð.
6. Ákvörðun um greiðslur til stjórnarmanna
og endurskoðenda fyrir störf þeirra á
starfsárinu.
7. Heimild til stjórnar um kaup á eigin hlutum.
8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur
málefni sem löglega eru upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, ársreikningur,
skýrsla stjórnar og skýrsla endurskoðanda verða
hluthöfum til sýnis í síðasta lagi sjö dögum fyrir
aðalfund á skrifstofu félagsins.
Afhending fundargagna fer fram að ósk skráðra
hluthafa. Vilji hluthafi koma dagskrárefni til
umfjöllunar á aðalfundi skal tilkynna stjórn
félagsins skriflega um tillöguna eigi síðar en sjö
dögum fyrir aðalfund. Framboð til stjórnar skal
tilkynna skriflega eigi síðar en fimm dögum fyrir
dagsetningu aðalfundar.
Upplýsingar um frambjóðendur verða
aðgengilegar til skoðunar á skrifstofu félagsins
tveimur dögum fyrir aðalfund.
Þorlákshöfn, 25. júlí 2020
Stjórn Kuldaboli ehf.
Aðalfundur Tölvubíla hf.
verður haldinn í fundarsal Hreyfils á 6. hæð,
Fellsmúla 26, þriðjudaginn 11. ágúst, kl. 20.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar félagsins.
3. Kosning stjórnar, skoðunarmanna
og löggilds endurskoðanda.
4. Önnur mál.
Reikningar félagsins afhentir við innganginn.
Stjórnin.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9:30-12:30, nóg pláss. Kaffispjall í
setustofunni kl. 10-11. Jafnvægisþjálfun með Hreyfiteyminu kl. 13,
góð hreyfing sem hentar öllum. Kaffi kl. 14:30-15:15. Nánari upplýs-
ingar í síma 411-2702. Allir velkomnir.
Árskógar Hreyfiþjálfun kl. 9.30. Opinn handavinnuhópur kl. 12-16.
Hádegismatur kl. 11:30–13. Söngkennsla / raddþjálfun kl. 13–13:40.
Samsöngur kl. 13.45. Kaffisala kl. 14:45–15:30. Allir velkomnir í
Félagsstarfið, sími 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og spjall kl. 8:50.
Frjálst í Listasmiðju kl. 90-16. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Við vinnum
áfram eftir samfélagssáttmálanum, þvo og spritta hendur, virða 2
metra regluna, við þá sem það vilja. Allir velkomnir óháð aldri og
búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Garðabær Jónshús, félags- og íþróttastarf, s. 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8:30-16. Hægt er að
panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu
er selt frá kl. 13:45-15:15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Göngu-
hópur fer kl. 10 frá Náttúrufræðistofnun Íslands, Urriðaholtsstræti 6–
8. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14:45.
Gerðuberg 3-5 Kl. 8:30-16 opin handavinnustofa, kl. 10 leikfimi
gönguhóps, kl. 10:30 ganga um hverfið, kl. 13 bíó.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl. 8-12, billjard kl. 8, qi-gong á Klam-
bratúni kl. 11, brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8:30-10:30. Útvarps-
leikfimi kl. 9:45. Spurningakeppni kl. 13:30.
Korpúlfar Tæknilæsisnámskeið í Borgum kl. 9-12; Android tæki og
kl. 13-16; Apple tæki. Þátttökuskráning tvö skipti hver nemandi. Helgi-
stund Grafarvogskirkju kl. 10:30 í Borgum. Botsía kl. 14 í Borgum og
spjallhópur í listasmiðju kl. 13, kaffi á könnunni alla daginn og gaman
að sjá sem flesta.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag, kl. 10:30, verður hópþjálfun í setu-
stofu á 2. hæð. Eftir hádegi, kl. 13:30, hittumst við í matsalnum og
syngjum saman íslensk lög við píanóundirleik. Við endum daginn
saman á gönguferð um hverfið, lagt verður af stað klukkan 15. Allir
velkomnir, hlökkum til að sjá ykkur.
Seltjarnarnes Dagskráin í dag, þriðjudaginn 28. júlí: Kl. 7:15 er
vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness. Kl. 10:30 er kaffispjall í
króknum á Skólabraut. Kl. 11 spilum við saman á Skólabraut. Kl. 13:30
er pútt á golfvelli Seltjarnarness. Hlökkum til að sjá ykkur.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl.
13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30
–15.30. Sögustund verður í kaffinu. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er
568-2586.
Nú
þú það sem
þú eia að FINNA.is
✝ Inger Jacobsenfæddist í Sölle-
röd á Sjálandi í
Danmörku. Hún
lést 28. mars 2020 á
hjúkrunar-
heimilinu Sól-
völlum á Eyrar-
bakka.
Foreldrar henn-
ar voru Olga Mat-
hilde Nilsen og
Franklín Nílsen.
Eiginmaður hennar var Henry
Skovgård Jacobsen, f. 15. febr-
úar 1919, d. 11. júlí
2015. Dætur þeirra
eru Birthe, f. 1941,
og Åse, f. 1948.
Barnabörnin eru
fimm.
Inger og Henry
bjuggu á Selfossi
frá árinu 1956 og
unnu bæði hjá MBF
til ársloka 1989.
Minningarathöfn
um Inger fer fram í
Selfosskirkju í dag, 28. júlí 2020,
klukkan 14.
Nú kveðjum við kæra vinkonu,
hana Inger Jacobsen. Inger kynnt-
ist ég þegar ég var níu ára, en þá
flutti hún ásamt eiginmanni sínum
Henry Jacobsen og dætrunum Åse
og Birthe til Íslands frá Danmörku
og settust þau að á Selfossi. Við Åse
kynntumst fljótt og við urðum góð-
ar vinkonur. Samgangurinn var
mikill, við vorum í sama bekk í skóla
og lékum okkur saman þar fyrir ut-
an. Åse var heima hjá mér og ég
heima hjá henni og margt brallað
sem Inger hafði gaman af að rifja
upp á seinni árum. Hún var útivinn-
andi þannig að við Åse gátum gert
nánast það sem við vildum heima
hjá henni, innan marka þó að sjálf-
sögðu. Síðan eru liðin rúm sextíu ár
og margt hefur gerst á þeim tíma.
Alltaf hefur vináttan verið til staðar
og margt sem hefur tengt okkur.
Þau Inger og Henry sögðu oft frá
því að nöfnin okkar hjóna, Inga og
Henrý, og þeirra nöfn, Inger og
Henry, væru þau sömu. Þetta
fannst þeim mjög merkilegt.
Inger var dugleg og sjálfstæð
kona allt fram í andlátið. Hún vann
á skrifstofu MBF til eftirlaunaald-
urs. Hún var eldklár, nákvæm,
örugg og sérstaklega talnaglögg.
Hún passaði upp á að halda sér við,
var mikill krossgátusnillingur og
klár í alls konar talnaleik. Hún hjól-
aði langt fram á elliár og svo fór hún
út að ganga, síðast með göngu-
grindina sína, helst á hverjum degi.
Þau Inger og Henry byggðu sér
hús við Víðivelli 7, ræktuðu þar
mjög fallegan garð sem eftir var
tekið og var öllu vel við haldið. Ing-
er var forkur dugleg og afskaplega
myndarleg húsmóðir. Hún bakaði
heimsins bestu Sachertertu sem
hún reyndar gerði fyrir örfáum ár-
um fyrir mig af því að hún vissi að
ég væri væntanleg í heimsókn.
Þegar Henry hennar kvaddi
þennan heim fyrir nokkrum árum,
þá 97 ára að aldri, varð hún óneit-
anlega dálítið ein, dæturnar búsett-
ar í Danmörku og þau tvö lifað svo-
lítið sínu lífi án fjölskyldu hér. Það
tók hana svolítinn tíma að átta sig
en svo tók hún sína ákvörðun. Hún
vildi vera á Íslandi og bjó í íbúðinni
sinni þar til síðasta árið sem hún
lifði, en þá dvaldi hún á Sólvöllum á
Eyrarbakka og naut góðrar
umönnunar sem við erum þakklát
fyrir.
Eftir að hún varð ein kom í ljós
vináttan og umhyggjan sem er okk-
ur mönnunum svo mikils virði.
Samband mitt og vináttan við Inger
og fjölskyldu spannaði langan tíma.
Seinni árin pössuðum við Henrý
upp á að heimsækja Inger reglu-
lega og gera allt fyrir hana sem við
gátum og máttum. Hún átti góða
vini í nágrönnum sínum í Græn-
umörkinni sem reyndust henni vel,
að ógleymdum Guðmundi og svo
Kristínu sem hjálpuðu henni ómælt.
Já, vináttan er dýrmæt og birtist í
sinni bestu mynd þegar á reynir.
Það var erfitt að geta ekki heimsótt
Inger síðustu vikurnar vegna covid
en við töluðum saman í síma. Sein-
asta símtalið fór fram kvöldinu áður
en hún kvaddi, hún sagði ekkert
enda sofandi, eða … hún andaði
mun hraðar meðan á því stóð var
mér sagt. Ég vona að hún hafi heyrt
allt sem ég sagði við hana þá.
Nú ertu farin, elsku Inger mín, á
97. aldursári. Við Henrý þökkum
þér samfylgdina í öll þessi ár og
biðjum þess að góður Guð þig
geymi.
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Ég horfi út um gluggann, það er
bjartur og sólríkur dagur á Sel-
fossi, Ingólfsfjallið og Ölfusáin böð-
uð sólargeislum þegar ég sest nið-
ur til að skrifa hinstu kveðju til
vinkonu minnar og fyrrverandi
samstarfskonu, Inger Jacobsen.
Selfoss tók vel á móti Inger, Henry
og dætrunum tveimur þegar þau
ákváðu að flytja frá Danmörku og
setjast að á Íslandi. Þau voru sam-
hent hjón og yfirleitt nefnd í sama
orðinu. Fyrstu árin bjuggu þau í
Merkilandi en hófu síðan að byggja
sér hús á Víðivöllum 7.
Inger bjó fjölskyldunni fallegt
heimili og naut þess að rækta tré
og blóm. Gróðurhúsið var hennar
sælureitur þar sem ilmur af fallegu
blómunum angaði. Inger fylgdi
Henry vel eftir í félagsstörfum
hans og var hús þeirra ávallt opið
þegar veiðileyfunum var úthlutað
hjá Stangveiðifélagi Selfoss. Þau
hjónin nutu þess að ferðast innan-
lands og erlendis til dætra sinna og
á sólarstrendur en alltaf fannst
henni best að koma aftur heim til
Íslands.
Það var árið 1972 að leiðir okkar
lágu saman þegar ég hóf störf á
skrifstofu Mjólkurbús Flóamanna
en þar starfaði hún. Inger var
glæsileg kona, talaði íslensku með
örlitlum dönskum hreim. Inger
upplifði margháttaðar breytingar í
skrifstofustarfinu á þeim árum
sem hún vann í MBF. Í fyrstu voru
handskrifaðar nótur, launaseðlar,
mjólkurinnlegg og bókhaldið
handfært. Það var því mikil bylting
þegar tölvutæknin fór að ryðja sér
til rúms, Inger var fljót að tileinka
sér þá tækni. Hún var góður leið-
beinandi og hugsa ég oft til þess
hversu heppin ég var að fá að
starfa með henni, hún var mín
fyrirmynd í því starfi sem ég vinn í
dag.
Inger var samviskusöm í starfi.
Samverustundirnar í morgun-
kaffinu eru minnisstæðar. Við
söfnuðumst saman í kringum
skrifborðið hennar með kaffiboll-
ann, þar voru málin rædd og krufin
til mergjar. Leiðir okkar lágu einn-
ig saman í gegnum LK Selfoss, í
ógleymanlegum sumarferðum og
ferðum erlendis með þeim.
Það urðu þáttaskil í lífi þeirra
hjóna þegar þau keyptu íbúð í
Grænumörk 2 og fluttu þangað,
þar áttu þau góð ár saman þar til
Henry lést 11. júlí 2015, var það
Inger mikill missir. Inger dvaldi
síðustu ævidaga sína á Sólvöllum,
heimili fyrir aldraða á Eyrar-
bakka, og lést þar 28. mars sl. Við
Óli sendum Aase, Birthe og fjöl-
skyldum þeirra innilegar samúðar-
kveðjur. Við kveðjum Inger Jacob-
sen með virðingu og þökk með
fallegum ljóðlínum Jónasar Hall-
grímssonar:
Smávinir fagrir, foldarskart,
fífill í haga, rauð og blá
brekkusóley, við mættum margt
muna hvort öðru að segja frá.
Faðir og vinur alls, sem er,
annastu þennan græna reit.
Blessaðu, faðir, blómin hér,
blessaðu þau í hverri sveit.
Vesalings sóley, sérðu mig?
Sofðu nú vært og byrgðu þig.
Hægur er dúr á daggarnótt.
Dreymi þig ljósið, sofðu rótt!
(Jónas Hallgrímsson)
Hvíl í friði.
Kristín Björnsdóttir.
Inger Jacobsen