Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
✝ MaximilianHelgi Ívarsson
fæddist 15. október
2008 í Reykjavík.
Hann lést 8. sept-
ember 2020. For-
eldrar hans eru Jo-
anna Marcin-
kowska og Ívar
Erlendsson. Systk-
ini hans eru Tinna,
Alexandra Helga
og Stefan Erlend-
ur. Móðuramma heitir Ewa
Marcinkowska og móðurafi
heitir Stefan Marc-
inkowski. Föður-
amma hét Helga Ív-
arsdóttir og
föðurafi hét Er-
lendur Hilmar
Björnsson. Max-
imilian var nem-
andi í Sjálands-
skóla, æfði karate
og lærði að spila á
gítar.
Útför hans fer
fram frá Vídalínskirkju í dag,
18. september 2020, klukkan 13.
Elsku besti Maxi okkar. Það
er þyngra en tárum taki að
skrifa þessi kveðjuorð. Það
fyrsta sem kemur upp í hugann
er þakklæti.
Þakklæti fyrir að hafa fengið
að fylgja þér í þann stutta tíma
sem þú varst með okkur og
njóta þinnar yndislegu nær-
veru, því manni leið alltaf ein-
staklega vel í þinni návist.
Minningarnar eru óteljandi.
Sú fyrsta er dagurinn sem þú
fæddist. Hann munum við svo
vel. Við systur sátum með Stef-
an lítinn á ganginum á fæðing-
ardeildinni og biðum eftir að fá
að sjá þig.
Það var ást við fyrstu sýn.
Gullfallegi litli bróðir okkar
með stóru góðlegu augun. Síð-
an þá hefur þú alltaf fyllt okkur
stolti, fært okkur svo mikla
hlýju og endalausa gleði.
Þú varst alltaf svo rólegur,
góður, brosmildur og mikill
húmoristi. Þú varst ótrúlega
samviskusamur, duglegur og
klár og altalandi á þremur
tungumálum frá unga aldri. Þú
varst svo mikill dýravinur og
áttir einstakt samband við
Daníelu, sem lýsir svo vel
hversu góðhjartaður þú varst.
Þú varst einnig yndislega
ljúfur og góður frændi og
krakkarnir litu mikið upp til
þín. Okkur er minnisstætt hvað
þú varst þolinmóður, góður og
lékst mikið við þau.
Við eigum ótal dýrmætar
minningar bæði heima á Íslandi
og þegar þú heimsóttir okkur
út.
Við þökkum þér fyrir allt
elsku litli bróðir, minning þín
er ljós sem lifir og mun ylja
okkur um ókomna tíð.
Það er erfitt að kveðja en við
vitum að amma og afi passa vel
upp á þig þangað til við
sjáumst næst.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Við elskum þig.
Þínar systur,
Tinna og Alexandra
Helga, Arnar og
Gylfi Þór.
Fyrir mér þú varst ímynd hins göf-
uga og góða,
svo fallegur, einlægur og hlýr.
En örlög þín ráðin - mig setur
hljóða,
við hittumst samt aftur á ný.
(Sigríður Hörn Lárusdóttir)
Elsku frændi, Maximilian
litli, er farinn og það ríkir mikil
sorg í huga okkar. Minning um
fallegan, skemmtilegan og ljúf-
an dreng lifir.
Elsku Ívar, Joanna, Tinna,
Alexandra og Stefan, Guð
styrki ykkur í þessari miklu
sorg. Við vottum ykkur og öðr-
um aðstandendum okkar
dýpstu samúð.
Ellen, Þórkatla og Þórir.
Hver getur siglt, þó að blási ei byr,
bát sínum róið án ára?
Hver getur kvatt sinn kærasta vin,
kvatt hann án sárustu tára?
Ég get siglt, þó að blási ei byr,
bát mínum róið án ára.
En ekki kvatt minn kærasta vin,
kvatt hann án sárustu tára.
(Þýð. Hulda Runólfsdóttir)
Elsku besti Maxi okkar. Það
er erfitt að kveðja góðan
frænda og fyrirmynd. Þú varst
skemmtilegur og fyndinn og
með þér leið okkur alltaf vel.
Þú varst mikið fyrir að hjálpa
öðrum. Þú varst ljúfur og þol-
inmóður og lékst mikið við okk-
ur. Við munum margar góðar
stundir með þér og Stefani og
hjá okkur var alltaf gaman.
Það sem stendur upp úr er
útilegan okkar saman í sumar
sem var svo skemmtileg.
Takk fyrir allt elsku frændi,
við söknum þín og munum allt-
af minnast þín.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Þín
Þóra Borg, Elvar Alex
og Ívar.
Elsku Maxi, vinur okkar, er
farinn frá okkur, hrifinn burtu
11 ára gamall svo skyndilega
og ólýsanlega sorglega. Við
höfum þekkt hann næstum alla
ævi hans og okkur þótti svo
undur vænt um hann. Við
kynntumst honum á leikskóla
þegar hann var tveggja ára og
var í hópi með Róberti Kára og
Agli Dofra. Fljótlega bættist
Þorkell Gauti í hópinn. Frá
upphafi þessarar vináttu strák-
anna hefur aldrei borið skugga
á og þeir verið samrýndir og
traustir vinir svo eftir hefur
verið tekið.
Kennarar þeirra höfðu jafn-
vel áhyggjur af því að þeir
væru svo þéttur vinahópur að
aðrir ættu enga leið þar inn.
En þeir áttu marga góða vini
í bekknum, suma alveg frá því í
leikskóla og þegar Birkir Snær
byrjaði í bekknum small hann
fljótt inn í vinahópinn.
Maximilian Helgi var lán-
samur strákur, alinn upp í
traustri og ástríkri fjölskyldu
með Stefan stóra bróður sínum.
Við kynntumst foreldrum Maxa
og hinna strákanna fyrst í
gegnum vináttu barnanna og
síðar líka sem nágrannar.
Næturnar sem strákarnir
hafa gist hver hjá öðrum, oftast
allir í einu, eru ófáar. Þá hefur
verið hvíslað og spjallað fram á
nótt og greinilega flest mjög
fyndið. Í garðinum hjá Maxa er
hús uppi í tré sem pabbi hans
smíðaði fyrir strákana sína og
þar hefur útileikurinn „api á
jörðinni“ farið reglulega fram
árum saman í öryggi og ham-
ingju, síðast fyrir þremur vik-
um þegar strákarnir gistu hjá
Maxa.
Bræðurnir vörðu nokkrum
sumrum að stórum hluta með
ömmu sinni og afa í Póllandi og
lýsingarnar á því sem þau
gerðu með strákunum sínum í
sveitinni voru eins og úr
skemmtilegri barnabók.
Vinahópurinn æfði sund sam-
an í nokkur ár og svo færðu
Róbert og Maxi sig yfir í kar-
ate, voru komnir með gula belt-
ið og hófu haustið spenntir að
ná í næsta belti. Maxi var líka
að læra á gítar og þeir vinirnir
voru nokkrir í tónfræði saman
sem gerði hana svo miklu bæri-
legri.
Þegar við kynntumst Maxa
var hann yndislegt krútt og
góður strákur en eftir því sem
árin liðu fórum við líka að sjá
húmorinn í þessum trausta vini
og klára strákaskotti sem
hoppaði svo léttilega á milli
pólsku, ensku og íslensku eftir
því við hvern hann talaði. Dag-
inn áður en hann hvarf frá okk-
ur vann hann keppnina um
frumlegustu kökuna í fé-
lagsmiðstöðinni en hann hafði
bakað köku úr tómatsúpu!
Við sögðum við strákana ný-
lega og trúðum því alltaf að
þeir yrðu alla ævi perluvinir,
líka þegar þeir yrðu unglingar
og fullorðnir menn. Við vorum
ekki í nokkrum vafa um það.
En lífið er svo hræðilega hverf-
ult og nú getum við bara þakk-
að fyrir tímann með Maxa á
meðan við glímum við söknuð-
inn eftir þessum ljúfa og góða
vini og framtíðinni sem við
héldum að við ættum eftir að
eiga með honum. Í vinahópinn
er höggvið djúpt skarð en áhrif
Maxa á húmor þeirra og sterka
vináttu vara.
Joanna, Ívar, Stefan, syst-
urnar og fjölskyldan öll eiga nú
um svo óskaplega sárt að binda
og við vildum óska að við gæt-
um á einhvern hátt mildað
sársauka þeirra. Þau eiga vini í
okkur og strákunum það sem
eftir er og við deilum með þeim
söknuði og ást á Maxa.
Dóra og fjölskylda
Róberts Kára.
Elsku strákarnir okkar hafa
átt einstaka vináttu frá leik-
skólaaldri. Litlu fjórmenning-
arnir, Maxi, Róbert Kári, Egill
og Þorkell Gauti, bundust svo
sterkum vinaböndum frá byrj-
un að þau urðu nánast órjúf-
anleg. Birkir Snær bættist svo í
fjórmenningaklíkuna í Sjá-
landsskóla og urðu þeir þá hin-
ir fimm fræknu. Enginn einn
yfirgnæfði í hópnum, hver með
sinn styrkleika og vógu þannig
hver annan upp. Rólegheitin
allsráðandi, dundarar og sannir
vinir.
Nú hefur Maxi vinur okkar
kvatt, 11 ára gamall, og við sitj-
um eftir uppfull af sorg og
söknuði. Þessi fallegi og ljúfi
drengur sem við fylgdumst með
umbreytast úr litlu krúttlegu
leikskólabarni í ungan fallegan
dreng. Fluggáfaður, talandi
þrjú tungumál frá unga aldri og
hvers manns hugljúfi. Með fal-
legri vináttu þessara ungu
drengja höfum við líka verið
svo lánsöm að kynnast fjöl-
skyldum þeirra. Það er ómet-
anlegt nú í sorginni að sækja
styrk hvert í annað og rifja upp
góðar minningar.
En sorgin minnir líka á að
margt er hægt að þakka. Við
fylgjumst þakklát með vinum
og bekkjarsystkinum, sem
mörg hver hafa þekkst síðan í
leikskóla, takast á við þennan
hræðilega missi af miklum sam-
hug og styðja hvert annað. Við
þökkum fyrir að hafa fengið að
kynnast og upplifa einstakan
vinskap ungra drengja.
Við þökkum fyrir að hafa
fengið að kynnast foreldrum og
systkinum þessara vina. Við er-
um þakklát fyrir að tilheyra
einstökum foreldrahópi bekkj-
arsystkina sem tekst nú saman
á við að styðja börn í sorg. Við
erum þakklát fyrir einstakt
skólasamfélag kennara og
skólastjórnenda sem hefur
stutt við börnin okkar af vænt-
umþykju og ást.
Við þökkum fyrir að hafa
fengið að kynnast Maxa.
Elsku Joanna, Ívar, Stefan,
Alexandra, Tinna og fjölskyld-
ur. Missir ykkar er ólýsanlegur
og ekki hægt að koma í orð.
Hugur okkar er hjá ykkur og
við sendum ykkur okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Þorkell Gauti og fjölskylda.
Sorgin er mikil í Sjálands-
skóla þegar við kveðjum kæran
nemanda okkar, Maximilian
Helga Ívarsson, eða Maxa eins
og hann er alltaf kallaður í
skólanum. Maxi var einstaklega
ljúfur drengur sem snerti
hjarta margra bæði í hópi nem-
enda og starfsfólks skólans.
Hann var jákvæður, klár og
kurteis en jafnframt fyndinn og
mikill húmoristi. Nemendur
minnast hans þannig að hann
elskaði að láta alla hlæja með
sér. Maxi var mjög hugmynda-
ríkur drengur og einstaklega
listrænn. Hann sýndi það í fjöl-
mörgum verkefnum sem hann
vann í skólanum. Maxi var vin-
margur og hann átti góða og
trausta vini. Bekkjarfélagarnir
minnast hans sem drengsins
sem gerði engum neitt mein,
eins og þau orða það svo fal-
lega. Starfsfólk og nemendur
Sjálandsskóla eiga margar góð-
ar minningar um Maxa og þær
munum við geyma í hjarta okk-
ar um ókomna tíð.
Við vottum fjölskyldu Maxa
innilega samúð okkar. Hugur
okkar allra er hjá ykkur á þess-
um erfiðu tímum.
Að lokum minnumst við
Maxa með þessum orðum Jó-
hannesar úr Kötlum sem oft
eru sungin í morgunsöng í Sjá-
landsskóla:
Allt hið liðna er ljúft að geyma,
láta sig í vöku dreyma.
Sólskinsdögum síst má gleyma,
segðu engum manni hitt!
Vorið kemur heimur hlýnar,
hjartað mitt!
(Jóhannes úr Kötlum)
Fyrir hönd starfsfólks og
nemenda Sjálandsskóla,
Sesselja Þóra skólastjóri.
Elsku Maxi okkar var mjög
góður bekkjarfélagi og traustur
vinur. Hann var jákvæður, ljúf-
ur og góður strákur. Hann
gafst aldrei upp, var góður í
skólanum, nægjusamur, fynd-
inn og kurteis. Hann var einnig
frumlegur, hjálpsamur, list-
rænn og hugmyndaríkur. Við
eigum margar góðar og
skemmtilegar minningar um
hann, t.d. þegar hann gerði
tómatsúpukökuna í kökukeppn-
inni og vann frumlegustu kök-
una og gerði flotta Minecraft-
verkefnið af Sjálandsskóla.
Þegar við lékum okkur í gryfju-
bolta, pógóbolta og bjuggum til
snjókastala saman.
Maxi gerði engum neitt mein
og allir voru vinir hans. Hann
tók engu persónulega og var
aldrei leiður.
Það var gaman þegar hann
hélt upp á afmælið sitt og hann
kom með ís frá ísbúð pabba
síns.
Við höfðum enga hugmynd
að hann myndi kveðja okkur
svona snemma en við trúum því
að hann sé á góðum stað og að
hann muni fylgja okkur í gegn-
um erfiða og góða tíma. Sökn-
um þín öll, elsku Maxi okkar.
Kærleikskveðja,
þínir vinir, bekkjarfélagar og
kennarar,
Sigurbjörg Ósk og
Geirþrúður (Þrúða).
Elsku Maxi, á stundum sem
þessari skortir okkur orð til að
tjá þær tilfinningar sem
streyma fram. Við stóðum uppi
berskjölduð þegar við fengum
fregnina af andláti þínu kæri
frændi. Það var þungt högg,
sorgin og söknuðurinn lagðist
yfir. Á þeim fáu dögum sem
liðnir eru hafa minningarnar
dúkkað upp hver af annarri og
þegar við lítum til baka eigum
við bara góðar minningar. Ég
kíkti á instagramið þitt og þá
sá ég Maxa sem ég átti eftir að
kynnast betur. Þar kemur list-
fengi þitt og næmi fram í gegn-
um myndirnar þínar og svo
kveikti það á minningum frá
áramótum liðinna ára en við
höfum líklega hist um flest ára-
mót frá því að þú komst í heim-
inn.
Það var gaman. Við vitum að
þú ert kominn í ljós Meistarans
og ert að byrja nýja vegferð;
gangi þér vel.
Hví var þessi beður búinn
barnið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: ,,Kom til mín!
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum
(Björn Halldórsson í Laufási)
Elsku Ívar, Joanna, Stefan,
Tinna og Alexandra, afi, amma
og Cyprik. Við biðjum Guð að
færa ykkur frið, styrk og kær-
leik á þessum erfiðu tímum.
Björn og Þórunn.
Börnin okkar syrgja kæran
bekkjarbróður og þakka fyrir
tímann sem þau áttu með
Maxa. Minning um skemmti-
legan, kláran, fyndinn og ljúfan
vin mun lifa með þeim.
Við sendum fjölskyldu elsku
Maxa okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Djúp og varanleg vinátta
er dýrmætari
en veraldlegar viðurkenningar,
og allt heimsins gull og silfur.
Henni þarf ekki endilega alltaf
að fylgja svo mörg orð
heldur gagnkvæmt traust
og raunveruleg umhyggja.
Kærleikur,
sem ekki yfirgefur.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
F.h. foreldra bekkjarsystk-
ina í Sjálandsskóla,
Hildur Dungal.
Maximilian Helgi
Ívarsson
HINSTA KVEÐJA
Ég þekkti Maxa bara í
tvö og hálft ár en á þessum
tíma urðum við mjög góðir
vinir. Hann var alltaf svo
fyndinn og skemmtilegur
og besti vinur í heimi. Ég
mun sakna þín og þinna
brandara.
Þinn vinur,
Birkir Snær.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar
Þökkum innilega þá samúð og þann hlýhug
sem okkur hefur verið sýndur vegna andláts
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
ÁRNA PÁLS JÓHANNSSONAR,
Hólmatjörn í Holtum.
Sérstakar þakkir fá læknar og annað starfsfólk
krabbameinsdeilda Landspítalans.
Sólveig Benjamínsdóttir
Skrýmir Árnason Halldóra Jónsdóttir
Þorkell Ó. Árnason Yabei Hu
Benjamín N. Árnason
og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar
JÓNS ÁRMANNS ÁRNASONAR,
Strandbergi, Húsavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórhildur Sigurðardóttir
Ástkær dóttir okkar, systir, mágkona
og frænka,
ÓLÖF BJARNADÓTTIR,
Sólheimum 21 B
lést á heimili sínu þriðjudaginn
15. september.
Útför verður auglýst síðar.
Bjarni Ólafur Bjarnason Gyða Einarsdóttir
Níels Bjarnason Harpa Atladóttir
Óskar Bjarnason Thelma Lind Jóhannsdóttir
Vilhjálmur Bjarni, Atli Freyr og Bjarki Hrafn