Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 20
Morgunblaðið/Eggert Sú var tíðin, að bílar fóru allan sólar- hringinn upp og niður Laugaveginn og laganna verðir vel sýnilegir líka, bæði gangandi og í bílum. Það var því útilokað fyrir nokkurn þann, sem vildi brjótast inn í verslanir við göt- una, að reyna það einu sinni hvað þá annað. Til þess var of mikil umferð bæði gangandi fólks og bíla. Nú er öldin önnur, þegar Laugavegurinn er orðin hálfgerð draugagata, og engir bílar fá að fara þar um, versl- anir fáar, og fólk hefur enga sér- staka löngun til að koma í götuna lengur og á þar fá erindi, andstætt því, sem áður var. Það er því hægur vandi fyrir þá, sem vilja brjótast inn, að gera það í friði þess vegna. Ég er því ekkert undrandi á slíkum frétt- um, þegar Dagur og kó eru að loka hverri götunni af annarri í miðborg- inni fyrir umferð og gera fólki ókleift að fara þar um, sem fælir þá þjófóttu frá götunum. Ég hefði sagt, að það væri vit í þessu eða hitt þó, en þetta vilja Dagur og kó greinilega. Haldið það sé nú! Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Deyjandi Laugavegur Ýmislegur ósómi og óréttlæti viðgengst hér á Íslandi og er t.d. orðið ansi hart ef ráðist er á einstakling af heilli stétt í land- inu fyrir það eitt að svara fyrir sig og jafnvel þótt um upp- lognar sakir hafi ver- ið að ræða. Rammt kvað að þessu fyrir skömmu er Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Sam- herja kom á framfæri leiðréttingu á því sem rannsóknarblaðamað- urinn Helgi Seljan hafði borið á hann að ósekju í Seðlabankamál- inu svokallaða, því óþverramáli þar sem Þorsteinn Már var sýkn- aður af ótrúlegum áburði fyrrver- andi seðlabankastjóra Más Guð- mundssonar, sem lenti svo á rassgatinu með allt saman. En þá tók Helgi Seljan við, sem raunar hefur haft Þorstein Má í einelti um árabil, og klíndi á hann að tal- ið er fölsuðum pappírum og gerði mál úr. Akureyringarnir á RÚV láta í sér heyra En þegar Þorsteinn Már fór eðlilega að svara fyrir sig reis fréttamannaelítan upp sem aldrei fyrr með Akureyringana á RÚV í broddi fylkingar þar sem er Stef- án Eiríksson útvarpsstjóri og fyrrverandi lögreglustjóri, sem maður skyldi ætla að hefði í heiðri lög og rétt, en hver veit, þar sem hann að undanförnu hefur títt skipt um starf. Hinn Akureyringurinn og fréttastjórinn Rakel Þorbergsdóttir fylgdi fast á eftir sínum yfirboðara, ábúðarfull án þess trúlega að hafa kynnt sér málið til fullnustu en tók samt þátt í ófræging- unni. Og þá kem ég að þætti Þóru Arnórs- dóttur, sem gat auðvitað ekki látið sitt eftir liggja að mæra vin sinn Helga Seljan, samfylkingarkonan og fyrrverandi forsetaframbjóð- andinn, sem virðist ekki enn vera búin að ná sér eftir hrakfarir í þeim málum, enda las ég, sem eft- ir henni var haft, að hún kenndi ágætum Ólafi Ragnari meðfram- bjóðanda sínum um allar sínar ófarir. Hjá framangreindu starfsfólki RÚV hefur allt gengið út á að mæra og taka upp hanskann fyrir Helga Seljan þó svo hann hafi jafnvel haft í frammi ólöglegt at- hæfi og verði jafnvel sóttur til saka að mati lögfræðinga. Það er orðið gjörsamlega óvið- unandi ef einstaklingur í þessu þjóðfélagi getur ekki orðið borið hönd fyrir höfuð sér eins og ég hef áður komið inn á og heil stétt manna hrópar úlfur, úlfur og tek- ur ekkert tillit til hvort um rangt eða rétt sé að ræða. Að lokum Í meira en 20 ár var ég útgef- andi blaða og ritstýrði og skrifaði jafnvel eina og eina frétt ef á þurfti að halda. Í aðeins eitt skipti á þessum árum varð ég verulega hræddur um að fá á mig kæru, en þá hafði ég álpast til að skrifa frétt um eiturlyfjamál, sem margir fréttamenn eru ekki ókunnir, og hafði ekki nógu tryggar heimildir. Sem betur fór hafði ég rétt fyrir mér en það var raunar engin af- sökun þá. Svona hluti gerir maður bara ekki. Ég ætla að enda þennan pistil með því að minnast aðeins á grein um sama mál og um hefur verið fjallað hér að framan eftir Kristin Hrafnsson til mikillar ófrægingar um Þorstein Má Baldvinsson. Ég verð að segja, að minnsta kosti fyrir mitt leyti, að ég geld mjög varhug við því sem Kristinn raus- ar eftir margra ára baráttu með mjög misjöfnum árangri í Wiki- Leaks-málinu og hefur hann verið duglegur við að reyna að ná sér niðri á mönnum, hvort sem er að sekju eða ósekju að virðist. P.s. Meira um Namibíu/ Samherjamálið seinna. Akureyringarnir á RÚV ráðast á forstjóra Akureyrar- fyrirtækisins Samherja Eftir Hjörleif Hallgríms » Fréttamannaelítan ætti stundum að fara sér hægar. Það er ekki oft sem ráðist er á frettamenn að ósekju. Hjörleifur Hallgríms Höfundur er eldri borgari á Akureyri. 20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020 Jæja, þá er að mörgu leyti svolítið sérstakt sumar að baki sem var okkur reyndar mörgum bæði mjög ljúft og gott. Og nú er varla annað í stöðunni, sama hvað dagarnir kunna að hafa upp á að bjóða, en að gíra sig með bjartsýni og jákvæðni inn í haustið. Ég er þakklátur fyrir að fá að vera í liði lífsins og fá að vera ykkur samferða á ævigöngunni sem þó kann að reynast okkur mörgum skrykkjótt, strembin, flókin og full af óvæntum áskor- unum. Það er svo gott og dýrmætt að finna hvernig fólk stendur saman þegar á reynir þar sem hver og einn leggur sitt af mörkum eftir sinni náðargáfu, hæfileikum og getu til þess að okkur líði sem best. Jafnt sem einstaklingar og heild. Jafnvel þrátt fyrir ólíkar áherslur og leiðir, lífsafstöðu í stjórnmálum, trúmálum eða hverju öðru sem við lifum fyrir eða eftir eða tökum mark á og mið af. Með þakklæti og virðingu fyrir okkar eldri borgurum Að undanförnu hefur mér orðið hugsað til okkar elstu samborgara sem sumir hverjir kunna að hafa lifað við einveru og fundið til ein- manaleika, kvíða eða óöryggis. Sérstaklega í þeim tilfellum þar sem tengsl hafa skerst og minnk- að af óhjákvæmileg- um orsökum. Hjá þeim mörgum er ekk- ert bara einhvern tíma seinna, þegar betur stendur á. Þeir þurfa á utanumhaldi og alúð að halda, núna. Hugsum hlýlega til þeirra og biðjum fyrir þeim og þökkum fyrir þá. Þeir hafa upplifað tímana tvenna og jafnvel þrenna og búa því yfir æv- innar reynslu. Við erum að tala um fólkið sem ól okkur upp, kenndi okkur að lesa og skrifa, fæddi okkur og klæddi. Fólkið sem sagði okkur sögur úr sínu uppeldi sem hver og einn upplifði með sínum hætti. Sögur sem eru sérstakar hver og ein og ekki mega gleymast. Nauðsynlegt og gott er að taka mið af þeim og nýta sem innlegg í samtímann. Reynslu sem við getum nýtt okk- ur. Við erum að tala um fólkið sem kenndi okkur bænir og bað fyrir okkur og með okkur við rúm- stokkinn, morgunverðarborðið eða kvöldverðarborðið. Þegar við héld- um út í daginn, fórum í skólann í fyrsta sinn og svo framvegis. Hvort sem bænirnar voru beðnar upphátt eða í hljóði eða með hvaða hætti sem þær fóru fram, leynt eða ljóst. Að okkur vitandi eða óafvitandi. Biðjum jafnframt fyrir aðstand- endum okkar eldri borgara og öll- um þeim sem koma að umönnun þeirra. Tökum líka tillit til langveikra Biðjum einnig fyrir þeim sem haldnir eru einhvers konar sjúk- dómum sem draga úr færni og virkni viðkomandi og þurfa því að fara sérstaklega gætilega í því ástandi sem við höfum búið við það sem af er árs. Biðjum einnig fyrir aðstand- endum þeirra og eins öllum þeim sem eru áhyggjufullir og kvíðnir vegna eigin stöðu eða ástvina sinna eða fyrir því sem koma skal. Hulinni framtíð sem enginn veit hvað kann að bera í skauti sér. Elskum á meðan við lifum. Elskum fólkið okkar á meðan það lifir. Því þegar fólkið okkar er far- ið er of seint að sýna því um- hyggju, virðingu og ást svo það fái notið þess. Kærleikans Guð, höfundur og fullkomnari lífsins, blessi okkur öll öllum stundum, jafnt að degi sem nóttu, í gleði og raunum, ævina á enda og um eilífð í sínum mis- kunnsama, náðarríka, fyrirgefandi og friðgefandi faðmi. Í frelsarans Jesú nafni. Með samstöðu-, kærleiks- og friðarkveðju. Lifi lífið! Elskum, í öllum aðstæðum, alla ævi Eftir Sigurbjörn Þorkelsson »Hugsum hlýlega til langveikra og okkar elstu samborgara sem sumir hverjir kunna að hafa lifað við einveru og fundið til einmanaleika, kvíða eða óöryggis. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Róðurinn hefur þyngst. Það árar illa og líklega er betra að róa lítið eitt upp í en láta reka undan. Við megum ekki leggja árar í bát og slá slöku við, þá fyrst siglum við í strand. Uppgjöf er ekki upp á marga fiska – þeir fiska sem róa segjum við. Sums staðar liggur fiskur und- ir steini og við sem erum iðin við kolann erum fær í flestan sjó. Við reynum hvað við getum að koma hlutunum á réttan kjöl og oft vex okkur fiskur um hrygg. Mikilvægi sjávarnytja sést glöggt í máli okkar. Það er eitt- hvað við fortíðina, sögu þess liðna og þeirra tækifæra sem felast í því að draga lærdóm af reynslu, þ.e. að gera betur. Auðlindir á borð við jarðnæði, hreinan sjó í íslenskum fjörðum og hið hreina vatn sem Ís- land býr yfir, bæði kalt og heitt, gefa tækifæri til framleiðslu verð- mæta. Þessar auðlindir okkar eru frumforsendur og grundvöllur arð- bærs fiskeldis. Viljinn til að standa sig vel er það eina sem þarf því ekkert verk er lélegt nema illa unnið verk eins og Laxness komst að orði. Mönnum yfirsést stundum að framtíðin felst í lausnum. Það þarf ekki endilega að finna upp hjólið, stundum er nóg að huga betur að því sem fyrir er. Líkt og sagt er: að fortíð skal hyggja ef frumlegt skal byggja. Framtíð sjávarútvegs felst að mínu mati í fiskeldi. Það sannast best á því að veiðar úr villtum stofnum hafa haldist óbreyttar í tonnum talið undanfarin 30 ár, dregist heldur saman ef eitthvað er. Það er því ljóst að eigi sjáv- arafli að aukast á heimsvísu verð- ur aukningin að koma úr eldi. Fiskeldi er talið álitleg leið til matvælaframleiðslu vegna góðrar nýtingar fiska á vatni, rými, fóðri og orku. Fiskeldi getur m.ö.o. ver- ið mikill hvalreki. Greinin er at- vinnuskapandi og stuðlar að auk- inni hagsæld. Hún er jafnframt talin góð leið til þess að fæða hinn ört vaxandi fólksfjölda hér á jörðu og einnig til að mæta minnkun fiskafla úr villtum stofnum. Skiptar skoðanir eru um það hvort friða beri Eyjafjörð fyrir laxeldi í sjó. Orðræðan virðist byggð á tilfinn- ingu fremur en rök- semdum því aldrei hefur Hafrann- sóknastofnun birt gögn, sem aflað hefur verið fyrir skattfé okkar landsmanna, um burðarþols- eða áhættumat fyrir Eyja- fjörð. Við getum hreinlega ekki sett blátt bann við fiskeldi í sjó undir þessum kring- umstæðum. Við verðum að átta okkur á því að þar sem er vilji, þar er vegur. Og þar sem er vegur, þar býr fólk sem þarf að hafa til hnífs og skeiðar. Þegar grunnupplýsingar liggja fyrir höfum við flöt til þess að vinna á. Á sandi byggði heimskur maður hús, ekki satt? Byrjum á réttum enda, ræðum staðreyndir, kosti og galla og tökum upplýsta ákvörðun í stað þess að girða fyrir atvinnusköpun komandi kynslóða með geðþóttaákvörðunum. Að endingu langar mig til að vitna aftur í Laxness. Hér birtist brot úr ritverki hans Atómstöðinni enda eru skiptar skoðanir um margt, svo sem lax og svo Laxness sjálfan. „Til hvers er verið að gera mynd sem á að vera einsog náttúr- an, þegar allir vita að slíkt er hið eina sem mynd getur ekki verið og á ekki að vera og má ekki vera. Hver hefur komið upp með það að náttúran sé sjónin tóm? Þeir sem þekkja náttúruna heyra hana fremur en sjá; finna hana fremur en heyra; þefa hana, já mikil ósköp – en éta hana þó fyrst og fremst.“ Um nútíð, framtíð, lax og Laxness Eftir Gunnlaugu Helgu Ásgeirsdóttur Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir » Skiptar skoðanir eru um það hvort friða beri Eyjafjörð fyrir lax- eldi í sjó. Orðræðan virðist byggð á tilfinn- ingu fremur en rök- semdum. Höfundur er sjávarútvegsfræð- ingur. gunnlaughelga@gmail.com

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.