Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Skjaldborg, hátíð íslenskra heim- ildarmynda, verður haldin í sam- starfi við Bíó Paradís nú um helgina, 18.-20. september, en há- tíðinni var frestað í tvígang fyrr á árinu vegna kófsins. Skjaldborg er jafnframt fyrsta hátíðin sem haldin er í Bíó Paradís sem hefur verið lokað frá því um miðjan mars. Óvíst var þá um framtíð kvik- myndahússins en nú hefur tekist að tryggja rekstur þess og viða- miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæðinu. Þrettán myndir verða frum- sýndar á hátíðinni og sjö verk í vinnslu kynnt og er dagskráin nán- ast óbreytt frá þeirri sem kynnt var í júlí. Heiðursgestur hátíðar- innar í ár er Hrafnhildur Gunn- arsdóttir og verða sýndar valdar myndir eftir hana auk þess sem kvikmyndagerðarmaðurinn Haf- steinn Gunnar Hafsteinsson mun leiða masterklassa með henni. „Það er ekkert grín að vera menningarstjórnandi í dag við þessar aðstæður,“ segir Karna Sigurðardóttir, stjórnandi hátíð- arinnar. „Margar kvikmyndahátíðir hafa farið fram á netinu en Skjald- borg snýst svo mikið um samveru og nánd, þetta er eins konar árshá- tíð heimildarmyndagerðarfólks og því var okkur mikilvægt að fólk kæmi saman, að við myndum ná því. Þó við séum að vinna með mjög miklar takmarkanir þá er það kjarninn í Skjaldborg, samveran og samtölin sem myndast milli mynda.“ Karna segir boðið upp á mjög góða heimildarmyndaveislu og að dagskrá Skjaldborgar eflist með ári hverju. Fjölbreytt viðfangsefni Eftirfarandi heimildarmyndir verða frumsýndar á Skjaldborg en lýsingar eru fengnar af vef Bíós Paradísar. Senur úr listrænu ferli Leikstjóri Ívar Erik Yeoman. Heimildarmynd sem veitir einstaka innsýn í vinnu leikstjórans Hlyns Pálmasonar við gerð kvikmyndar- innar Hvítur, hvítur dagur. Með aðgang að vídeódagbókum Hlyns og með því að fylgja tökuliði myndarinnar eftir eins og fluga á vegg fangar verkið senur úr list- rænu ferli þessa margverðlaunaða kvikmyndagerðarmanns á mynd- rænan og einlægan hátt. Að sýna sig og sjá aðra Leikstjóri Sandra Björg Ernu- dóttir. Hinn 1. febrúar árið 2020 var þorranum fagnað í félagsheim- ilinu Klifi í Ólafsvík. Þar var sam- ankominn fjöldi Ólsara til að sýna sig og sjá aðra. Skyggnst verður inn í undirbúning og framkvæmd þorrablótsins. Aftur heim? Leikstjóri Dögg Mósesdóttir. Sögur kvenna í heimafæðingu í gegnum linsu kvikmyndagerðar- konu sem skoðar viðhorf sitt til kvenleikans eftir tilraun til að fæða heima. Hálfur álfur Leikstjóri Jón Bjarki Magnús- son. Vitavörðurinn Trausti tengist sínum innri álfi á meðan hann und- irbýr hundrað ára afmælið eða eig- in jarðarför. Á sama tíma hörfar Hulda inn í heim horfinna ljóða með aðstoð stækkunarglersins síns. Þegar hann brestur í söng skipar hún honum að hætta þessum öskr- um. Last And First Men Leikstjóri Jóhann Jóhannsson. Í myndinni flökkum við um svæði í niðurníðslu þar sem sorglegir at- burðir hafa gerst – staðir hlaðnir táknrænni merkingu. Í gegnum myndina skynjum við nærveru, einhverskonar vitund sem er að reyna að hafa samband við okkur. Shore Power Leikstjóri Jessica Auer. Skemmtiferðaskip kemur til hafnar á Seyðisfirði með farþega sem jafnast á við sexfaldan íbúafjölda bæjarins og er fjórum sinnum hærra en nokkurt mannvirki á staðnum. PLAY! Leikstjóri Þórunn Hafstað. Rétt utan við borgina starfaði einstakur leikskóli um skeið þar sem leik- svæðið var ósnert náttúran um kring. Leikurinn leiðir okkur inn í heim þar sem börnin kanna um- hverfið en fullorðnir sjást hvergi. Skyndilega verður rof í þessari til- veru þegar fullorðnir skerast í leik- inn og krökkunum er smalað inn í hádegismat; þann síðasta á þessum stað. Góði hirðirinn Leikstjóri Helga Rakel Rafns- dóttir. Myndin er sería af lifandi póstkortum frá afskekktum stað sem sumir sjá sem ævintýraland á meðan aðrir býsnast yfir draslinu. Er ást Leikstjóri Kristín Andrea Þórð- ardóttir. Helena Jónsdóttir kvik- myndaleikstjóri og Þorvaldur Þor- steinsson, skáld og myndlistar- maður, voru par og nærðust á skapandi lífskrafti hvort annars. Þar til dauðinn aðskilur eru heit sem ná út fyrir tíma og rúm en Þorvaldur lést árið 2013. Helena leitar að styrk til að halda áfram með líf sitt og listsköpun samhliða því að koma arfleifð hans í örugga höfn. Just A Closer Walk With Thee Leikstjóri Matthew Barney. Myndin er óður til Ólafs Stephen- sen, djassgeggjara og auglýsinga- manns, sem féll frá 2016. Lagið er amerískt þjóðlag og vinsæll jarðar- fararsálmur í New Orleans. Mynd- in lýsir á óhlutbundinn hátt ein- hvers konar jarðarför en á sama tíma nýrri byrjun, lífshlaupi og frelsi. MÍR: Byltingin lengi lifi Leikstjóri Haukur Hallsson. Fé- lagið MÍR var stofnað árið 1950 í þeim tilgangi að efla menningar- tengsl Íslands og Ráðstjórnarríkj- anna sálugu. Nú þremur áratugum eftir fall járntjaldsins heldur félag- ið enn lífi í byltingunni með viku- legum sýningum á gömlum sov- éskum kvikmyndum. En er hér einungis fortíðarþrá á ferðinni eða á félagið arfleifð sem vert er að varðveita? Ökukveðja Leikstjóri Kolbrún Dögg Krist- jánsdóttir. „Myndin fjallar um ferl- ið við að hætta að keyra og mína leið til að takast á við þá breytingu að vera farþegi en ekki með hönd á stýri. Af hverju kvíði ég svona fyr- ir að hætta að keyra? Hvernig öku- maður var ég að mati vina og ætt- ingja? Hvað er svona merkilegt við að keyra, er ekki fínt að geta bara verið full aftur í eins og alvöru- listamaður?“ skrifar Kolbrún. The Arctic Circus Leikstjórar Håkon Sand og Gud- mund Sand. Í myndinni kynnumst við íslenskum sirkuslistamönnum á ferðalagi þeirra um landið. Tvær myndir úr höfundarverki Hrafnhildar Gunnarsdóttur verða einnig sýndar á hátíðinni: Hver hengir upp þvottinn? Myndin sýnir mannréttindabar- áttukonuna Tinu Naccache þvo þvottinn í íbúð sinni í Beirút. Kúnstin við þvottana afhjúpar hið raunverulega eftirstríðsástand í borginni sem er enn þjáð af vatns- og rafmagnsskorti eftir margra ára stríð og átök. Hrein og bein Í kvikmyndinni segja samkyn- hneigð ungmenni frá lífi sínu. Þau rifja upp einmanaleikann, ástar- þrána, óttann við höfnun og skort á jákvæðum fyrirmyndum, uns þeim tókst að rjúfa vítahringinn, segja frá tilfinningum sínum og læra að njóta eigin tilveru. Húmor og al- vara togast á í þessari einlægu og hispurslausu mynd um reynslu nokkurra íslenskra unglinga og hvað það þýðir að takast á við flóknar staðreyndir lífsins, leysa fjötrana og eignast hamingjusamt líf. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Samstarf Karna Sigurðardóttir, stjórnandi Skjaldborgar, og Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíós Para- dísar, snúa bökum saman í kófinu. Skjaldborg hefst í dag í kvikmyndahúsinu og verður út helgina. Mikilvæg samvera og nánd  Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg hefst í Bíó Paradís  Kvikmyndahúsið opnað á ný  Hrafn- hildur Gunnarsdóttir heiðursgestur  Árshátíð heimildarmyndagerðarfólks, segir stjórnandi Fuglasmiðurinn Sigurbjörn Helgason hefur komið sér fyrir í vinnustofunni í safnbúð Hönn- unarsafns Ís- lands og mun í þrjá mánuði smíða fugla, stóra sem smáa meðan á dvöl hans stendur. Fugl- arnir eru unnir úr ýmiskonar efni- við, sem er oftast nær fundinn eins og hreindýrshorn, reyniviðar- drumbar úr garðinum eða reka- viðarbútar. Hver fugl hefur sinn sérstaka karakter sem mótast af efninu og geta gestir fylgst með og spjallað við hönnuðinn. Ugla eftir Sigurbjörn. Fuglasmiður í Hönnunarsafninu Fyrri hluti endurminninga Obama, fyrrver- andi Bandaríkja- forseta, kemur út fljótlega eftir forsetakosning- arnar í Banda- ríkjunum í nóv- ember. Bókin nefnist A Promised Land og verður 768 síður. Útgefandinn, Penguin Random House, segir fyrsta upplag verða um þrjár milljónir eintaka og kem- ur bókin samtímis út á 25 tungu- málum. Í bókinni fjallar Obama um stjórnmálaferilinn, forsetaframboð sitt og tímann fram að falli Osama bin Laden árið 2011. Minningar Obama væntanlegar SMARTLANDS BLAÐIÐ Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 2. október Í Smartlandsblaðinu verður fjallað um tísku, förðun, snyrtingu, heilsu, fatnað, umhirðu húðarinnar og fleira. SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudagsins 28. september NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.