Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
Breikkun Framkvæmdir við breikkun Suðurlandsvegar á milli Hveragerðis og Selfoss eru í fullum gangi. Íslenskir aðalverktakar vinna verkið og nota til þess stórvirkar vinnuvélar. Aðal-
verktakar unnu einnig fyrri áfangann sem lokið var á síðasta ári. Nú er breikkaður sjö kílómetra kafli, frá Kotstrandarkirkju að Biskupstungnabraut. Stefnt er að verklokum haustið 2023.
Kristinn Magnússon
Innan breska stjórn-
kerfisins er unnið að
smíði lagafrumvarps til
að þrengja valdsvið
Mannréttindadómstóls
Evrópu (MDE) í
Strassborg gagnvart
Bretlandi á þeim svið-
um þar sem Bretar
telja að Strassborg-
ardómararnir hafi
„gengið of langt“.
Þar er meðal annars um að ræða
ákvæði mannréttindasáttmála Evr-
ópu sem eru skjól fyrir farand- og
flóttafólk vilji það komast hjá fram-
kvæmd brottvísunar og ákvæði sem
nota má gegn breskum hermönnum
vegna þátttöku þeirra í aðgerðum ut-
an Bretlands. Þessi ákvæði eru nú
meðal lögskýringargagna breskra
dómara við ákvarðanir þeirra vegna
mála sem undir þau falla.
Breskir stjórnmálamenn, andvígir
aðild að Evrópusambandinu, hafa
lengi gagnrýnt MDE og dóma ESB-
dómstólsins sem reistir eru á mann-
réttindaákvæðum ESB. Í brexit-við-
ræðunum hafa fulltrúar ESB krafist
þess að Bretar viðurkenni áfram
mannréttindasáttmála Evrópu og
mannréttindaákvæði í sáttmálum
ESB að öðrum kosti sé samstarfi
ESB og Breta í þágu löggæslu stefnt
í hættu. Þarna er meðal annars vísað
til mikilvægra hagsmuna Breta af að-
ild að Europol, Evrópulögreglunni,
eftir ESB-úrsögnina.
Í kosningastefnuskrá breska
Íhaldsflokksins fyrir þingkosningar á
árinu 2019 sagði að endurskoða bæri
mannréttinda- og stjórnsýslulög til
að tryggja hæfilegt jafnvægi milli
réttar hvers einstaklings, brýnna
þjóðaröryggishags-
muna og virkrar stjórn-
sýslu.
Gagnrýni breskra
ráðherra á MDE er
meðal annars sú að
dómararnir í Strass-
borg afflytji 67 ára
gamlan mannréttinda-
sáttmála Evrópu í
„framsækinni“ laga-
túlkun og með dómum
sem reistir séu á henni.
Innan Íhaldsflokksins
benda áhrifamenn á að
aldrei hefði neinn gert ráð fyrir að
MDE yrði beitt á þann veg sem nú er
gert í málum hælisleitenda. Þar hafi
Strassborgardómararnir skapað víð-
tækari lagareglur en felast í ákvæð-
um mannréttindasáttmálans.
Stefna breskur ríkisstjórnarinnar
hefur verið mörkuð. Óánægjan með
MDE í Bretlandi er djúpstæðari en
svo að unnt sé að líta á afstöðuna sem
leikbragð í ESB-viðræðunum þótt
ýmislegt annað sem ber hátt um
þessar mundir vegna spennunnar
milli Breta og ESB kunni að vera
það.
Höfuðsmiður laga og reglna?
Ráðherraskrifstofa Evrópuráðsins
og Evrópuráðsþing 47 aðildarríkja
starfa við hlið MDE í Strassborg.
Þrír íslenskir þingmenn sitja á
Evrópuráðsþinginu. Við ráðið starfar
fastanefnd Íslands undir forystu
Ragnhildar Arnljótsdóttur, fyrrv.
ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneyt-
inu. Árið 2022 tekur Ísland við for-
mennsku í ráðherraráði Evrópuráðs-
ins. Róbert Spanó, fulltrúi Íslands í
MDE, var kjörinn forseti dómstólsins
í apríl 2020 en forveri hans í embætti
var Grikki.
Afstaða Breta til MDE og gagn-
rýni á dómstólinn víðar í aðildarríkj-
unum 47 hrín ekki á MDE-dómurun-
um. Þeir sitja í virki og fara sínu fram
innan þess og utan. Nýleg turnlaga
bygging dómstólsins minnir á sjálf-
stæði hans.
Nú bíða um 65.000 mál afgreiðslu
hjá dómstólnum. Innan turnsins
kunna menn að túlka málafjöldann á
þann veg að hann sýni tiltrú til dóm-
stólsins, að dómararnir séu verðir
gegn óréttlæti og ofríki yfirvalda.
Ríkisvald einstakra landa er jafnan í
sæti „sökudólgsins“ fyrir dómstóln-
um, hann er einskonar hæstiréttur
hæstarétta aðildarlandanna.
Utan dómstólsins er málafjöldinn
talinn dæmi um óskilvirkni dómstóls-
ins. Hann gangi fram í skjóli virðing-
arinnar sem Evrópuráðið ávann sér á
árum áður en fer nú þverrandi meðal
annars vegna málflutnings á Evrópu-
ráðsþinginu sem þjónar frekar Evr-
ópuráðinu sem stofnun en hugsjón-
unum sem ráðið var stofnað til að
vernda. Hefur þetta meðal annars
birst í ákvörðunum þingmanna þegar
Rússar eiga í hlut.
Markús Sigurbjörnsson, fyrrver-
andi forseti Hæstaréttar Íslands,
sagði í samtali við Lögmannablaðið
vorið 2020:
„Það getur verið erfitt að átta sig á
því hvað Mannréttindadómstóllinn
ætlast til að maður geri. Auðvitað er
það skrítin veröld þegar íslenska rík-
inu er dæmt áfelli, út af til að mynda
tjáningarfrelsi, vegna þess að Hæsti-
réttur Íslands fylgdi ekki kríteríun-
um frá Mannréttindadómstólnum, en
bara óvart voru þessar kríteríur ekki
til þegar málið var dæmt. Það er erf-
itt að reyna að fylgja svona línu.[] Í
mörgum tilvikum mætti fylgja með:
Að vísu skipti þetta atriði engu máli í
þessu tilviki en þið nefnduð þetta
samt ekki og úr því að þessi krítería
var ekki tekin til skoðunar þá var
brotið gegn mannréttindum. Þetta er
orðin allt önnur veröld en hún var og
í raun má spyrja hvernig Mannrétt-
indadómstóllinn lítur á sitt eigið hlut-
verk. Er hann orðinn einhvers konar
höfuðsmiður laga eða reglna sem
veitir öllum landsdómstólum leiðsögn
um það hvernig þeir eiga að gera
hlutina og ef því er ekki fylgt er allt
ómögulegt.“
Þarna er lýst stofnun sem telur sig
geta farið sínu fram hvað sem tautar
og raular.
Misráðin Tyrklandsheimsókn
Róbert Spanó, forseti MDE, fór í
umdeilda opinbera heimsókn til
Tyrklands 3. til 5. september. Öll rök
fyrir heimsókninni bera þess merki
að ekkert knúði á um hana annað en
þrýstingur frá stjórnvöldum í Tyrk-
landi og metnaður dómsforsetans.
Tyrkneskir ráðamenn hafa á und-
anförnum árum gerst sekir um gróf
mannréttindabrot. Nú hafa þeir þó
fengið gæðastimpil frá forseta dóm-
stólsins í Strassborg. Hann varð
meðal annars heiðursdoktor háskóla
sem er alræmdur fyrir ofsóknir í
garð prófessora af því að stjórnvöld
líta þá óvildarauga.
Einkennilegt er að notað sé orðið
„hefð“ til að skýra tilefni Tyrklands-
ferðar og doktorsnafnbótar Róberts.
Aldrei áður hefur forseti MDE farið í
opinbera Tyrklandsheimsókn. Þá er
ekki heldur hefð að forsetar MDE
þiggi doktorsnafnbót sér til heiðurs.
Síðan 2016 hefur ríkt óöld í Tyrk-
landi vegna ofsókna gegn almennum
borgurum eftir misheppnaða tilraun
til að steypa Recep Tayyip Erdogan
forseta af stóli. Erdogan grefur
markvisst undan stjórnkerfi lýðveld-
isins frá 1923 sem Kemal Atatürk,
„faðir“ nútíma Tyrklands, stofnaði.
Þar var skilið milli trúmála og stjórn-
mála. Skilin eru Erdogan ekki að
skapi. Hann sækir stuðning til þjóð-
ernissinnaðra múslima, talsmanna
löggjafar að hætti Kóransins. Hún
fellur ekki að mannréttinda-
sáttmálanum, stjórnarskrá mann-
réttindadómstólsins.
Heimsóknin til Erdogans og við-
ræður við hann og stuðningsmenn
hans er fleinn í holdi þeirra sem sæta
ofsóknum af hálfu valdamannanna.
Forseti MDE neitaði staðfastlega að
hitta þá í Tyrklandi sem þurfa á
vernd MDE að halda en ekki gæða-
stimpli dómsforsetans á Erdogan.
Fyrir utan dómgreindarskort á
stöðu mála í Tyrklandi sýnir opinber
heimsókn þangað á þessari stundu
skilningsleysi á utanríkis- og öryggis-
málum. Tyrkir deila við Frakka
vegna þrotríkisins Líbíu. Þá sækja
Tyrkir gegn Grikkjum vegna yfirráða
á Eyjahafi. Tyrkir hafa þar hafrétt-
arsáttmála SÞ að engu. Hvarvetna
fer Erdogan fram með hótunum.
Forsetaheimsóknin til Tyrklands í
nafni mannréttinda var misráðin.
Hún staðfestir að innan Mannrétt-
indadómstóls Evrópu ríkir andi yfir-
lætis og skeytingarleysis. Fleiri
kunna að feta í fótspor bresku íhalds-
þingmannanna og telja þjóðum sínum
betur borgið án afskipta dómaranna.
Eftir Björn
Bjarnason »Dómararnir sitja í
virki og fara sínu
fram innan þess og utan.
Nýleg turnlaga bygging
dómstólsins minnir á
sjálfstæði hans.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Mannréttindadómstóll í ólgusjó