Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ursula vonder Leyen,forseti framkvæmda- stjórnar Evrópu- sambandsins, lýsti því yfir á miðviku- dag, að sambandið hygðist setja sér nýjar reglur um mál- efni flóttamanna og kæmu þær í stað Dyflinnar- reglugerðarinnar svonefndu, sem hefur verið grundvöllur málsmeðferðar í þessum efn- um í þrjátíu ár. Samkvæmt reglugerðinni ber að meta umsókn um hæli einungis í einu af aðildarríkj- unum sem samþykkt hafa að gangast undir hana, en auk Evrópusambandslandanna eru Ísland og Noregur þar á með- al. Reglugerðin á að koma í veg fyrir að einn og sami hælisleit- andinn geti verið með umsókn um hæli í nokkrum ríkjum á sama tíma, en í einhverjum til- fellum var slíkum brögðum beitt til þess að fólk gæti hald- ið sér „á floti“, sent frá einu aðildarríki til annars, jafnvel án þess að nokkur fótur væri fyrir hælisumsóknunum. Hin síðari ár hefur hrikt í stoðum reglugerðarinnar, þar sem flóttamannavandinn, sem hófst 2015, setti langmestan þrýsting á þau ríki sem fyrst urðu fyrir straumnum, einkum Ítalíu og Grikkland, en einnig að einhverju leyti Spán. Hin síðari ár hafa því heyrst há- værar raddir um að hinum aðildarríkjum Evrópusam- bandsins beri að axla auknar byrðar í þessum efnum. Enginn vill þó verða fyrstur til að taka þessar byrðar á sig, og skyldi engan undra. Sem dæmi má nefna að við Ermar- sundið hefur undanfarin tvö ár ríkt allsérstakt ástand, þar sem flóttafólk, einkum ungir karlmenn, sem vilja sækja um hæli í Bretlandi, hefur safnast saman við Calais og leitar fær- is til að sigla á gúmbátum yfir sundið. Hvorki Frakkar né Bretar hafa áhuga á að taka við fólkinu, en þeir sem komast alla leið fá í langflestum til- fellum hæli, þvert á vilja breskra stjórnvalda, sem leita nú leiða til þess að breyta lög- gjöf sinni til að auðvelda þeim að vísa fólki úr landi. Ein ástæðan sem bresk stjórnvöld hafa gefið fyrir af- stöðu sinni er sú, að hinar ólög- legu siglingar eru oftar en ekki skipulagðar af glæpahópum, sem hætta lífi flóttafólksins fyrir persónulegan ávinning og senda það af stað á troðfylltum bátum, sem í mörgum tilfellum geta vart talist haffærir. Frönsk stjórnvöld, sem hafa brýnt fyrir öðrum ríkjum Evr- ópusambandsins að gera meira í móttöku flótta- fólks, virðast ekki hafa mikinn áhuga á að koma í veg fyrir Ermarsunds- ferðirnar, en alls óvíst er hvað muni taka við eftir næstu áramót þegar útganga Breta úr Evr- ópusambandinu kemur að fullu til framkvæmda. Víst þykir þó að þeir muni ekki vilja taka þátt í Dyflinnarreglugerðinni eða boðuðum arftaka hennar og reyna eflaust að verja landamæri sín með skilvirkari hætti. Þetta er einungis eitt dæmi, en málin eru fleiri og hafa teygt sig um alla Evrópu, þar á meðal hingað til lands. Um- ræðan hér hefur of oft markast af því að þeir sem ná að koma málum sínum á framfæri við fjölmiðla telji sig geta fengið einhvers konar sérmeðferð, hvað sem Dyflinnarreglugerð líður. Slík nálgun kann ekki góðri lukku að stýra, sama hversu sár einstök mál geta orðið. Augljóst er að hugmyndir um að galopna landið og hleypa öllum inn sem hingað vilja koma ganga þvert gegn hagsmunum Íslendinga sem gætu með engu móti tekið á móti þeim fjölda sem hingað vill koma. Raunsæi verður að ráða för og ljóst er að á liðnum árum hefur, þrátt fyrir Dyflinnarreglugerð og vegna þeirra lausataka sem „fjöl- miðlanálgunin“ hefur haft í för með sér, gríðarlegur fjöldi fólks komið hingað til lands á þeirri forsendu að það sé á flótta undan slæmum að- stæðum af einhverju tagi. Við getum tekið við einhverjum í slíkri stöðu, en það má ekki gerast á þann hátt sem verið hefur á undanförnum árum þar sem fólkið hefur flætt nán- ast stjórnlaust inn í landið. Yfirlýsing Von der Leyen hlýtur að verða að skoða í því ljósi að stjórnvöld hér á landi hafa vísað í Dyflinnarreglu- gerðina þegar erfið mál hafa komið upp. Og þó að reglu- gerðinni hafi ekki verið beitt af þeirri festu sem skyldi hefur hún hjálpað og án hennar dytti varla nokkrum manni í hug að verja þátttöku okkar í Scheng- en-samstarfinu, sem er í meira lagi vafasamt, jafnvel með reglugerðinni. Arftaki Dyflinnarreglugerð- arinnar verður kynntur betur í næstu viku. Ljóst er að það mun skipta íslensk stjórnvöld miklu máli, að þar verði áfram tryggt, að Ísland eigi ein- hverja möguleika á að verja landamæri sín og ákveða hverjir geta komið hingað og sest að. Án Dyflinnarreglu- gerðarinnar verður aðild að Schengen enn óhagstæðari} Á að opna upp á gátt? F erðalag forseta Mannréttinda- dómstóls Evrópu til Tyrklands hefur vakið athygli víða. Þar átti dómsforsetinn viðræður við Er- dogan Tyrklandsforseta sem er einn valdaþyrstasti stjórnmálaforingi nú um stundir. Í skiptum fyrir að kyssa vönd Erdog- ans öðlaðist dómsforsetinn heiðursdoktorsnafn- bót við háskólann í Istanbúl. Áðurnefndur Erd- ogan hefur staðið framarlega í flokki við að ofsækja pólitíska andstæðinga sína, einkum há- skólaborgara, blaðamenn og mannréttinda- frömuði, auk þess að beina spjótum sínum að kvenfrelsiskonum, dómurum og embættis- mönnum. Tyrklandsforseti hefur nýtt sér til fulls ástand sem skapaðist í landinu eftir meinta uppreisnartilraun. Dómsforsetinn ákvað að líta fram hjá athöfnum Tyrklandsforseta til að eiga við hann orð, væntanlega um framgöngu hans í mannrétt- indamálum. Það er nefnilega svo nauðsynlegt að „eiga samtalið“ eins og þar segir. Hugsanlega hefur tal þeirra félaganna hneigst að stöðu þeirra tugþúsunda sem nú sitja í yfirfullum fangelsum vegna pólitískra skoðana sinna. Dómsforsetinn vitnar til hefða vegna heimsóknarinnar. Nú kann vel að vera að það sé hefð hjá Mannréttinda- dómstólnum að heimsækja brotamenn, væntanlega til þess að reyna að reyna að hafa áhrif á hegðan þeirra. Greinarhöfundi er til efs að grundvallarbreytingar verði á stöðu mannréttindamála í Tyrklandi eftir spjall þeirra fé- laganna yfir tesopanum nú um daginn. Hvað sem því líður er dómsforsetinn snúinn aftur til síns heima skreyttur silkihúfu Erdogans og hugleiðir næstu skref. Hann hlýtur að hugsa með sjálfum sér hvort heimsóknin sé líkleg til að efla virðingu og sjálfstæði Mannréttindadómstólsins til framtíð- ar. Einnig hlýtur dómsforsetinn að hugleiða með tilliti til undirtekta og viðbragða vegna Tyrk- landsheimsóknarinnar nú um daginn hvort hefð- in svokallaða hafi orðið til góðs og hvort hún kalli hugsanlega á enn frekari heimsóknir til brota- manna. Þá verður greinarhöfundi á að hugsa til annars meints brotamanns sem nú um stundir fer mjög fram í mannréttindamálum í kjölfar kosninga sem hafa notið lítillar virðingar útífrá, nefnilega Alexanders Lukashenko, forseta Hvíta-Rússlands. Sá dánumaður hlýtur nú að skoða þann möguleika að bjóða dómsforsetanum í tesopa og bjóða fram eins og eina heiðurs- doktorsnafnbót honum til handa að loknu góðu spjalli. Það er niðurlæging við bæði Mannréttindadómstólinn og for- seta hans að éta úr lófa Erdogans og óvíst að fundum þeirra hafi verið fagnað í yfirfullum fangelsum harðstjór- ans. Traust á dómstólnum hefur enda snarminnkað ef marka má viðbrögð víða við Tyrklandsför dómsforsetans. Það virðist hins vegar ríkja nokkur fögnuður yfir heim- sókninni hjá tveim íslenskum þingmönnum sem hafa að jafnaði borið mannréttindi fyrir brjósti að eigin sögn. Þorsteinn Sæmundsson Pistill Fyrst tökum við Istanbúl – síðan Minsk Höfundur er alþingismaður Miðflokksins í Reykjavík suður. thorsteinns@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Aðalástæða þess að stjórn-völd stefna að lagningunýs fjarskiptasæstrengstil Evrópu er krafa nú- tímans um öryggi í fjarskiptum við útlönd. Með þriðja strengnum er nokkurn veginn tryggt að landið verði aldrei sambandslaust. Öryggið er einnig lykilatriði í því að laða hingað gagnaver. Þótt núverandi tenging sé ekki nýtt nema að hluta er vöxturinn það mikill að hún verð- ur fullnýtt eftir sex ár, eða svo. Í stefnu fyrir fjarskipti fyrir tímabilið 2019 til 2033 sem sam- þykkt var á Al- þingi á síðasta ári kemur fram að þrír virkir fjar- skiptastrengir skuli tengja Ís- land við Evrópu. Ríkisstjórnin samþykkti fyrir skömmu að tryggja fjármögnun nýs strengs milli Íslands og Írlands og stefnt skuli að því að taka hann í notkun fyrir lok árs 2022 eða á árinu 2023 í síðasta lagi. Stofnkostnaður er áætlaður 50 milljónir evra sem svarar til um 8 milljarða króna. Framkvæmdin er háð samþykki Al- þingis. Farice ehf., félag í fullri eigu ríkisins, hefur frá byrjun árs 2019 unnið að undirbúningi lagningar nýs strengs fyrir hönd Fjarskiptasjóðs og hefur allan tímann verið stefnt að landtöku á vesturströnd Írlands. Nú hafa náðst samningar við samstarfs- fyrirtæki í Írlandi og verður land- takan í bænum Galway og tengingin til Evrópu og Bandaríkjanna fer um Dyflinni, höfuðborg Írlands. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar gerði það kleift að hefja rannsóknir á hafs- botni út frá Galway. Öryggi upp á fimm níur Þorvarður Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Farice, segir að þörfin fyrir aukið öryggi í fjarskiptum sé meginástæðan fyrir því að ákveðið er að leggja nýjan fjarskipta- sæstreng. Strengirnir eru nú tveir, Farice 1, sem liggur til Skotlands með tengingu við Færeyjar, og Dan- ice sem liggur til Danmerkur. Farice er kominn til ára sinna en hefur staðið vel fyrir sínu, þjónustan hefur ekki rofnað mikið. Öryggi hans er reiknað 99,95% sem þykir ágætt en þýðir að líkur geti verið á að sam- band rofni í 1-2 daga á tíu ára tíma- bili. Þorvarður segir að samfélagið sé orðið svo háð fjarskiptum, eins og skýrt hafi sést í kórónuveirufaraldr- inum, að fólk og atvinnulíf sætti sig ekki við að vera án sambands við umheiminn í svo langan tíma. Þess vegna þurfi nýja leið til Evrópu, óháða þeim sem fyrir eru. Með því sé stefnt að fjarskipta- öryggi upp á „fimm níur“, það er að segja 99,99999% öryggi. Það þýðir að ekki séu líkur á að samband rofni nema í 1-2 klukkustundir á tíu ára tímabili. Þá verði öryggið nánast fullt og í raun ólíklegt að nokkurt rof verði á þjónustunni. Það eru ekki aðeins heimilin og atvinnulífið sem þurfa öruggt fjar- skiptasamband, þriðji strengurinn er talinn forsenda fyrir áframhald- andi uppbyggingu gagnaversiðnaðar hér á landi og annarrar starfsemi í tengslum við fjórðu iðnbyltinguna. Raunar gera sum gagnaversfyrir- tæki kröfur um fjórar mismunandi leiðir úr landi. Þótt öryggisþátturinn sé ráð- andi aukast fjarskiptin svo mikið að innan nokkurra ára má búast við að núverandi strengir verði fulllestaðir. Það rekur því einnig á eftir því að sambandið við Evrópu verði styrkt. Nýr strengur tryggir fjarskiptaöryggi FARICE-1 Greenland Connect DANICE IRIS Sæstrengur til Írlands ÍRLAND Galway ÍSLAND Reykjanes Möguleg leið nýs fjar- skiptasæstrengs (IRIS) milli Íslands og Írlands Þorvarður Sveinsson Næstu verkefni við undirbúning lagningar fjarskiptasæstrengs til Írlands er að fá staðfestingu á því að aðstæður séu góðar til að leggja strenginn til Galway. Skip er nú við rannsóknir þar og niðurstöður liggja fyrir á næstu vikum. Þá þarf að ljúka ákvörðun um val á stað til landtöku á Íslandi. Ef nýi strengurinn á að vera óháður Danice sem kemur á land á Landeyjasandi þarf hann að vera vestan við hann og stór- fljótin, það er að segja á suður- strönd Reykjanesskagans. Í byrjun árs 2019 var einkum ver- ið að huga að svæðinu fyrir vestan Grindavík og voru Suð- urvík og Mölvík þá til athug- unar. Þorvarður Sveinsson segir markmiðið að ljúka staðarvali fyrir jól og láta gera botnrann- sóknir við þann lendingarstað næsta vor, ef fjármagn fæst. Markmið Farice er að geta farið hratt af stað þegar fjárveitingar fást þannig að strengurinn verði tilbúinn haustið 2022. Lending við Reykjanes STAÐARVAL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.