Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.09.2020, Blaðsíða 40
Hinu árlega Hugvísindaþingi Háskóla Íslands var frest- að í mars síðastliðnum vegna veirufaraldursins en verður nú haldið á netinu, í dag og á morgun. Boðið verður upp á 22 málstofur, þar á meðal um konur og ör- nefni í fornsögum, samtöl við sýndarverur, íslenska vís- indaskáldskaparmynd, hvítleikann í íslenskri sam- tímalist, harðindakafla í Íslandssögunni, íslenska táknmálssamfélagið og sögur sem hafa rykfallið í handritageymslum. Málstofur verða sendar út gegnum Facebook en vistaðar á youtuberás Hugvísindasviðs. Dagskrána má skoða á vefnum hugvisindathing.hi.is. Hugvísindaþing HÍ verður að þessu sinni á netinu, í dag og á morgun FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 262. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Valur og FH eru í tveimur efstu sætunum í Pepsi Max- deild karla eftir sigra í frestuðum leikjum í gær. Vals- menn lögðu Skagamenn á Akranesi, 4:2, og FH-ingar sigruðu Víkinga í Kaplakrika, 1:0. Þar með er forysta Valsmanna orðin átta stig en FH- ingar eru komnir á hæla þeirra, renndu sér upp fyrir Stjörnuna og Breiðablik og eiga leik til góða á Hlíðar- endaliðið. FH hefur fengið 19 stig af 24 mögulegum undir stjórn þeirra Loga Ólafssonar og Eiðs Smára Guð- johnsen. »34 FH-ingar komnir upp í annað sætið en forskot Valsmanna er átta stig ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Systurnar Garima, bráðum tíu ára, og Riya, nær átta ára, eru í Alþjóða- skólanum á Íslandi, sem er í Garða- bæ, og gengur vel í námi. Stúlkurnar hafa vakið athygli fyrir miklar fram- farir í tennis og markmiðið er að ná sem lengst. „Það er svo gaman að spila marga leiki og fá bikara og svo- leiðis, ég á níu bikara,“ segir Garima stolt. Riya veit líka hvað hún vill. „Það er gaman að spila, vinna og hafa gaman.“ Foreldrarnir Nitinkumar Rangrao Kalugade og Dhanashri V. Pawar eru frá Indlandi og hafa búið hérlendis í um 12 ár. „Við fylgjumst ekki mikið með íþróttum og höfum aldrei leikið tennis en komumst ekki hjá því að sjá Pete Sampras og Steffi Graf í keppni í útsendingu sjónvarps á sínum tíma,“ segir Nitinkumar og þakkar frístundakortinu áhuga systranna, sem fæddust á Íslandi, á íþróttinni. Þegar Garima hafi náð fimm ára aldri hafi hún farið í fim- leika og tennis og foreldrarnir fljótt séð að þar væri hún á réttri hillu, sérstaklega í tennis. Riya hafi fetað í fótspor systur sinnar og þau hafi fyrst haldið að með því vildi hún fyrst og fremst ná athygli foreldr- anna en annað hafi komið á daginn. „Þegar hún tapaði leik í annarri keppni sinni gafst hún ekki upp og var ekki reið. „Ég verð að æfa meira því ég vil bæta mig og sigra,“ sagði hún við okkur á leið út í bílinn.“ Góðir þjálfarar Garima keppir fyrir Víking og Riya fyrir Hafna- og mjúkboltafélag Reykjavíkur (HMR), en þær æfa hjá Víkingi og Tennisfélagi Kópavogs í Tennishöllinni. Þær hafa auk þess æft hjá Fjölni og tekið þátt í nám- skeiðum fyrir ungt og efnilegt tenn- isfólk hjá Tennissambandi Íslands. „Hér eru margir frábærir þjálfarar í tennis og dætur okkar hafa notið góðs af því,“ segir Nitinkumar. Bæt- ir við að þau Dhanashri aðstoði þær eftir mætti, fylgist með þeim á æf- ingum og í keppni og sýni þeim kennslumyndbönd og annað fræðsluefni um íþróttir almennt. Þótt tennis sé málið gefa syst- urnar sér tíma til að gera ýmislegt annað í frítímanum, eins og til dæm- is að horfa á teikni- og kvikmyndir. „Mér finnst gaman að lesa, ég les bækur nefnilega,“ segir Riya. „Ég teikna og les bækur eins og Dverga- stein. Svo fer ég út að hjóla, tína ber og alls konar,“ segir Garima. Næstu tvö árin vill Garima keppa á alþjóðlegum mótum fyrir 12 ára og yngri og Riya á mótum fyrir 10 ára og yngri til að sjá hvar þær standa í samanburði við jafnaldra sína í Evr- ópu, en ekki síður til þess að efla sig enn frekar á öllum sviðum. „Við höf- um bara spilað tennis á Íslandi og Indlandi,“ segir Garima og ekki fer á milli mála að þær ætla að bæta úr því. Markmiðin eru skýr og langtíma- draumurinn er að verða meistari á einu af stórmótunum, Opna ástr- alska, Wimbledon á Englandi, Opna franska og Opna bandaríska. „Mig langar til þess að sigra á Wimbledon og US Open,“ segir Garima. Riya tekur í sama streng. „Ég vil ekki bara vinna bæði heldur allt saman! Grand Slam!“ Þær segja samt að óhjákvæmilegt sé að tapa af og til. „Stundum verður maður að tapa,“ segir Garima. „Ef enginn getur tapað þá getur enginn unnið,“ útskýrir Riya. Vilja ná langt í tennis Efnilegar Systurnar Garima og Riya Nitinkumar æfa tennis nær daglega.  Ungu systurnar Garima og Riya stefna á alþjóðleg mót  Riya: „Ef enginn getur tapað getur enginn unnið“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjölskyldan Nitinkumar, Garima, Dhanashri og Riya á æfingu í fyrradag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.