Morgunblaðið - 18.09.2020, Qupperneq 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 2020
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Skjaldborg, hátíð íslenskra heim-
ildarmynda, verður haldin í sam-
starfi við Bíó Paradís nú um
helgina, 18.-20. september, en há-
tíðinni var frestað í tvígang fyrr á
árinu vegna kófsins. Skjaldborg er
jafnframt fyrsta hátíðin sem haldin
er í Bíó Paradís sem hefur verið
lokað frá því um miðjan mars.
Óvíst var þá um framtíð kvik-
myndahússins en nú hefur tekist
að tryggja rekstur þess og viða-
miklar endurbætur hafa verið
gerðar á húsnæðinu.
Þrettán myndir verða frum-
sýndar á hátíðinni og sjö verk í
vinnslu kynnt og er dagskráin nán-
ast óbreytt frá þeirri sem kynnt
var í júlí. Heiðursgestur hátíðar-
innar í ár er Hrafnhildur Gunn-
arsdóttir og verða sýndar valdar
myndir eftir hana auk þess sem
kvikmyndagerðarmaðurinn Haf-
steinn Gunnar Hafsteinsson mun
leiða masterklassa með henni.
„Það er ekkert grín að vera
menningarstjórnandi í dag við
þessar aðstæður,“ segir Karna
Sigurðardóttir, stjórnandi hátíð-
arinnar. „Margar kvikmyndahátíðir
hafa farið fram á netinu en Skjald-
borg snýst svo mikið um samveru
og nánd, þetta er eins konar árshá-
tíð heimildarmyndagerðarfólks og
því var okkur mikilvægt að fólk
kæmi saman, að við myndum ná
því. Þó við séum að vinna með
mjög miklar takmarkanir þá er það
kjarninn í Skjaldborg, samveran og
samtölin sem myndast milli
mynda.“ Karna segir boðið upp á
mjög góða heimildarmyndaveislu
og að dagskrá Skjaldborgar eflist
með ári hverju.
Fjölbreytt viðfangsefni
Eftirfarandi heimildarmyndir
verða frumsýndar á Skjaldborg en
lýsingar eru fengnar af vef Bíós
Paradísar.
Senur úr listrænu ferli
Leikstjóri Ívar Erik Yeoman.
Heimildarmynd sem veitir einstaka
innsýn í vinnu leikstjórans Hlyns
Pálmasonar við gerð kvikmyndar-
innar Hvítur, hvítur dagur. Með
aðgang að vídeódagbókum Hlyns
og með því að fylgja tökuliði
myndarinnar eftir eins og fluga á
vegg fangar verkið senur úr list-
rænu ferli þessa margverðlaunaða
kvikmyndagerðarmanns á mynd-
rænan og einlægan hátt.
Að sýna sig og sjá aðra
Leikstjóri Sandra Björg Ernu-
dóttir. Hinn 1. febrúar árið 2020
var þorranum fagnað í félagsheim-
ilinu Klifi í Ólafsvík. Þar var sam-
ankominn fjöldi Ólsara til að sýna
sig og sjá aðra. Skyggnst verður
inn í undirbúning og framkvæmd
þorrablótsins.
Aftur heim?
Leikstjóri Dögg Mósesdóttir.
Sögur kvenna í heimafæðingu í
gegnum linsu kvikmyndagerðar-
konu sem skoðar viðhorf sitt til
kvenleikans eftir tilraun til að fæða
heima.
Hálfur álfur
Leikstjóri Jón Bjarki Magnús-
son. Vitavörðurinn Trausti tengist
sínum innri álfi á meðan hann und-
irbýr hundrað ára afmælið eða eig-
in jarðarför. Á sama tíma hörfar
Hulda inn í heim horfinna ljóða
með aðstoð stækkunarglersins síns.
Þegar hann brestur í söng skipar
hún honum að hætta þessum öskr-
um.
Last And First Men
Leikstjóri Jóhann Jóhannsson. Í
myndinni flökkum við um svæði í
niðurníðslu þar sem sorglegir at-
burðir hafa gerst – staðir hlaðnir
táknrænni merkingu. Í gegnum
myndina skynjum við nærveru,
einhverskonar vitund sem er að
reyna að hafa samband við okkur.
Shore Power
Leikstjóri Jessica Auer.
Skemmtiferðaskip kemur til hafnar
á Seyðisfirði með farþega sem
jafnast á við sexfaldan íbúafjölda
bæjarins og er fjórum sinnum
hærra en nokkurt mannvirki á
staðnum.
PLAY!
Leikstjóri Þórunn Hafstað. Rétt
utan við borgina starfaði einstakur
leikskóli um skeið þar sem leik-
svæðið var ósnert náttúran um
kring. Leikurinn leiðir okkur inn í
heim þar sem börnin kanna um-
hverfið en fullorðnir sjást hvergi.
Skyndilega verður rof í þessari til-
veru þegar fullorðnir skerast í leik-
inn og krökkunum er smalað inn í
hádegismat; þann síðasta á þessum
stað.
Góði hirðirinn
Leikstjóri Helga Rakel Rafns-
dóttir. Myndin er sería af lifandi
póstkortum frá afskekktum stað
sem sumir sjá sem ævintýraland á
meðan aðrir býsnast yfir draslinu.
Er ást
Leikstjóri Kristín Andrea Þórð-
ardóttir. Helena Jónsdóttir kvik-
myndaleikstjóri og Þorvaldur Þor-
steinsson, skáld og myndlistar-
maður, voru par og nærðust á
skapandi lífskrafti hvort annars.
Þar til dauðinn aðskilur eru heit
sem ná út fyrir tíma og rúm en
Þorvaldur lést árið 2013. Helena
leitar að styrk til að halda áfram
með líf sitt og listsköpun samhliða
því að koma arfleifð hans í örugga
höfn.
Just A Closer Walk With Thee
Leikstjóri Matthew Barney.
Myndin er óður til Ólafs Stephen-
sen, djassgeggjara og auglýsinga-
manns, sem féll frá 2016. Lagið er
amerískt þjóðlag og vinsæll jarðar-
fararsálmur í New Orleans. Mynd-
in lýsir á óhlutbundinn hátt ein-
hvers konar jarðarför en á sama
tíma nýrri byrjun, lífshlaupi og
frelsi.
MÍR: Byltingin lengi lifi
Leikstjóri Haukur Hallsson. Fé-
lagið MÍR var stofnað árið 1950 í
þeim tilgangi að efla menningar-
tengsl Íslands og Ráðstjórnarríkj-
anna sálugu. Nú þremur áratugum
eftir fall járntjaldsins heldur félag-
ið enn lífi í byltingunni með viku-
legum sýningum á gömlum sov-
éskum kvikmyndum. En er hér
einungis fortíðarþrá á ferðinni eða
á félagið arfleifð sem vert er að
varðveita?
Ökukveðja
Leikstjóri Kolbrún Dögg Krist-
jánsdóttir. „Myndin fjallar um ferl-
ið við að hætta að keyra og mína
leið til að takast á við þá breytingu
að vera farþegi en ekki með hönd á
stýri. Af hverju kvíði ég svona fyr-
ir að hætta að keyra? Hvernig öku-
maður var ég að mati vina og ætt-
ingja? Hvað er svona merkilegt við
að keyra, er ekki fínt að geta bara
verið full aftur í eins og alvöru-
listamaður?“ skrifar Kolbrún.
The Arctic Circus
Leikstjórar Håkon Sand og Gud-
mund Sand. Í myndinni kynnumst
við íslenskum sirkuslistamönnum á
ferðalagi þeirra um landið.
Tvær myndir úr höfundarverki
Hrafnhildar Gunnarsdóttur verða
einnig sýndar á hátíðinni:
Hver hengir upp þvottinn?
Myndin sýnir mannréttindabar-
áttukonuna Tinu Naccache þvo
þvottinn í íbúð sinni í Beirút.
Kúnstin við þvottana afhjúpar hið
raunverulega eftirstríðsástand í
borginni sem er enn þjáð af vatns-
og rafmagnsskorti eftir margra ára
stríð og átök.
Hrein og bein
Í kvikmyndinni segja samkyn-
hneigð ungmenni frá lífi sínu. Þau
rifja upp einmanaleikann, ástar-
þrána, óttann við höfnun og skort á
jákvæðum fyrirmyndum, uns þeim
tókst að rjúfa vítahringinn, segja
frá tilfinningum sínum og læra að
njóta eigin tilveru. Húmor og al-
vara togast á í þessari einlægu og
hispurslausu mynd um reynslu
nokkurra íslenskra unglinga og
hvað það þýðir að takast á við
flóknar staðreyndir lífsins, leysa
fjötrana og eignast hamingjusamt
líf.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samstarf Karna Sigurðardóttir, stjórnandi Skjaldborgar, og Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíós Para-
dísar, snúa bökum saman í kófinu. Skjaldborg hefst í dag í kvikmyndahúsinu og verður út helgina.
Mikilvæg samvera og nánd
Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg hefst í Bíó Paradís Kvikmyndahúsið opnað á ný Hrafn-
hildur Gunnarsdóttir heiðursgestur Árshátíð heimildarmyndagerðarfólks, segir stjórnandi
Fuglasmiðurinn
Sigurbjörn
Helgason hefur
komið sér fyrir í
vinnustofunni í
safnbúð Hönn-
unarsafns Ís-
lands og mun í
þrjá mánuði
smíða fugla,
stóra sem smáa
meðan á dvöl hans stendur. Fugl-
arnir eru unnir úr ýmiskonar efni-
við, sem er oftast nær fundinn eins
og hreindýrshorn, reyniviðar-
drumbar úr garðinum eða reka-
viðarbútar. Hver fugl hefur sinn
sérstaka karakter sem mótast af
efninu og geta gestir fylgst með og
spjallað við hönnuðinn.
Ugla eftir Sigurbjörn.
Fuglasmiður í
Hönnunarsafninu
Fyrri hluti
endurminninga
Obama, fyrrver-
andi Bandaríkja-
forseta, kemur út
fljótlega eftir
forsetakosning-
arnar í Banda-
ríkjunum í nóv-
ember. Bókin
nefnist A Promised Land og verður
768 síður.
Útgefandinn, Penguin Random
House, segir fyrsta upplag verða
um þrjár milljónir eintaka og kem-
ur bókin samtímis út á 25 tungu-
málum. Í bókinni fjallar Obama um
stjórnmálaferilinn, forsetaframboð
sitt og tímann fram að falli Osama
bin Laden árið 2011.
Minningar Obama
væntanlegar
SMARTLANDS
BLAÐIÐ
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 2. október
Í Smartlandsblaðinu verður
fjallað um tísku, förðun,
snyrtingu, heilsu, fatnað,
umhirðu húðarinnar
og fleira.
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudagsins
28. september
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is