Morgunblaðið - 25.09.2020, Síða 10
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Karlalandsliðið í knattspyrnu leikur
þrjá landsleiki á Laugardalsvelli á
einni viku eftir um hálfan mánuð.
Völlurinn er í góðu standi miðað við
álag undanfarið og hefur Kristinn V.
Jóhannsson, vallarstjóri, ekki miklar
áhyggjur af vellinum að svo stöddu .
Hann segist þó fylgjast vel með
langtímaveðurspám.
Kristinn sagði í gær að á síðustu
fjórum vikum hefði talsvert álag ver-
ið á vellinum með þremur lands-
leikjum kvenna og karla og þeim
fylgdu jafnan æfingar liða og dóm-
ara. Hann segir að frá því í byrjun
ágúst hafi verið unnið að undirbún-
ingi fyrir leiki haustsins og sá dagur
ekki liðið að ekki væri eitthvað unnið
í vellinum. Miðað við aðstæður megi
segja að völlurinn sé á áætlun og
segist Kristinn hafa rætt við að-
standendur landsliðsins um æfinga-
álag þegar nær dregur landsleikj-
unum í október.
Sleginn nokkrum sinnum
„Hærra hitastig, eins og útlit er
fyrir, mun hjálpa okkur og við von-
umst eftir rigningu um helgina,“
segir Kristinn. „Í dag og í gær bár-
um við áburð á völlinn, sáðum fræi
og gerðum við sár. Völlurinn var
sleginn á miðvikudag og fram að leik
verður hann sleginn nokkrum sinn-
um. Ekki bara til að losna við grasið
heldur ekki síður til að halda lífi í
grasinu og gera munstur í völlinn.“
Fyrsti leikurinn í landsleikjatörn
haustsins verður fimmtudaginn 8.
október þegar Rúmenar koma í
heimsókn. Um umspilsleik fyrir
Evrópukeppnina næsta sumar er að
ræða og leika sigurvegararnir rúm-
um mánuði síðar, 12. nóvember,
gegn annað hvort Búlgaríu eða Ung-
verjalandi. Í þeim leik verður sæti í
úrslitum Evrópukeppninnar í húfi.
Aðeins þremur dögum eftir
Rúmeníuleikinn koma Danir í heim-
sókn sunnudaginn 11. október og á
miðvikudeginum, 14. október, verða
Belgar gestir í Laugardalnum. Þess-
ir tveir leikir eru í Þjóðadeildinni.
Landsleikirnir verða þó ekki síð-
ustu leikir ársins á Laugardalsvelli.
Úrslitaleikur í mjólkurbikar kvenna
fer fram á vellinum 6. nóvember og
karlarnir leika til úrslita tveimur
dögum síðar, svo fremi sem kórónu-
veikin setji ekki strik í reikninginn.
Morgunblaðið/Eggert
Laugardalsvöllur Algeng vorverk hafa verið unnin á vellinum undanfarið og svo verður fram að landsleikjunum.
Vel fylgst með lang-
tímaspám í Laugardal
Sá, vökva og bera áburð á völlinn Landsleikjatörn
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Nemendur ná æ betri tökum á fjar-
námi og kennarar hafa verið opnir
fyrir breytingum á starfsháttum sín-
um,“ segir Steinunn Inga Óttars-
dóttir, skólameistari Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi.
„Vissulega kemur ekkert í staðinn
fyrir staðnám og samskipti, en til
lengri tíma litið þætti mér fráleitt að
nýta ekki reynslu og þekkingu sem
við höfum öðlast nú á veirutímanum
til breytinga eða frekari framþróun-
ar á skólastarfi.“
Eðlilegur árangur
Um 530 nemendur eru við FVA og
í þessari viku hafa nemendur í bók-
námi allir setið heima. Fyrirlestrum
kennara er varpað út á netið og
vinna við verkefni og skil á þeim eru
rafræn. Verklegar greinar við skól-
ann hafa nú í vikunni hins vegar ver-
ið kenndar á staðnum, svo og áfang-
ar á starfsbraut. Trésmíði, málm-
iðnir og rafvirkjun eru í sérstökum
verknámsbyggingum þar sem vel er
gætt að sóttvörnum og fjarlægðar-
mörkum og samskiptum fólks er
haldið í lágmarki. Sjúkraliðanám er
svo að stórum hluta kennt í fjar-
kennslu, rétt eins og hefð er fyrir.
Ekki er ljóst enn hvernig skólastarfi
í næstu viku verður háttað. Þau mál
skýrast um helgina en skólameist-
arinn segist vongóð um að hægt
verði að hefja staðnám að nýju.
„Við hófum haustönnina hér í skól-
anum með blöndu af fjar- og stað-
námi en fórum fljótlega yfir í stað-
nám fyrir alla. Þegar smit af Covid
19 kom upp í líkamsræktarstöð hér á
Akranesi í síðustu viku færðum við
okkur yfir í fjarkennslu og höfum
verið þannig þessa vikuna, hvert sem
framhaldið verður. Að færa sig aftur
í fjarkennslu var lítið mál og þar
bjuggum við að reynslu frá vorönn-
inni. Útkoman þá var ágæt og árang-
ur nemenda mjög svipaður því sem
gerist við eðlilegar aðstæður,“ segir
Steinunn Inga. „Fjarnám hentar
fjölda nemenda og er ágæt ögun og
þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum.
Aðra skortir ef til vill aðhaldið og
sakna hefðbundinnar kennslu og
alltaf er hætta á því að einhverjir
heltist úr lestinni.“
Skrúfað fyrir félagslífið
Skrúfað hefur verið fyrir allt fé-
lagslíf í FVA sem er þó alltaf stór
hluti af námi og starfi í framhalds-
skóla. Sem dæmi má þar nefna að
leiksýningu nemendafélagsins hefur
verið frestað tvívegis. Fyrst í mars
þegar samkomubann var sett á og
svo aftur nú á haustönninni, en í
kvöld, 25. september, átti að frum-
sýna nýstárlega uppfærslu á hinu sí-
gilda verki Dýrin í Hálsaskógi eftir
Thorbjörn Egner. Æfingar stöðvuð-
ust hins vegar meðan nokkrir leik-
aranna eru í sóttkví, en nú er stefnt á
frumsýningu í Bíóhöllinni á Akranesi
9. október næstkomandi.
Bóknám allt í fjarkennslu
Starfsháttum breytt í FVA Verknemar eru einir í stað-
námi Reynslan verði nýtt Þjálfun í sjálfstæðri vinnu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skólameistari Fjarnám hentar
mörgum, segir Steinunn Inga.
Viðhorf til íslensku
Málræktarþing Íslenskrar málnefndar verður
haldið laugardaginn 26. september
í fyrirlestrarsal Safnahússins við Hverfisgötu
og verða viðhorf til íslensku í brennidepli.
Verið öll velkomin!
DAGSKRÁ
13.00 Setning og ávarp forseta Íslands,
Guðna Th. Jóhannessonar
13.10 Kynning á ályktun Íslenskrar málnefndar
um stöðu íslenskrar tungu 2020
13.20 Sigríður Sigurjónsdóttir:
Viðhorf ungra Íslendinga til íslensku á tímum
stafræns málsambýlis við ensku
13.40 Finnur Friðriksson:
„Já, þá fær maður hærri einkunn í íslensku,
ef maður talar rétt.“: Íslenskt mál í augum
nemenda og kennara.
14.00 Anna Vilborg Einarsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir:
Tungumál í ferðaþjónustu
14.20 Kelsey Hopkins:
Að ofreyna sig við að reyna að vanda sig:
Athugun á almennri umræðu um málvöndun
í Facebook-hópnum Málvöndunarþátturinn
14.40 Afhending viðurkenningar Íslenskrar
málnefndar 2020
14.50 Kaffiveitingar
Fundarstjóri: Steinunn Stefánsdóttir
www.ms.is
www.islenskan.is