Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 11
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur fallist á ósk Vegagerðarinnar um endurskoðun á þjónustusamningi um ferjusiglingar á milli lands og Eyja. Málið snýst um viðbótar- kostnað vegna meiri mönnunar skipsins en gert var ráð fyrir þegar samið var. Vegagerðin telur sig ekki geta hækkað samningsfjárhæð ein- hliða, umfram fjárveitingar. Mikill taprekstur hefur verið á Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi á þessu ári. Stjórnendur félagsins, sem er í eigu Vestmannaeyjabæjar, og stjórnendur bæjarins segja að það stafi af tekjufalli vegna kórónu- veirufaraldursins og af vanefndum ríkisins á þjónustusamningi. Herj- ólfur ohf. gerði í haust kröfu um rúmlega 400 milljóna greiðslu frá ríkinu vegna þessa. Félagið tilkynnti í lok ágúst upp- sögn allra starfsmanna félagsins. Þeir láta að óbreyttu af störfum í lok nóvember. Fjölgað um sex í áhöfn Um miðjan mánuðinn óskaði Vegagerðin eftir viðræðum við Vest- mannaeyjabæ um endurskoðun á þjónustusamningi um rekstur Herj- ólfs, vegna breyttra forsendna. Þar var eingöngu vísað til kostnaðar sem orðið hefur vegna meiri mönn- unar ferjunnar en gert var ráð fyrir. Í forsendum þjónustusamnings Vestmannaeyjabæjar og Vegagerð- arinnar, sem gerður var 2018, kem- ur fram að miðað var við að níu menn væru í áhöfn ferjunnar og áhafnir yrðu þrjár enda var gert ráð fyrir því að nýja ferjan yrði hag- kvæmari í rekstri en sú gamla. Tek- ið var fram að ef mönnun yrði önnur myndi samningsfjárhæð hækka eða lækka til samræmis. Samgöngustofa ákvað síðan að endurskoða mönnun skipsins og gaf út að lágmarks- mönnun yrði ellefu. Miðað við þrjár áhafnir þýðir það sex starfsmönnum meira en gert var ráð fyrir í samn- ingi. Vestmannaeyjabær telur sig eiga kröfu á að fá þennan mismun bætt- an og styður lögmaður sem farið hefur yfir samninginn þann skiln- ing. Lögmaður sem Vegagerðin leit- aði til bendir hins vegar á að samn- ingsgreiðslur séu háðar samþykki Alþingis og margvíslegum fyrir- vörum. Vegagerðinni sé ekki skylt að leggja til hækkun á samnings- fjárhæð heldur að leita eftir breyt- ingum á samningum með vísan til breyttra forsenda. Það hefur Vegagerðin gert með bréfi sínu og Vestmannaeyjabær fallist á. Gera má ráð fyrir að það leiði til þess að drög að nýjum samn- ingi verði lögð fyrir fjárveitingar- valdið. Í ályktun bæjarstjórnar Vestmannaeyja þar sem ákveðið var að skipa fulltrúa í starfshóp Vega- gerðarinnar er lögð þung áhersla á að það sem kallað er útistandandi skuldir Vegagerðarinnar við Herjólf ofh. verði gert upp hið fyrsta. Jafn- framt að mikilvægt sé að tryggja að þjónusta Herjólfs verði ekki skert. Þá er talið mikilvægt að lengja samningstímann til að gefa rekstr- arfélaginu möguleika á að ná stöð- ugleika á ný, eftir þetta óvenjulega rekstrarár. Núgildandi samningur rennur út í lok næsta árs. Í þessum viðræðum verður vænt- anlega einnig rætt um kröfu Herj- ólfs ohf. um að samningsfjárhæðir verði verðbættar samkvæmt þróun „ferjuvísitölu“ frá maí 2018, þegar samningurinn var gerður, en ekki 1. október þegar afhending skipsins var áformuð en Vegagerðin hefur miðað við seinni dagsetninguna. Lögmenn Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar túlka þetta hvor á sinn hátt. Lögmaður Vestmanna- eyjabæjar telur að ákvæðið verði ekki skilið á annan veg en þann að grunnvísitalan miðist við undirritun samninga og fyrsta verðbreyting eigi að vera 1. október. Lögmaður Vegagerðarinnar les það út úr samningnum að viðmiðunardagur fyrir upphafstíma samningsins og þá einnig verðtrygging hans miðist við 1. október. Tekjufall vegna faraldursins Herjólfur ohf. hefur orðið fyrir miklu tekjufalli vegna kórónuveiru- faraldursins og gerir kröfu um að ríkið bæti tjónið. Ljóst er að rekst- urinn er á ábyrgð Herjólfs ofh. og eigandans, Vestmannaeyjabæjar, og ekki verður séð að þjónustusamn- ingurinn veiti baktryggingu ríkisins fyrir slíku tjóni. Væntanlega þarf fyrirtækið að leita beint til stjórn- valda með ósk um slíkt. Það er þá ríkisstjórnar eða Alþingis að meta það hvort reksturinn, sem vissulega er sér á báti í hópi ferðaþjónustufyr- irtækja og gerður í þeim tilgangi að tryggja samgöngur við Vestmanna- eyjar, réttlæti meiri fyrirgreiðslu en fyrirtækið hefur þegar fengið í al- mennum ráðstöfunum. Greiðslur hækka ekki sjálfkrafa  Vegagerðin og Vestmannaeyjabær taka upp viðræður um endurskoðun þjónustusamnings um ferjusiglingar vegna breyttra forsendna  Auknar greiðslur háðar samþykki fjárveitingavaldsins Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ferja Herjólfur siglir til hafnar í Vestmannaeyjum á björtum degi. Aftur á móti hrannast upp óveðursský í rekstri. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 www.agustav.is s. 8230014 VERSLUN VÖNDUÐ ÍSLENSK HÚSGÖGN Skólavörðustíg 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.