Morgunblaðið - 25.09.2020, Side 15

Morgunblaðið - 25.09.2020, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 Ingólfstorg Ástin svífur yfir vötnum hjá þessu pari sem átti leið um Ingólfs- torgið í vikunni, í öllu falli gefur konan það til kynna á kápu sinni. Eggert Þéttingarstefna meirihlutans í Reykja- vík á miðborgarsvæð- inu og næsta nágrenni með byggingu háhýsa og rándýrra íbúða, samfara því að nánast engum lóðum hefur verið úthlutað undir einbýli, parhús, raðhús og minni fjölbýlishús í borginni sl. áratug, hefur m.a. haft eftir- farandi afleiðingar: 1. Íbúðaverð í Reykjavík hefur hækkað í himinhæðir, þannig að nær útilokað er fyrir ungt fólk að festa kaup á íbúð, nema með verulegum stuðningi sinna nánustu. Einungis hluti ungs fólks býr að slíkum fjár- stuðningi. 2. Fjöldi Reykvíkinga hefur flutt úr borginni í nágrannasveitar- félögin, einnig til Akraness og Sel- foss, þar sem fjölbreytni lóða er miklu meiri og íbúðarverð mun hag- stæðara. 3. Stórtækir byggingaraðilar stýra að mestu skipulagsstefnu (leysi) meirihlutans í byggingu íbúð- arhúsnæðis. 4. Samþykkt stórfelld uppbygging íbúða í gamalgrónum hverfum, sbr. innst í Furugerði, þétt við Bústaða- veg. Í eldra skipulagi m.v. 4-6 íbúðir en nú samþykktar 35 íbúðir. 5. Byggingarmöguleikar ein- staklinga eru almennt ekki lengur fyrir hendi – lóða- og skipulags- stefna meirihlutans hefur tryggt það. 6. Þrengt er verulega að Reykja- víkurflugvelli. Hlíðarendasvæðið, þar sem þétting byggðar er mikil. Fyrirhuguð byggð í Skerjafirði 1.300 íbúðir, þar sem engin bílastæði eru á yfirborðinu, heldur í risastórum bílakjall- ara. Einnig kynnti meirihlutinn áform um 300 íbúða byggð á reit Fluggarða á Reykja- víkurflugvelli, þar sem flugstarfsemi hófst á Íslandi og miðstöð kennslu- og einkaflugs er nú. Í byrjun júlí sl. krafðist borgarstjóri þess af samgöngu- ráðherra að ÁN TAFAR yrði fund- inn nýr staður fyrir kennslu- og einkaflugið. Á hvaða flugvöll á að vísa kennslu- og einkafluginu? Borg- arstjóra fer ekki vel að nota orðin „án tafar“. Umferðarmál í ólestri Skipulagsstefna meirihlutans bitnar ekki síður á umferðarmálum borgarinnar. Ljóst er að formaður skipulagsráðs, Sigurborg Ósk Har- aldsdóttir, hefur lítinn áhuga á því að Sundabraut verði byggð. Einnig er hún greinilega á móti því að mis- læg gatnamót verði byggð á mótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar og forðast að tala um mislæg gatna- mót á þessum stað. Í borgarráði 21. mars 2017 lögðu Sjálfstæðismenn fram tillögu um gerð mislægra gatnamóta á Reykja- nesbraut/Bústaðavegi. Tillagan var samþykkt með breytingartillögu meirihlutans þannig að í stað orðanna „gerð mislægra“ kom „út- færsla“. Uppdrættir af þessum gatnamótum sem liggja fyrir hjá borgaryfirvöldum sýna mislæg gatnamót, sem taka fullt tillit til Ell- iðaárdalsins og Elliðaánna. Sam- gönguráðherra er margoft búinn að lýsa þeirri skoðun sinni að á þessum gatnamótum verði byggð mislæg gatnamót. Í samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem undirritaður var í september 2019, m.a. af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra, er gert ráð fyrir 1.100 m.kr. fjárveitingu árið 2021 í gatna- mót Reykjanesbrautar og Bústaða- vegar, sem sýnir svart á hvítu að um er að ræða mislæg gatnamót. Af ein- hverjum ástæðum mátti ekki nefna „mislæg gatnamót“ í samgöngu- sáttmálanum, heldur einungis „gatnamót“. Ekki verður séð að rík- ið leggi fjármuni í borgarlínu ef meirihlutinn dregur endalaust ákvarðanatöku sína varðandi þessi gatnamót, hvað þá ef meirihlutinn, undir forystu Sigurborgar, fellst ekki á mislæg gatnamót á þessum umferðarþungu og hættulegu gatna- mótum. Borgarlína skal það vera Fátt annað kemst að hjá meiri- hlutanum í borgarstjórn í umferð- armálum en borgarlína. Næstu 10- 15 árin skal það vera borgarlína með tugmilljarða kostnaði og stórfelldri byggingu fjölbýlishúsa meðfram borgarlínu, þar sem innheimt verða himinhá lóðagjöld. Er það ungt fjöl- skyldufólk sem á að kaupa þessar íbúðir? Eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson » „Af einhverjum ástæðum mátti ekki nefna „mislæg gatna- mót“ í samgöngu- sáttmálanum, heldur einungis „gatnamót“. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Höfundur er fv. borgarstjóri. Skipulagsstefna í ógöngum Margar bækur eru óskiljanlegt þrugl jafnskjótt og útgáfu- vökvinn rennur af þeim og óráð raun- veruleikans tekur við. Þannig verður „Kommónistaávarpið“ aðeins minning um óráð þess er það rit- uðu og veruleikafirr- ingu þeirra, er það lásu sem trúarrit. Mörg falleg kvæði voru ort því til dýrðar en skáldin voru vondir menn. Þeir sem trúðu Þannig segir á einum stað um þá, sem trúðu, „Flest urðu þau fyrir nokkrum vonbrigðum með „sósíal- ismann“ en reyndu lengi vel að sýna skilning á vandamálinu sem tíma- bundnum erfiðleikum eða utanað- komandi þrengingum. Þau fóru snemma að bera saman bækur sínar skriflega og leita skýringa og kom- ust smám saman að þeirri sameigin- legu niðurstöðu að sovéska fyrir- myndin væri enginn sannur sósíalismi hvað þá kommúnismi. Þetta var að því leyti nýstárlegt að niðurstaðan var ekki sprottin af póli- tískum fjandskap, heldur miklu fremur upphaflegri velvild.“ Fyrr á þessu ári kom út bók sem ber heitið „Draumar og veruleiki“ eftir Kjartan Ólafsson, en við lestur hennar má ætla að ritið heiti „Kommónistaandvarpið“. Þar kem- ur fram að lífsskoðun flestra ís- lenskra sósíalista var lögð í rúst á árunum eftir 1950 og ef til vill end- anlega 1968. Moggalygin var að mestu sannleikur, en það skyldi aldrei viðurkennt. „Moggalygin“ var eftir allt óráð raunveruleikans. Flestu snúið áhvolf Verkalýðsrekendur telja margir hverjir að skjólstæðingum sínum sé best borgið með því að hatast við fyrirtæki og atvinnurekendur. Hagnaður og arður er afrakstur af glæpa- starfsemi. Þó er það svo að fyrirtæki sem hafa hagnaðarmarkmið hafa einnig getu til að greiða laun. Nú er skollið á „alræði öreiganna“ með því að launþegum er gert skylt að tryggja framtíð sína við öldrun og örorku með framlagi í lífeyrissjóði. Þar er í raun fé án hirðis. Eign þess sem leggur fram af launum sín- um er ekki skráð, þó „eign og rétt- indi“ séu metin. Meðferð lífeyris- eigna annarra ræðst af samvisku og viti stjórnarmanna í lífeyrissjóðum. Oft vill það verða svo að „einfaldur hór er mál sem menn eiga fyrst og fremst við samvisku sína.“ Ein röng ákvörðun er eins og einfaldur hór. Röng ákvörðun stjórnarmanns, sem byggist á hatri, getur varla talist einfaldur hór. Auðmagnið Hið eiginlega auðmagn er nú í fárra höndum, það er að segja stjórnarmanna í lífeyrissjóðum. Stjórnarmenn lífeyrissjóða eru bundnar af sömu lögmálum og stjórnarmenn í fyrirtækjum. Stjórn- armenn í lífeyrissjóðum eiga aðeins að gæta hagsmuna sjóðfélaga varð- andi lífeyri. Vitfirrtir menn hafa sagt í þing- ræðum að það sé samfélagsleg skylda lífeyrisjóða að standa undir hagvexti í landinu. Hættulegastir af öllum eru skuggastjórnendur í lífeyrissjóðum. Þeir haga sér á þann veg, að hin eig- inlega stjórn sem á að vera sjálfstæð í störfum sínum er þvinguð til annar- legrar niðurstöðu í málum, niður- stöðu sem er ætlað að tryggja óeðli- lega hagsmuni. En hagsmuni hverra? Það er ekki alltaf augljóst. En víst er að það eru ekki hags- munir sjóðfélaga. Niðurstaða úr hlutafjárútboði Icelandair Niðurstaðan úr hlutafjárútboði Icelandair í síðustu viku er um margt athyglisverð. Niðurstaðan verður skráð sem traust. Það er morgunljóst að Icelandair á í erfið- leikum. Það er einnig ljóst að margir eru haldnir flugvisku. Þeir eru einn- ig til, sem eru haldnir þeirri fullvissu að Icelandair vinni mjög gegn við- skiptavinum sínum. Ekki liggur ljóst fyrir hvað hver og einn þeirra sem skrifaði sig fyrir hlutum í Icelandair ætlaði sér með kaupunum. Heldur er ekki ljóst hverjir eru stórir eða smáir. Miðað við fjölda áskrifenda virðst sem „alþýða og athafnalíf“ tengist saman í útboðinu. Þá er ekki verið að tala um „alræði öreiganna“. Niðurstaða hlutafjárútboðsins sýnir fyrst og fremst trú kaupend- anna á því að stjórnendur Icelandair hafi lagt fram trúverðugar áætlanir á óvissutíma. Stjórnendur Iceland- air eru hirðar þeirra fjármuna sem gamlir og nýir hluthafar leggja fram. Stjórnendum Icelandair ber að standa áskrifendum skil á þessum fjármunum í nálægri framtíð. Áskriftin byggðist á trausti. Það eru skyldur, sem lagðar eru á stjórn- endur Icelandair, að leitast við að reka fyrirtækið með ásættanlegum hagnaði. Hinn ásættanlegi hagnaður gengur að lokum til hluthafa í réttu hlutfalli við hlutafjáreign. Alþýðan tengist með beinum hætti athafnalífinu með hlutafjár- eign sinni og með óbeinum hætti með aðild sinni að lífeyrissjóði. Vernd hluthafa Það mikla traust sem fram kemur hjá kaupendum hlutabréfa í Ice- landair er athyglisvert í ljósi sög- unnar og því ranglæti sem minni hluthafar á íslenskum hlutabréfa- markaði hafa mátt búa við til skamms tíma. Það er mikið böl og þyngra en tárum tekur sú meðferð sem hluthafar máttu þola af stórum hluthöfum á árunum frá 1998 til 2008. Markaðsmisnotkun og þjónk- un við stóra hluthafa á kostnað lítilla hluthafa var regla en ekki undan- tekning. Forstjórar banka létu skrá sig að kvöldi fyrir áskrift í hlutafjár- útboði með því að falsa tímasetn- ingu, ef hlutabréf höfðu hækkað innan dags. Yfirtökuskylda stórra hluthafa var ekki virt með því að falsa gögn og fela eignarhald í skattglæpa- skjólum. Falsaðir ársreikningar skráðra fyrirtækja, stundum með beinum lygum, voru lagðir fram og áritaðir af „virtum“ endurskoðunar- fyrirtækjum með erlendum nöfnum. Það voru hluthafar, sem völdu endurskoðunarfyrirtæki, sem trún- aðarmenn, en trúnaðurinn var að- eins við stjórn og stjórnendur. Skaðabætur, sem þau fyrirtæki hafa greitt, komu í hlut kröfuhafa en ekki hluthafa. Slitastjórnir hafa gætt hagsmuna kröfuhafa en ekki hluthafa. Upplýsingaöflun hluthafa þurfti að fara fram fyrir milligöngu dóm- stóla þar sem upplýsingar voru dregnar fram með töngum. Upplýs- ingaskortur var vernd fyrir þá sem til saka höfðu unnið. Öfug sönn- unarbyrgði var ekki í boði. Og „business judgement rule“ gilti sem sannleikur fyrir dómgreindarlausa vesalinga. Dómsmálum var vísað frá án mál- flutnings vegna sönnunarbyrðar, sem lögð var á hlunnfarna hluthafa. Síðast en ekki síst var afstaða fjöl- miðla oftar en ekki fjandsamleg at- vinnulífi, þar sem atvinnulífið á sam- kvæmt spurningum fjölmiðlamanna að vinna gegn samfélaginu. Stjórnvöld hafa ekki unnið úr nið- urstöðum dómsmála eftir hrun. Er ástæða til þess að hvetja al- menning til hlutabréfakaupa við þessi skilyrði eða má lifa í þeirri trú að þetta sé liðin tíð? Draumar, veruleiki og óráð raunveruleikans Það er hlutskipti stjórnenda Ice- landair að stuðla að farsælli framtíð félagsins. Hluthafar í Icelandair mega ekki vakna upp við óráð þess veruleika, sem kommónistar vökn- uðu upp við á síðustu öld og þrjósk- uðust við að viðurkenna. Spakmæli vettvangsins „Spakmæli frelsa mann frá því að hugsa, nema þau séu sögðu á raung- um stað eða rángri stundu, og þá helst hvorttveggja í senn, gjarnan með merkissvip og draga niður í sér röddina.“ Svo er oft með kommónista, verkalýðsrekendur og lýðsleikjur á fjármálamörkuðum. Eftir Vilhjálm Bjarnason »Ein röng ákvörðun er eins og einfaldur hór. Röng ákvörðun stjórnarmanns, sem byggist á hatri, getur varla talist einfaldur hór. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. „Das Kapital“, verkalýðsrekendur og lýðsleikjur á fjármálamarkaði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.