Morgunblaðið - 25.09.2020, Side 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
Sagan segir að
snemma morguns hafi
maður gengið inn í
Tónverkamiðstöðina í
Reykjavík. „Hvað get
ég gert fyrir þig?“
spurði afgreiðslumað-
urinn. „Ég ætla að fá
eitt stykki píanó og
nótur með Tunglskins-
sónötu Beethovens,“
svaraði maðurinn. Kvöldið áður
hafði maðurinn verið á einum af fjöl-
mörgum tónleikum Jónasar Ingi-
mundarsonar þar sem Jónas út-
skýrði með tóndæmum dásemdir og
leyndardóma sígildrar tónlistar.
Maðurinn hafði hrifist mjög. Draga
má sannleiksgildi sögunnar í efa en
eitt er víst að fáir hafa á undan-
förnum árum vakið meiri áhuga al-
mennings á sígildri tónlist en Jónas
Ingimundarson með dyggum stuðn-
ingi Ágústu Hauksdóttur eiginkonu
sinnar.
Jónas lætur ekki deigan síga og
hefur undirbúið tvö stórvirki í tón-
listarflutningi sem flutt verða á
þessu ári. Annars vegar í mjög nánu
samstarfi við Peter Máté píanóleik-
ara þar sem fjöldi píanóleikara hyllir
Beethoven með flutningi á öllum pí-
anósónötum hans. Skoðun Jónasar
er að píanóeinleikstónleikar séu
sjaldgæfir í annars fjölbreyttri tón-
leikaflóru landsins. Píanóleikarar
séu fyrst og fremst samstarfsmenn
söngvara og hljóðfæraleikara. Jónas
dreymir um að hér geti orðið breyt-
ing á enda verkefnaskráin ærin og
afar fjölbreytt. Honum finnst einnig
að íslenska einsöngslagið hafi ekki
þann sess sem það ætti að hafa í ís-
lensku þjóðlífi og úr því vill hann líka
bæta. Hann hefur með mikilli elju-
semi og frábærum undirtektum tón-
listarfólks og stjórnenda Hörpu og
Salarins í Kópavogi sett saman tvo
stórmerkilega tónlistarviðburði með
söngvurum og píanóleikurum í
fremstu röð.
Fyrra verkefnið: Beethoven 250
ára – píanóleikarar á Íslandi flytja
allar 32 píanósónötur Beethovens.
Tilefni: Að hylla Beethoven með
flutningi verkanna.
Staðsetning: Salurinn Kópavogi.
Tímasetning: September til des-
ember 2020 – níu tónleikar alls. Arn-
ar Jónsson mun flytja texta milli
verka úr bókinni Beethoven í þýð-
ingu Árna Kristjánssonar.
Síðara verkefnið: Íslenska ein-
söngslagið – Draumalandið: Íslensk-
ir einsöngvarar og píanóleikarar
flytja íslensk einsöngslög eftir 30
höfunda.
Tilefni: Söfnun, skráning og virð-
ing fyrir íslenskum einsöngslögum.
Staðsetning: Eldborg Hörpu.
Tímasetning: Þriðjudaginn 1. des-
ember 2020.
Hugsanlega gætu slíkir tónleikar
helgaðir íslenskum einsöngslögum
orðið árlegur viðburður á fullveld-
isdaginn 1. desember
Jónas hefur sagt að hann vilji ekki
að athyglinni verði beint að sér í
tengslum við þessa tónlistarviðburði
heldur að höfundum og flytjendum.
Við undirritaðir höfum notið þess
ásamt fleirum að aðstoða Jónas við
undirbúning þessara tónleika og
höfum hrifist af krafti hans og elju.
Við viljum halda því fram að þessir
tónleikar séu ekki aðeins tónlistar-
hylling höfunda og listamanna held-
ur einnig óður til óeigingjarns tón-
listarstarfs Jónasar sjálfs á liðnum
árum. Þess hafa margir fengið að
njóta og ekki síst Rótarýhreyfingin.
Við viljum því hvetja sem flesta til
þess að sækja þessa viðburði, njóta
tónlistarinnar og um leið veita Jón-
asi viðurkenningu fyrir störf hans
með góðri aðsókn að þessum tón-
leikum.
Margir hafa fengið aukinn áhuga
á sígildri tónlist og hugsa hlýlega til
Jónasar eftir fjölmarga tónleika
hans þótt þeir hafi ekki keypt sér pí-
anó og nótur með Tunglskinssón-
ötunni. Þess má geta að Tunglskins-
sónatan verður flutt á tónleikunum
8. desember.
Tónlistarhylling
píanóleikara og söngvara
Eftir Erlend
Hjaltason og Þráin
Þorvaldsson
»Hann hefur með
mikilli eljusemi og
frábærum undirtektum
sett saman tvo stór-
merkilega tónlistar-
viðburði með söngv-
urum og píanóleikurum
í fremstu röð.
Erlendur Hjaltason
Erlendur er félagi í Rótarýklúbbi
Reykjavíkur-Austurbær. Þráinn er
félagi í Rótarýklúbbi Reykjavíkur.
Þráinn Þorvaldsson
Það var einu sinni
ferðaþjónustufyrirtæki.
Ekkert sérstakt og
ósköp venjulegt.
Greiddi ágætis laun og
stóð sig vel og skilaði
afgangi. Og allt leit
nokkuð vel út en þá féll
Wow. Og afkoman
versnaði og um áramót-
in 2019/20 stóð eftir
skattaskuld fyrir vel-
gengni ársins áður. Og skyndilega
dundi ógæfan yfir: Það hafði fundist
mús í kjallara í Wuhan í Kína sem
sýkti fólk þar í landi og 4.653 dóu.
Ekki gott. Flest lönd í heimi ákváðu
að loka öllu sem flokkast undir lífs-
gleði, menningu, söng, leiklist, ferða-
lögum og samkomum hvers konar.
Rétt eins og á tíma galdrafárs og púr-
ítanisma. Afkoma hundraða milljóna
manna í heiminum öllum rústaðist og
milljónir dóu úr hungri og snemm-
bærum veiklunum. Stjórnvöld víða
um heim prentuðu peninga til að létta
undir með þeim sem þau höfðu eyði-
lagt afkomuna hjá og sendu rafrænt
inn á reikninga fólks. Nema á Íslandi.
Á Íslandi þurfti fyrirtækið eða starf-
semin að vera eitthvað sem ríkis-
valdið kallaði „lífvænlegt“. Ekki var
gefin útskýring á því. Ekki ósvipað og
í bankaráninu síðasta, þegar fólki var
hent út af heimilum sínum, sem það
átti allt í einu ekki fyrir. Það þurfti að
betla og umboðsmaður skuldara titl-
aði suma óráðsíufólk og stjórnmála-
menn töluðu um flatskjáskaup. Betl-
ararnir þurftu að vera „aðlaðandi“ til
að fá hjálp. Það var ekki nóg að vera
þurfandi, fólk þurfti að vera verðugt.
Íslenska kerfið gengur út á verðug-
leika. Fræg er sagan af gömlu kon-
unni á tíræðisaldri, sem taldi sig
þurfa að komast í umönnun á elli-
heimili. Hún var sett í
próf og „metin“. Svo
kom bréf þar sem mats-
nefndin komst að þeirri
niðurstöðu að hún væri
fullfær um að sjá um sig
sjálf. Bréfið barst viku
eftir að hún dó.
Í Bretlandi
Vinur minn rekur fé-
lag í Bretlandi. Það land
hefur reyndar farið of-
fari í Covid-ruglinu, en í
apríl, þegar öllum fyrir-
tækjum hafði verið lokað þar, fékk
hann bréf um að hann gæti fengið lán
hjá bankanum með ríkisábyrgð upp á
25% af tekjum fyrra árs. Afborg-
unartími sex ár, fyrsta árið greiðslu-
frítt. Skilyrði: Engin. Hann sótti um
og lánið skilaði sér á innan við sólar-
hring. Hann þurfti ekki að sanna gott
mannorð, góða afkomu, að fyrirtækið
væri „lífvænlegt“. Fyrirtæki í Bret-
landi gátu byrjað að greiða hvert
öðru útistandandi skuldir og kerfið
blotnaði af peningum og kerfið varð
blautt. Og það var gott.
Þá víkur sögunni til Íslands. Rík-
isstjórnin ákvað að loka fyrirtækjum í
tilteknum greinum með valdboði án
þess að taka á því ábyrgð. Valdboðinu
fylgdu engin skilyrði um að þeir sem
skulduðu skatta þyrftu ekki að loka.
Allir þurftu að loka. Og síðan ákváðu
stjórnvöld að bæta fyrirtækjunum
tjónið, en bara þeim sem voru „líf-
vænleg“. Þau sem höfðu skuldað
skatta fengju ekki bætur. Mjög
merkileg regla. Við vorum svo ólán-
söm að hafa skuldað skatta 31.12.
2019.
Hinir „lífvænlegu“
Við vorum sem sagt ekki lífvænleg
þó svo að við værum í hagnaði. Við
trúðum eiginlega ekki eigin augum.
Við vorum eins og margir í ferðaþjón-
ustu að byggja upp unga atvinnu-
grein og vorum oft á eftir með ým-
islegt yfir veturinn sem var svo
klárað yfir sumarið. Í sumar
ákváðum við að spyrja fjármála-
ráðuneytið hvort það gæti verið að
engar bætur fengjust fyrir þá sem
hefðu skuldað skatta, burtséð frá
upphæðum. Væri nóg að skulda 100
þúsund eða tíkall til að falla af listan-
um? Í ágúst fengum við loks þau svör
að við skyldum bara prófa að borga
það sem eftir væri af sköttum og ef
það kæmi grænt á umsóknina, þá
væri allt í lagi. Þetta var 10. ágúst.
Við vorum ekki viss um hvað gera
skyldi en ákváðum svo að taka séns-
inn, þó svo að ráðuneytið, sem var
höfundur reglnanna, treysti sér ekki
til að gefa skýr svör. Við tókum prív-
atlán fyrir restinni af sköttunum og
náðum að gera það í byrjun sept-
ember og sóttum um lán og lokunar-
styrk. Við fengum alltaf „rautt“ og
þegar við höfðum samband við ráðu-
neytið aftur, þá kom svarið að við
skulduðum enn 11 þúsund krónur.
Þannig að það kom rautt. Og við
borguðum 11 þúsund krónur en aftur
kom rautt. Ráðuneytið ráðlagði okk-
ur að tala við skattinn. Við gerðum
það en dagarnir liðu. Skatturinn
sagði, þá loksins við náðum sam-
bandi: Það vantar átta krónur. Og við
borguðum átta krónur, sóttum um
lokunarstyrk en fengum nei, við vor-
um fimm dögum of sein.
Sagan um átta krónurnar
Eftir Björn
Jónasson » Við vorum sem
sagt ekki lífvænleg
þó svo að við værum
í hagnaði, að mati
ríkisvaldsins.
Björn Jónasson
Höfundur er í Félagi smáfyrirtækja
og einyrkja.
jonassonb@gmail.com
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?
VINNINGASKRÁ
27 12270 23677 31897 43199 50638 63159 70959
60 13031 23730 32062 43503 50829 63259 71009
173 13722 23755 32132 43663 51517 63482 71258
222 13819 23919 32424 43678 51801 63606 71428
328 13850 24388 32537 43731 51934 63618 71953
355 14136 24610 32568 43864 52359 63757 72779
757 14203 24652 32579 43972 52807 64123 72826
1202 14277 24746 33161 44445 52821 64168 73057
1505 14301 25253 33644 44476 52859 64169 73770
1817 14328 25476 33811 44607 53304 64431 73998
1880 15109 25883 34227 44738 53820 64552 74091
2198 15124 26164 34452 44823 54067 64958 74097
2535 15176 26316 34914 44857 54164 65310 74152
2695 15213 26779 35336 44990 54186 65476 74306
2794 15309 26982 35439 45076 54582 65600 74465
3103 16353 27735 36342 45176 54991 66412 74480
3515 16498 27941 36399 45367 55399 66759 75684
4903 16696 28496 36446 45465 55601 66891 75909
5162 16930 28504 36543 45574 56278 67027 76248
5333 17388 28694 37632 45836 56551 67212 77232
5801 17457 28968 37848 45957 56875 67293 77295
5887 17557 29014 37871 46068 57243 67406 77346
5967 17751 29376 37998 46099 57541 67594 77520
6360 18119 29552 38000 46388 58164 67604 77858
7916 19189 29672 38021 46821 58729 67658 78095
8012 19883 30170 38087 47447 58741 67699 78311
8045 20761 30208 38900 47520 58855 67849 78547
8079 20921 30407 39011 47778 59550 68178 79035
8871 21342 30425 39032 47800 60723 68429 79275
9250 21790 30500 39910 48427 60759 68715 79502
10189 21926 30690 40840 48677 60932 69064 79926
10418 22345 31028 41110 48888 61094 69224
11047 22763 31506 41242 49300 61697 69310
11195 22866 31686 42045 49839 61852 69701
12024 23156 31693 42377 49934 61936 69871
12047 23248 31702 43040 50097 62516 69944
12244 23380 31891 43144 50591 62911 70135
883 8645 16146 25292 37573 45761 56502 72471
1900 8703 18307 25432 37656 48075 57156 72689
2380 9062 18633 25596 38438 48342 57803 72795
2427 9752 18797 26552 39521 49039 59292 73417
2554 11138 19567 26769 40724 49585 59453 74411
3348 12350 20063 27320 40806 50006 59732 76640
5320 12428 20436 29964 41318 50184 61502 76874
5775 12616 20946 30059 41837 50534 64301 78104
6044 13276 21664 34472 41978 51435 64790 79889
6780 14282 21882 34584 44358 52326 66728
6851 15327 22817 35387 44917 52852 69083
7628 15377 23184 36236 45263 53257 70592
8414 15408 23357 37281 45758 56213 71527
Næsti útdráttur fara fram 1. okt 2020
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
13861 15472 33979 64201 73840
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
366 10556 33392 42949 61292 67160
3907 17372 38841 51853 61862 67899
6854 26420 41180 54304 62508 72256
9520 33253 41411 60779 64991 75818
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
6 2 6 4 6
21. útdráttur 24. september 2020