Morgunblaðið - 25.09.2020, Síða 23

Morgunblaðið - 25.09.2020, Síða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 aða gamall. Vottum við Matthíasi og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Hvar sem þú líðandi lítur hið lága og veika, kveddu það kærleikans máli og knýttu það örmum. Vektu þeim vonir í hjarta, sem veturinn særir. Skapaðu gleði út gráti og geisla úr skuggum. (JM) Kristín J. og Katrín Jónína. Með Erlen Jónsdóttur er gengin góð og grandvör kona. Samleið okkar varaði í full 33 ár og bar aldrei nokkurn skugga á. Það er ávallt nokkur kvíði, sem fylgir aðsetursskiptum. Hvernig verða nágrannar? Erlen bauð okkur velkomin þegar við tókum við húsinu okkar, „velkominn Villi minn!“ Hún þekkti mig frá heim- sókn minni í Vinnuveitendasam- bandið þar sem hún starfaði. Dætur okkar hjóna áttu góðan samastað á móti ef á þurfti að halda, fremur lengt í heimsókn- inni en stytt ef þær þurftu fé- lagsskap að kvöldi, því þær voru þá boðnar í mat og máttu velja hvað væri á borðum. Svo aðstoð- uðu þær við að bera postulín í eld- húsið. Erlen var trú sinni heimasveit, Mýrdalnum og Vík, þar sem þau Matthías dvöldu stundum. Jafn- framt bar hún umhyggju fyrir öldruðum föður sínum, systur og bróður. Mest og best hélt hún utan um fjölskylduna; eiginmann, syni, tengdadætur og barnabörn. Amma mín gaf mér mína stúd- entshúfu og Erlen sá til þess að Guðbjartur, stúdent úr mennta- skóla í Brussel, fengi íslenska stúdentshúfu. Svona eiga ömmur að vera. Erlen var glæsileg kona, réð sig sem flugfreyju eftir að hafa svarað spurningunni hvort hún hefði flogið játandi. Hún hafði flogið einu sinni til Vestmanna- eyja! Klæðaburður var óaðfinn- anlegur og hún vildi keyra á vel bónuðum bílum! En hún bónaði þá ekki sjálf! Drengirnir sáu um það. Að leiðarlokum þökkum við á móti í Hlíðarbyggðinni ánægju- lega samfylgd og allt hennar vin- arþel. Hlíðarbyggðin er svip- minni en áður við fráfall Erlenar. Svo finni ég hæga hvíld í þér, hvíldu, Jesú, í brjósti mér. Innsigli heilagur andi nú með ást og trú, hjartað mitt svo þar hvílist þú. (HP Ps. 50,17) Verði Erlen Guði falin! Megi minningin um Erlen Jónsdóttur heiðrast í vitund þinni. Auður María, Vilhjálmur og dætur. Í dag kveðjum við kæra vin- konu og samstarfskonu til margra ára. Þegar við komum til starfa hjá VSÍ/SA tók á móti okk- ur yndisleg kona með bros og hlýju sem var hennar leiðarljós. Með sínum einlæga áhuga á fólki og róandi nærveru hafði Erlen einstakan hæfileika til að láta fólki líða vel í kringum sig. Það var eftirtektarvert hvað allt gekk smurt í kringum hana, allt var unnið fljótt og örugglega með yf- irvegun, og skipti þá ekki máli hvort það var eitthvað sem var unnið í flýti eða ekki. Við eigum margar góðar minn- ingar um einstaka konu með skemmtilegan húmor og hlýju sem umvafði allt. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran) Við sendum Matthíasi, Steinari Inga, Gísla Jóni og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Arndís, Álfheiður og Jónína. ✝ Birna HaukdalGarðarsdóttir fæddist 27. sept- ember 1944. Hún lést 11. september 2020. Foreldrar hennar voru Frið- dóra Gísladóttir og Garðar Haukdal Ágústsson. Birna giftist Magnúsi Jóhanni Óskarssyni, sem lést 7. mars 2020. Börn þeirra eru: 1) Garðar Haukdal, kvænt- ur Helle Magnússon, börn þeirra Guðjón Darri, Emma og Oliver. 2) Katrín Haukdal, dætur hennar Katrín Viktoría, Nadía, Inga Birna og El- ínbet. 3) Friðdóra Haukdal, gift Rafni Magnúsi Jónssyni, dætur þeirra Erna María og Emelía. Barnabarna- börnin eru þrjú: Aþena Þöll, Logi Rafn og Þórdís Embla. Útför Birnu fer fram í Ás- kirkju í dag, 25. september 2020, klukkan 15. Margs er að minnast, margs er að sakna – þessi orð skrifaði ég í minningargrein um pabba minn í mars og nú skrifa ég minningargrein um mömmu mína og byrja hana eins. Elsku fallega mamma mín, það er erfitt að setjast niður og skrifa minningargrein um þig þegar mér finnst þú enn vera hjá okkur ég er enn að taka upp símann og hringja í þig. Þú varst alltaf til staðar fyrir okk- ur. Þú varst alltaf til í að hjálpa okkur öllum. Þér var annt um alla okkar vini og fylgdist vel með öllu sem við vorum að gera hverju sinni. Alltaf máttu allir vera heima hjá mér. Brautarás- inn var alltaf opinn öllum. Þau eru ófá partíin sem við systk- inin héldum með leyfi og í óleyfi en aldrei vorum við skömmuð. Þú varst alltaf vel tilhöfð, alltaf fín og alltaf glöð, og við áttum fallegt heimili. Pabbi var mikill græjukarl og alltaf til það nýjasta heima hjá okkur. Þegar mér fannst ekkert vera til í ís- skápnum þá fannst þú alltaf eitthvað til og matur tilbúinn innan skamms. Ég vildi óska að ég ætti þennan eiginleika til í mér. Það er svo margt sem fer í gegnum hugann á svona stundu, margar minningar sem laða fram bros, og það hjálpar mikið í sorginni sem er óbærileg. Þol- inmæði er eitt sem kemur í hugann gagnvart ömmu- og langömmubörnunum þínum sem voru þér allt. Þér fannst mjög gaman að ferðast, fannst betra að fara til útlanda og gista á hóteli en að ferðast innanlands og gista í tjaldi. Að mæta í Funafold og svo í Sóló var eins og félagsmiðstöð fyrir okkur. Okkur hefur oft verið líkt við ítalska fjölskyldu þar sem allir töluðu í einu en þú hlustaðir og brostir. Að missa báða foreldra sína með stuttu millibili er eins og að vera endalaust í rússíbana og þú bíður eftir að hann stoppi. Ég veit að þú saknaðir pabba mikið og ég trúi því að þið séuð sameinuð á ný eftir stutt hlé og styðjið hvort annað eins og þið gerðuð alla tíð. Bless elsku besta mamma, ég sakna þín óendanlega mikið og þú hefur kennt mér og gefið mér svo margt sem ég ætla að halda áfram með á mínu ævi- skeiði. Þín dóttir, Friðdóra Magnúsdóttir. Takk elsku mamma mín, takk. Þakklæti er það fyrsta sem kemur í hugann þegar ég sit hér og rifja upp minningar um þig. Ég er svo heppin að hafa átt þig sem mömmu. Þú sagðir mér að ég hefði verið ró- legt og meðfærilegt barn en sem unglingur lét ég þig hafa aðeins meira fyrir mér og reyndi ábyggilega oft á þolrifin. Ég sé í dag hversu aðdáun- arverð þolinmæði þín og um- burðarlyndi gagnvart mér var á þessum árum. Þú varst sann- arlega alltaf til staðar fyrir mig og alveg sama hvaða vitleysu mér datt í hug að framkvæma þá komstu mér til bjargar, leystir málin og stóðst með mér. Þú varst einnig mjög úr- ræðagóð, sem hentaði mér ekki alltaf vel. Sem dæmi þá man ég alltaf þegar mig langaði að fara í fyrstu verslunarmannahelgar- útileguna með vinunum og þú fékkst þá „frábæru“ hugmynd að ég mætti fara, en bara ef öll fjölskyldan kæmi með, þar með talið amma og afi. Eða þegar ég fékk loksins að fara ein í útilegu með vinum mínum og þið pabbi komuð í „óvænta“ heimsókn. Annað sem mér dettur í hug er þegar ég skellti mér ásamt vin- konu á hallærisplanið og viti menn; þið pabbi birtust. Mikið er ég fegin að ekki hafi verið til snjallsímar á þessum tíma. Ég er svo þakklát fyrir hve heimilið þitt (æskuheimili mitt) var opið fyrir alla. Þar voru all- ir velkomnir og nutu vinir góðs af, öllum leið eins og heima hjá sér. Á unglingsárunum mætti segja að „Brautó“ hafi verið eins konar félagsmiðstöð fyrir vini okkar systkinanna. Á fullorðinsárum hef ég verið svo heppin að búa nálægt ykkur pabba og ég og stelpurnar mín- ar höfum getað notið þess að koma við hjá ykkur hvenær sem er. Ég veit ekki hvernig lífið getur haldið áfram án þín. Án þess að hittast hjá þér í Sóló, gæða okkur á bestu vöfflum í heimi, spjalla um og takast á um hin ýmsu málefni er varða okkur fjölskylduna. Þú hafðir sannarlega alltaf mikið til mál- anna að leggja og þótt við vær- um ekki alltaf sammála um öll málefni sættumst við alltaf á að vera sammála um að vera ósam- mála. Takk elsku hjartans mamma mín fyrir að hafa verið besta mamma í heimi og minningarn- ar um frábæra mömmu geymi ég í hjarta mínu. Bless bless mamma mín. Þín dóttir, Katrín. Elsku amma mín. Það er svo sárt að þurfa að kveðja þig. Aldrei bjóst ég við því að þú myndir fara frá okkur svona fljótt. Það gleður mig þó að hugsa til þess að þú yfirgafst þennan heim í faðmi okkar allra vitandi það hversu mikið við elskuðum þig. Þú varst alveg einstök manneskja, góðhjörtuð, blíð, einlæg og heiðarleg. Þú varst alltaf til staðar þegar reyndi á, tilbúin til að hlusta og hughreysta. Ég er svo heppin að eiga fjölmargar minningar um þig. Dýrmætasta minningin er þegar við sátum eitt desem- berkvöld í Funafoldinni og drukkum jólakaffi saman og þú sagðir mér frá uppvaxtarárum þínum og hvernig þið afi kynnt- ust. Þessa minningu mun ég ávallt geyma í hjarta mínu. Það eru forréttindi að hafa átt eins margar góðar stundir og ég átti með þér. Það er því með mikl- um söknuði sem ég kveð þig elsku amma mín. Þín Viktoría. Það er skammt stórra högga á milli í fjölskyldunni. Fyrr á árinu kvaddi fjölskyldan eigin- mann, föður, tengdaföður, afa og langafa og í dag móður, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu. Fyrir Birnu var fjöl- skyldan það mikilvægasta fram á síðustu stund og var það henni mikilvægt að vera umvaf- in nánustu fjölskyldu undir það síðasta. Birnu var mikið í mun að gera vel við alla og þá sér- staklega að enginn færi svangur frá henni. „Má ekki bjóða þér smá að borða? En skyr eða ban- ana eða jógúrt; ertu alveg viss?“ Svona var hún, alltaf að hugsa um aðra. Ég vil þakka þér fyrir að vera ætíð til staðar og hafa gefið af þér yndislega fjölskyldu. Hvíl í friði Birna og ég kveð með þessu ljóði: Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Rafn M. Jónsson. Það eru margar leiftrandi minningar sem koma upp í hug- ann þegar við kveðjum vinkonu okkar til margra ára. Við kynntumst fyrir rúmum 50 ár- um, þá ungar konur í Árbæj- arhverfi sem var á þeim tíma nýtt hverfi og langt fyrir utan bæinn. Ein verslun var á þessum ár- um í hverfinu og ekki höfðum við aukabíla til að flækjast um bæinn. Myndaðist því mikil og góð samstaða hjá okkur kon- unum í blokkinni heimavinnandi með börn á svipuðum aldri. Mennirnir okkar unnu á daginn og langt fram á kvöld eins og þurfti til að geta eignast sína fyrstu íbúð, ekki truflaði sjón- varpið okkur. Hittumst við oft yfir kaffibolla á kvöldin með mönnum okkar og oft um helg- ar var tekið í spil og áttum við góðar stundir með þeim hjón- um. Birna var meiriháttar hús- móðir og góð mamma, hún var hógvær og ekki mikið fyrir skjall og aldrei heyrði ég hana hallmæla nokkrum manni. Eftir að við fluttum úr Hraunbænum minnkaði sambandið eins og gengur, hittumst samt stundum í kaffi og var alltaf jafn notalegt að koma til Magga og Birnu. Nokkur hjón sem áttu heima á sama tíma í blokkinni hafa um nokkurra ára skeið hist í mat- arboðum og sumarbústaðaferð- um, þar eru rifjuð upp árin í Hraunbænum og við skemmtum okkur vel. Það duldist engum að Birna hafði í nokkur ár ekki gengið heil til skógar en hún bar sig alltaf vel og sagði að þetta væri allt að koma. Eftir lát Magnúsar töluðum við Birna oft saman í síma, hún hrósaði dætrum sínum og barnabörnunum og sagðist sjaldan vera ein því þær væru svo duglegar að koma í heim- sókn. Sökum Covid og við báðar í áhættuhópi vildum við ekki vera að hittast, ætluðum bara að knúsast eftir Covid. Það verður nú bara á öðrum stað. Elsku Birna mín, ég veit að Magnús hefur tekið vel á móti þér, þú saknaðir hans mikið eft- ir nær 60 ára samveru. Samúðarkveðjur til fjölskyld- unnar sem hefur misst svo mik- ið á stuttum tíma. Farið í friði kæru vinir Birna og Magnús, þangað til næst. Birna Björnsdóttir Þorgeir Theodórsson Elsku amma mín. Þá skilja leiðir okkar að sinni. Mér finnst alveg ótrúlegt að þetta hafi far- ið svona og mikið svakalega á ég eftir að sakna þín. Mig lang- ar að þakka þér fyrir allt sem þú gafst. Sem var svo mikið. Þú varst alveg einstök kona með hlýjasta hjarta sem ég veit um. Þakka þér fyrir að halda svona vel utan um ríkidæmið þitt, án þín værum við ekki eins og við erum í dag. Og áfram stækkar það sem þú og afi byggðuð. Þú varst þvílík hetja og sýndir svo mikla þrautseigju og við getum allar tekið okkur það til fyr- irmyndar. Elsku amma mín, takk fyrir fylgdina í gegnum líf- ið. Erna María. Erna María Rafnsdóttir. Við systkinin eigum öll okkar minningar um hana Birnu frænku. Margar þessar minningar hefjast á hinum heilaga reit Arnarnesi við Dýrafjörð, fæð- ingarstað mæðra okkar. Frænk- urnar ræddu oft um dvölina hjá afa og ömmu, ýmist þegar þær voru á Arnarnesi eða eftir að þau fluttu hingað suður á jörð sem var við Úlfarsfellið. Var þar greinilega oft glatt á hjalla og ræddu stelpurnar oft um hina ýmsu hrekki sem þær stunduðu greinilega mikið, í stað þess að aðstoða við bú- störfin eins og afi ætlaðist örugglega til af þeim. Þegar ég spurði svo hvar ég hefði alltaf verið var sama svarið: „Æi, þú varst svo lítill og við nenntum ekki að hafa þig með,“ og því er það svo að ég er ekki viss hvort er minning mín eða frásögn þeirra. Birna var þó oft und- antekning frá þessu. „Nei þú varst …“ og svo kom eitthvað mildara en hjá systrum mínum. Mikill samgangur var milli heimila og saumaði mamma oft eins kjóla á systur mínar og Birnu, bara í mismunandi litum, enda var Birna mikið viðloðandi heimilið á Sölvhólsgötu á sínum tíma. Sigrún B. og Birna kynntust bræðrunum Hafþóri og Magn- úsi á rúntinum margfræga. Rúnturinn var hringakstur þar sem skvísur og gæjar „rákust“ hvert á annað. Þarna kviknaði greinilega neisti milli unga fólksins, neisti sem leiddi Birnu og Magga saman, þótt ekki yrði það strax, enda þær ungar að árum. Ekkert varð meira úr þessum kynnum að sinni enda voru frænkurnar sendar til Noregs til náms, væntanlega vegna óþekktar. Glæður fyrstu kynna virðast hafa blossað upp við komu Birnu til landsins aft- ur og dugði sá eldur vel enda voru þau Magnús saman upp frá því og áttu saman börn og buru. Oft hafa þær frænkur tal- að um hve mikið samband var á milli fjölskyldnanna þegar við vorum yngri. Við komum saman hjá afa og ömmu um jólin og af- mælisveislur voru fjölmennar. Þetta hélt töluvert áfram enda bjuggu síðar allar fjölskyldurn- ar um tíma í Hraunbænum nema Gunna, sem bjó í Döl- unum. Ég, sá yngsti, man víst minna, en þó það að Birna var alltaf í minningunni samanspyrt við hann Magga sinn, þ.e Birna frænka, hans Magga. Hún var alltaf svo blíð við mig sem krakka, þótt ég væri væntan- lega ódæll, og svoleiðis var hún reyndar alla tíð. Móðursystur mínar höfðu þá reglu að kalla mig alltaf bæði fornafni og millinafni. Þessari hefð viðhélt hún, ein fárra sem eftir eru. Birna var vinnusöm, vann m.a. í sendiráði Bretlands og svo við framleiðslu í opinberum veislum og öðrum þeim veislum og viðburðum sem haldin voru í Rúgbrauðsgerðinni. Naut ég þess þá stundum er ég var þar að vera frændi þegar hún var þar að vinna og hellti í glös fyr- ir gesti. Eignaðist ég þá oft nokkur aukaglös svona rétt fyr- ir lokun sem falin voru fyrir öðrum. Hún Birna gat líka allt- af komið manni í gott skap, bara með hlátrinum sínum. Hinn gjallandi smitandi hlátur lyfti öllu andrúmslofti. Bara síð- ast í erfidrykkju Svanfríðar, hinnar síðustu Arnarnesssystra, lyfti hún húmornum með glað- værð sinni. Við systkinin þökkum sam- veruna við hana Birnu, sendum fjölskyldu hennar okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd systkinanna á Sölvhólsgötu 10, Höskuldur. Birna Haukdal Garðarsdóttir Elskulegur bróðir minn, frændi okkar og vinur, BALDUR RAGNARSSON, Hjaltabakka 4, lést á líknardeild Landspítalans 24. ágúst. Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd ættingja og vina, Ingibjörg Fríða Ragnarsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, VALUR INGÓLFSSON húsasmiður, lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 22. september. Jarðarför fer fram frá Digraneskirkju 28. september klukan 13. Jana Maren Valsdóttir Leifur Sigþór Sigurðsson Íris Ósk Valsdóttir Tómas Haarde Hanna Ósk Haarde Margrét S. Ingólfsdóttir Grímur J. Ingólfsson María G. Ingólfsdóttir Ester A. Ingólfsdóttir Katrín V. Ingólfsdóttir Hannes G. Ingólfsson Elísabet I. Ingólfsdóttir Kári Ingólfsson Guðjón Ingólfsson Björk S. Ingólfsdóttir Lára Ingólfsdóttir Sólveig Ingólfsdóttir Svandís Ingólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.