Morgunblaðið - 25.09.2020, Side 25

Morgunblaðið - 25.09.2020, Side 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 ✝ Jóhann RúnarGuðjónsson fæddist á Akureyri 5. júlí 1950. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 14. sept- ember 2020. For- eldrar hans voru Guðjón Gunn- laugsson, f. 18.5. 1917, d. 20.8. 1994, og Guðrún Jóns- dóttir, f. 12.8. 1918, d. 28.8. 2007. Systkini hans eru Jón Trausti, f. 23.12. 1944, Gunn- steinn, f. 22.11. 1946, Anna, f. 14.2. 1949, Magnús, f. 28.3. 1954, og Ingvar, f. 30.10. 1958. Dóttir Jóhanns er Guðrún Eva, f. 18.7. 1978, og maður hennar er Óskar Pétur Ein- arsson, dóttir þeirra Jóhanna Eldey, f. 1.9. 2008, og sonur þeirra Daníel Orri, f. 14.10. 2012. Jóhann ólst upp á Akureyri, hann lauk landsprófi frá Gagn- fræðaskóla Akureyrar 1966 og stúdentsprófi frá MA 1970. Þá liður við Coastwatch – evrópskt fjöruverndarverkefni 1989-99, sat í stjórn Náttúruverndar- félags Suðvesturlands 1984-90, sat í stjórn Sjálfboðaliðasam- taka um náttúruvernd 1991-96 og var formaður þeirra 1993- 95, sat í stjórn Alþýðubanda- lagsfélags Hafnarfjarðar 1983- 88 og var formaður þess 1985- 86. Hann samdi ritið Vistfræði – æfingar og greinar, útgefið af menntamálaráðuneytinu 1978. Hann hefur skrifað grein- ar í blöð og tímarit. Þá þýddi hann og staðfærði, ásamt Eiríki Jenssyni, ritið Umhverfisbókin, útgefið 1996. Jóhann hafði ótæmandi áhuga á líffræði, vistfræði og umhverfisfræði. Hann þekkti gróður, fugla og náttúrufar og var oft á tíðum leiðsögumaður í fjalla- og gönguferðum. Hann ferðaðist víða, bæði innanlands og utan, oftar en ekki vegna starfs síns í alþjóðlegum verk- efnum. Útför Jóhanns fer fram í dag, 25. september 2020, klukkan 13 í Hafnarfjarð- arkirkju. Henni verður streymt: https://live- stream.com/luxor/johann- gudjonsson/. Virkan hlekk á streymi má finna á https:// www.mbl.is/andlat/. flutti hann til höf- uðborgarinnar og hóf nám í líffræði við HÍ. Hann lauk BS-prófi 1974 og prófi í uppeldis- og kennslufræði 1978. Hann var líf- fræðikennari við Flensborgarskól- ann frá 1974 og var einnig deild- arstjóri í líffræði, áfangastjóri sem og aðstoð- arskólameistari í lengri og skemmri tíma. Hann var fulltrúi í heilbrigðisnefnd Hafn- arfjarðarbæjar 1978- 86, for- maður gróðurverndarnefndar Hafnarfjarðarbæjar 1986-90, var verkefnisstjóri Globe- alþjóðakennsluverkefnis í um- hverfismálum og stýrimaður vettvangsnáms í raungreinum á vegum Endurmenntunarstofn- unar HÍ 2000-2001. Hann sat í stjórn Samlífs, samtaka líf- fræðikennara, frá 1990, var formaður 1991-93 og aftur for- maður 1998-2010, var tengi- Elsku pabbi minn. Ég ímynda mér að það hefðu ekki allir feður verið tilbúnir til að fara með fullt forræði yfir ung- lingsdóttur sinni árið 1991 en fyrir þér var það sjálfsagt mál. Það mætti ef til vill halda að ég hefði þurft að fullorðnast fljótt og taka að mér eitthvert ábyrgðarhlutverk á heimilinu en ég fékk að vera áhyggjulaus og þú sást um allt. Þér var allt- af efst í huga að passa mig og vernda. Þegar þú fékkst krabbameinið 1996 vissi ég ekki einu sinni af því fyrr en seinna hversu alvarleg veikindi þín voru. Enda hefði heimurinn minn hrunið ef þú hefðir horfið. Ég kynnti þig fyrir kærastan- um mínum þegar þú lást í sjúkrarúmi á spítalanum, þá var Óskar með hanakamb en þú tókst því nú bara með jafn- aðargeði. Þið urðuð seinna góð- ir vinir og sérstaklega fannst þér alltaf gaman að gefa Óskari að borða því hann tók hraust- lega til matar síns. Ég settist niður, skoðaði myndir og rifjaði upp minning- ar, bæði gamlar og nýjar, því- líkur fjársjóður. Þú varst fyrst- ur á staðinn þegar Jóhanna fæddist og þau Daníel voru þér svo dýrmæt. Sunnudagsmorgn- ar verða aldrei samir þegar það vantar þig í morgunkaffi. Takk fyrir allt, ég sakna þín. Guðrún Eva. Ég minnist hér kærs félaga, Jóhanns Guðjónssonar, líf- fræðikennara við Flensborgar- skólann í Hafnarfirði. Hann lét af störfum vorið 2016 vegna heilsu sinnar og hafði þá starf- að við skólann frá 1974 og gegnt fjölda trúnaðarstarfa. Jóhann var órjúfanlegur hluti af þróun skólans og átti drjúgan þátt í að breyta gagn- fræðaskólanum og mennta- deildinni á áttunda áratug síð- ustu aldar í fjölbrautaskóla. Við minnumst Jóhanns með hlýju í hjarta, en í starfs- mannahópi skólans í dag eru nemendur hans, síðar sam- kennarar, sem og aðrir sam- starfsmenn. Hann var virkur í félagslífi starfsmanna, trúnað- armaður, fagstjóri, deildar- stjóri, aðstoðarskólameistari og svo mætti lengi telja. Við minnumst öðlingsdrengs að norðan. Jóhann var góður félagi í dagsins önn og naut sín ávallt vel í kennarahópnum, sat gjarnan sposkur á svip við karlaborðið svokallaða, áhuga- samur um hag fólksins í kring um sig. Hann var fræðimaður, kenn- ari af guðs náð og þrautseigur þegar kom að því að reyna að gæða líffræðina lífi í huga nem- enda sinna. Fyrir hönd Flensborgarskól- ans vil ég þakka störf liðinna ára, einstaka alúð við skóla- starfið og starfsfólk skólans. Flensborgarskólinn á Jóhanni mikið að þakka. Erla Sigríður Ragn- arsdóttir, skólameistari Flensborgarskólans. Það var um vorið 1975 sem Flensborgarskóli í Hafnarfirði útskrifaði sína fyrstu stúdenta. Við vorum 31 talsins, 23 strákar og átta stelpur. Náms- brautirnar voru þrjár; mála- deild, eðlisfræðideild og nátt- úrufræðideild. Við stúdentsefnin nutum kennslu Jóhanns á þessum byrjunarár- um menntaskóla í Hafnarfirði, sérstaklega við nemar sem vor- um á náttúrufræðibraut. Á þessum árum kenndu okkur margir ungir kennarar, jafnvel bara nokkrum árum eldri en við nemendurnir. Þannig mynd- aðist sérstakur vinskapur og væntumþykja á milli kennara menntadeildar og okkar nem- endanna. Við áttum ekki bara samverustundir í kennslustof- unni heldur einnig utan skóla í ýmsu félagsstarfi sem styrkti vináttuna. Við gerðum ýmislegt okkur til skemmtunar á þessum árum. Þá má nefna ýmis ferða- lög og uppákomur með kenn- urunum. Við fórum í stúdents- ferðalag til Möltu með viðkomu í London. Ferð sem var farin ári áður en við útskrifuðumst. Eitt sumarið fórum við nokkur í ferðalag norður í Mývatns- sveit. Við fréttum af Jóhanni á heimaslóðum á Akureyri. Við leituðum hann uppi og fengum hann með okkur í þetta skemmtilega ferðalag. Jóhann var góður kennari og vakti áhuga nemenda á sínum fræðum. Á seinni árum hafa tveir úr nemendahópnum orðið samkennarar Jóhanns í Flens- borgarskóla. Við minnumst Jóhanns með þakklæti fyrir fræðimennsku hans og vináttu. Ég vil fyrir hönd okkar skólafélaganna senda dóttur hans og fjölskyldu og öðrum aðstandendum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja ykkur á erfiðri stundu. Steinunn Guðnadóttir. Jóhann Guðjónsson ✝ Helgi S. Krist-insson fæddist á Stóru-Borg í Grímsnesi 23. apr- íl 1937. Hann lést 18. september 2020 á Hjúkr- unarheimilinu Víðihlíð í Grinda- vík. Foreldrar hans voru Kristinn Guðmundsson, Stóru-Borg í Grímsnesi, f. 29.4. 1899, d. 23.10. 1955, og Vilborg Jóna Helgadóttir, Gimli, Grindavík, f. 19.5. 1909, d. 9.12. 1992. Helgi ólst upp á Stóru-Borg til níu ára aldurs. Þá flutti fjöl- skyldan til Grindavíkur, á Járngerðarstaði. Helgi var elstur bræðra sinna. Bræður hans eru: Árni H. Kristinsson, f. 29. mars. 1939, og Þórir G. Kristinsson, f. 17. ágúst. 1942. Hinn 26. desember árið 1959 giftist Helgi Ólafíu Krístínu Kristjánsdóttur, f. 10.12. 1940, d. 25.9. 1999. Foreldrar henn- 11.3. 2003. Eiginmaður Elínar er Hafsteinn Þórir Haraldsson, f. 6.6. 1973. Börn hans eru Haraldur Geir, f. 3.11. 1992, og Ágúst Helgi, f. 1.9. 1999. 3) Fóstursonur: Þorvaldur Þor- valdsson, f. 13.5. 1966. Börn hans eru: a) Saga Rut, f. 13.8. 1996. b) Svava Líf f. 19.11. 2011. Eiginkona hans er Di- vina Thorvaldsson, f. 28.1. 1972. Langafabörnin eru orðin 12. Helgi fór ungur að árum að starfa í Hraðfrystihúsi Grinda- víkur ásamt því að sinna skylduverkum sínum við bú- skap á heimilinu á Járngerð- arstöðum. Eftir bílpróf fór hann að vinna fyrir herinn í nokkur ár við byggingarvinnu og varð síðan bílstjóri í Þor- birni. Lengst af starfaði hann sem verkstjóri í Fiskanesi. Þau hjónin byggðu sér heimili á Ránargötu 4. Helgi hafði mik- inn veiðiáhuga og ferðaðist mikið þangað til þau hjónin fengu sér hjólhýsi á Laug- arvatni. Síðar byggðu þau sér bústað í Hraunborgum í Grímsnesi þar sem þau eyddu mestum frítíma sínum. Útför Helga fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 25. september 2020, klukkan 14. ar voru Kristján Sigurðsson, Móum á Skagaströnd, f. 12.12. 1908, d. 28.12. 1996, og Margrét Sigurð- ardóttir, Akrahóli í Grindavík, f. 28.2. 1909, d. 13.10. 1994. Börn Helga og Ólafíu eru: 1) Kristín Vil- borg, f. 6.9. 1959. Hún giftist Bjarna Guðbrands- syni, f. 25.8. 1960, d. 22.11. 1991. Börn þeirra eru: a) Ólafía Helga, f. 8.11. 1978. b) Guðbrandur Þór, f. 7.2. 1981. c) Helgi Freyr, f. 17.8. 1986. Eiginmaður Kristínar er Hall- grímur P. Sigurjónsson, f. 7.1. 1965. Barn þeirra er Íris Ósk, f. 22.5. 1997. 2) Elín Margrét, f. 11.2. 1972. Börn hennar úr fyrra hjónabandi eru: a) Jó- hann Sævar, f. 22.8. 1994. b) Fanney Dís, f. 22.8. 1996, d. 29.10. 2000. c) Kristín Helga, f. 26.4. 1998. d) Brimar Örn, f. Þá er komið að kveðjustund elsku afi. Síðustu mánuðir reynd- ust þér erfiðir. Það átti ekki við þig að þurfa að vera upp á aðra kominn og komast ekki leiðar þinnar. Styrkur þinn var mikill en þú varst hvíldinni feginn undir lokin. Við fjölskyldan kveðjum ein- stakan afa og langafa sem var mikil fyrirmynd og góður vinur. Sterkur, hraustur og hjálpsamur afi. Alltaf varstu tilbúinn að koma og aðstoða okkur. Mættur til að parketleggja og ráðleggja okkur í einu og öllu. Hugurinn bar þig hálfa leið þó að líkaminn næði ekki að fylgja eftir. Alltaf komstu til að fylgjast með okkur barna- börnunum í því sem við tókum okkur fyrir hendur og komst með þínar hugrenningar um það, hristir stundum hausinn yfir því öllu. Það var gaman að fá þig í heimsókn og ósjaldan komstu við til að taka hundinn með í göngu. Lífið mótaði þig í sterkan og vinnusaman mann og sinntir þú vinnu þinni af mikilli skyldu- rækni og sanngirni. Ég var svo heppin að fá þig sem föðurímynd og er þakklát fyrir allt það sem þú gerðir fyrir mig. Ég minnist með hlýju allra ferðanna í hjól- hýsið á Laugarvatni þegar ég var lítil og stundanna sem við áttum á Ránargötunni. Þú varst ávallt tilbúinn að taka okkur barna- börnin inn á heimilið og heimili þitt var heimili okkar eins og við Ármann fengum að upplifa þegar við bjuggum hjá þér. Það var þér þungt högg þegar amma fór alltof snemma frá okk- ur en þú hélst áfram, sjálfstæður og sterkur. Sumarbústaðnum sem þið amma byggðuð í Gríms- nesi hélstu áfram að viðhalda og hafðir þar alltaf góðan félagsskap með þér. Það var alveg sama hvað þú tókst þér fyrir hendur; það var gert af alúð og natni. Þú varst svolítið hrjúfur á yfirborð- inu en undir niðri varstu með hjarta úr gulli og eftir situr minn- ing um mann sem var alltaf til staðar þegar þess þurfti. Elsku afi, takk fyrir allt saman. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér (Hallgrímur Pétursson) Ólafía Helga. Elsku afi minn, þegar ég hugsa um minningarnar okkar þá einkennast þær af hlátri og sprelli. Einstaklega góður maður, allt- af stutt í brosið. Ég minnist þess þegar við tókum rúnt til Keflavík- ur seinustu jól og þú sagðir mér sögur á leiðinni, þér fannst það ekki leiðinlegt, enda sögumaður mikill. Takk fyrir allar góðu stundirn- ar okkar saman, afi minn. Ég samdi þetta ljóð fyrir þig. Farinn ertu jörðu frá, þín ég á eftir að sakna Amma beið þín og sótti þig á gullvagninum bjarta. Hjartað mitt gleymir þér aldrei, alltaf svo hress, alltaf svo kátur. Þér fannst ég húmoristi mikill og ég heyri þinn yndislega hlátur. Nú færðu þína hvíld, elsku afi minn. Með sorg í hjarta ég bið að heilsa og við sjáumst síðar. Íris Ósk Hallgrímsdóttir. Eftir erfið veikindi ertu horf- inn okkur frá. Ég er viss um að amma og Fanney Dís taki á móti þér með opnum örmum. Þú varst svo hjálpsamur og vildir öllum vel, alltaf boðinn og búinn til alls eins og til dæmis þegar bíllinn bilaði á leið í bústaðinn, þá varst þú kom- inn strax að redda málunum. Alltaf var svo gaman að koma í sumarbústaðinn til þín, ein sterk minning þegar ég kom þangað og við fórum saman í berjamó. Þú varst svo skemmtilega hreinskil- inn og með góðan húmor. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku afi minn, ég mun sakna þín sárt. Þín Kristín Helga. Helgi S. Kristinsson ✝ Baldur Ragn-arsson fæddist í Reykjavík 3. sept- ember 1960. Hann lést á líknardeild Landspítalans 24. ágúst 2020. For- eldrar hans voru Ragnar Björnsson klæðskerameistari, f. 24. ágúst 1923, d. 27. september 2009 og Auður Jónsdótt- ir, f. 12. mars 1924, d. 1. nóv- ember 1992. Systkini Baldurs eru Smári, f. 1. júlí 1953, d. 4. janúar 2020 og Ingibjörg Fríða, f. 8. janúar 1947. Baldur ólst upp frá 8 ára aldri í Breiðholtinu, tók stúdentspróf frá Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti og kennarapróf frá Kennaraháskól- anum 1987. Á náms- árum sínum fékk hann mikinn áhuga á tölvum og var hann meðal þeirra fyrstu sem tóku að sér að nota tölvu- fræðslu á kennslu- ferli sínum. Baldur vann hjá Veðurstofu Íslands frá 1998 til dauðadags. Baldur var einhleypur og barnlaus. Útför hans fór fram í kyrrþey. Í síðasta mánuði lést Baldur Ragnarsson, samferðamaður okkar á Veðurstofu Íslands um árabil. Baldur gekk til liðs við Bjórvinafélag Veðurstofunnar þann 27. október árið 2000 og var gjaldkeri þess frá árinu 2001. Starfsmaður sem allir tölvunotendur Veðurstofunnar þurftu oft og einatt á að halda og sem sinnti kvabbi þeirra með glettni í svip. Hér skal gerð nokkur grein fyrir ástæðum þess að Bjór- vinafélagið á honum margt að þakka. Hefð er fyrir því að gjaldkerar félagsins séu ævi- ráðnir, séu kjölfestan í þessu stórmerkilega félagi og raunar einu valdsmenn þess sem eitt- hvað kveður að. Í stjórnarlausu félagi eru slíkir embættismenn gulls ígildi. Þótt yfirlýstur tilgangur fé- lagsins væri að kynna og kneyfa gæðaöl á vikulegum fé- lagsfundum var annað hlutverk ekki síður mikilvægt. Hinn fé- lagslegi þáttur sem fólst í því að vinnufélagar kæmu saman einu sinni í viku, veltu af sér vandamálum hversdagsins og ræddu hispurslaust um menn og málefni. Baldur var sér mjög meðvitaður um þennan þátt og lagði fram drjúgan skerf til þess að skapa slíkan vettvang. Ein birtingarmynd þess var að hann mætti um langt árabil á nær hvern ein- asta reglufund til þess að njóta samvista við aðra bjórfélaga og sjá um að allt væri í hinu besta lagi. Ein forföll voru þó árviss – þegar blúshátíð var í bænum tók hann sér frí. Einnig setti hann heimsmeistara- og Evr- ópukeppnina í fótbolta, sem og Ólympíuleikana, í forgang. Þá má ekki gleyma þætti hans í árlegum Hátíðarfundi félagsins þar sem hann var jafnan í for- ystu fyrir undirbúningi. Einn af hápunktum þess fundar var þegar hann gerði grein fyrir reikningum félagsins eins og það væri virðulegt fyrirtæki í Kauphöllinni, afskrifaði eignir þess eftir kúnstarinnar reglum og greindi ítarlega frá stöðu á bankareikningum. Sá illvígi sjúkdómur sem hann féll fyrir að lokum átti sér djúpar rætur, en hann hafði áð- ur sigrast á honum fyrir mörg- um árum. Hann stóð þá keikur og breytti í engu sínum háttum. Eftir 20 ára samfylgd kveðjum við einstakan vin og félaga. Skarð hans verður vandfyllt. Fyrir hönd Bjórvinafélags Veðurstofu Íslands, Elvar Ástráðsson, Tómas Jóhannesson og Barði Þorkelsson. Baldur Ragnarsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.