Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 25.09.2020, Blaðsíða 40
„Tónskáldið og móðir hans“ er yfirskrift dag- skrár í Kaldalóni í Hörpu í dag, föstudag, kl. 19.30. Er sjónum þar beint að Sesselju Sig- valdadóttur og syni hennar, Sigvalda Kalda- lóns, sem var eitt þekkt- asta tónskáld þjóð- arinnar. Guðrún Ásmundsdóttir leikkona er höfundur dagskrár- innar, sem veitir innsýn í tímana sem Sigvaldi lifði og æsku í skjóli móður sinnar og fólks- ins sem umvafði hann. Flytjendur eru söngvararnir Alexandra Chernyshova, Gerður Bolladóttir, Rúnar Þór Guðmundsson og Þórhallur Barðason og píanóleik- arinn Einar Bjartur Egilsson. Dagskrá um Sigvalda Kaldalóns og Sesselju móður hans í Hörpu í kvöld FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 269. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Valsmenn eru komnir með ellefu stiga forystu í Pepsi Max-deild karla í fótbolta eftir sannfærandi sigur á FH í toppslag deildarinnar í Kaplakrika í gærkvöld, 4:1. Þetta var tíundi sigur Hlíðarendaliðsins í röð. Breiða- blik komst í þriðja sætið með sigri á Stjörnunni og Fylk- ir í það fjórða með sigri á Víkingi. Grótta náði óvæntu jafntefli gegn KR en sex leikir fóru fram í gær. »34 Forysta Vals er orðin ellefu stig ÍÞRÓTTIR MENNING heim hafa sömu sögu að segja, að sögn Guðmundar. Hann leggur áherslu á að hann hafi alltaf vandað vel til verka og aldrei verið eins vel búinn til þess að taka góðar myndir og nú. „Það að taka portrettmyndir er sérstakt fag og meira að segja hef ég aldrei tekið passamynd án þess að leggja mig 100% fram við það, en við lifum í breyttum heimi og fagið gefur eftir eins og svo margt annað.“ Ræturnar í myndum Til nánari útskýringar segir hann að almennt eigi ljósmyndir ekki upp á pallborðið, þær séu í minna mæli hengdar upp á vegg eða hafðar til sýnis heldur séu þær teknar á síma og spjaldtölvur og settar á facebook ef vill. „Sorglegust er sú hætta að sagan týnist þegar símarnir og tölv- urnar þarfnast endurnýjunar. Þeg- ar fólk missti allt sitt í bruna áður fyrr saknaði það ekki síst ljósmynd- anna, enda segja þær mikla sögu, þær eru sagan okkar, foreldrar okkar og forfeður, börnin okkar og barnabörn. Ræturnar okkar. Ég á þúsundir portretta sem bíða eftir því að fara upp á vegg.“ Guðmundur segir að vinnan hafi gefið sér mikið og hann sé ánægður með lífsstarfið og þakklátur fyrir alla viðskiptavinina, en skjótt skip- ist veður á lofti. Áður hafi vinnan haft forgang allar helgar og hann hafi aldrei getað bókað sig í önnur verkefni fram í tímann. „Staðan er allt önnur núna en samt tel ég mig alltaf bundinn í báða skó og hafa skyldur gagnvart viðskiptavininum. Ég veit að sumir klóra sér í hausn- um yfir því, en ég bóka mig til dæmis ekki í golf með fyrirvara,“ segir hann. Leggur engu að síður áherslu á að hann sé farinn að njóta lífsins utan vinnunnar. „Ég mæti alltaf í vinnuna en ef engar pant- anir liggja fyrir loka ég stundum dagpart og fer út að hlaupa eða í golf, en er alltaf með símann á mér. Er alltaf viðbúinn þegar kallið kem- ur.“ Lengi vel vann Guðrún Ellen Halldórsdóttir, eiginkona Guð- mundar og hjúkrunarfræðingur, með honum á stofunni en það er lið- in tíð. „Hún er í góðu starfi á Land- spítalanum, en draumur minn er að kaupa ferðabíl, sem ég auglýsi hér með eftir, fara um landið og taka bara myndir mér til ánægju,“ segir Guðmundur. „Ég hef brennandi áhuga á ljósmyndun hér eftir sem hingað til.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Guðmundur KR Jóhannesson hefur starfað við ljósmyndun í um 40 ár og fyrir um 20 árum byrjaði hann á þeirri nýlundu hérlendis að taka stafrænar myndir á ljósmyndastofu sinni Nærmynd, sem hann stofnaði 1986. Nú taka nær allir stafrænar myndir á síma og tölvur og minna að gera hjá ljósmyndurum, sem hafa fagið að atvinnu. „Umhverfið hefur breyst mikið,“ segir hann, en þakkar um leið fyrir ánægjulegt lífsstarf. Tilviljun réð því að Guðmundur lagði ljósmyndun fyrir sig. Hann byrjaði sem afgreiðslumaður í verslun Mats Wibe Lund ljósmynd- ara og sogaðist hægt og sígandi inn í fagið. „Ég lærði hjá Mats og þeg- ar hann hætti rekstri ljósmynda- stofunnar og fór að einbeita sér að loftmyndum og átthagamyndum keypti ég af honum stofuna,“ rifjar Guðmundur upp. Hann segist alltaf hafa fylgst vel með og fjárfest í bestu tækjum á hverjum tíma en nú séu þau nánast verðlaus. „Enginn vill nota þessi tæki lengur og ég hef ekki tekið mynd á filmu í 20 ár.“ Atvinnuljósmyndarar víða um Ljósmynd gulls ígildi  Guðmundur í Nærmynd atvinnuljósmyndari í 40 ár Ljósmynd/Guðmundur KR Jóhannesson Í Nærmynd Líðanin frekar en útlitið skiptir öllu, segir Guðmundur og er alltaf með heitt kaffi á könnunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.