Morgunblaðið - 01.10.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Glæsileg borðstofuhúsgögnum
frá CASÖ í Danmörku
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Fyrstu laxaseiðin sem framleidd
eru fyrir Fiskeldi Austfjarða í eld-
isstöð fyrirtækisins, Rifósi í Keldu-
hverfi, eru á leiðinni austur í Beru-
fjörð. Brunnbáturinn Dønnalaks
sótti 170 þúsund seiði til Húsavíkur
og verða þau sett út í kvíar í Beru-
firði.
Seiðin voru flutt með tankbíl úr
Kelduhverfi og dælt í brunnbátinn.
Fiskeldi Austfjarða keypti eldis-
stöðina og er að byggja hana upp
sem og seiðaeldisstöð við Kópasker.
Bleikja hefur aðallega verið alin í
Rifósi undanfarin ár en því verður
hætt og byrjað er að framleiða
laxaseiði þar í staðinn.
Guðmundur Gíslason stjórnar-
formaður segir að búið sé að
byggja 1.700 fermetra eldishús með
stórum tönkum. Ætlunin sé að
byggja upp framleiðslugetu fyrir
fjórar milljónir seiða.
Segir Guðmundur að mikil þekk-
ing sé á svæðinu því þar hafi lengi
verið stundað fiskeldi. Einnig mikið
af vatni. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Fyrstu laxaseiðin flutt frá Rifósi
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Mistur eftir Ragnar Jónasson er
mest selda kiljan í Þýskalandi þessa
dagana samkvæmt vikulegum bók-
sölulista Der Spiegel sem formlega
verður birtur í dag. Enginn íslensk-
ur höfundur hefur áður náð efsta
sæti metsölulistans í Þýskalandi.
Þrjár bækur á listanum
„Það er algerlega óraunverulegt
að sjá íslenska bók á toppnum á
metsölulista í 80 milljón manna
þjóðfélagi. Ég bjóst ekki við að það
væri hægt og bæði ég og útgef-
endur mínir erum í smááfalli,“
sagði Ragnar í gær.
Aðeins er hálfur mánuður síðan
Mistur kom út í Þýskalandi og hef-
ur bókin siglt hratt upp metsölulist-
ann. Hinar bækurnar í þríleik
Ragnars um lögreglukonuna Huldu
hafa einnig átt velgengni að fagna í
Þýskalandi og verið á metsölulist-
anum meira og minna í allt sumar.
Dimma kom út í maí og Drungi í
júlí og segir Ragnar að sú aðferð að
gefa bækurnar út með skömmu
millibili hafi greinilega verið góð
hugmynd og hitt í mark. Metsölu-
listi Spiegel mælir sölu á yfir 4.200
útsölustöðum í Þýskalandi.
Dimma komst í annað sæti listans
fyrir nokkrum vikum og er nú í
fjórða sæti og Drungi fór hæst í
þriðja sæti, en er nú í ellefta sæti.
Það er fáheyrt að rithöfundur eigi
þrjár bækur svo ofarlega á met-
sölulista á sama tíma. Áður hafði
Arnaldur Indriðason náð öðru sæti
listans með Napóleonsskjölin árið
2005.
„Ég taldi mig lánsaman að eiga
bók í öðru sæti í sumar og gerði
mér engar væntingar um að ná
einhvern tímann fyrsta sætinu,“
segir Ragnar. Hann segist ekki
hafa skýringar á þessum miklu vin-
sældum bókanna í Þýskalandi á
hraðbergi. „Það er ómögulegt að
skýra hvað veldur. Tíu ár eru síðan
fyrsta bókin mín kom út í Þýska-
landi og fyrstu fimm bækurnar
birtust ekki á neinum metsölu-
listum. Salan í sumar er stórkost-
lega óvænt.“
Ragnar segir að bækur hans hafi
verið þýddar á um 30 tungumál og
verið samið um rétt að útgáfu
þeirra í um 40 löndum. Frakkland
hefur hingað til verið stærsti mark-
aður fyrir bækur hans, en þar hafa
verið seldar um 700 þúsund bækur
á fjórum árum. Miðað við söluna í
Þýskalandi í sumar gæti sá mark-
aður hins vegar fljótlega siglt fram
úr Frakklandi. Bækur Ragnars
hafa alls selst í hátt í tveimur millj-
ónum eintaka í heiminum.
Tilnefndur í Bretlandi
Greint var frá því í gær að Mist-
ur hefði verið tilnefnd sem glæpa-
saga ársins í Bretlandi, en verð-
launin eru á vegum bóka-
hátíðarinnar Capital Crime og
Amazon-útgáfunnar. Mistur kom út
í Bretlandi í vor. Verðlaunin verða
nú veitt í annað skipti og var
Ragnar einnig tilnefndur í fyrra
fyrir Drunga. Ian Rankin varð þá
hlutskarpastur.
Ragnar með Mistur í toppsætinu
Íslendingur ekki áður náð efsta sæti metsölulistans í Þýskalandi „Algerlega óraunverulegt“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Velgengni Bækur Ragnars hafa
verið þýddar á um 30 tungumál.
Tíu liggja nú á sjúkrahúsi vegna
kórónuveirunnar og er ekki ein-
göngu um eldra fólk að ræða þar
sem sá yngsti er á þrítugsaldri og sá
elsti á sjötugsaldri. Þrír eru á gjör-
gæslu. Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir segir að innlagnir nú
séu ákveðið áhyggjuefni en telur
ekki þörf á að herða aðgerðir í sam-
félaginu enn sem komið er.
Nítján í sóttkví og fjórtán utan
„Við erum hlutfallslega ekki kom-
in upp í það sem við sáum núna fyrr
í vetur en við vonumst til þess að
það fari ekki að aukast,“ segir Þór-
ólfur um innlagnirnar.
„Það virðist ekki vera að veiran sé
eitthvað vægari núna en hún var.
Það á eftir að koma betur í ljós þeg-
ar fram líða stundir.“
33 ný smit kórónuveiru greindust
innanlands á þriðjudag. Af þeim
sem greindust voru 19 í sóttkví og
14 utan sóttkvíar. Samtals voru tek-
in 2.229 sýni í gær og eru 1.747 í
sóttkví.
Þórólfur býst við því að daglegum
smitum fari hægt fækkandi á næstu
dögum. Það velti þó á því að fólk
fylgi leiðbeiningum um sóttvarnir og
fari ekki út á meðal fólks sé það með
einkenni.
„Það þarf ekki mikið út af að
bregða. Það þarf ekki nema koma
upp ein hópsýking í einhverju partíi
eða þar sem fólk safnast saman til
þess að kúrfan fari upp aftur. Það
getur gerst jafnvel þótt við séum
með harðar takmarkanir. Þetta fer
allt eftir því hvernig fólk fer eftir
leiðbeiningum, það er aðalatriðið.“
Veiran ekki vægari nú
Tíu á sjúkrahúsi Aðalatriði að fara eftir leiðbeiningum
Kórónu-
veirusmit
H
ei
m
ild
:
co
vi
d.
is
Nýgengi innanlands
29. september:
140,7 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
10 einstaklingar eru á sjúkra-húsi, þar af 3 á gjörgæslu
277.139 sýni hafa verið tekin
1.747 einstaklingar eru í sóttkví
551 er með virkt smit og í einangrun
Nýgengi, landamæri: 6,3
Isavia tapaði samtals 7,6 milljörðum
króna á fyrri hluta ársins en tapaði
2,5 milljörðum á sama tímabili í
fyrra. Inni í upphæðinni í fyrra var
1,9 milljarða niðurfærsla vegna falls
WOW air. Tekjusamdráttur móður-
félagsins, sem sinnir rekstri Kefla-
víkurflugvallar, var upp á 97%, en ef
horft er til allra félaga samstæðunn-
ar var samdrátturinn 77%. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá félag-
inu sem send var út í gær.
Tekjur félagsins á fyrri hluta
þessa árs námu 8,6 milljörðum
króna. Rekstrartap fyrir fjármagns-
liði og skatta (EBIT) var 5,3 millj-
arðar og heildarafkoman sem fyrr
segir neikvæð um 7,6 milljarða.
Handbært fé Isavia er 16,2 milljarð-
ar og eigið fé er upp á 32,8 milljarða
og eiginfjárhlutfallið 38,1%.
Haft er eftir Sveinbirni Indriða-
syni, forstjóra Isavia, í tilkynning-
unni að afkoman beri veruleg merki
um áhrif kórónuveirunnar. „Við höf-
um gripið til umfangsmikilla aðgerða
til að mæta þessum áhrifum og höf-
um m.a. því miður neyðst til þess að
segja upp fjölda starfsmanna hjá
móðurfélaginu og í Fríhöfninni
ásamt því að skerða starfshlutföll
starfsmanna hjá samstæðunni. Við
búum okkur undir að flugumferð fari
jafnvel ekki af stað á ný fyrr en í lok
fyrsta ársfjórðungs næsta árs.
Segir Sveinbjörn að afkomuspá fé-
lagsins geri ráð fyrir að heildar-
afkoma samstæðunnar verði nei-
kvæð um 13-14 milljarða króna á
árinu og að heildaráhrif kórónuveir-
unnar geti numið 15-16 milljörðum.
Hann telur félagið þó standa vel
þrátt fyrir þetta. „Aftur á móti er
sjóðstaða félagsins sterk og við ráð-
um við að vera tekjulaus á Keflavík-
urflugvelli fram á næsta vor án þess
að sækja viðbótarfjármögnun. Við
gerum þó ráð fyrir í okkar áætlunum
að sækja nýtt fjármagn inn í félagið
til að geta viðhaldið umsvifum okkar
til næstu ára.“
Sveinbjörn segist bjartsýnn á
framtíðina hjá félaginu og ferðaþjón-
ustu á Íslandi.
Isavia tapaði
7,6 milljörðum
97% tekjusamdráttur fyrri hluta árs
Leifsstöð Sveinbjörn Indriðason,
forstjóri Isavia, kveðst bjartsýnn.
Morgunblaðið/Eggert