Morgunblaðið - 01.10.2020, Qupperneq 4
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Undirskrift Samkomulagið var undirritað í fjármálaráðuneytinu síðdegis í gær. Trúnaður ríkir um efni þess.
Samkomulag hefur náðst í viðræðum
ríkisins og sveitarfélaga um fjár-
málaleg samskipti sem staðið hafa yf-
ir að undanförnu. Var það undirritað
í fjármálaráðuneytinu síðdegis í gær.
Trúnaður ríkir um efni þess þar til
fjármála- og efnahagsráðherra kynn-
ir fjárlagafrumvarp næsta árs og
nýja ríkisfjármálaáætlun í dag. Þá
verður samkomulagið og erfið staða
sveitarfélaganna í brennidepli á
tveggja daga fjármálaráðstefnu
sveitarfélaga, sem hefst í dag.
Fram hefur komið að mikil um-
skipti til hins verra hafa orðið í
rekstri sveitarfélaga og mikið tekju-
fall blasir við. Frávik í rekstri sveit-
arfélaga frá áætlunum líðandi árs
námu í ágústlok alls 33 milljörðum
kr.
Fjármálaráðstefnan verður haldin
með breyttu sniði og fer fram á net-
inu vegna kórónuveirufaraldursins.
Hún hefst á hefðbundinn hátt með
ávörpum. Haldnir verða nokkrir ör-
fundir og verða fundir sendir út í
gegnum fjarfundaforrit á netinu.
Nokkrir örfundir verða svo á föstu-
dögum í október um þematengd mál-
efni.
Samkomulag hefur náðst
milli ríkis og sveitarfélaga
Kynnt í fjárlagafrumvarpi og á fjármálaráðstefnu í dag
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Passamyndir
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Tryggjum
tveggja metra fjarlægð
og gætum ítrustu
ráðstafana
LAGERSALA
LÍN DESIGN
HEFST Á MORGUN
KL15.00 ALLT AÐ
80%
AFSLÁTTUR
FLATAHRAUNI 31 HAFNAFIRÐI
Á MÓTI KAPLAKRIKA
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Samkvæmt ráðgjöf Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins (ICES) verður heimilt að
veiða meira af norsk-íslenskri síld á
næsta ári en samkvæmt ráðgjöf þessa
árs. Hins vegar hljóðar ráðgjöfin upp á
samdrátt í veiðum á makríl og kol-
munna miðað við ráðgjöf þessa árs.
Ekki er í gildi heildarsamkomulag
um stjórnun veiða úr þessum stofnum
og hver þjóð hefur sett sér aflamark.
Veiðar úr stofnunum hafa verið um-
fram ráðgjöf síðustu ár.
Góður síldarárgangur
Síðustu ár hafa vonir verið bundn-
ar við árgang norsk-íslensku síldar-
innar frá 2016. Hann hefur staðist
væntingar og jafnvel rúmlega það
og er gert ráð fyrir að hann komi af
þunga inn í veiðina á næsta ári.
ICES leggur til að síldaraflinn
2021 verði ekki meiri en 651 þúsund
tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var
526 þúsund tonn og er því um að
ræða 24% hækkun í tillögum ráðsins
um afla á norsk íslenskri síld á
næsta ári. Áætlað er að alls verði
síldaraflinn í ár um 694 þúsund tonn
sem er 32% umfram ráðgjöf. Frá
árinu 2013 hafa veiðar umfram ráð-
gjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins
numið 4-42% á ári.
Endurmat í makríl
Í makríl leggur ICES til að afli
fari ekki yfir 852 þúsund tonn. Ráð-
gjöf yfirstandandi árs var 922 þús-
und tonn og því er um að ræða tæp-
lega 8% lægri ráðgjöf nú. Það
skýrist af bæði minnkandi hrygning-
arstofni og lægra mati á honum nú
en á síðasta ári. Lækkun á ráðgjöf
hefði orðið meiri ef ekki hefði komið
til endurmat og hækkun á veiðihlut-
falli viðmiðunarmarka sem ráðgjöfin
byggist á, segir í frétt frá Hafrann-
sóknastofnun. Áætlað er að alls
verði makrílafli ársins tæplega 1,1
milljón tonn sem er 18% umfram
ráðgjöf.
Rifjað er upp í ástandsskýrslu um
makríl, sem fylgir frétt um ráðgjöf-
ina, að hann hafi gengið á Íslands-
mið í fæðuleit yfir sumarmánuðina í
meira en áratug. Niðurstöður rann-
sókna bendi til minnkandi magns
makríls innan íslenskrar lögsögu frá
árinu 2018. Ástæður þess eru ekki
þekktar, segir í skýrslunni.
Minnkandi kolmunnastofn
ICES leggur til að kolmunnaafli
2021 fari ekki yfir 929 þúsund tonn.
Ráðgjöf þessa árs var 1,2 milljón tonn
og er því um að ræða 20% lækkun á
ráðgjöf. Áætlað er að alls verði kol-
munnaafli ársins tæplega 1,5 milljón
tonn sem er 27% umfram ráðgjöf.
Í ástandsskýrslu um kolmunna seg-
ir m.a. um horfurnar: „Nýliðun hefur
verið lág undanfarin fjögur ár og er
það í samræmi við niðurstöður úr
rannsóknaleiðöngrum. Eins er óvissa í
mati á nýliðun meiri í ár en undanfarin
ár. Stofninn mun því líklega minnka
næstu árin og að sama skapi mun afla-
mark lækka á komandi árum.“
Áætlaður uppsjávarafl i og ráðgjöf ICES*
Þúsundir tonna
Ráðgjöf 2020
Áætlaður heildarafl i 2020
Ráðgjöf 2021
Kolmunni Norsk-íslensk vorgotssíld Makríll
694
526
651
1.100
922 852
1.500
1.200
929
* Alþjóðahaf-
rannsóknaráðið.
Heimild: Hafrann-
sóknastofnun.
M
yn
d
/
H
e
lg
i F
re
yr
Ó
la
so
n
Meira af síld, minna af
makríl og kolmunna
Ráðgjöf ICES
fyrir næsta ár
293 misstu vinnuna í átta hóp-
uppsögnum í september. Sjö upp-
sagnanna voru hjá ferðaþjónustu-
fyrirtækjum. Vinnumálastofnun
spáir auknu atvinnuleysi, sem gæti
orðið um 12%. Í september er áætlað
að atvinnuleysi hafi verið tæp 10%,
8,7% í almennu atvinnuleysi og 0,9%
á hlutabótaleið. Það eru þó óstaðfest-
ar tölur.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir að upp-
sagnirnar hafi ekki komið á óvart.
Aðeins færri misstu vinnuna í hóp-
uppsögnum í ágúst en aðeins fleiri í
júlí. Spurð hvort líklegt sé að þróun-
in verði áfram með þeim hætti að
fleiri missi vinnuna segir Unnur:
„Okkar spár gera ráð fyrir því að
atvinnuleysi muni stíga fram að ára-
mótum alla vega, að það verði aukið
atvinnuleysi með hverjum mánuðin-
um sem líður.“
Gæti farið upp í 25 þúsund
Unnur segir að atvinnuleysi gæti
farið upp í 12% fyrir áramót. Spár
Vinnumálastofnunar bentu áður til
að 21.000 yrðu atvinnulausir fyrir lok
árs en nú segir Unnur að sú tala gæti
farið upp í 25.000. Fólk sem er á
hlutabótum er þó inni í þessum töl-
um og getur það skekkt myndina.
Alls bárust fjórar tilkynningar um
hópuppsagnir í ágúst, þar sem 284
starfsmönnum var sagt upp störfum.
Flestum var sagt upp í tveimur fyr-
irtækjum tengdum ferðaþjónustu á
Suðurnesjum eða 195, 68 í flutninga-
starfsemi á Suðurlandi og einum í
gistiþjónustu á Vesturlandi eða 21.
Uppsagnarfrestur þeirra sem sagt
var upp í hópuppsögnum ágústmán-
aðar er í flestum tilvikum einn til
þrír mánuðir og kemur uppsögnin
því til framkvæmda á tímabilinu
október til desember.
8.218 starfsmönnum sagt upp
í hópuppsögnum á þessu ári
Fyrstu átta mánuði ársins hefur
8.218 starfsmönnum verið sagt upp
störfum í 125 tilkynningum um hóp-
uppsagnir, þar af langflestum í
ferðatengdri starfsemi eða u.þ.b.
7.000. Við það bætast þeir 293 starfs-
menn sem hefur verið sagt upp í átta
hópuppsögnum í september.
293 misst vinnu
í hópuppsögnum
Sjö fyrirtæki af átta í ferðaþjónustu
Morgunblaðið/Eggert
Vinnumálastofnun Avinnuleysi er
sagt geta náð 12% fyrir árslok.