Morgunblaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Viðskiptaráð Íslands fjallaði ádögunum um launakostnað á
Íslandi og skaðsemi atvinnuleysis.
Þar kom fram að efnahagslegar
forsendur kjarasamninga væru
brostnar og að miðað við breytta
efnahagsþróun væru verðmætin
sem til skiptanna væru hér á landi
rúmum 300 milljörðum minni en
gert hafi verið ráð fyrir þegar lífs-
kjarasamningarnir svokölluðu hafi
verið gerðir.
Þetta var svo sett í samhengi viðþá staðreynd að Ísland sé enn
hálaunaland þrátt fyrir að krónan
hafi veikst og það skýrist af þeim
miklu launahækkunum sem hér
hafa verið á undanförnum árum.
Þá er bent á að hlutur launþega íverðmætasköpuninni sé hvergi
meiri en hér á landi. Ísland var í
fyrsta sæti í fyrra þegar hlutur
launþega var 61% af því sem fram-
leitt var í landinu. Viðskiptaráð
metur það svo að líkur séu á að
vegna niðursveiflunnar hafi þetta
hlutfall hækkað í 64%, sem eykur
forskot Íslands.
Viðskiptaráð bendir ennfremur áað jöfnuður launa er mjög
mikill miðað við önnur ríki sem við
berum okkur saman við og síðast en
ekki síst að kaupmáttur hefur aldr-
ei vaxið meira hér á landi en á síð-
astliðnum fimm árum.
Þeir sem tala linnulítið um arð-rán, kúgun og auðvald láta
slíkar staðreyndir ekki trufla sig,
en þeir lifa líka í veruleika sem
aldrei var, og enn síður er.
Veruleikinn sem
er og svo hinn
STAKSTEINAR
Verulega hefur dregið úr kostnaði
Alþingis vegna utanlandsferða þing-
manna vegna heimsfaraldurs
kórónuveirunnar.
Ferðakostnaður utanlands fyrstu
átta mánuði ársins 2020 er 10,5 millj-
ónir króna en var á sama tíma í fyrra
25,3 milljónir, samkvæmt upplýsing-
um frá Alþingi.
Forsætisnefnd þingsins ákvað í
mars að fella niður vinnutengdar
ferðir þingmanna og starfsfólks Al-
þingis frá og með 17. mars út vor-
þingið. Sú ákvörðun hefur ekki verið
framlengd, enda hefðbundinni þátt-
töku í alþjóðastarfi sjálfhætt þegar
þingmannafundir og -ráðstefnur
hafa færst í rafrænt form að frum-
kvæði skipuleggjenda.
Á vef Alþingis má sjá tikynningar
um þrjá fjarfundi í næstu viku. Birg-
ir Þórarinsson, Rósa Björk Brynj-
ólfsdóttir og Þórhildur Sunna Æv-
arsdóttir taka þátt í fjarfundi
eftirlitsnefndar Evrópuráðsþingsins
5. október. Sigríður Á. Andersen
tekur þátt í fjarfundi 12+ landfræði-
hóps hjá Alþjóðaþingmannasam-
bandinu 6. október og Njáll Trausti
Friðbertsson og Þorgerður K. Gunn-
arsdóttir taka þátt í fjarfundi á veg-
um NATO-þingsins um áherslur
bandalagsins til 2030 hinn 7. októ-
ber. sisi@mbl.is
Alþingi hefur sparað milljónir
Þingmenn ekki farið í utanlandsferðir
síðan í mars Nota nú fjarfundabúnað
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Þingmenn hafa ekki farið til
útlanda á fundi síðasta hálfa árið.
Sýning í Gallerí Fold 3. - 17. október
ÚTHVERFA
Opið virka daga
10–18,
Laugardaga 12–16
Lokað á sunnudögum
MAGGA EDDUDÓTTIR
Sýningaropnun kl. 14
laugardaginn 3. október
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Unnið verður með
Isavia og ríkis-
valdinu að upp-
byggingu Egils-
staðaflugvallar
svo hann uppfylli
þær kröfur sem
gerðar eru til hans
sem fyrsta vara-
flugvallar Kefla-
víkurflugvallar en
um leið hugað að
framtíðarmöguleikum vallarins varð-
andi vöruflutninga og millilandaflug.
Þetta er eitt af fjölmörgum áherslu-
atriðum sem koma fram í málefna-
samningi Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks í nýju sameinuðu
sveitarfélagi á Austurlandi.
Oddvitar framboðanna, Gauti Jó-
hannesson, D-lista, og Stefán Bogi
Sveinsson, B-lista, undirrituðu í gær
málefnasamninginn. Hann var undir-
ritaður og kynntur rafrænt til að
leggja áherslu framboðanna á að þróa
rafræna stjórnsýslu þar sem fulltrúar
hvaðanæva úr sveitarfélaginu geti
tekið virkan þátt í starfsemi þess.
Einnig verða áhrif íbúanna tryggð
með heimastjórnum í öllum gömlu
sveitarfélögunum. Bryddað er upp á
fjölmörgum málum. Aðeins rúmlega
hálft annað ár er til stefnu og viður-
kenndu oddvitar meirihlutans að ekki
tækist að ljúka þeim öllum en mik-
ilvægt væri að hefjast handa.
Samið er um að sjálfstæðismenn
tilnefni fólk í tvö helstu embættin, for-
seta sveitarstjórnar og formanns
byggðarráðs, en ekki hefur verið
gengið formlega frá því hvaða fólk
tekur þessi verkefni að sér. Flokkarn-
ir tilnefna báðir tvo fulltrúa í helstu
ráð og nefndir. Stefán Bogi verður
formaður umhverfis- og fram-
kvæmdaráðs en sjálfstæðismenn til-
nefna formann fjölskylduráðs. Ákveð-
ið hefur verið að ganga til viðræðna
við Björn Ingimarsson, bæjarstjóra
Fljótsdalshéraðs, um að gegna stöðu
sveitarstjóra nýja sveitarfélagsins til
loka kjörtímabilsins. helgi@mbl.is
Vilja byggja
flugvöllinn upp
Björn verður ráðinn sveitarstjóri
Gauti
Jóhannesson
Stefán Bogi
Sveinsson
Björn
Ingimarsson