Morgunblaðið - 01.10.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Þegar frost
er á fróni
Þinn dagur, þín áskorun
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi
JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði
Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi
100% Merino
ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is
OLYMPIA
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin hefur óskað eftir til-
boðum í smíði brúar á hringveginum,
yfir Jökulsá á Sólheimasandi, end-
urgerð vegarins beggja vegna og
gerð bráðabirgðavegar. Nýja brúin
mun leysa af hólmi einbreiða og
hættulega brú. Á álagstímum á sumr-
in hafa oft myndast biðraðir við
brúna.
Samkvæmt útboðslýsingu verður
heildarlengd vegkafla á hringvegi um
einn kílómetri. Ný brú verður eftir-
spennt bitabrú í fimm höfum, alls 163
metrar. Hún verður reist á sama stað
og sú gamla, sem verður rifin. Bráða-
birgðabrú verður gerð sem vinnu-
flokkur Vegagerðarinnar smíðar.
Nýja brúin er hönnuð af Verkís.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15.
nóvember 2021. Útboðið er auglýst á
Evrópska efnahagssvæðinu (EES)
og verða tilboð opnuð þriðjudaginn
27. október nk.
Samkvæmt upplýsingum frá Vega-
gerðinni er gamla brúin á Jökulsá á
Sólheimasandi austan Skóga eina ein-
breiða brúin á leiðinni frá Reykjavík
og austur að Kirkjubæjarklaustri.
Hún var byggð árið 1967 og er 159
metra löngstálbitabrú með steyptu
gólfi byggð í fimm höfum.
Eitt af skilgreindum markmiðum í
samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar
er að útrýma einbreiðum brúm á
þjóðvegum þar sem fleiri en 200 öku-
tæki fara um á sólarhring að meðal-
tali. Samkvæmt tölum Vegagerð-
arinnar frá 2018 er brúin yfir Jökulsá
á Sólheimasandi með næstmestu um-
ferð einbreiðra brúa á landinu (ÁDU)
eða 1.875 bílar að meðaltali á sólar-
hring. Aðeins brúin yfir Tungufljót
norðan Geysis er með meiri umferð.
Einbreiðum brúm hefur verið mark-
visst fækkað á undanförnum árum.
Ljósmynd/Vegagerðin
Gamla brúin Er orðin meira en 50 ára gömul og barn síns tíma. Þetta er ein
umferðarmesta einbreiða brúin á Íslandi og kominn tími á endurnýjun.
Ný brú byggð á
Sólheimasandi
Leysir af hólmi gamla einbreiða brú
yfir Jökulsá Biðraðir á annatímum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Byggt verður yfir efstu hæðina á ferjunni Nor-
rænu í vetur og verður við það hægt að flytja
100 farþegum meira í hverri ferð. Útsýniskaffi-
hús verður gert ofan á efstu hæðinni. Þá fær
skipið andlitslyftingu og möguleikar til afþrey-
ingar farþega auknir.
„Á aðalferðamannatímanum hefur okkur
vantað pláss fyrir fleiri farþega. Við höfum ver-
ið að skoða síðustu ár hvað best er að gera og
niðurstaðan er að byggja yfir efstu hæðina og
klassa ferjuna aðeins upp,“ segir Linda Gunn-
laugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril line á
Íslandi.
Stígandi í flutningum
Með breytingum fást 50 tveggja manna káet-
ur, auk nýja kaffihússins. Linda segir að Nor-
rænu sé vel við haldið og ýmislegt hafi verið
gert síðustu ár til bæta upplifun farþega. Nú
hafi verið komið að stærra átaki. Tækifærið
hafi verið notað þegar lítið er að gera vegna
kórónuveirufaraldursins.
Skipið mun taka 1.582 farþega eftir stækk-
un, 100 farþegum meira en nú. Uppselt hefur
verið yfir háannatímann en einnig eru viðskipti
að aukast vor og haust.
Linda segir að ef litið er fram hjá þessu ári
hafi verið stígandi í aðsókn að Norrænu, sem
siglir á milli Danmerkur, Færeyja og Íslands.
Flestir viðskiptavinir Norrænu komi á eigin
ökutækjum og verji miklum tíma á Íslandi,
mest á hringferð um landið. Þetta sé því mikil-
vægur hópur fyrir ferðaþjónustuna.
Unnið verður að breytingum á ferjunni í
skipasmíðastöð í Danmörku frá 19. desember
til 4. mars. Leigt verður skip til vöruflutninga
til og frá Seyðisfirði á meðan en ekki verður
boðið upp á neina farþegaflutninga á þessum
tíma.
Hæð verður bætt ofan á Norrænu
50 káetur bætast við og nýtt útsýniskaffihús Engir farþegaflutningar í tvo og hálfan mánuð
Tölvumynd/Smyril line
Norræna Færeyska ferjan verður stækkuð og fær andlitslyftingu. Hún mun líta svona út að
loknum breytingum sem lokið verður við í byrjun mars. Hefur skipið verið fullbókað á sumrin.
inlega af öllum hlutaðeigandi stétt-
arfélögum.
Samkvæmt auglýsingu félaganna
er kosið um skæruverkföll á mis-
munandi dögum í fyrstu og svo alls-
herjarvinnustöðvun allra félaganna
sem hæfist 1. desember ef samn-
ingar hafa ekki þá náðst. Fé-
lagsmenn Hlífar greiða atkvæði um
vinnustöðvun í formi skæruverkfalla
sem hefjast laugardaginn 24. októ-
ber. Félagsmenn Félags íslenskra
rafvirkja, Félags rafeindavirkja,
VM-félags vélstjóra og málmtækni-
manna og FIT-félags iðn- og tækni-
greina greiða atkvæði í hverju félagi
um sig um skæruverkföll sem hefj-
ast eiga föstudaginn 16. október.
Félagsmenn VR greiða atkvæði
Félagsmenn í sex stéttarfélögum
sem starfa í álveri Rio Tinto í
Straumsvík hefja á morgun at-
kvæðagreiðslu um vinnustöðvanir í
álverinu sem mun standa í eina viku.
Samningaviðræður höfðu staðið
yfir frá því í júní í fyrra þegar sam-
komulag náðist í mars sl. en það var
háð því að álverið og Landsvirkjun
semdu um raforkuverð. Ef það
gerðist ekki fengju starfsmenn ál-
versins ekki 24.000 króna launa-
hækkun sem hafði verið lofað frá og
með 1. júlí.
Þegar ljóst varð að samningur um
raforkuverð var ekki gerður féll
samkomulagið úr gildi og vísuðu
stéttarfélögin deilunni til ríkissátta-
semjara í byrjun ágúst. Sáttaumleit-
anir hafa ekki skilað árangri og hafa
stéttarfélögin því ákveðið að hefja
atkvæðagreiðslu um verkfallsað-
gerðir.
Skærur sem hefjast 16. okt.
Í könnun sem gerð var meðal fé-
lagsmanna í Hlíf kom fram yfir-
gnæfandi stuðningur við aðgerðir til
að knýja á um gerð kjarasamnings á
grunni Lífskjarasamningsins en yfir
90% þátttakenda vildu grípa til að-
gerða.
Fyrirkomulag aðgerðanna sem
atkvæði eru greidd um er á þá leið
að félagar í hverju stéttarfélagi um
sig greiða atkvæði sérstaklega um
þá vinnustöðvun sem starfsmenn
þess félags taka þátt í. Aðgerða-
áætluninni er þó stillt upp sameig-
um vinnustöðvun í formi skæru-
verkfalla sem hefjast mánudaginn
26. október. Öll félögin greiða einnig
atkvæði um allsherjarverkfall allra
félagsmanna í álverinu sem tæki við
af skæruverkföllunum 1. desember,
hafi ekki samist fyrir þann tíma.
Kolbeinn Gunnarsson, formaður
Hlífar, sagði í gær að starfsmenn ál-
versins hafi lengi beðið eftir að fá
lífskjarasamninginn eins og aðrir
launþegar en ekki hefur náðst ár-
angur á sáttafundum. Spurður um
skæruverkföllin sagði hann að verið
væri að útfæra þau, iðnaðarmenn-
irnir myndu væntanlega leggja nið-
ur störf á dagvinnutíma og starfs-
menn á helgarvöktum um helgar
o.s.frv.
Greiða atkvæði
um vinnustöðvanir
Skærur í Straumsvík og svo vinnustöðvun 1. desember
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Straumsvík Aðgerðir eru í undirbúningi hjá sex stéttarfélögum í álverinu.