Morgunblaðið - 01.10.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is
Við búum til
minningar myndó.isljósmyndastofa
NJÓTUMMINNINGANNA
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgdu okkur á facebook
SKOÐIÐ
NETVER
SLUN
LAXDA
L.IS
FYRIR KONUR
Á ÖLLUM ALDRI
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Ný sending
buxur
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Nýjar haustvörur streyma inn
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skoðið hjahrafnhildi.is
NÝ SENDING
Liðlega helmingur þeirra ein-
staklinga sem smituðust af kór-
ónuveirunni í fyrstu bylgju farald-
ursins í vor metur heilsu sína verri
nú en fyrir veikindin. Þetta sýna
frumniðurstöður í viðamiklu rann-
sóknarverkefni fræðikvenna á sviði
hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands
og Landspítala.
Greint er frá niðurstöðunum í ný-
útkomnu Fréttabréfi háskólavina,
hollvinastarfs HÍ.
Í rannsókninni á einnig að varpa
ljósi á uppbyggingu heilbrigðisþjón-
ustu við þennan hóp þeirra sem
smituðust á Landspítalanum og er
haft eftir Helgu Jónsdóttur, prófess-
or við hjúkrunarfræðideild HÍ, sem
stýrir verkefninu, að hjúkrunar-
fræðingar gegndu þar lykilhlutverki
og óskuðu eftir samstarfi við rann-
sakendur í þessu verkefni.
Fundu fyrir einkennum í
margar vikur og mánuði
Fram kemur í fréttabréfinu að
póstkönnun Helgu og samstarfs-
kvenna nær til 900 svarenda.
„Niðurstöður meðal þeirra sem
fengu COVID-19-smit gefa til kynna
að þeir fundu fyrir margs konar ein-
kennum meðan á veikindum stóð og
enn mörgum vikum og mánuðum
eftir að þeim lauk. Algengustu ein-
kenni, bæði meðan á veikindum stóð
og eftir að sýking var gengin yfir,
voru slappleiki, þreyta, mæði, höf-
uðverkur og önnur óþægindi og
verkir. Um 60% þátttakenda meta
heilsu sína verri nú en fyrir veik-
indin sem bendir til langvinnra
áhrifa COVID-19 eftir að einangrun
lýkur,“ er haft eftir Helgu.
Einnig kemur m.a. fram að niður-
stöðurnar muni veita einstaka inn-
sýn í hjúkrun sjúklinga í gegnum
síma og sjúklinga í einangrun sem
geti orðið innlegg í þróun fjarheil-
brigðisþjónustu á Íslandi og á al-
þjóðavettvangi.
Langvinn
eftirköst
sýkingar
Veiran Eftirköst veikinda eru mikil.
Vinna að stóru
rannsóknarverkefni
Morgunblaðið/Eggert
Veðurstofa Íslands hefur hækkað
viðbúnaðarstig fyrir flug yfir
Grímsvötnum úr grænu í gult, þar
sem virkni í eldstöðinni hefur farið
hægt vaxandi undanfarin misseri.
Flestar mælingar sem gerðar eru
til að vakta Grímsvötn sýna meiri
virkni umfram það sem skilgreint
er sem bakgrunnsvirkni eldstöðv-
arinnar, að því er segir á vef Veð-
urstofu Íslands. Mælingar nú eru að
nálgast þau gildi sem sáust fyrir
eldgosið 2011. Hefur skjálftavirkni
síðasta mánuðinn mælst vel yfir
meðallagi, auk þess sem jarðhita-
virkni hefur farið vaxandi. Það sjá-
ist á dýpkandi jarðhitakötlum í og
við Grímsvatnaöskjuna. Gasmæl-
ingar frá í sumar benda til að kvika
sé nálægt yfirborði.
Gult viðbúnaðarstig
Morgunblaðið/RAX
Grímsvötn Jarðhitavirkni hefur aukist.
Atvinna