Morgunblaðið - 01.10.2020, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Nú er kominn sá tími seminflúensan fer að láta ásér kræla. Hægt er aðverjast inflúensunni
með árlegri bólusetningu sem gefur
um 60-90% vörn gegn sýkingu. Það
er því hægt að fá inflúensu þrátt
fyrir bólusetningu, en meðal þeirra
sem eru bólusettir dregur bólusetn-
ingin úr alvarlegum fylgikvillum
sýkingarinnar og lækkar dánar-
tíðni.
Margar rannsóknir styðja bólu-
setningar við inflúensu. Vitað er að
sjúkdómum fækkar við bólusetn-
ingar og að við verndum umhverfi
okkar, viðkvæma einstaklinga,
börn, aðstandendur og vini með því
að láta bólusetja okkur.
Áhættuhópar njóti forgangs
Árleg inflúensa kemur verst nið-
ur á eldri kynslóðinni og fólki með
undirliggjandi sjúkdóma með aukn-
um fjölda dauðsfalla í kjölfar inflú-
ensunnar vegna alvarlegra fylgi-
kvilla hennar. Fyrir flesta er
inflúensan hins vegar óþægileg
veikindi sem ganga yfir á nokkrum
dögum án alvarlegra afleiðinga. Við
mælum eindregið með að láta bólu-
setja sig gegn inflúensu og sótt-
varnalæknir mælist til að eftirtaldir
áhættuhópar njóti forgangs við
inflúensubólusetningu:
Allir 60 ára og eldri.
Öll börn og fullorðnir sem þjást
af langvinnum hjarta-, lungna-,
nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykur-
sýki, illkynja sjúkdómum og öðrum
ónæmisbælandi sjúkdómum.
Heilbrigðisstarfsmenn sem ann-
ast einstaklinga í áhættuhópum sem
taldir eru upp hér að ofan.
Þungaðar konur.
Jafnframt er minnt á að þeir sem
á þurfa að halda geta í leiðinni feng-
ið bólusetningu gegn lungnabólgu
(pneumókokkasýkingu).
Veiran smitast manna á milli með
loftbornu úðasmiti, hósta og hnerra
en getur einnig smitast við snert-
ingu. Almennt er flensan mest smit-
andi á fyrstu 3-4 dögum veikinda en
sá sýkti getur byrjað að smita um
degi áður en einkenna verður vart.
Einkenni byrja oftast mjög snögg-
lega og vara oftast innan við eina
viku en í sumum tilfellum geta veik-
indin varað í allt að tvær vikur.
Bólusetning besta forvörnin
Í þungum faraldri eykst álag á
heilbrigðiskerfið og í samfélaginu
verður áberandi aukning á fjar-
vistum vegna veikinda, frá vinnu og
skóla. Dæmigerð einkenni inflúensu
eru hár hiti, þurr hósti, hálssærindi,
beinverkir og höfuðverkur. Þessi
einkenni koma oft snögglega. Sjald-
gæfari einkenni geta verið ógleði,
uppköst eða niðurgangur en þau
eru algengari hjá börnum en full-
orðnum. Bólusetning gegn inflúensu
er ein besta fyrirbyggjandi aðgerð-
in sem við eigum völ á í dag.
Hvað á ég að gera til að
draga úr líkindum á smiti?
Þvoðu hendurnar oft með vatni
og sápu.
Haltu þig fjarri fólki sem er með
inflúensu.
Láttu bólusetja þig árlega gegn
inflúensu á næstu heilsugæslustöð.
Ef þú ert með inflúensu
Drekktu vel af vatni.
Taktu hitalækkandi lyf sem þú
færð í apóteki.
Þolinmæði, það tekur líkamann
1-2 vikur að jafna sig á inflúensu.
Haltu þig heima og hvíldu þig.
Vertu heima þar til þú hefur ver-
ið hitalaus í einn sólarhring án hita-
lækkandi lyfja.
Komdu á heilsugæslustöð í bólu-
setningu því við erum hér fyrir þig.
Morgunblaðið/Hari
Heilsuráð
Rut Gunnarsdóttir,
svæðisstjóri og fagstjóri hjúkr-
unar á Heilsugæslunni Hvammi,
Hagasmára í Kópavogi
Mælt með bólusetningu við inflúensu
Unnið í samvinnu við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Sprauta Bragð
í baráttunni.
Um tvær vegalengdir er að velja í Heið-
merkurhlaupinu nk. laugardag. Ríkis-
hringurinn er 12 kílómetra hlaup, þar
sem þátttakendur verða ræstir klukk-
an 12. Klukkan 14 leggja síðan af stað
þeir sem hlaupa skemmtiskokk á fjög-
urra kílómetra hring sem er nefndur Í
faðmi skógarins. Hlaupið hefst við
Borgarstjóraplan, sem er nyrst og
austarlega í Heiðmörkinni. Skráning
er á vefsíðunni hlaup.is.
Þetta er í fyrsta sinn sem efnt er til
Heiðmerkurhlaups. Skógræktarfélag
Reykjavíkur stendur fyrir viðburðinum
í tilefni af 70 ára afmæli Heiðmerkur,
sem minnst hefur verið með ýmsu
móti á líðandi ári.
Heiðmerkurhlaup
Skokk í skógi
Hlaup Bætir, hressir og kætir mjög.
Teiknisamkeppni, sögustund í Amts-
bókasafninu, upplestur úr bókum, fjöl-
skylduleiðsögn um listasýningu og
hæfaleikakeppni eru meðal viðburða á
Barnamenningarhátíð á Akureyri, sem
hefst í dag, 1. október, og stendur all-
an mánuðinn. Markmiðið er að hvetja
ungmenni til virkrar þátttöku í menn-
ingarstarfi og veita þeim tækifæri til
að njóta lista og menningar og virkja
sköpunarkraft.
Leiðarljós hátíðarinnar eru fag-
mennska, fjölbreytileiki og jafnræði.
Hátíð á Akureyri
Barnamenning
Að fara á fætur og klæða sigá morgnana og nýta tím-ann milli átta og 16 eins ogí hefðbundnum skóla væri
gott. Ekki nota rúmið sem vinnu-
aðstöðu og nauðsynlegt er að mæta
vel í tíma, hvort sem þeir fara fram í
gegnum tölvu eða með hefð-
bundnum hætti í skólahúsi. – Ábend-
ingar námsráðgjafa Menntaskólans
við Hamrahlíð
eru meðal annars
þessar. Vegna
smitvarna og kór-
ónuveirunnar
hefur hluti náms
nemenda farið
fram utan skól-
ans og við þær
aðstæður þarf að
huga að ýmsu
óvenjulegu.
Um 1.100 nem-
endur eru við skólann, og sam-
kvæmt því fyrirkomulagi mæta þeir
í skólann fyrir hádegi aðra vikuna og
síðdegis hina og það sem út af stend-
ur er kennt í gegnum netið. Skóla-
húsinu er skipt upp í fimm 200
manna sóttvarnahólf og í kennslu-
stundum eru allir með grímu fyrir
vitum.
Gengur ótrúlega vel
„Þrátt fyrir að aðstæðurnar séu
óvenjulegar gengur skólastarfið
vel,“ segir Fríður Reynisdóttir,
náms- og starfsráðgjafi við MH.
„Eðlilega finnst krökkunum þetta þó
erfitt, sérstaklega nemendum á 1.
ári við skólann. Við höfum því fylgst
sérstaklega með þeim hópi, leiðbeint
þeim og hvatt áfram. Hringt í alla
sem eru að byrja í skólanum og sagt
að við starfsfólk skólans séum til
staðar og viljum hjálpa. Sú endur-
gjöf er mikilvæg. Sérstaklega gildir
það um nemendur sem eru að koma
inn í alveg nýtt umhverfi þar sem
þau þekkja kannski ekki hvers
vænst er af þeim. Það er alltaf átak
að byrja í nýjum skóla og vinna með
fólki sem maður þekkir ekki fyrir.“
Íþróttakennsla í MH er nú öll í
útitímum. Framan af haustönninni
áttu nemendur sjálfir að sinna
íþróttunum og skila kennurum sín-
um til staðfestingar myndum eða
öðrum stafrænum göngum sem
staðfestu að þeir hefðu stundað
hreyfingu, rétt eins og námsráðgjaf-
arnir hafa hvatt til í orðsendingum.
Einangri sig ekki
„Þegar faraldurinn er að baki er
margt úr stafrænni kennslu sem
mun nýtast til framtíðar. Skólastarf
þar sem nemendur mæta og eru í
samfélagi við aðra er þó hið eðlilega
og verður áfram,“ segir Fríður, sem
í ráðleggingum sínum til nemenda
leggur áherslu á gott skipulag.
„Einnig að nemendur haldi góðu
sambandi við vini sína, einangri sig
ekki og reyni eftir megni að halda
rútínu í daglegu lífi,“ segir Fríður.
sbs@mbl.is
Rútínan er mikilvæg
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Grímuskylda Í Hamrahlíðinni mæta nemendur nú hálfan daginn.
Starf í framhaldsskólum
er nú með óvenjulegu
móti. Námsráðgjafar í
MH hvetja krakkana
með ráðum og dáð. Til
framtíðar litið mun
skólastarf breytast eftir
reynsluna nú.
Fríður
Reynisdóttir
Hamrahlíð Nemendur eru 1.100.
GÆÐADEKKIN ÞÍN
FÁST ÓDÝRARI
HJÁ OKKUR!
E N D U M H V E R T Á L A N D S E M E R
M I K I Ð Ú R V A L A F V E T R A R D E K K J U M
S
F u n a h ö f ð a 6 , 1 1 0 R e y k j a v í k • N j a r ð a r b r a u t 1 1 , 2 6 0 R e y k j a n e s b æ r
S í m i : 5 1 9 - 1 5 1 6
Örugg og traust þjónusta í fasteignaviðskiptum í áratugi
Ársalir
fasteignamiðlun
533 4200
Ársalir ehf fasteignamiðlun, 533 4200
og 892 0667 Engjateigi 5, 105 Rvk
Björt og falleg 3ja-5 herbergja íbúð á efstu hæð, ásamt bílskúr. Nánari lýs-
ing: Forstofa með flísum á gólfi. Eldhús með hvítri, upprunalegri innréttingu,
borðkrók, þvottahúsi og búri innaf. Stofa og borðstofa með parketi á gólfum.
Arinn í stofu. Vestursvalir. Nú eru svefnherbergi tvö, en væri hægt að fjölga
þeim um tvö til viðbótar. Baðherbergið er flísalagt og með sturtu og innréttingu.
Sér geymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Nýlega er búið
að taka húsið í gegn að utan, svo og gólfefni á stigagangi. Frábært útsýni er frá
íbúðinni yfir borgina. Mögulegt að kaupa auka bílskúr.
Áhugasamir sem vilja bóka skoðun, vinsamlega hafið
samband við Björgvin 892 0667 eða sendið póst á
arsalir@arsalir.is
Háaleitisbraut 45, 108 Reykjavík
OPIÐ HÚS í dag, fimmtudag, kl. 17-18