Morgunblaðið - 01.10.2020, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Greina má töluverðan áhuga á ís-
lensku áhrifafólki í stjórnmálum,
viðskiptalífi, stjórnkerfi og réttvísi,
þegar litið er yfir þau íslensku nöfn,
sem fundist hafa í gagnaleka frá kín-
verska fyrirtækinu Zhenhua, og
greint hefur verið frá víða um heim
undanfarnar vikur. Þar er talið að
finna megi persónuupplýsingar um
2,4 milljónir manna, en ekki er talið
ósennilegt að þar á meðal séu um
4.000 Íslendingar eða liðlega 1%
þjóðarinnar.
Meðal þeirra upplýsinga, sem
safnað hefur verið í kínverska per-
sónugrunninn, eru fæðingardagar,
heimilisföng, hjúskaparstaða,
stjórnmálaþátttaka, ljósmyndir, ætt-
ingjar og notendanöfn á félagsmiðl-
um. Þar hefur verið safnað saman
upplýsingum af Facebook, Twitter,
LinkedIn, Instagram og jafnvel Tik-
Tok, í bland við fréttir, dómsupp-
kvaðningar og ásakanir. Megnið af
upplýsingunum hefur verið skrapað
upp af netinu og mega heita opinber-
ar upplýsingar, en þó má finna dæmi
um upplýsingar, sem virðast hafa
verið fengnar úr gögnum, sem ekki
eiga að vera opinber, líkt og reikn-
ingsupplýsingar, starfsumsóknir eða
sálfræðimat. Ekki verður þó séð að
það eigi við um hinar íslensku upp-
lýsingar.
Fundist hafa 411 færslur um Ís-
lendinga í þeim gögnum, sem þegar
hefur tekist að endurheimta úr
Zhenhua-gagnalekanum, en ekki er
ómögulegt að fleiri nöfn bætist við.
Það er þó tæplega nema brot af þeim
upplýsingum, sem fyrirtækið hefur
safnað um Íslendinga og milljónir
annarra, en aðeins hefur náðst að
endurbyggja um 10% gagnagrunns-
ins, líkt og lesa má um hér á hægri
síðu.
Áhrifafólk og ættingjar þess
Meðal þeirra, sem krafsaðir hafa
verið upp úr grunninum, má nefna
fyrrverandi ráðherra á borð við Geir
H. Haarde, Gylfa Magnússon, Katr-
ínu Júlíusdóttur og Óttar Proppé,
sendiherra eins og Stefán Skjaldar-
son, Gunnar Snorra Gunnarsson og
Kristján Andra Stefánsson og þjóna
réttvísinnar líkt og Sigríði Friðjóns-
dóttur, Jón H.B. Snorrason og
Hrafn Bragason.
Þegar litið er til þess fólks, sem
þar er að finna, og glöggva má sig á í
nafnaskránni að neðan, blasir við að
um sumt virðist valið fremur handa-
hófskennt og tæplega reist á mikilli
þekkingu á íslensku þjóðlífi. Þannig
má þar finna fólk, sem látið er fyrir
allnokkru, en einnig virðist ritun
sumra nafna nokkuð á reiki. Þau
hafa verið leiðrétt eftir bestu getu
hér að neðan, en eins er rétt að
benda á að þar má bæði finna alnafna
og algeng nöfn, sem ekki er unnt að
segja til um við hvern eigi.
Sumt fólk á listanum hefur átt í
einhverjum viðskiptum við Kína,
stórum sem smáum, en þar má einn-
ig sem fyrr segir finna ráðherra,
þingmenn, sendiherra, dómara, fjöl-
miðlafólk og einnig nokkuð af
íþróttamönnum. Jafnframt eru
dæmi um fólk sem sætt hefur ákæru
eða hlotið dóma fyrir efnahagsbrot,
en um það má iðulega sjá tilvísanir til
frekari upplýsinga um þau efni. Sá
áhugi kann að gefa eitthvað til kynna
um þær hvatir, sem liggja að baki
gagnasöfnuninni.
Mörgum þykir vafalaust óþægi-
legt að sjá nafn sitt á listanum, enda
erfitt að segja til um í hvaða tilgangi
nöfnunum var safnað eða hver vill
notfæra sér þær upplýsingar. Þar
hlýtur að vekja sérstakan ugg, að
fyrirtækið Zhenhua státar sérstak-
lega af tengslum sínum við kínversk
yfirvöld, bæði herinn og kommún-
istaflokkinn þar, sem öllu ræður.
Enn óþægilegra er þó sjálfsagt að
sjá nöfn barna eða annarra skyld-
menna, líkt og finna má ýmis dæmi
um. Tvö barna Willums Þórs Þórs-
sonar, þingmanns Framsóknar-
flokksins, eru meðal nafnanna að
neðan, en eins má nefna Þóru Bald-
vinsdóttur, eiginkonu Bjarna Bene-
diktssonar fjármálaráðherra, og
Hjörleif Sveinbjörnsson, eiginmann
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fv.
utanríkisráðherra.
Rétt er að ítreka, að ekki verður
séð af íslensku gögnunum að í þeim
felist neinar upplýsingar sem ekki
liggja fyrir opinberlega á einhvern
hátt. Megnið er auðfundið með leit á
vefnum eða með því að gramsa á fé-
lagsmiðlum. Einhver hefur samt
þurft að hafa fyrir því að finna til
nöfn fólksins og skyldmenna þess.
Meira en 400 íslensk nöfn
Tekist hefur að finna 411 færslur um Íslendinga í Zhenhua-gagnalekanum Mögulegt að þær séu
tíu sinnum fleiri Mikið safn upplýsinga um íslenskt áhrifafólk, maka þeirra, börn og ættingja
Gögn Lekinn frá Kína hefur vakið ugg víða um heim, frekar vegna þess hve
víðtæk gagnasöfnunin hefur verið en að þar séu endilega viðkvæm gögn.
A
Adam Hermannsson
Aðalheiður Sigursveinsdóttir
Aðalsteinn Guðmundsson
Aðalsteinn Leifsson
Alda Viggósdóttir
Andie Nordgren
Anna Ásgeirsdóttir
Anna Gísladóttir Kolbeins
Anna Helgadóttir
Anna Sveinsdóttir
Anna Sveinsdóttir
Arna Einarsdóttir
Arnar Jónsson
Arnbjörn Ólafsson
Arndís Guðmundsdóttir
Arndís Kristjánsdóttir
Aron Friðrik Georgsson
Auðbjörg Brynjólfsdóttir
Auðunn Atlason
Auðunn Eiríksson
Auður Finnbogadóttir
Á
Ágúst Kristinsson
Ágúst Pétursson
Ágúst Þorvaldsson
Ágústa Andersen
Álfrún Baldursdóttir
Ármann Andrason
Árney Daníelsdóttir
Árni Jóhannsson
Árni Lárusson
Árni Pálsson
Ársól Björnsdóttir
Ásdís Ágústsdóttir
Ásdís Ólafsdóttir
Áslaug Björnsdóttir
Ásta Guðjónsdóttir
Ástráður Haraldsson
Ástríður Grímsdóttir
B
Benedikt Skúlason
Bergvin Oddsson
Bertha Gunnarsdóttir
Birgitta Sveinbjörnsdóttir
Birkir Kristinsson
Birna Bjarnadóttir
Birnir Björnsson
Bjarkey Gunnarsdóttir
Bjarni Bjarnason
Björg Siv Friðleifsdóttir
Björk Sigurjónsdóttir
Björn Björnsson
Björn Guðbjörnsson
Björn Guðmundsson
Borghildur Erlingsdóttir
Borghildur Jónsdóttir
Bragi Sigurjónsson
Bragi Þór Antoníusson
Brynhildur Ingimundardóttir
Brynhildur Pétursdóttir
Brynjar Lúðvíksson
Brynjólfur Steingrímsson
Brynjólfur Willumsson
D
Daði Skúlason
Dagmar Sigurðardóttir
Danielle Neben
Dominique Ibsen
Dóra Einarsdóttir
E
Edda Atladóttir
Edda Daníelsdóttir
Eggert Dagsson
Einar Bjarnason
Einar Brynjarsson
Einar Eiðsson
Einar Gíslason
Einar Hermannsson
Einar Sigurðsson
Eiríkur Guðmundsson
Elín Jóhannesdóttir
Elín Ólafsdóttir
Elín Sveinsdóttir
Elínborg Sturludóttir
Elísabet Friðriksson
Ellert Arnbjörnsson
Elmar Svavarsson
Emma Swift
Erla Knútsen
Erlendur Magnússon
Erna Mathiesen
Eva Kolbeinsdóttir
Eydís Rúnarsdóttir
Eyjólfur Sverrisson
F
Finnbogi Finnbogason
Finnur Magnússon
Friðbjörn Ásbjörnsson
Friðjón Skarphéðinsson
Frímann Ólafsson
G
Geir H. Haarde
Gestur Sveinsson
Gissur Þórhallsson
Gígja Guðjónsdóttir
Gísli Gíslason
Gísli Magnússon
Gísli Marinósson
Gísli Sigurðsson
Gloria Zarela Castro Conde
Grímur Kristgeirsson
Guðbjörg Agnarsdóttir
Guðbjörg Róbertsdóttir
Guðbjörn Arngrímsson
Guðjón Guðmundsson
Guðjón Már Guðjónsson
Guðlaug Hansdóttir
Guðmundur Árnason
Guðmundur Björnsson
Guðmundur Björnsson
Guðmundur Helgason
Guðmundur Jónsson
Guðmundur Lárusson Pálsson
Guðmundur Magnús
Hermannsson
Guðni Magnússon
Guðni Örnólfsson
Guðný Einarsdóttir
Guðríður Vilhjálmsdóttir
Guðrún Arnadóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Guðrún Óladóttir
Guðrún Sveinbjörnsdóttir
Guðrún Þorvarðardóttir
Gunnar Arnarson
Gunnar Ásgeirsson
Gunnar Gunnarsson
Gunnar Hallgrímsson
Gunnar Hálfdánarson
Gunnar Kristjánsson
Gunnar Magnússon
Gunnar Þorgeirsson
Gunnsteinn Snævarr
Gyða Stefánsdóttir
Gylfi Ásbjörnsson
Gylfi Magnússon
Gylfi Scheving
H
Hafliði Björnsson
Hafsteinn Júlíusson
Hafþór Jónsson
Halla Mathiesen
Halldór Kristjánsson
Halldór Kristjánsson
Halldór Þorsteinsson
Halldór Þórðarson
Halldóra Björnsdóttir
Halldóra Filippusdóttir
Halldóra Mogensen
Halldóra Þorvarðardóttir
Hallgerður Gunnarsdóttir
Hallgerður Kristjánsdóttir
Hallgrímur Gunnarsson
Hanna Katrín Friðriksson
Hanna Pétursdóttir
Hannes Jónsson
Hans Jóhannsson
Hansína Kristjánsdóttir
Haraldur Einarsson
Haraldur Pálsson
Haraldur Sigurðsson
Haukur Claessen
Haukur Hauksson
Heiða Helgadóttir
Heiður Baldursson
Heiðveig Hálfdánardóttir
Helga Harðardóttir
Helga Hjálmtýsdóttir
Helga Jónsdóttir
Helga Olrich
Helga Ólafsdóttir
Helga Sigurðardóttir
Helgi Friðjónsson
Helgi Guðjónsson
Helgi Hauksson
Herdís Hallmarsdóttir
Hermann Ármannsson
Hervald Eiríksson
Hildur Benediktsdóttir
Hinrik Hinriksson
Hjalti Þórðarson
Hjálmar Skarphéðinsson
Hjörleifur Guðnason
Hjörleifur Sveinbjörnsson
Hjörtur Hjartarson
Hlynur Jónsson
Hlökk Þrastardóttir
Hope Millington
Hólmfríður Ólafsdóttir
Hrafn Bragason
Hrefna Ástþórsdóttir
Hrund Árnadóttir
Hugi Ólafsson
Hörður Jónsson
Hörður Zóphaníasson
Höskuldur Erlingsson
I
Inga Arnbjörnsdóttir
Inga Eiríksdóttir
Ingibjörg Björnsdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Ingibjörg Gunnarsdóttir
Ingibjörg Hjörleifsdóttir
Ingileif Hallgrímsdóttir
Ingimundur Sigurpálsson
Ingólfur Árnason
Ingólfur Baldvinsson
Ingólfur Björnsson
Ingunn Friðleifsdóttir
Íslendingar á kínverska nafnalistanum
20%
AFSLÁT
TUR AF
ÖLLUM
SKÓM
D’Lites Gleeful
Verð: 14.995.-/ 11.995.-
Aðalfundur
Aðalfundur Vörubílastöðvarinnar Þróttar hf. verður haldinn
í húsi félagsins á Sævarhöfða 12, fimmtudaginn 15. okt.
nk. og hefst kl. 20:00.
Dagskrá aðalfundar skv. 27. gr. laga Vörubílstjórafélagsins
Þróttar.
Stjórnin.
Kínverski nafnalistinn
Atvinna