Morgunblaðið - 01.10.2020, Qupperneq 31
FRÉTTIR 31Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Áður: 24.995.-
Nú: 19.995.-
Áður: 22.995.-
Nú: 15.995.-
Áður: 12.995.-
Nú: 9.995.-
Áður: 19.995.-
Nú: 15.995.-
KAUPHLAUP
AFSLÁTTUR
S K Ó V E R S L U N
STEINAR WAAGE GILDIR TIL 6.OKTÓBER
AF VÖLDUM ECCO SKÓM
Vnr. 244743 Vnr. 761813Vnr. 244603 Vnr. 754751
Friðarumleitunum hafnað
Fjórði dagur átaka í Nagorno-Karabak Rússar bjóðast til að ganga á milli
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Stjórnvöld í Armeníu og Aser-
baídsjan höfnuðu í gær allri viðleitni
til þess að koma á vopnahléi í átök-
unum um Nagorno-Karabak-hérað,
en harðir bardagar voru þar í gær,
fjórða daginn í röð.
Rúmlega 100 manns hafa nú látist
í átökunum, en hermálayfirvöld
beggja ríkja hafa gefið út yfirlýsing-
ar um mikið mannfall í her andstæð-
ingsins, sem ekki hefur verið hægt
að staðfesta.
Stjórnvöld í Rússlandi buðust í
gær til þess að standa að friðarvið-
ræðum milli ríkjanna tveggja um ör-
lög héraðsins, og hringdi Sergei
Lavrov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, í kollega sína í báðum ríkjum
til þess að staðfesta það boð. Hvor-
ugt ríkið vildi hins vegar þekkjast
það að sinni.
Ilham Aliyev, forseti Aserbaídsj-
ans, hét því til að mynda í gær að her
landsins myndi berjast þar til allar
hersveitir Armena hefðu yfirgefið
Nagorno-Karabak. „Ef ríkisstjórn
Armeníu uppfyllir þessar kröfur
munu bardagarnir og blóðsúthell-
ingarnar hætta, og friður mun ríkja
um heimshlutann,“ sagði Aliyev en
hann var að heimsækja særða her-
menn á hersjúkrahúsi.
Nikol Pashinyan, forsætisráð-
herra Armeníu, sagði á sama tíma að
það væri ekki viðeigandi að tala um
friðarviðræður meðan átökin væru
sem mest. Í Jerevan, höfuðborg
Armeníu, mátti sjá menn í löngum
röðum við skráningarstöð hersins,
og svipaða sjón mátti sjá í helstu
borgum Aserbaídsjan.
Vígamenn frá Sýrlandi komnir?
Áhyggjur hafa vaknað síðustu
daga um að átökin um Nagorno-Kar-
abak gætu breitt úr sér, en Tyrkir
hafa stutt við bakið á Aserum og
hvatt þá til dáða í átökunum. Þeir
hafa hins vegar hafnað ásökunum
um að þeir hafi sent málaliða til
Aserbaídsjan, sem og að tyrknesk
orrustuþota hafi grandað armenskri
orrustuþotu innan armenskrar loft-
helgi á þriðjudaginn.
Utanríkisráðuneyti Rússlands
sendi hins vegar frá sér yfirlýsingu í
gær um að vígamenn úr „ólöglegum
hópum“ frá Sýrlandi og Líbíu væru
komnir á átakasvæðið, og að Rússar
hefðu „þungar áhyggjur“ af því.
Ráðuneytið lýsti hins vegar ekki yfir
hvaða þjóð bæri ábyrgð á því að víga-
mennirnir væru í héraðinu.
AFP
Átök Herskráningarstöðvar í báðum ríkjum taka nú við fjölda umsækjenda.
Rússnesk stjórn-
völd sökuðu í gær
Þjóðverja um að
hafa sýnt af sér
„ögrandi“ hegðun
eftir að Heiko
Maas, utanríkis-
ráðherra Þýska-
lands, ávarpaði
allsherjarþing
Sameinuðu þjóð-
anna á þriðjudag-
inn og hvatti þar Rússa til þess að
hefja formlega rannsókn á eitr-
uninni á rússneska stjórnarand-
stæðingunum Alexei Navalní.
Þýsk stjórnvöld segjast hafa
óyggjandi sannanir fyrir því að eitr-
að hafi verið fyrir Navalní með
taugaeitrinu novichok, sem hannað
var í Sovétríkjunum á síðustu öld.
Sagði Maas að eitrunin bryti í
bága við bannið gegn beitingu efna-
vopna og snerti því heimsbyggðina
alla. „Ég skora á Rússland að gera
meira til að varpa ljósi á þetta mál,“
sagði Maas í ræðu sinni.
Utanríkisráðuneyti Rússa brást
hart við í gær og sagði Maas hafa
notað vettvang Sameinuðu þjóðanna
til þess að setja fram „órökstuddar
fullyrðingar“, og að Rússar litu á
þær sem framhald á fjandsamlegri
afstöðu Þjóðverja í málinu.
Saka
Þjóðverja
um ögrun
Alexei
Navalní
Vilja að eitrunin
verði rannsökuð
Timothy Ray
Brown, fyrsti
maðurinn sem
vitað er til að
hafi læknast af
HIV-sýkingu,
lést í gær af völd-
um krabbameins.
Brown, sem
var einnig þekkt-
ur sem „Berl-
ínarsjúkling-
urinn“, vakti vonir um að hægt yrði
að finna lækningu við HIV árið
2008, en þá undirgekkst hann með-
ferð við bráðahvítblæði. Brown
hafði verið HIV-jákvæður frá árinu
1995, en vegna hvítblæðisins þurfti
hann að fara í mergskipti og stofn-
frumumeðferð, sem hafði í för með
sér að hann læknaðist af báðum
sjúkdómum.
Í yfirlýsingu alþjóðlegu alnæmis-
samtakanna IAS sagði að Timothy
og Gero Hutter, læknir hans, ættu
þakkir skildar fyrir að hafa opnað á
þann möguleika að lækning við
sjúkdóminum væri gerleg.
Sá fyrsti sem lækn-
aðist af HIV látinn
Timothy Ray
Brown
BANDARÍKIN
Frans páfi veitti almenningi áheyrn við San
Damaso-garðinn í Vatíkaninu í Róm, en hann
hittir almenning þar einu sinni í viku. Aðgengi
að fundunum með páfa er takmarkað vegna kór-
ónuveirunnar, en að honum loknum lutu við-
staddir prestar höfði og báðu með páfanum.
Lutu höfði í bæn með páfanum
AFP