Morgunblaðið - 01.10.2020, Page 33

Morgunblaðið - 01.10.2020, Page 33
33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020 Hálka Ökumenn lentu víða í vanda á suðvesturhorninu í gærmorgun, þegar lúmsk hálka myndaðist á vegum. Þannig varð umferðaróhapp á Suðurlandsvegi, skammt frá Hádegismóum. Árni Sæberg Veljum íslenskt því aukin inn- lend framleiðsla skapar meiri verðmæti og minni sóun til fram- tíðar. Með því að velja íslenskar vörur og þjónustu efla Íslend- ingar samfélagslega ábyrgð sína til frekari uppbyggingar ís- lenskra atvinnugreina og auka samkeppnishæfni landsins til framtíðar. Aukin framleiðsla inn- anlands kallar á fleiri vinnandi hendur sem felur í sér aukna inn- lenda verðmætasköpun sem eyk- ur velferð þjóðarinnar. Með auknum við- skiptum á innanlandsmarkaði bæta landsmenn lífskjör sín horft til framtíðar og efla atvinnu á Íslandi. Mikil sóun og flutningur á vörum milli landa sem auka mengun og óhollustu mun eiga þyngra undir fæti horft til framtíðar. Matvæli sem ekki eru framleidd með sjálfbærum hætti munu eiga erfiðan róður. Íslensk framleiðsla eflir atvinnustig, verkkunnáttu, vöruþróun og samfélagslega ábyrgð á Íslandi. Á Íslandi er fólk í fremstu röð á sviði hugvits, hönnunar, handverks, lista og matvælaframleiðslu. Verk- kunnátta iðnaðarfólks er framúrskarandi á mörgum sviðum. Íslenskur landbúnaður hefur getið af sér afurðir á heims- mælikvarða eins og íslenska lambakjötið, kjúklingaafurðir, nautakjötið, skyrið, osta og aðrar mjólkurafurðir. Íslenskur landbúnaður á mikið inni í hreinni og ómengaðri fram- leiðslu og sjálfbærni. Ylrækt getur orðið stóriðja 21. aldar á Íslandi ef hugarfar og stolt þjóðarinnar er rétt. Verð og eftirspurn eftir heil- næmum íslenskum landbúnaðar- afurðum á einungis eftir að aukast á næstu árum og mikil sóknarfæri eru í ylrækt með endurnýjanlegri orku. Mikilvægi innlendrar framleiðslu og auk- innar innlendrar verðmætasköpunar mun skipta sköpum í samkeppnishæfni landsins þar sem aukin áhersla verður lögð á innlenda fram- leiðslu og minnka þannig mengun í lofti og á hafi. Skattalegir hvatar til uppbyggingar í ylrækt eru mikilvægir til að ná að byggja upp atvinnu- grein sem eykur sjálfbærni. Á næstu árum mun íslensk matvælaframleiðsla eiga möguleika á að taka forystu í hreinum og sýklalausum land- búnaðarafurðum sem verður að teljast sérstaða í heimi þar sem mengun, sýklamengaðar kjöt- vörur og afurðir úr ríkisstyrktum landbúnaði í Evrópu og annars staðar munu eiga undir högg að sækja enda gæði íslenskrar framleiðslu fram- úrskarandi. Hugarfar og stolt af íslenskri framleiðslu auðveldar árangur Umhverfisvernd, náttúruvernd, minni sóun og betri meðferð og nýting náttúruauðlinda munu verða leiðarljós forystu í fyrirtækja- rekstri og stjórnmálum heimsins á 21. öldinni þannig að stjórnlaus neysluhyggja og sóun valdi ekki óafturkræfu tjóni á jörðinni. Heimurinn er að mörgu leyti búinn að veðsetja framtíð okkar fyrir skammtímahagnað og græðgi sem mun hafa víðtækar afleiðingar horft til framtíðar. Ís- land er í kjörstöðu til að taka forystu á mörgum sviðum sem munu verða eftirsóknarverð á næstu áratugum með hreint vatn, endurnýj- anlega orku, ómengaðar landbúnaðarafurðir, sjálfbærar fiskauðlindir og stefnumarkandi staðsetningu landsins. Á Íslandi er einstakt tækifæri til að auka út- flutningstekjur með lækkun skatta, hagræð- ingu í ríkisrekstri með afgerandi hætti og fram- tíðarsýn sem eykur verðmætasköpun með snjöllum hugmyndum í tengslum við fram- leiðslu á sjálfbærum afurðum. Hreint vatn, end- urnýjanleg orka og sjálfbærar fiskauðlindir eru grunnur að mikilli sókn fyrir Ísland á nýrri öld umhverfismála og náttúruverndar. Með því að velja íslenskt er hægt að efla verðmætasköpun, hækka atvinnustig og ná meiri stöðugleika í efnahagsmálum sem er ávinningur fyrir alla. Upprunamerking matvæla er mikilvæg þannig að Íslendingar geti notið þess besta sem Ísland hefur upp á að bjóða og valið um að styðja við íslenska matvælaframleiðslu og stuðla þannig að innlendri verðmætasköpun til hagsbóta fyrir alla Íslendinga. Hugarfar og stolt yfir íslenskri framleiðslu og afurðum eflir aðrar atvinnugreinar og veldur margföldunar- áhrifum í öðrum atvinnugreinum til hagsbóta fyrir alla landsmenn. Íslensk framleiðsla skap- ar mörg atvinnutækifæri og því mikilvægt að keyra í gang íslenska framleiðslu um allt land. Veljum íslenskt fyrir Ísland. Eftir Albert Þór Jónsson » Íslensk framleiðsla eflir atvinnustig, verkkunnáttu, vöruþróun og samfélagslega ábyrgð á Íslandi. Albert Þór Jónsson Höfundur er viðskiptafræðingur með MCF í fjármálum fyrirtækja og 30 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði. albertj@simnet.is Veljum íslenskt fyrir Ísland Fyrir skömmu kynnti rann- sóknarstofnun UNICEF á Ítalíu skýrslu sem ætlað er að leggja mat á velferð barna í efnameiri ríkjum heims með hliðsjón af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Birtur er samanburður milli fjöru- tíu og eins ríkis OECD og Evrópu- sambandsins. Í skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir að hafa tiltæk úrræði og þjónustu eru mörg ríki ekki að framfylgja stefnu sinni til fulls og ná þess vegna ekki að veita öllum börn- um tækifæri til þess að þroska hæfileika sína. Það veldur áhyggjum að staða íslenskra barna er mun lakari en hefði mátt vænta því Ís- land lendir í sæti 24 af 38 með tilliti til andlegrar líðanar, líkamlegrar heilsu og náms- og félags- færni. Við erum þar talsvert á eftir þeim ríkjum sem við viljum helst bera okkur saman við, má þar nefna að aðrar Norðurlandaþjóðir eru allar á meðal tíu efstu ríkja listans. Eins og við er að búast stendur Ísland vel í tilteknum mælingum er lúta að líkamlegri heilsu, s.s. aðgengi að hreinu vatni og bólusetningum. Þá er fátækt barna hér minni en í mörgum samanburðar- löndum. Aftur á móti er staða íslenskra barna hvað varðar færni í námi og félagslífi mun lakari en þar lendir Ísland í 34. sæti. Þetta ætti að vera öllum þeim sem vinna að málefnum barna veru- legt áhyggjuefni. Læsi Skýrslan sýnir að hlutfall ís- lenskra barna sem hafa viðunandi færni í lestri og stærðfræði er með því lægsta meðal samanburðar- landanna eða 62% miðað við 79% í Eistlandi sem er í efsta sæti. Á undanförnum árum hefur mikil áhersla verið lögð á læsi meðal ís- lenskra barna og efnt hefur verið til margvíslegra átaksverkefna. Þrátt fyrir þetta virðist staða ís- lenskra barna frekar versna ef eitthvað er. Mennta- og menning- armálaráðherra kynnti fyrir skemmstu áform um breytingar á viðmiðunarstundatöflu grunn- skóla sem hafa m.a. það að markmiði að fjölga kennslustundum í íslensku á kostnað valgreina. Ofangreindar tölur benda til að vandinn sé djúpstæðari en svo að aukinn tími í íslensku komi til með að bæta þessa stöðu. Vanlíðan barna Þá eru geðheilbrigðismálin sérstakt áhyggju- efni. Ítrekað hafa kannanir bent til þess að ís- lensk börn og ungmenni glími í miklum mæli við andlega erfiðleika eins og kvíða. Margoft hafa fulltrúar barna og ungmenna bent á mikilvægi aukins aðgengis að geðheilbrigðisþjónustu þar á meðal sálfræðiþjónustu. Hefur í því sambandi verið lögð sérstök áhersla á að boðið sé upp á slíka þjónustu innan skólans, bæði í grunn- skólum og framhaldsskólum. Skýrsla UNICEF sýnir að sjálfsvíg í aldurshópnum 15-19 ára eru með því mesta hér á landi miðað við samanburð- arlönd, eða 9,7%. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands féllu sextán einstaklingar á aldrinum 15-19 ára fyrir eigin hendi á árunum 2014 til 2019, þar af voru 13 börn á aldrinum 15- 18 ára. Þetta eru mjög sláandi tölur og mikil- vægt að sérstaklega verði hugað að forvarn- arstarfi sem nái til barna og ungmenna. Félagsfærni Það er áhyggjuefni hversu hátt hlutfall ís- lenskra barna glímir við félagslega erfiðleika samanborið við börn í öðrum ríkjum. Aðeins 70% íslenskra barna telja sig geta auðveldlega myndað vinatengsl en 83% rúmenskra barna sem eru í fyrsta sæti í þessum efnum. Það er al- varlegt að ekki hafi náðst betri árangur í því að tryggja félagslega færni barna á Íslandi. Í skýrslu UNICEF er ekki fjallað sérstaklega um stöðu viðkvæmra hópa eins og fatlaðra barna eða barna af erlendum uppruna, svo nefndir séu tveir hópar sem vitað er að standa oft höllum fæti. Þá verður að gera fyrirvara við ýmsar tölur skýrslunnar þar sem í mörgum landanna eru ekki til samanburðarhæf gögn. Þá er vert að taka fram að tölulegar upplýsingar segja auðvitað ekki alla söguna en gefa þó mik- ilvægar vísbendingar um stöðu mála. Gagnaskortur Í skýrslunni kemur fram að í mörgum til- fellum hafi úrval gagnasafna verið takmarkað. Áberandi skortur var á upplýsingum um and- lega heilsu og má sem dæmi nefna að nið- urstöður kannana eða rannsókna um lífsham- ingju barna hafi aðeins verið aðgengilegar hjá 33 af 41 ríki. Þá er einnig skortur á samanburð- arhæfum alþjóðlegum gögnum um andleg veik- indi barna. Þar var notast við sjálfsmorðstíðni en hjá mörgum ríkjum voru slíkar upplýsingar aðeins tiltækar til ársins 2015. Jafnframt tókst ekki að finna samanburðarhæfa vísa um upplif- anir barna af ofbeldi eða af þjónustu barna- verndar. Í skýrslunni kemur fram að í alþjóð- legum könnunum sé almennt ekki fjallað um reynslu barna af þátttöku, hvort hlustað sé á þau og hvort þau fái að taka sjálfstæðar ákvarð- anir. Áhersla er lögð á það að stjórnvöld sem og alþjóðafræðasamfélagið beini athygli sinni að þessum sviðum til þess að hægt sé að fylgjast með stöðu barna. Þá er það ekki síður mikil- vægt að brugðist verði við þeirri óheillavænlegu þróun sem skýrslan gefur vísbendingar um en það er verkefni sem allar stofnanir samfélagsins þurfa að koma að. Eftir Salvöru Nordal » Staða íslenskra barna er mun lakari en hefði mátt vænta því Ísland lendir í sæti 24 af 38 með tilliti til andlegrar líðanar, líkamlegrar heilsu og náms- og félagsfærni. Salvör Nordal Höfundur er umboðsmaður barna. Staða íslenskra barna í alþjóðlegum samanburði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.