Morgunblaðið - 01.10.2020, Page 46

Morgunblaðið - 01.10.2020, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020 Við óskum eftir tillögum að nýju fram- boði á veitingaþjónustu, verslun og upplifunum á neðri hæðum Hörpu. Sláum nýjan tón í Hörpu Nánari upplýsingar á harpa.is/nyr-tonn Ert þú með spennandi tillögu sem rímar við kjarnastarfsemi Hörpu sem tónlistar- og ráðstefnuhúss á heimsmælikvarða? Við óskum bæði eftir áhugasömum rekstraraðilum og hugmyndum einstaklinga að spennandi nýjungum í Hörpu. 7. október Skilafrestur veitingaþjónustu. 19. október Skilafrestur verslunar, þjónustu og upplifunar. Tímarammi verkefnis er út árið 2021. B ra nd en b ur g |s ía Fyrsta ferð vetrarins var á Austur- land þar sem Logi og Siggi voru í beinni útsendingu frá Vök Baths. Á morgun ætla þeir að skella sér norð- ur til Akureyrar. Strákarnir tóku á móti skemmtilegum gestum ofan í heitar laugarnar og ræddu um lífið á Austurlandi. Spilaði með úrvalsdeildinni í fót- bolta en býr nú á Egilsstöðum Ívar Ingimarsson þekkja margir Íslendingar úr fótboltaheiminum en hann spilaði meðal annars með Reading F.C. í úrvalsdeildinni. Það sem kannski færri vita er að hann er uppalinn á Stöðvarfirði. Ívar mætti í viðtal og ræddi þar um fótboltaferilinn og landsbyggð- arlífið. Hann segir skrítið að horfa til baka í dag og velta því fyrir sér að hann hafi búið í litlu sveitarfélagi en samt komist út til Englands á samn- ing. „Það er fullt af krökkum alls stað- ar í kringum landið sem hafa alls- konar drauma og menn verða bara að láta reyna á það,“ sagði hann. Þegar Ívar kom aftur heim til Ís- lands eftir að hafa spilað fótbolta úti í Englandi segir hann að þrír staðir hafi komið til greina til þess að búa á, Reykjavík, Akureyri eða Egils- staðir. Að lokum hafi þau séð tæki- færi í ferðaþjónustunni fyrir austan og fluttu því á Egilsstaði. Var honum ekkert fjær en að flytja út á land Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri í Djúpavogshreppi, vann á dögunum stóran kosningasigur þegar samein- ing sveitarfélaganna gekk í gegn. Hann viðurkennir að þegar hann var yngri hafi ekki verið mikil lands- byggð í honum og að ekkert hafi ver- ið honum fjær en að flytja út á land. Það hafi hins vegar breyst árið 1986 þegar hann, ásamt eiginkonu sinni, ákvað að flytja til Staðarborgar í Breiðdal. Þar hafi orðið kaflaskil og ákveðin uppljómun átt sér stað. Í kjölfarið hafi þau tekið ákvörðun um það að til Reykjavíkur ætluðu þau ekki meir. Gauti segir fordóma gagnvart landsbyggðinni sem betur fer ekki vera eins og þeir voru áður. Þegar hann var yngri þótti hallærislegt að vera utan af landi og krakkar hafi átt það til að stríða krökkum sem voru aðfluttir. Vatnið úr Vök kemur frá botni Urriðavatns Hún Heiður Vigfúsdóttir frá Vök Baths spjallaði við strákana um staðinn og leyndardóma hans. Rúmt ár er síðan Vök Baths var opnað en Heiður segir aðdragand- ann mjög langan. Fyrsta hugmyndin hafi komið fram árið 1999 en þá var hugmyndin sú að opna ylströnd sem afþreyingu fyrir heimamenn. Það hafi síðan verið þrír heimamenn sem seinna gripu hugmyndina og byrj- uðu að kasta henni á milli sín. Að lokum varð Vök Baths að veruleika eftir mikla vinnu. Vegna Covid þurftu eigendur að breyta plönum sínum og markhópi en Heiður segir vel hafa tekist til. Þau hafi fengið góðan hóp Íslend- inga í sumar og það hafi verið nóg að gera. Vatnið sem baðgestir fá að baða sig upp úr er eina vottaða heitavatn- ið til drykkjar á Íslandi. Það kemur beinustu leið frá botni Urriðavatns og er algjörlega drykkjarhæft. Skólabræður Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri í Djúpavogshreppi og odd- viti Sjálfstæðisflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi, ásamt Loga Bergmann. Þeir voru skólabræður í FÁ í gamla daga. Sundfélagar Vinirnir Siggi Gunnars og Logi Bergmann nutu sín í heitum laugunum hjá Vök Baths þaðan sem síðdegisþáttur K100 var sendur út. Það er gott að vera á Austurlandi K100 kynnir sér skemmtilega áfanga- staði í öllum lands- hlutum í vetur. Knattspyrnumaður Ívar Ingimars- son kom heim úr atvinnumennsku og settist að fyrir austan. Baðstjóri Heiður Vigfúsdóttir er framkvæmdastjóri Vök Baths.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.