Morgunblaðið - 01.10.2020, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Við óskum eftir tillögum að nýju fram-
boði á veitingaþjónustu, verslun og
upplifunum á neðri hæðum Hörpu.
Sláum nýjan
tón í Hörpu
Nánari upplýsingar
á harpa.is/nyr-tonn
Ert þú með spennandi tillögu sem rímar við kjarnastarfsemi
Hörpu sem tónlistar- og ráðstefnuhúss á heimsmælikvarða?
Við óskum bæði eftir áhugasömum rekstraraðilum og
hugmyndum einstaklinga að spennandi nýjungum í Hörpu.
7. október
Skilafrestur veitingaþjónustu.
19. október
Skilafrestur verslunar,
þjónustu og upplifunar.
Tímarammi verkefnis
er út árið 2021.
B
ra
nd
en
b
ur
g
|s
ía
Fyrsta ferð vetrarins var á Austur-
land þar sem Logi og Siggi voru í
beinni útsendingu frá Vök Baths. Á
morgun ætla þeir að skella sér norð-
ur til Akureyrar. Strákarnir tóku á
móti skemmtilegum gestum ofan í
heitar laugarnar og ræddu um lífið á
Austurlandi.
Spilaði með úrvalsdeildinni í fót-
bolta en býr nú á Egilsstöðum
Ívar Ingimarsson þekkja margir
Íslendingar úr fótboltaheiminum en
hann spilaði meðal annars með
Reading F.C. í úrvalsdeildinni. Það
sem kannski færri vita er að hann er
uppalinn á Stöðvarfirði.
Ívar mætti í viðtal og ræddi þar
um fótboltaferilinn og landsbyggð-
arlífið.
Hann segir skrítið að horfa til
baka í dag og velta því fyrir sér að
hann hafi búið í litlu sveitarfélagi en
samt komist út til Englands á samn-
ing.
„Það er fullt af krökkum alls stað-
ar í kringum landið sem hafa alls-
konar drauma og menn verða bara
að láta reyna á það,“ sagði hann.
Þegar Ívar kom aftur heim til Ís-
lands eftir að hafa spilað fótbolta úti
í Englandi segir hann að þrír staðir
hafi komið til greina til þess að búa
á, Reykjavík, Akureyri eða Egils-
staðir. Að lokum hafi þau séð tæki-
færi í ferðaþjónustunni fyrir austan
og fluttu því á Egilsstaði.
Var honum ekkert fjær
en að flytja út á land
Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri í
Djúpavogshreppi, vann á dögunum
stóran kosningasigur þegar samein-
ing sveitarfélaganna gekk í gegn.
Hann viðurkennir að þegar hann
var yngri hafi ekki verið mikil lands-
byggð í honum og að ekkert hafi ver-
ið honum fjær en að flytja út á land.
Það hafi hins vegar breyst árið 1986
þegar hann, ásamt eiginkonu sinni,
ákvað að flytja til Staðarborgar í
Breiðdal. Þar hafi orðið kaflaskil og
ákveðin uppljómun átt sér stað. Í
kjölfarið hafi þau tekið ákvörðun um
það að til Reykjavíkur ætluðu þau
ekki meir.
Gauti segir fordóma gagnvart
landsbyggðinni sem betur fer ekki
vera eins og þeir voru áður. Þegar
hann var yngri þótti hallærislegt að
vera utan af landi og krakkar hafi
átt það til að stríða krökkum sem
voru aðfluttir.
Vatnið úr Vök kemur
frá botni Urriðavatns
Hún Heiður Vigfúsdóttir frá Vök
Baths spjallaði við strákana um
staðinn og leyndardóma hans.
Rúmt ár er síðan Vök Baths var
opnað en Heiður segir aðdragand-
ann mjög langan. Fyrsta hugmyndin
hafi komið fram árið 1999 en þá var
hugmyndin sú að opna ylströnd sem
afþreyingu fyrir heimamenn. Það
hafi síðan verið þrír heimamenn sem
seinna gripu hugmyndina og byrj-
uðu að kasta henni á milli sín. Að
lokum varð Vök Baths að veruleika
eftir mikla vinnu.
Vegna Covid þurftu eigendur að
breyta plönum sínum og markhópi
en Heiður segir vel hafa tekist til.
Þau hafi fengið góðan hóp Íslend-
inga í sumar og það hafi verið nóg að
gera.
Vatnið sem baðgestir fá að baða
sig upp úr er eina vottaða heitavatn-
ið til drykkjar á Íslandi. Það kemur
beinustu leið frá botni Urriðavatns
og er algjörlega drykkjarhæft.
Skólabræður Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri í Djúpavogshreppi og odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi, ásamt
Loga Bergmann. Þeir voru skólabræður í FÁ í gamla daga.
Sundfélagar Vinirnir Siggi Gunnars og Logi Bergmann nutu sín í heitum
laugunum hjá Vök Baths þaðan sem síðdegisþáttur K100 var sendur út.
Það er gott að
vera á Austurlandi
K100 kynnir sér
skemmtilega áfanga-
staði í öllum lands-
hlutum í vetur.
Knattspyrnumaður Ívar Ingimars-
son kom heim úr atvinnumennsku
og settist að fyrir austan.
Baðstjóri Heiður Vigfúsdóttir er
framkvæmdastjóri Vök Baths.