Morgunblaðið - 01.10.2020, Page 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is
VINNUFATNAÐUR
MERKINGAR
Hin árlega A! Gjörningahátíð hefst á
Akureyri í dag, fimmtudag, og stend-
ur fram á föstudag. Þessi fjögurra
daga alþjóðlega gjörningahátíð er nú
haldin í sjötta sinn og er ókeypis á
alla viðburðina.
Að þessu sinni fara gjörningarnir
fram í Listasafninu á Akureyri,
Menningarhúsinu Hofi, Vanabyggð 3
og Sæborg í Hrísey. Aðstandendur
hátíðarinnar segja að gætt verði að
fjarlægðartakmörkunum og sótt-
vörnum og gestum boðið upp á and-
litsgrímur og spritt.
Valnefnd valdi úr innsendum um-
sóknum listamanna og eru fjöl-
breyttir gjörningar og leikhústengd
verk af öllum toga á dagskránni.
Þátttakendur eru ungir og upprenn-
andi listamenn, ásamt reyndum og
vel þekktum gjörningalistamönnum
og leikhúsfólki. Vegna veirufarald-
ursins er hátíðin í ár smærri í sniðum
en áður og þurftu fjórir erlendir lista-
menn að afboða komu sína.
Margir ólíkir listamenn
Í ár koma fram listamennirnir
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Anna
Richardsdóttir, Egill Logi Jónasson
og Hekla Björt Helgadóttir, Halldór
Ásgeirsson, Katrín Gunnarsdóttir og
Rán Flygenring, Páll Haukur
Björnsson, Steinunn Önnu- Knúts-
dóttir og Gréta Kristín Ómarsdóttir,
Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og
Erwin van der Werve ásamt Örnu
Valsdóttur, Arnbjörgu Kristínu Kon-
ráðsdóttur, Brák Jónsdóttur, Freyju
Reynisdóttur, Hörpu Björnsdóttur,
Silfrúnu Unu Guðlaugsdóttur og
Töru Njálu Ingvarsdóttur.
Gjörningahátíðin er samvinnu-
verkefni Listasafnsins á Akureyri,
Leikfélags Akureyrar, Menningar-
hússins Hofs, LÓKAL alþjóðlegrar
leiklistarhátíðar, Gilfélagsins, List-
námsbrautar Verkmenntaskólans á
Akureyri, Vídeólistahátíðarinnar
Heim og Kynningarmiðstöðvar ís-
lenskrar myndlistar. Dagskrána má
sjá á vefnum www.listak.is.
Skaftáreldar og sláturtíð
Gjörningar hafa verið mikilvægur
þáttur listsköpunar Halldórs Ás-
geirssonar en hann tekur nú í fyrsta
skipti þátt í A!-hátíðinni, með viða-
mikinn gjörning í Ketilhúsinu kl. 20 á
laugardagskvöldið. Heiti gjörnings
hans er „Hvítnaði þá andlit jarðar“ og
er heitið sótt í annál frá 1783 þar sem
Skaftáreldum er lýst. Halldór segist
hafa verið að vinna á árinu verk sem
tengjast Skaftáreldum og séra Jóni
Steingrímssyni eldklerki og má sjá
þau fyrstu á sýningu sem var nýverið
opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar.
„Gjörningurinn er í framhaldi af því
og ég á eftir að vinna meira úr þess-
um efniviði og þá í fleiri löndum,“ seg-
ir hann og bætir við að það sé sér-
kennilegt að vera að vinna úr
hamfarasögu Skaftáreldanna nú á
tímum heimsfaraldurs.
Halldór hefur lengi unnið í verkum
sínum og gjörningum með hraun sem
hann bræðir og mun gera það nú í
Ketilhúsinu en fleiri þættir bætast
við. „Sauðkindin kemur við sögu en
hún er nú á undanhaldi hjá okkur. Á
leiðinni kom ég við í ullarþvottarstöð
á Blönduósi að fá ullarreyfi sem ég
nota í gjörningnum og hitti þar
bændur sem hafa
miklar áhyggjur
af framtíð sauð-
kindarinnar sem
fækkar sífellt og
það hefur mikil
áhrif á sveitirnar.
En sauðkindin
kemur við sögu, í
bland við hraun-
bræðsluna. Áhorf-
endur verða uppi
á svölunum og horfa niður í gryfjuna
þar sem ég athafna mig.“ Og í þaul-
hugsuðum gjörningnum kemur líka
við sögu kjötskrokkur, tólg og þoka,
svo eitthvað sé nefnt.
„Þetta er ekki impróviserað heldur
vinn ég með ákveðin element í út-
hugsaðri röð,“ segir Halldór.
„Ég byrjaði strax á mínum ferli að
vinna með performansa. Svo komu
tímabil þar sem ég setti þetta form til
hliðar en það kom aftur. Síðast var ég
með gjörning í Verksmiðjunni á
Hjalteyri 2017. Í gjörningunum verð-
ur að vera samtal við viðkomandi stað
og stund, auk þess sem grunnatriði
eru tími og rými. Nú erum við til að
mynda í miðri sláturtíð, það kemur
við sögu, sem og Skaftáreldarnir og
öll sú dramatík sem er mér mjög hug-
leikin. Það verða margar tilvísanir í
gjörningnum – og svo kemur í ljós
hvernig heppnast.“
Gjörningur Eins og áður verður boðið upp á fjölbreytilega gjörninga á há-
tíðinni sem fer fram á Akureyri og í Hrísey. Meðal listamannanna sem koma
fram eru Hekla Björt Helgadóttir og Egill Logi Jónasson.
Gjörningar tengjast stað og stund
Tæplega tuttugu listamenn koma fram á A! Gjörningahátíð á Akureyri sem hefst í dag og stendur
fram á sunnudag Fjölbreytilegir gjörningar og leikhústengd verk af ýmsu tagi á fjórum stöðum
Halldór
Ásgeirsson
Skáldsögur eru áberandi á útgáfulista
Veraldar fyrir þessi jól, en líka gefur
forlagið úr fræðibækur, ljóð og barna-
bók.
Ein heitir fyrsta skáldsaga Ásdísar
Höllu Bragadóttur, en áður hafa kom-
ið út eftir hana minningabækurnar
Tvísaga og Hornauga. Í Ein segir frá
því þegar ung kona, sem starfar í
heimaþjónustu, mætir til vinnu í blokk
fyrir eldri borgara við Aflagranda
blasir við henni óvænt sýn. Inn í sög-
una blandast eldri maður í sömu blokk
og ungur íslenskur læknir sem berst
við að bjarga fórnarlömbum Covid-19-
faraldursins í New York.
Einnig er væntanleg ný skáldsaga
Ólafs Jóhanns Ólafssonar sem hann
nefnir Snertingu. Kristófer, eldri mað-
ur í Reykjavík, hyggst loka veitinga-
stað sínum í miðbæ Reykjavíkur
vegna veirunnar, eftir áratuga farsæl-
an rekstur. Sama dag berst honum
óvænt vinarbeiðni á Facebook og hann
leggur af stað í ferð yfir þveran hnött-
inn á vit minninga um ástir, fornar og
nýjar, leynd og eftirsjá eftir því sem
hefði getað orðið.
Konan sem elskaði fossinn eftir Ey-
rúnu Ingadóttur segir frá baráttu Sig-
ríðar í Brattholti (1871-1957), eins
kunnasta náttúruverndarsinna Ís-
landssögunnar, sem barðist gegn því á
sínum tíma að Gullfoss yrði virkjaður.
Eyrún Ingadóttir er sagnfræðingur og
hefur um árabil rannsakað ævi og bar-
áttu Sigríðar í Brattholti.
Ragnar Jónasson snýr aftur til
Siglufjarðar í skáldsögunni Vetrar-
meini. Bókin segir frá því er lög-
reglumaðurinn Ari Þór Arason, sem
er söguhetja Siglufjarðarseríu Ragn-
ars, þarf að glíma við undarlegt og
óhugnanlegt mál, en aðfaranótt skír-
dags finnst lík af ungri konu á gang-
stétt fyrir framan þriggja hæða hús
við Aðalgötuna á Siglufirði. Skömmu
síðar skrifar íbúi á hjúkrunarheimili í
bænum með æpandi rauðum lit á
vegginn í herberginu sínu: Hún var
drepin.
Bráðin eftir Yrsu Sigurðardóttur
segir frá því er björgunarsveitir eru
miðjan mánuðinn, en í tilkynningu frá
Veröld kemur fram að sigurvegarinn
sé þjóðþekkt persóna sem ekki hafi áð-
ur gefið út slíka bók.
Veröld gefur einnig út tvær ljóða-
bækur, Skáldaleyfi eftir Sigmund Erni
Rúnarsson, en um þessar mundir eru
fjörutíu ár síðan hann sendi frá sér
sína fyrstu ljóðabók, og Óstöðvandi
skilaboð eftir Ásdísi Óladóttur, sem
sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók fyrir
aldarfjórðungi.
Eina ævisögu gefur Veröld út og
það óvenjulega, því Fyrir augliti –
Dagatal eftir Úlfar Þormóðsson birtir
730 færslur úr dagbók sem Úlfar hélt
á árunum 2018 og 2019. Sviðið er mið-
bær Reykjavíkur og samfélag Íslend-
inga suður í höfum – en kannski mest
andi Úlfars sem fer með lesendur í
ferðalag um hugmyndir og atburði líð-
andi stundar, allt frá tíðindalausri ferð
í matvörubúð til bréfaskipta við unga
og efnilega rithöfunda. Margir koma
við sögu og það er líka mikið lesið og
skrifað.
Af fræðibókum og bókum almenns
eðlis kom út fjórar bækur. Bók Stein-
ars J. Lúðvíkssonar, Brimaldan stríða
– Örlagarík skipströnd við Ísland, seg-
ir frá nokkrum af örlagaríkustu skip-
ströndum sem orðið hafa við Ísland. Í
bókinni Hjarta Íslands – Milli fjöru og
fjalla skrifa þeir Gunnsteinn Ólafsson
og Páll Stefánsson um 62 perlur í land-
inu milli fjöru og fjalla. Heilsubók Jó-
hönnu – Eiturefnin og plastið í dag-
legu lífi okkar eftir Jóhönnu
Vilhjálmsdóttur fjallar um þau mann-
gerðu eiturefni af ýmsu tagi sem eru
orðin hluti af daglegu lífi okkar, fóstur
og ungbörn hafa aldrei í sögunni
mælst með eins mikið magn eiturefna í
sér í móðurkviði og eftir fæðingu.
Fjórða bókin, sem er reyndar þegar
komin út, er Þegar karlar stranda – og
leiðin í land eftir Sirrý Arnardóttur, en
í henni ræðir Sirrý við karlmenn á
ólíkum aldri, úr ólíkum áttum og með
mismunandi stöðu í samfélaginu sem
eiga það sameiginlegt að hafa strand-
að og upplifað verulega vanlíðan.
Yrsa Sigurðardóttir sendir ekki
bara reyfara frá sér heldur kemur líka
út frá henni barnabókin Herra Bóbó,
Amelía og ættbrókin sem er fyrsta
barnabók hennar frá því hún hlaut Ís-
lensku barnabókaverðlaunin árið 2003.
arnim@mbl.is
Glæpasögur
áberandi á útgáfu-
lista Veraldar
Eva Björg
Ægisdóttir
Jóhanna
Vilhjálmsdóttir
sendar inn í Lónsöræfi í leit að hópi
fólks sem er saknað. Á sama tíma ger-
ast undarlegir atburðir á ratsjárstöð-
inni á Stokksnesi. Og á nesinu er gat í
sjávarklöpp sem sogar til sín fólk.
Næturskuggar er þriðja bók Evu
Bjargar Ægisdóttur um lögreglukon-
una Elmu og samstarfsmenn hennar.
Í bókinni segir frá því er ungur maður
lætur lífið í dularfullum eldsvoða á
Akranesi og skilur eftir sig niður-
brotna fjölskyldu og vini. Um svipað
leyti lendir ung kona í mikilli tilfinn-
ingaflækju sem vindur upp á sig. Og
athafnamenn á Skaganum villast af
þröngum vegi dyggða og heiðarleika í
starfi og einkalífi.
Einnig er væntanleg skáldsagan
sem hlaut verðlaunin Svartfuglinn
2020, en Svartfuglinn er samkeppni
um verðlaunaspennusögu eftir höfund
sem ekki hefur áður sent frá sér
spennusögu. Úrslit verða kynnt um
Ragnar
Jónasson
Eyrún
Ingadóttir
Ásdís Halla
Bragadóttir
Ólafur Jóhann
Ólafsson
Morð meðal annars