Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Harry Potter
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* The Secret :
Dare to dream
* The New Mutants
* Unhinged
* A Hidden Life
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
MÖGNUÐ MYND SEM
GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI :
★★★★★
★★★★★
★★★★★
Roger Ebert.com
San Fransisco Cronicle
The Playlist
88%
Sænski leikstjórinn Roy And-ersson er einn dáðasti kvik-myndahöfundur Svía á 21.öldinni. Einstakur og tragí-
kómískur frásagnarheimur hans
birtist áhorfendum fullskapaður í
þríleiknum um mannlega tilvist, sem
samanstendur af kvikmyndunum
Söngvar ofan af annarri hæð (2000),
Þú sem lifir (2007) og Dúfa sat á
grein og hugleiddi lífið og tilveruna
(2014).
Nýjasta og sjötta kvikmynd And-
erssons, Um óendanleikann, var
frumsýnd í fyrra og hóf Bíó Paradís
almennar sýningar á henni í vor,
rétt áður en fyrsta bylgja kófsins
skall á. Sýningar á kvikmyndinni
eru nú hafnar á ný í þessu íslenska
lögheimili listabíósins og er þetta
sennilega í fyrsta sinn sem kvik-
mynd eftir Andersson er í almennri
sýningu hér á landi. Flest fyrri
verka hans hafa þó ratað í takmark-
aða sýningu á RIFF og öðrum kvik-
myndahátíðum.
Um óendanleikann sver sig í ætt
við áðurnefndan þríleik sem And-
ersson er hvað frægastur fyrir.
Kvikmyndin samanstendur af rúm-
lega þrjátíu senum og er hverri
þeirra miðlað í einu samfelldu og
óklipptu myndskeiði. Myndavélin er
alltaf óhreyfð og mætti kalla nálgun
Anderssons á viðfangsefnið mynd-
listarlega, þar sem gaumgæfileg
uppröðun og samsetning hluta innan
kyrrstæðs myndramma býr til heild-
stæða fagurfræði. Þó er þetta unnið
af mikilli naumhyggju og sjónar-
spilið æpir aldrei á áhorfandann.
Myndefnið er einatt af ýkja hvers-
daglegum toga og er því gjarnan
lýst af alviturri kvenkyns sögu-
mannsrödd sem mælir í þátíð: „Ég
sá ungan mann sem hafði ekki fund-
ið ástina“, „Ég sá móður sem átti í
vandræðum með skóbúnað sinn“,
„Ég sá mann sem hafði gengið á
jarðsprengju og var sorgmæddur“
og svo framvegis. Svipmyndir þess-
ar eru oftast nær úr sænskum nú-
tíma og lýsa í senn eymd, leiðindum
og fáránleika sem fyrirfinnst í
mannlegri tilvist. Þó sjáum við einn-
ig senur úr sögulegri fortíð, til að
mynda af Hitler og SS-sveinum í
neðanjarðarbyrginu en einnig sigr-
aða þýska hersveit í halarófu á leið í
vinnubúðir í Síberíu. Upphafsatriðið
prýða kona og maður sem ríghalda
hvort í annað og svífa í faðmlagi milli
skýjaslæðna og undir hljómar engla-
kór sem gefur senunni vigt og
dramatískan blæ. Um miðbik mynd-
ar bregður svífandi parinu aftur fyr-
ir í víðari mynd og í ljós kemur að
undir flugi þeirra liggur evrópsk
stórborg í rústum. Ofbeldi í aldanna
rás og arfleifð þess er þar með ætíð
undir í myndinni, jafnvel þegar
fylgst er með miðaldra manni sem
hefur drepið á bílnum rétt fyrir utan
Stokkhólm.
Samhengi milli atriða mynd-
arinnar er lítið, einna helst þema-
tískt, og er ekki um línulega frásögn
að ræða. Þó koma nokkrar persónur
fyrir í fleiri en einu atriði og eiga
þær sameiginlegt að vera allar
sænskir karlar í eldri kantinum í
einhvers konar tilvistarkreppu.
Eftirminnilegust þeirra er prest-
urinn sem hefur glatað trúnni. Í
martröð sinni ber hann kross á bak-
inu upp þröngt múrsteinastræti og
er hýddur og niðurlægður af sam-
ferðafólki sínu. Síðar sjáum við hann
drekka messuvínið af stút á meðan á
messu stendur og leita ítrekað á
náðir sálfræðings vegna guðsmiss-
isins. Vandamál prestsins kallast á
við prestinn í Vetrarnótt Ingmars
Bergmans en í kaldhæðnum heimi
Anderssons leitar presturinn úrkula
vonar á náðir sálfræðingsins í stað
þess að nota mátt bænarinnar.
Frásagnarform myndarinnar lík-
ist helst meinfyndnum sketsagrín-
þætti sem hefur farið í gegnum grá-
myglulega síu skandinavíska
listabíósins. Myndin er alfarið tekin
upp í kvikmyndaveri Anderssons og
því allt sem fyrir augu ber með-
höndlað og staðsett á meðvitaðan
hátt af höfundi þess. Það er líkt og
Andersson eimi hversdagleikann í
öreindir sínar og spýti honum aftur
út í kvikmyndalegum búningi. Þetta
veitir myndinni lítillega óraunveru-
legt yfirbragð, sem sést hvað greini-
legast í förðuninni (leikarar eru
ósjaldan málaðir eins og vofur).
Þetta er ekki endilega bersýnilegt í
fyrstu, heldur fær maður hægt og
bítandi tilfinningu fyrir óraunveru-
leikanum þegar líður á myndina. Í
einni senu fylgist áhorfandinn til að
mynda með lest koma og fara. Kona
verður eftir á lestarpallinum og bíð-
ur vonsvikin eftir að unnustinn taki
á móti sér. Á endanum kemur sá á
harðaspretti og biðst afsökunar á
töfinni og faðmar og kyssir konuna.
Þessi svipmynd varir líklega í tvær
mínútur en það var ekki fyrr en í
enda atriðsins að gagnrýnandi tók
eftir því að skýin í bakgrunni mynd-
rammans hreyfðust ekki og væru
líklega máluð á baktjald. Það sem í
fyrstu virðist einfalt er í raun marg-
slungið.
Helst mætti finna að því í mynd-
inni að nokkrar af léttvægari senum
hennar, til að mynda af konunni sem
elskar kampavín og stúlkunum sem
dansa fyrir utan veitingastað, virð-
ast vera uppfyllingarefni. Gagnrýn-
andi kom á myndina sem nýgræð-
ingur í höfundarverki Anderssons
og spillti það alls ekki fyrir. Um
óendanleikann er í fullkominni lengd
(76 mínútur, en Andersson var 76
ára við útgáfu myndarinnar) og í
senn fyndin og sorgleg – og alltaf
áhugaverð á að líta. Óhætt er að
hvetja fólk til að berja hana augum í
bíói – og vera þá sem næst tjaldinu.
Hvað gerir maður sem hefur misst trúna?
Martröð Ein persóna kvikmyndarinnar Um óendanleika er prestur sem hefur glatað trúnni og í martröð sinni ber hann kross á bakinu upp þröngt múr-
steinastræti og er hýddur og niðurlægður af samferðafólki sínu. Kvikmyndin er í senn fyndin og sorgleg og alltaf áhugaverð á að líta, að mati rýnis.
Bíó Paradís
Um óendanleikann/Om det oändliga
bbbbn
Leikstjórn og handrit: Roy Andersson.
Aðalleikarar: Bengt Bergius, Anja
Broms, Marie Burman, Amanda Davies.
Framleiðslulönd: Svíþjóð, Þýskaland,
Noregur, Frakkland. Framleiðsluár:
2019. Tímalengd: 76 mínútur.
GUNNAR
RAGNARSSON
KVIKMYNDIR