Morgunblaðið - 21.10.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 21.10.2020, Síða 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 2020 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Strætóleiðir hér í Reykjavík heita nöfn- um og tölum. Ég tek sem dæmi leið, sem heitir Sléttuvegur þeg- ar farið er úr Vestur- bænum en Eiðsgrandi þegar farið er í hina áttina. Leiðin ber samt alltaf töluna 13. Vega- gerðin gefur þjóð- vegum tölur, eins og sjá má á vef hennar, en lítið fer fyrir þeim tölum á vegum úti, heldur not- ar Vegagerðin þar heiti sem hún gef- ur þjóðvegunum. Heitin eru ekki alltaf lýsandi. Þannig sýndi Morgun- blaðið um daginn myndir af vegabót- um á Suðurlandsvegi og Vestur- landsvegi. Þetta var nokkurn veginn á sama stað fyrir ofan Reykjavík, en hvorki á Suðurlandi né Vesturlandi. Lögreglan segir frá slysum með vegaheitum Vegagerðarinnar. Slys sögð á Biskupstungnabraut reynast oft vera í Grímsnesi, en á máli Vega- gerðarinnar er Biskupstungnabraut frá Sogsbrú milli Ölfuss og Gríms- ness, og er þá langur vegur eftir í Biskupstungur. Líkt er með fréttir af slysum sem sögð eru hafa orðið á Vestur- landsvegi. Þau reynast oft vera á Kjalarnesi eða í Mosfellssveit, en hvorugt kallast í venju- legu tali á Vesturlandi. Þá eru fréttir af vetr- arfærð á vegum iðulega gegn hefðbundnu hér- aðsmáli. Ég tek sem dæmi þegar Vegagerð- in og Útvarpið lýsa færð á Vopnafjarðar- heiði. Í ritinu Göngum og réttum er yfirlit yfir heiðar Vopnafjarðar. Þar eru nefndar Hellisheiði, Smjörvatnsheiði, Tunguheiði, Hauksstaðaheiði, Mæli- fellsheiði, Hróaldsstaðaheiði og Sandvíkurheiði, en engin er þar Vopnafjarðarheiðin. Frá sömu slóð- um nefni ég fréttir um færð á Möðrudalsöræfum. Færð þar á ekki heima í almennum fréttum að vetr- arlagi, þegar enginn óvitlaus maður hyggur á ferðir þar, heldur er um að ræða færð á þjóðvegi 1 um Biskups- háls og Jökuldalsheiði. Skylt því er þegar Vegagerðin lýsir færð á Mý- vatnsöræfum. Þá er um að ræða þjóðveg 1 milli Mývatns og brúar á Jökulsá á Fjöllum og hét á hefð- bundnu máli á Austurfjöllum. Nú væri ráð, að lögreglan tæki upp í slysafréttum þann sið frá Strætó í Reykjavík að nota tölu um þjóðveginn og svo heiti staðar og byggðarlags til frekari afmörkunar. Þá yrði slys á Kjalarnesi sagt slys á þjóðvegi 1 á Kjalarnesi, en ekki minnst á Vesturlandsveg, og slys fyrir ofan Lækjarbotna sagt slys á þjóðvegi 1 fyrir ofan Lækjarbotna, en ekki minnst á Suðurlandsveg. Frásagnir Vegagerðarinnar af færð fyrir norðan og austan yrðu t.d. af færð á þjóðvegi 1 fyrir austan Mý- vatn eða þjóðvegi 1 um Biskupsháls og Jökuldalsheiði eða þjóðvegi 85 til Vopnafjarðar, án þess að brengla hefðbundið heimamál og heiðamál. Þjóðvegaheiti og strætóleiða Eftir Björn S. Stefánsson » Lögreglan og Vega- gerðin ættu að nota tölur um þjóðvegina og hefðbundin heiti, svo sem þjóðvegur 1 í Mos- fellssveit, en ekki Vest- urlandsvegur. Björn S. Stefánsson Höfundur er Reykvíkingur. bstorama@gmail.com Laugardaginn 17. október 2020 birtist í Morgunblaðinu grein eftir Ólaf Jónsson skipasmið sem hann nefnir Dr. Jekyll og Mr. Hyde. Í þessari grein setur Ólafur fram margar rangar fullyrðingar sem leið- rétta ber. Nikita Krústsjov hélt margar ræður í febrúar 1956 á flokksþingi Kommúnistaflokks Sov- étríkjanna. Ólafur segir það þing hafa verið númer 10 en svo var ekki. Flokksþingið var númer 20. Frægasta ræða Krústsjovs á flokksþinginu 1956 tók fjórar klukku- stundir. Í þeirri ræðu fór hann mörg- um orðum um stjórnarfar Stalíns. Hann talaði um að ótal margir voru ranglega teknir höndum á þeim tíma sem Stalín réð nær öllu í Sovétríkj- unum. Krústsjov sagði: „Þúsundir og aftur þúsundir manna voru sendar nauðugar í fangabúðir. Margir voru teknir af lífi án undangenginna rann- sókna og réttarhalda.“ Ólafur segir: „að Gúlag voru vinnubúðir til refsi- vistar. Þær voru einfaldlega fangelsi þeirra Sovétmanna.“ Það er rangt að halda því fram eins og Ólafur gerir að í Gúlaginu hafi bara verið sekir af- brotamenn sem dæmdir voru í fang- elsi. Ólafur líkir Gúlagi við Litla- Hraun en sú samlíking stenst ekki. Ólafur segir: „Mér þykir ólíklegt að Krústsjov hafi talað um þrælkun margra milljóna.“ Eigi að síður er sú staðreynd flestum ljós nú árið 2020 að þarna þræluðu milljónir manna. Í ræðu Krústsjovs kom skýrt fram að menn voru sendir í þrælkun án þess að hafa brotið af sér. Trotskí var myrtur í Mexíkó 1940 af flugumanni sem gerður var út af Stalín. Í Mexíkó var ekki dauðarefs- ing þá. Morðingi Trotskís var dæmd- ur í 19,5 ára fangelsi. Eftir að hann var látinn laus árið 1960 fór hann til Moskvu. Hann sagði ýmislegt í yf- irheyrslum sem mexíkóska lögreglan hélt yfir honum að loknu morðinu. Þessi maður var þjálfaður til verks- ins. Eitt af því sem sú þjálfun fól í sér var að hann átti að segja að ódæðinu loknu að hann væri vonsvikinn fyrr- verandi fylgismaður Trotskís. Það gerði hann. Ólafur lætur liggja að því að rétt hafi verið að myrða Trotskí árið 1940 vegna þess að á milli Leníns og Trotskís var ósam- komulag á árunum fyrir 1917. Eigi að síður fagn- aði Lenín því er Trotskí gekk til liðs við bolsé- vika árið 1917. Lenín gerði m.a.s. þá tillögu hinn 7. nóvember 1917 að Trotskí yrði í forsæti stjórnar landsins eftir að bolsévikar tóku völd- in. Allan tímann frá 1917 til æviloka Leníns áttu þeir Trotskí traust og gott samstarf. Ólafur talar um réttarhöldin sem fram fóru í Moskvu árin 1936 og 1938. Hann trúir því að þau hafi verið réttlát og dómsúrskurðir þeirra rétt- ir. Rannsóknir margra heiðarlegra og vandaðra sagnfræðinga hafa ótví- rætt leitt í ljós að þetta voru sýnd- arréttarhöld og saklaust fólk var þvingað til að játa á sig ótrúlegustu sakir. Reyndar ætti ekki að þurfa að vitna til lærðra sagnfræðinga um Gú- lagið. Í Rússlandi og víðar voru árið 1956 enn á lífi ótal margir sem þurftu að sitja í þrælkunarbúðum. Ekki voru þó síður margir sem þá vissu af nánum ættingjum og vinum sem sak- lausir höfðu verið teknir af lífi að til- hlutan Stalíns. Enn er árið 2020 margt fólk þar eystra sem veit sann- leikann um málið þótt Ólafur kjósi að afneita honum. Þessi tilraun Ólafs til að halda því fram að fórnarlömb Stal- íns hafi engin verið ber vott um að hann ber enga virðingu fyrir örlögum þeirra milljóna manna sem Stalín lét drepa. Þetta virðingarleysi Ólafs minnir vissulega á málflutning manna í Evrópu sem halda því fram að nasistar hafi alls ekki látið drepa neina gyðinga. Staðreyndir og Stalín Eftir Erling Hansson Erlingur Hansson » „Þúsundir og aftur þúsundir manna voru sendar nauðugar í fangabúðir. Margir voru teknir af lífi án undan- genginna rannsókna og réttarhalda.“ Höfundur þýddi bókina Byltingin svikin sem kom út á Íslandi nýlega. Hvar værum við hin stödd ef við hefðum ekki þingfólkið til að leiða okkur og vaka yfir hverju skrefi okk- ar? Værum við á hin- um breiða vegi á leið til glötunar? Ómögu- legt er að svara því. Værum við svífandi um á skýi í alsælu? Ómögulegt að svara því. Líklega geta flestir verið sam- mála um að það þurfi alls konar lög eins og t.d. umferðarlög þótt margir átti sig kannski ekki á samhenginu að það megi aka á svipuðum há- markshraða á tvíbreiðum malbik- uðum vegi og einbreiðum mjóum malarvegi. Mörg önnur lög en um- ferðarlögin þarf að öllum líkindum svo allir séu vinir í skóginum. Svo er spurning hvort einhver lög séu óþarfi. Hundruð ef ekki þúsundir vinnu- stunda þingfólks hafa farið í það að ræða hvort einhverjir megi kaupa bjór á Íslandi og þá hverjir. Frá áfengisbanninu var það fyrst svo að enginn mátti flytja til Íslands bjór og drekka. Svo máttu þeir sem unnu á flutningstækjum sem fluttu fólk og vörur til Íslands hafa með sér bjór inn í landið og drekka hann. Þessu næst máttu einn- ig þeir sem voru far- þegar í flutningstækj- unum flytja með sér bjór inn til Íslands. Að lokum máttu svo allir kaupa bjór. Allt fram- angreint er að sjálf- sögðu háð aldri. Lík- lega getur enginn rökstutt fram- angreindar reglur um bjórinn, vegna þess að það er ómögulegt. Þrátt fyrir það tókst þingfólkinu að eyða ómældum vinnutíma í þetta mál. Annað mál sem hefur fengið ómælda athygli þingmanna eru mannanafnalögin. Samkvæmt lög- unum mega sumir hafa ættarnöfn en aðrir ekki og svo er einhver nefnd sem ákveður hvað fólk má heita og er það mat bæði byggt á málfræðireglum, smekk og tilfinn- ingu nefndarmanna. Ekki er nóg með að þingfólkið leiði okkur af vegi glötunar heldur gera það og ýmsar nefndir einnig eins og t.d. manna- nafnanefnd, fjölmiðlanefnd og ábyggilega ýmsar fleiri. Fram á sjónarsviðið kom svo ráð- herra sem taldi rétt að hafa ekki eftirlitsmyndavél yfir öllum þáttum lífs okkar. Taldi rétt að sleppa okk- ur lausum. Taldi rétt að afnema mannanafnalögin. Að sjálfsögðu komu mótbárur. Nú má Sigurður bóndi heita Sigríður og hann heitir Sigríður. Heilanum í mér finnst það svolítið einkennilegt að Sigurður heiti Sigríður, en á heilinn í mér og einhverjum þingmönnum sem hafa ekki nóga aðlögunarhæfni að ákveða hvað fólk heitir? Er ekki eðlilegra að fólk ákveði það sjálft fyrir sig og sín börn? Svo mun heil- inn í mér örugglega jafna sig á þessu með Sigurð og Sigríði. Ég held að þingmenn ættu að fara að frumkvæði ráðherrans og samþykkja frumvarp hennar og leita að fleiri lögum sem má afnema vegna óþarfleika. Guðlaun fyrir þingmenn Eftir Berg Hauksson Bergur Hauksson »Ég held að þingmenn ættu að fara að frumkvæði ráðherrans og samþykkja frumvarp hennar og leita að fleiri lögum sem má afnema vegna óþarfleika. Höfundur er m.a. lögmaður. Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.