Morgunblaðið - 21.10.2020, Side 18

Morgunblaðið - 21.10.2020, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 2020 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Tilboð/útboð Móar – deiliskipulag Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 13. október að auglýsa deiliskipulagstillögu í landi Móa samkvæmt 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Deiliskipulag fyrir Móa í Hvalfjarðarsveit tekur til núverandi bygginga sem er íbúðar- hús og tvö gestahús, auk nýrra bygginga sem eru 12 gestahús auk tjaldsvæðis, þjónustuhús, geymslu, og gróðurhús. Deiliskipulagstillagan er til sýnis á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is. Kynning verður á skrifstofu Hvalfjarðar- sveitar föstudaginn 23.október á milli 10:00 – 12:00. Athugasemdum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3, 301 Akranesi, eða á netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is merkt ”Móar” fyrir 4. desember 2020. Bogi Kristinsson Magnusen skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar skipulag@hvalfjardarsveit.is Tilkynningar Notice of Annual General Meeting JPMorgan Funds The meeting will be held at the location and time stated in the right-hand column. Agenda for Meeting and Shareholder Vote 1 Presentation of the report from Auditors and Board for the past accounting year. 2 Should shareholders adopt the Audited Annual Report for the past accounting year? 3 Should shareholders agree to discharge the Board for the performance of its duties for the past accounting year? 4 Should shareholders approve the Directors’ fees for the accounting year ending 30 June 2021? These are €86,000 for the Chairman and €68,000 for each independent Director. 5 Should John Li How Cheong, Martin Porter and Daniel Watkins be reappointed to the Board for 3 years? 6 Should Marion Mulvey be appointed to the Board for 1 year? 7 Should shareholders re-appoint PricewaterhouseCoopers Société coopérative as Auditors of the Fund and authorise the Board to agree on their terms of appointment? 8 Should shareholders approve the payment of any distributions shown in the Audited Annual Report for the past accounting year? To vote by proxy, use the proxy form at jpmorganassetmanagement.com/extra. Your form must arrive at the registered office, via email, post or fax, by 1800 CET on Wednesday, 11 November 2020 using the contact details below: Email: fundinfo@jpmorgan.com Fax: +352 2452 9755 Post: 6 Route de Trèves, L-2633 Senningerberg, Luxembourg To vote in person, attend the meeting in person. T H E M E E T I N G Location Registered office of the Fund (see below) Date and time Wednesday, 18 November 2020 at 15:00 CET Quorum None required Voting Agenda items will be resolved by a simple majority of the votes cast T H E F U N D Name JPMorgan Funds Legal form SICAV - Fund type UCITS Auditors PricewaterhouseCoopers Société coopérative Registered office 6, route de Trèves L-2633 Senningerberg, Luxembourg Fax +352 2452 9755 Registration number (RCS Luxembourg) B 8478 Past accounting year 12 months ended 30 June 2020 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 - Kaffi kl.14:30, kaffi og kökusneið á 450kr.- Bókaspjall kl.15:00 - Vegna fjöldatakmarkana verður að skrá fyrirfram á viðburði til þess að tryggja fjarlægðarmörk og fjölda í hverju rými. Við minnum fólk á mikilvægi sóttvarna og að það er grímuskylda í Samfélagshúsinu. Nánari upplýsingar og skráning í síma 4112701 / 4112702. Árskógar Opin vinnustofa kl. 9-12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Spænskukennsla kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411-2600. Boðinn Lokað er fyrir félagsstarf í Boðanum, opið er fyrir hádegismat með fjöldatakmörkunum, vinsamlega hringið í síma 441- 9922 til að panta mat eða að fá aðrar upplýsingar. Breiðholtskirkja Allt starf eldri borgara fellur niður í október vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Kæru vinir farið varlega og Guð blessi ykk- ur. Sjáumst hress og kát þegar við getum hist aftur. Kveðja, Steina djákni. Bústaðakirkja Ekkert félagsstarf fyrir eldri borgara verður í Bústaða- kirkju í október vegna covid-19. Guð blessi ykkur öll og við sjáumst hress þegar að öllu er óhætt. Hólmfríður djákni. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Línudans fellur niður í dag. Upplestrarhópur Soffíu fellur niður í dag. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Tálgað með Valdóri kl. 13:00-16:00. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar i síma 411-2790. Garðabæ Kæru gestir, íþrótta og félagsstarfið okkar er lokað tíma- bundið en Jónshús er opið með fjöldatakmarkana sem er 20 manns í rými. Minnum á grímuskyldu í Jónshúsi og muna að halda áfram upp á 2 metra regluna. Tilkynningar um breytingar koma líka fram á face- booksíðu okkar https://www.facebook.com/eldriborgararfelagsstarf- gardabaer Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr. dagurinn og allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30-12:30. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleik- fimi kl. 9:45. Framhaldssaga kl. 10:30. Handavinnuhópur 13:00-16:00. Korpúlfar Glerlistanámskeið með Fríðu kl. 9:00 til 13:00 í Borgum þátttökuskráning liggur frammi. Gönguhópar kl. 10 gengið frá Borg- um mismunandi styrkleikar. Kaffiveitingar kl. 14:30 til 15:30 með skráningu. Förum varlega virðum allar sóttvarnarreglur. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er bókband á sínum stað bæði fyrir hádegi, kl. 9-13 og eftir hádegi, frá kl. 13-17, í smiðju 1. hæðar. Eftir hádegi verður einnig hlustað á hlaðvarp í handverksstofu en í þetta sinn ætlum við að heyra meira um Joe Biden. Við minnum á að grímuskylda ríkir í félagsmiðstöðinni. Dagskrá fer fram með þeim hætti að hægt sé að tryggja sóttvarnir. Verið velkomin til okkar á Lindargötu 59. Samfélagshúsið Vitatorgi Kæru vinir. Vinsamlegast athugið að fyr- irhuguðu afmæli Vitatorgsbandsins sem halda átti í dag er frestað um óákveðinn tíma vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hittist kl. 13.00. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir vel- komnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Vantar þig dekk? FINNA.is Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Bílar Nýr Ford Transit 18 manna BUS Tilbúinn með mæli og leiðsögukerfi. Langt langt undir listaverði. Verð m.v. hópferðaleyfi 4.790.000,- án vsk. - www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com ✝ Reynir Bjarna-son, fæddist 24. janúar 1945. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans 8. október 2020. Foreldrar hans voru Bjarni Bjarnason, f. 21. janúar 1913, d. 21. febrúar 1980, og Þorbjörg Margrét Guðbjartsdóttir frá Hvallátrum í Rauðasandshreppi, f. 30. júní 1912, d. 5. maí 2012. Systkini hans eru Sigurbjörg Erla Bjarnadóttir, f. 23. mars 1942, gift Ásgeiri Sigurðssyni, og Guðbjartur Bjarnason, f. 13. ágúst 1947, kvænt- ur Sharon Fudge. Hann var ókvæntur og barn- laus. Hann ólst upp í Litla-Skerjafirði á Þjórsárgötu og bjó með móður sinni þar til hann keypti sér íbúð á Nýbýlavegi í Kópa- vogi. Reynir fór að vinna hjá Flugfélagi Íslands fyrst sem sumarmaður árið 1961 en árin þar urðu 53. Útför hans fór fram í kyrþey 15. október 2020. Kær bróðir er fallinn frá. Reynir ólst upp í Skerjafirðinum við eril og gný flugvélanna á Reykjavíkurflugvelli, sem seiddu huga hans löngum. Hann fór snemma að vinna fyrir sér eins og títt var um fólk á hans aldri, bar út blöð, var sendill í Nýbúð í Skerjafirði, vann við uppskipun á fiski hjá Togaraútgerðinni og var sumarstarfsmaður hjá Smjörlík- isgerðinni Ljóma, svo nokkuð sé nefnt. Sextán ára gamall fór Reynir í sumarvinnu hjá Flugfélagi Ís- lands á Reykjavíkurflugvelli og þaðan varð ekki aftur snúið. Starfaði hann þar síðan alla sína starfsævi, í full 53 ár, til ársins 2014, lengst af sem verkstjóri í hlaðdeild Flugfélagsins. Hann undi sér vel í vinnunni, enda störfin fjölbreytileg og mann- skapurinn skemmtilegur, og þar eignaðist hann sína bestu vini og kunningja. Margir þeirra voru slyngir bridsspilarar og átti spilamennskan vel við Reyni. Tók hann þátt í bridsmótum hér heima og erlendis um árabil, og hafði af því mikla ánægju, og margar ferðir átti hann með vinnufélögum sínum í sólskinið suður á Spáni. Reynir var einnig áhugamaður um stangveiði og renndi fyrir sil- ung víða um land. Gjarnan lá hann við í fellihýsi sínu eða húsbíl á þessum ferðum, í völdum hópi góðra vina. Mörg sumur lá leið hans vestur að Hvallátrum, en þar áttum við systkinin sameig- inlegan hlut í Húsabæ II í vest- ustu byggð landsins, þar þótti honum gott að dvelja og dytta að húsi og lóð. Reynir hafði mikinn áhuga á og gott auga fyrir bílum. Skipti hann reglulega um farar- skjóta, þótt aldrei byndi hann trúss við eina tegund fram yfir aðra. Reyni þótti gaman að fara á sjó og átti nokkra smábáta í rás áranna. Síðasta bátinn átti hann í félagi við Kristin, granna sinn á Látrum, og veiddu þeir sér þorsk í soðið. Reynir var rólyndismaður að upplagi, hægur í fasi og jafnlynd- ur. Hann var mikill prívatmaður og þótti gott að vera út af fyrir sig. Gjarnan stytti hann sér stundir yfir góðri bók, og sjón- varpið var honum líka drjúg af- þreying. Síðustu árin fór heilsa Reynis að láta undan af völdum sykur- sýki, en banamein hans var inn- vortis krabbamein, sem uppgötv- aðist viku fyrir andlát hans. Reynir tók örlögum sínum af stillingu og æðraðist ekki yfir hlutskipti sínu. Hann lést á líkn- ardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 8. október sl., 75 ára að aldri. Bálför Reynis verður gerð inn- an skamms og duftker hans jarð- sett í leiði Margrétar móður hans í Kópavogskirkjugarði. Fjöl- skylda hans þakkar samúð og vinarhug við andlát hans og út- för. Erla Bjarnadóttir. Samstarfsmaður minn í næst- um hálfa öld, Reynir Bjarnason, er látinn. Með honum er genginn einn af eftirminnilegustu mönn- um í fjölmennu starfsliði Flug- félags Íslands hf. og Flugleiða. Reynir hóf störf í hlaðdeild Flug- félags Íslands á vordögum árið 1961, þá aðeins 16 ára að aldri. Hann brást ekki þeim vænting- um sem til hans voru gerðar. Hann var afar dagfarsprúður maður, duglegur og útsjónar- samur með afbrigðum. Honum voru seinna falin trúnaðarstörf sem hann sinnti af mikilli prýði. Reynir var afbragðs briddsspil- ari og tók þátt í mörgum mótum á vegum Flugleiða og seinna Ice- landair um margra ára skeið ásamt samstarfsmönnum sínum með góðum árangri. Ég þakka Reyni fyrir góða viðkynningu og samstarf og votta ástvinum hans mína dýpstu samúð. Góður drengur er fallinn frá. Veri hann að eilífu Guði falinn. Aðalsteinn Dalmann Októsson. Reynir Bjarnason Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.