Morgunblaðið - 16.11.2020, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 6. N Ó V E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 270. tölublað 108. árgangur
MARGIR
KOMNIR MEÐ
BÍTLASTÍLINN
UNDIRBÚA ÚT-
FLUTNING TIL KÍNA
HRÆSVELGUR
OG JÖTUNN
Í ARNARHAM
FJALLALAMB 10 ÖRNINN UM ALDIRNAR 28HÁRSKERAR 4
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
MR Skólastarfi eru áfram skorður settar.
Bekkjakerfi sem gildir í Mennta-
skólanum á Akureyri vinnur með
því að ná sem flestum nemendum í
hús á næstu dögum, fara með þeim
yfir námsefni og aðstoða þá fyrir
próf. Tilgangurinn er að ljúka
haustönn á „jákvæðan hátt“ segir
Jón Már Héðinsson skólameistari.
Ný reglugerð sem tekur gildi um
miðja vikuna breytir í raun litlu
um takmörk sem gilda um sótt-
varnir í framhaldsskólum. Nú
mega allt að 25 manns koma sam-
an í einu rými, sé tveggja metra
fjarlægð milli fólks. Í MR bjóða
húsakynni ekki upp á slíkt. Þá
mega stórir nemendahópar ekki
blandast saman svo í MH verður
kennslan óbreytt. »2
Önn ljúki jákvætt
Langar biðraðir hafa myndast fyrir utan versl-
anir á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Ein-
ungis tíu manns er hleypt inn í flestar verslanir
og því þurfa aðrir að bíða þar til röðin kemur að
þeim. Aðspurður segir Gestur Hjaltason, fram-
kvæmdastjóri Elko, að auðveldlega væri hægt að
tryggja fjarlægðarmörk þótt fleirum væri hleypt
inn í verslanir. Hann virði þó reglur yfirvalda.
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæð-
isflokks, tekur í sama streng. Segir hún að það
gagnist lítið að láta fólk standa þétt saman í röð
utan við verslanir. »2
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Viðskiptavinum gert að bíða í röð utandyra
Búist er við að
16.000 manns
stundi nám í Há-
skóla Íslands á
vormisseri sem er
fjölgun um 1.000
nemendur frá því
sem nú er. Veru-
leg fjölgun hefur
að undanförnu
orðið í kennara-
námi og hjúkrunarfræði, fögum þar
sem vantað hefur fólk.
„Alltaf þegar stór áföll verða í
samfélaginu fjölgar í háskólanámi,“
segir Jón Atli Benediktsson, rektor
HÍ. Á næsta ári fær skólinn skv.
fjárlagafrumvarpi um 24 milljarða
króna en rektor gerir sér vonir um
að tekið verði tillit til fjölgunar
nemenda í auknum framlögum. »11
Mikil fjölgun í HÍ
Jón Atli
Benediktsson
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Faraldurinn hefur áhrif á lestrar-
venjur landsmanna og hafa þeir lesið
og hlustað á að
meðaltali 2,5 bæk-
ur á mánuði í ár,
miðað við 2,3 á
mánuði í fyrra.
Kemur þetta
fram í lestrar-
könnun Mið-
stöðvar íslenskra
bókmennta, en Ís-
lendingar fagna í
dag jafnframt
Degi íslenskrar tungu.
„Það er ánægjulegt að fleiri lesa nú
eingöngu eða oftar á íslensku en á
öðrum tungumálum,“ segir Hrefna
Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri
miðstöðvarinnar, og bætir við að mik-
il umræða um bókmenntir að und-
anförnu hafi góð áhrif á greinina.
Notkun hljóðbóka fór einnig vax-
andi í faraldrinum. Um 36% þeirra
sem hlusta helst á hljóðbækur sögð-
ust hlusta meira nú en fyrir farald-
urinn og 18% þeirra sem lesa að jafn-
aði hefðbundnar bækur sögðust lesa
meira nú en áður.
Kom einnig fram að svarendur
með tvö eða fleiri börn á heimili lásu
fleiri bækur en aðrir hópar og sami
hópur notar bókasöfn í mestum mæli.
Heldur fleiri lesa nú eingöngu eða
oftar á íslensku en öðrum tungu-
málum, miðað við könnun fyrra árs,
en aldurshópurinn 18 til 35 ára les
oftar en aðrir aldurshópar á öðru
tungumáli en íslensku. Heiðar Ingi
Svansson, formaður Félags bókaút-
gefenda, bendir á að það kunni að
skýrast af fjölda háskólanema sem
lesa námsbækur á erlendu máli.
Spurt var hvar lesendur fengju
hugmyndir að lesefni. Flestir sögðust
fá hugmyndir frá vinum eða ættingj-
um, eða 51,6%, næstflestir (37,9%) frá
umfjöllun í fjölmiðlum. „Þetta sýnir
okkur hversu mikilvægt það er, að við
séum með stöðugt samtal og umfjöll-
un um bókmenntir og það skilar sér í
meiri lestri,“ segir Hrefna.
Íslendingar lesa fleiri
bækur nú en áður
Fleiri lesa bækur á íslensku Dagur íslenskrar tungu
MÚtlit fyrir góð bókajól »6
Hrefna
Haraldsdóttir
Guðmundur Úlfar Jónsson, formað-
ur Flugvirkjafélags Íslands, segir að
viðræður um nýjan kjarasamning
flugvirkja Landhelgisgæslunnar
verði að byggja á aðalkjarasamningi
félagsins. Þá kemur ekki til greina
að gera nýjan samning, sem ekki
fylgir aðalkjarasamningi.
„Við erum bara með einn aðal-
kjarasamning fyrir flugvirkja á Ís-
landi. Þeir vilja hætta að fylgja hon-
um og semja algjörlega nýjan
samning hjá Gæslunni. Það getur
aldrei komið til greina,“ segir Guð-
mundur, sem kveðst að öðru leyti
vera tilbúinn að ræða hagræðingu.
„Það hefur staðið þeim til boða að
ræða allar hagræðingar.“
Þrátt fyrir verkfall flugvirkja er
ein þyrla Gæslunnar enn útkallshæf.
Þó er ljóst að líkur á bilun aukast eft-
ir því sem verkfallið dregst á lang-
inn. »4
Segja hagræðingu
koma til greina
Verkfall flug-
virkja Gæslunnar
stendur enn yfir
Morgunblaðið/Þorgeir
Þyrla TF-GRÓ er og hefur verið í
notkun hjá Landhelgisgæslunni.