Morgunblaðið - 16.11.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 16.11.2020, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2020 ✝ GuðmundurÓlafsson var fæddur í Reykjavík 10. janúar 1930. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Mörk 3. nóvember 2020. Foreldrar Guð- mundar voru hjónin Steinunn Jónína Þorláksdóttir hús- freyja, f. 1903, d. 1973, ættuð úr Húnaþingi, og Ólafur Ágúst Guð- mundsson skósmiður, f. 1894, d. 1970, ættaður af Suðurlandi. Systir Guðmundar var Sólveig Erla, f. 1928, d. 1994. Eftirlifandi eiginkona Guð- mundar er Sigurbjörg Jóns- dóttir, húsfreyja og síðar ritari, f. 11. janúar 1936, en þau giftust árið 1956. Foreldrar Sig- urbjargar voru Jón Guðni Gunn- ar Pétursson vélstjóri, f. 1895, d. 1981, og Guðbjörg Ólafsdóttir húsfreyja, f. 1894, d. 1970. Börn Guðmundar og arskóla sem barn. Hann stundaði nám í Menntaskólanum í Reykja- vík og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1950. Leiðin lá síðan í tannlæknanám við Háskóla Ís- lands, þaðan sem hann útskrif- aðist árið 1957. Meðfram há- skólanámi starfaði Guðmundur við leigubílaakstur hjá Bifreiða- stöð Steindórs, þar sem leiðir hans og Sigurbjargar lágu sam- an. Að námi loknu hóf hann störf sem tannlæknir, fyrst sem að- stoðartannlæknir en frá árinu 1959 á eigin stofu, sem lengst af var til húsa í Suðurveri í Reykja- vík. Þar starfrækti hann tann- læknastofu allt til starfsloka árið 2000. Útför Guðmundar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 16. nóvember 2020, klukkan 13. Streymt verður frá útförinni https://www.facebook.com/ groups/3440139652735070 Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat Sigurbjargar eru 1) Ólafur Ágúst verk- fræðingur, f. 1955. 2) Nína Kolbrún hjúkrunarfræð- ingur, f. 1957, maki Kristján Krist- jánsson tæknifræð- ingur, f. 1955. Börn þeirra eru a) Sig- urbjörg Ósk, f. 1991, sonur hennar og langafabarn Guðmundar er Elmar Trausti, f. 2016. b) Anna María, f. 1994. 3) Pétur Ingi tæknifræðingur, f. 1959, maki Guðbjörg Gunn- arsdóttir landfræðingur, f. 1957. Börn hans eru a) Þórður, f. 1988 b) Sólveig, f. 1990. 4) Bryndís hagfræðingur, f. 1968, maki Gunnar Bachmann viðskipta- fræðingur, f. 1964. Börn hennar eru a) Agnes Eyja, f. 1993 b) Guð- mundur, f. 1997. Guðmundur ólst upp á heimili foreldra sinna við Grettisgötu í Reykjavík og gekk í Austurbæj- Elsku pabbi, þá er kveðju- stundin runnin upp eftir langt og gott æviskeið. Síðustu árin þó í skugga Alzheimers-sjúkdóms sem smám saman tók þig frá okkur fjölskyldunni. En við leiðarlok streyma minningar fram. Minn- ingar um föður með sterkan per- sónuleika, myndarlegan mann og strangan föður sem vildi hafa röð og reglu á heimilinu. Jafnvel líka á annarra heimilum. Kom varla í heimsókn án þess að herða nokkr- ar skrúfur, stilla ofna eða laga eitt- hvað sem var úr lagi gengið. Ávallt traustur þegar erfiðleikar steðj- uðu að og tilbúinn að hlaupa undir bagga með næstum hvað sem var á meðan heilsan leyfði. Minningar frá barnæsku um sunnudagsbíltúra, um ferðalög með mömmu og pabba um sveitir landsins í sumarfríinu. Kenndi mér að þekkja landið mitt. Pabbi alltaf undir stýri, þar leið honum vel og hafði unun af að keyra góða bíla. Allra mest ameríska kagga sem hann eignaðist nokkra í gegn- um tíðina. Eyddi líka löngum stundum í bílskúrnum í Fossvog- inum við að dytta að og bletta í. Minningar um heimsóknir til Erlu föðursystur á Grettisgötuna, þau voru náin systkini alla tíð og allar góðu stundirnar þar koma upp í hugann. Þar var skrafað og sung- ið. Glens og gleði. Pabbi með bók í hönd. Hann leyfði góðum bókum að halda fyrir sér vöku langt fram á nætur. Best ef það voru ævisögur eða sagn- fræði af einhverju tagi. Og þegar hann varð afi, hvað hann hafði gaman af að segja börnunum sög- ur af fólki og atburðum. Rifjaði upp sögur úr sveitinni þar sem hann dvaldi hjá frændfólki sínu á sumrin sem barn. Hann átti góðar minningar frá æsku. Brá sér í hlutverk hinna ýmsu karaktera og frásagnargáfan var geislandi. Pabbi við píanóið, leikandi eftir eyranu hvaða lag sem var, bara það lag sem sótti að honum í það og það skiptið. Því fylgdi alltaf hlý tilfinning að hlusta á pabba spila. Jafnvel eftir að veikindin höfðu tekið frá honum bæði minni og samræðufærni þá settist hann við hljóðfærið og tónlistin flæddi und- an fingrunum, alveg eins og áður. Það voru góðu stundirnar. Þannig man ég þig elsku pabbi ávallt. Takk fyrir allt og allt. Þín Bryndís. Ein eftirminnilegasta minning- in um hann afa sem okkur dettur í hug er þegar við fórum hluti af fjölskyldunni í sundlaugina á Borg, í einni af ferðum okkar um landið. Þar er að finna rennibraut sem er einstaklega há og brött. Þessi blessaða rennibraut var að- alfjörið hjá barnabörnunum og fórum við heilmargar ferðir. Við krakkarnir reyndum svo að draga foreldrana í rennibrautina með misgóðum árangri, enda þorðu ekki allir í jafn svakalega braut. Afi stendur þá upp og gengur í átt- ina að rennibrautinni, okkur til mikillar furðu, enda maðurinn að nálgast áttrætt og við aldrei séð hann renna sér. Þegar hann var kominn niður og staðinn upp, þá klöppuðu allir sundlaugargestirn- ir fyrir honum að hafa sýnt slíkan hetjuskap. Þetta lýsir afa fremur vel, hann var uppfullur af karlmennsku og kjarki. Það var alltaf huggulegt að koma í heimsókn til ömmu og afa. Afi spilaði ósjaldan á píanóið á meðan maður slappaði af í sófan- um, hann hafði sérstaklega gott tóneyra og kunni á öll hljóðfæri milli himins og jarðar. Oft sást til hans dytta að hlut- um, smyrja lamir, pússa, mála og þess háttar. Hann var einstakt snyrtimenni og vandvirkur við öll sín störf. Hann kláraði heilu krossgáturnar á mettíma, þuldi upp ljóðabúta sem hann hafði lagt á minnið án nokkurrar fyrirhafn- ar, hlustaði á útvarp sem búið var að stilla upp í öllum hornum heim- ilisins og teiknaði skissumyndir á eldhúsborðinu með kaffinu. Ef hann ætlaði sér að ná aðdáun barnabarnanna þá lék hann til dæmis þá list að láta fingurna leika um kertaloga. Vonandi höfum við systur lært eitthvað til verka af þér, elsku afi. Við eigum eftir að sakna þín mjög mikið. Ástarkveðja frá Önnu Maríu og Sigurbjörgu (Diddu). Elsku afi minn. Nú hefur þú kvatt og haldið á annan friðsælan stað þar sem þú getur leikið djass á píanó og sungið fyrir þá sem þar dvelja. En þau heppin. Tókstu ekki örugglega harmonikkuna og klarínettið með þér líka? Þér var svo ótalmargt til lista lagt, enda hef ég oft montað mig af því að eiga svona músíkalskan afa. Ég er oft spurð að því hvort foreldrar mínir séu tónlistarfólk. Nei, segi ég, en afi minn er tannlæknir og sjálflærður músíkant sem spilar á fimm hljóðfæri og söng í Smá- rakvartettinum í Reykjavík á sjötta áratugnum. Ótrúlegt. Þú sýndir tónlistarnáminu mínu ávallt áhuga og sóttir tónleika til þess að sjá mig spila. Ég er þér þakklát fyrir það, þú varst mér án efa fyrirmynd og veittir mér inn- blástur. Ég mun minnast stund- anna sem við áttum saman í eld- húskróknum í Sóltúninu, allra þeirra skipta sem þú spilaðir eins og engill fyrir okkur ömmu á píanóið, langlokuljóðsins sem við sömdum saman í gestabók í sum- arbústað, hvernig þú heimtaðir alltaf að skoða í mér tennurnar í hvert skipti sem ég kom í heim- sókn (mér til mikils ama), hvernig þú laumaðist til þess að bera á illa förnu skóna mína á meðan ég dúll- aðist með ömmu, hvernig þú hreinsaðir úr eyrunum þínum með lykli (umhverfisvænn), hvernig þú hlóst svo sást í fallega skarðið á milli framtannanna þinna. Ég mun sakna þín elsku afi Bóbi. Hvíldu í friði. Við sjáumst þegar við sjáumst. Ég elska þig. Þín Agnes Eyja. Við Guðmundur erum systra- synir. Tíu ár aðskilja okkur í aldri, en það kom aldrei í veg fyrir að Guðmundur, Solveig Erla systir hans og foreldrar þeirra voru órjúfanlega tengd mínum fyrstu og ljúfustu bernskuminningum. Foreldrar Guðmundar, Ólafur Guðmundsson skósmiður og kona hans Jónína Þorláksdóttir, áttu húsið að Grettisgötu 70, og í skjóli þeirra áttu ég og Sigurbjörg systir mín okkar góðu bernskuár vegna einstakrar nærgætni og kærleiks frændfólksins. Við áttum með for- eldrum okkar heima á efstu hæð hússins, en dyr Nínu frænku, hæð neðar, stóðu okkur ætíð opnar og góðar eru bernskuminningarnar. Þrátt fyrir aldursmun öðluðust Guðmundur og Erla trúnaðar- traust okkar, og með Erlu og Diddu systur minni varð til ein- stök vinátta sem entist meðan báðar lifðu. Ég leit mjög upp til þessa glæsilega frænda míns, og ávallt höfum við báðir fundið fyrir nánum skyldleika; nánast bróður- þeli. Guðmundur var góðum náms- gáfum gæddur og því lá beint við hin hefðbundna leið gegnum Menntaskólann í Reykjavík og Háskóla Íslands þar sem hann nam tannlækningar, sem hann stundaði alla ævi, lengst af á eigin tannlæknastofu. Guðmundur var aðlaðandi og glæsilegur ungur maður og eignaðist góða vini þótt aldrei væri hann félagslyndur. Hans nánasti vinur var Jón Har- aldsson, tannlæknir og arkitekt. Á námsárum sínum ók Guð- mundur leigubifreið hjá Steindóri. Það varð honum mikil gæfa því á símanum hjá Steindóri vann ung og falleg stúlka, Sigurbjörg Jóns- dóttir. Með þeim tókust ástir, og betri lífsförunaut hefði ekki verið hægt að hugsa sér. Þau eru nú bú- in að njóta samvista langt yfir sex- tíu ár, nánast nótt sem dag. Guð- mundur var mikill heimilis- og fjölskyldumaður og mjög heima- kær. Guðmundur hafði mikla tónlist- argáfu og góða söngrödd og söng með Stúdentakórnum. Carl Bil- lich, sá mikli snillingur, stjórnaði og æfði kórinn. Svo vildi til að Bil- lich var á þessum tíma með viku- legan tónlistarþátt í útvarpinu. Hann kom að máli við fjóra söngv- ara úr kórnum um að stofna kvart- ett til að koma fram í þættinum. Það varð úr og Smárakvartettinn í Reykjavík varð til. Billich radd- setti allt lagavalið. Vinsældir kvartettsins náðu langt út fyrir hinn vikulega þátt og lögin voru mikið leikin í útvarpi. Raunar allt til þessa dags. Fljótlega voru nokkur laganna gefin út á plötum sem seldust vel. Þær urðu um síðir tæknilega úreltar og 1986 réðust félagarnir í endurútgáfu og úr varð frábært tveggja platna al- búm með gömlu lögunum auk nokkurra nýrra sem þeir tóku upp. Ekki er að efa að starfið í Smá- rakvartettinum hefur verið Guð- mundi til mikillar ánægju á sínum tíma. Tónlist var það snar þáttur af áhugaefnum hans og hæfileik- um. Þetta voru góðir félagar og Guðmundur var trygglyndur og vinafastur. En fjölskyldan var honum allt. Hann var ákaflega traustur og áreiðanlegur fagmað- ur sem aldrei mátti vamm sitt vita. Ég þakka Guðmundi fyrir frændsemi, vináttu og kærleik alla tíð, og votta Sigurbjörgu, börnum þeirra, tengda- og barnabörnum mína dýpstu samúð. Sverrir Sveinsson. Kveðja frá Tannlæknafélagi Ís- lands Enn er höggvið skarð í hóp fé- laga Tannlæknafélags Íslands. Kollega Guðmundur Ólafsson lést á hjúkrunarheimilinu Mörk þriðjudaginn 3. nóvember, níræð- ur að aldri. Eftir að Guðmundur lauk menntaskólanámi frá MR 1950 lá leiðin í Tannlæknadeild Háskóla Íslands. Tannlæknanám- ið fór fram í tveimur herbergjum á þriðju hæð gömlu háskólabygg- ingarinnar undir handleiðslu pró- fessors Jóns Sigtryggssonar, Jó- hanns Finnssonar tannlæknis og Guðmundar Hraundal tannsmíða- meistara. Þar var staðið við tann- læknastólana sex fyrir hádegi og prófessorinn þéraður. Eftir há- degið var unnið á tannsmíðastofu hjá Guðmundi Hraundal. Á þeim árum útskrifuðust þrír kandidatar ár hvert. Árið 1957 útskrifuðust með Guðmundi þeir Kjartan Ólafsson og Stefán Yngvi Finn- bogason og ári eftir þeir Guð- mundur Árnason, Guðrún Gísla- dóttir og Sigrún K. Tryggvadóttir. Nú eru allir þessir mætu kollegar fallnir frá nema Guðmundur Árnason sem virðist ekki taka ald- ursbreytingum eins og aðrir menn. Eftir tannlæknanám starfaði Guðmundur sem aðstoðartann- læknir í Reykjavík hjá Theodór Brynjólfssyni, Inga Val Egilssyni, Hauki Clausen og Birni Br. Björnssyni. Segja má að Guð- mundur hafi fengið sína fyrstu handleiðslu í tannlækningum hjá þekktustu kollegum þess tíma og þar var grunnurinn lagður. Hann rak eigin tannlæknastofu í Reykja- vík frá 1959 til 2000, þegar heilsan brást, lengst af í Suðurveri. Guðmundur var virkur í fé- lagsstarfi Tannlæknafélagsins og sat í ýmsum nefndum. Hann hafði unun af söng og á námsárunum söng hann með Stúdentakórnum, en einnig söng hann 1. bassa í Smárakvartettinum í Reykjavík. Að sögn söng 2. bassa Jón Har- aldsson, tannlæknir og arkitekt, oft nefndur tannhauser, sem var samtíða Guðmundi í tannlækn- anámi en útskrifaðist ári áður, eða 1956. Sem betur fer er enn að finna góða söngmenn í Tann- læknafélaginu sem vonandi helst um ókomna tíð. Það er mikilvægt að ungir tann- læknar í dag séu meðvitaðir hverj- ir vörðuðu veginn í tannlækning- um hér á landi og voru aðalhvatamenn í Tannlæknafélag- inu í rúmlega 90 ára sögu þess. Á þessum tímamótum vil ég fyrir hönd Tannlæknafélags Ís- lands þakka Guðmundi Ólafssyni samfylgdina og votta eiginkonu hans Sigurbjörgu Jónsdóttur og ættingjum samúð. Blessuð sé minning hans. Svend Richter. Guðmundur Ólafsson Elsku pabbi okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, KRISTJÁN ÞÓR ÞÓRISSON, lést á Landspítalanum við Hringbraut 9. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. nóvember klukkan 15. Vegna fjöldatakmarkana geta bara nánustu ættingjar verið viðstaddir útförina. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. Anna Þuríður Kristjánsdóttir Þorgerður Kristjánsdóttir Sigurður St. Jörundsson Kristín Þóra Kristjánsdóttir Sif Kristjánsdóttir Trausti Þór Ósvaldsson Þóra Þórisdóttir Grétar Samúelsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, SIGURRÓS BALDVINSDÓTTIR, Miðbraut 18, Seltjarnarnesi, lést á hjartadeild Landspítalans laugardaginn 31. október. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 18. nóvember klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni: https://livestream.com/luxor/sigurros Fyrir hönd barnabarna og langömmubarna, Guðrún Íris Þórsdóttir Ásgeir Ásgeirsson Baldvin Þórsson Ingibjörg Jóhannsdóttir Í litlu samfélagi sérhæfra myndlist- armanna munar stórlega um hvern þann sem heltist úr lestinni langt um aldur fram. Sérhæf- ing hans getur verið svo ein- stök og nátengd persónu hans, að ekki verður með góðu móti fyllt upp í það skarð sem hann skilur eftir sig. Pétur Bjarna- son myndhöggvari var um margt sér á parti, ekki síst fyr- ir yfirburðaþekkingu á málm- steypu og bronssteypu sérstak- lega. Hann varð sér úti um þá þekkingu í Belgíu, fyrstur ís- lenskra myndlistarmanna, og hugðist hafa af steypunni at- vinnu meðfram myndlistinni. Fram að því hafði nær öll bronssteypa fyrir Íslendinga farið fram erlendis. En Pétur sá einnig fyrir sér hvernig virkja mætti bronssteypu í myndlistarlegum tilgangi, þannig að hún væri ekki ein- asta aðferð til að fjölfalda form- ynd – t.d. portrettmynd - held- ur mætti nota ýmsa eiginleika bronsins, áferð þess, tónbrigði og ýmsa slysni og tilviljanir bræðslunnar, til að koma á framfæri tilfinningum og hug- myndum. Í minni skúlptúrum sínum fann Pétur sér gjarnan svig- rúm á mörkum myndlistar og hönnunar. Ýmis þekkjanleg fyrirbæri úr hversdagslegu umhverfi, ekki síst ílát af ýms- um toga, voru sett í brons- meðferð, þar sem þau tóku á sig nýjar myndir, urðu mýkri og áferðarríkari, leystust að hluta upp í frumeiningar sínar, þökk sé náttúru bronsmiðils- ins. Í stærri verkum sínum fyrir opinbera aðila, t.d. „partner- skipinu“ við Sæbraut, „Farinu“ við Pollinn á Akureyri og „Fyr- Pétur Bjarnason ✝ Pétur Bjarna-son fæddist í Reykjavík 20. sept- ember árið 1955. Hann lést 26. októ- ber 2020. Útför Péturs fór fram í kyrrþey. ir stafni“ við höf- uðstöðvar Eim- skips í Sundahöfn, fann Pétur sér ein- faldar og marg- ræðar einingar, gjarnan samfellur, til að draga fram megininntak þeirr- ar sögu sem verkin spretta af. Þannig eru vængirnir tveir í „Farinu“ samnefnari fyrir flugsögu Ak- ureyringa, tvö samstæð/and- stæð „segl“ í skúlptúrnum við Sæbraut tákn fyrir farsæla samvinnu Íslands og Banda- ríkjamanna í áraraðir. Og risa- vaxið stefnið í Sundahöfn segir í knöppu og mikilúðlegu formi sögu þessa „skipafélags allra landsmanna“, sem Eimskip sannarlega var. Ég hafði nokkra milligöngu um tvö þessara verka og minn- ist Péturs alla tíð með hlýju. Hann var fríðleiksmaður með einstaklega þægilega nærveru, brosmildur, glaðvær og einlæg- ur. Feginn hefði ég viljað vinna með honum að fleiri skúlptúr- verkefnum. En sökum illvígs sjúkdóms, sem sótti á Pétur rúmlega fer- tugan og varð honum að lokum að aldurtila, tókst honum ekki að rækta myndlist sína eins öt- ullega og hann hefði viljað. Seinni árin fór mikið af tíma hans í íhlaupavinnu tengda starfsbræðrunum, lifandi og látnum. Hann var fenginn til viðgerða og viðhalds á verkum þeirra, auk þess sem hann hljóp undir bagga þegar efnt var til bronssteypu á portrett- um. Inn á milli tókst Pétri að miðla þekkingu sinni til yngri myndlistarmanna með kennslu við Myndlista-og handíðaskól- ann og Listaháskólann. Þegar talað var við Pétur um hagi hans, fór aldrei á milli mála hvar þungamiðjan í til- veru hans lá, nefnilega heima í Ásbúð hjá Sigríði konu hans og börnum þeirra. Þangað sendi ég einlægar samúðarkveðjur. Aðalsteinn Ingólfsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.