Morgunblaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020 Flóttamannastraumur til Evr-ópu hefur verið mikill á liðn- um árum og á meginlandinu hafa áhyggjur vaxið mjög að undan- förnu og umræður um að grípa þurfi til hertra aðgerða sömuleið- is. Landamæri þykja of opin, ekki aðeins ytri landa- mæri heldur einnig þau innri, enda eiga flóttamenn greiða leið á milli landa hafi þeir komist inn á Schengen-svæðið, sem flest ríki Evrópusambandsins eru á og Ísland einnig.    Morgunblaðið sagði fréttir afþví í vikunni að umsækj- endum sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í öðrum ríkjum en sækja engu að síður um slíka vernd hér á landi hefði fjölgað mikið á und- anförnum mánuðum. Sem dæmi hefði 71 Palestínumaður af þeim 73 sem sótt hefðu um alþjóðlega vernd hér á landi í september og október þegar fengið slíka stöðu í öðrum Evrópuríkjum. Umsækj- endur frá Palestínu eru nú orðnir fjölmennastir þeirra sem sækja um vernd hér á landi.    Þeir sem svo er ástatt um eigaekki rétt á vernd hér, en engu að síður fer í gang ítarleg skoðun á málum þeirra hér sem getur tekið langan tíma og orðið til þess að þeir ílengist hér að óþörfu.    Dómsmálaráðherra hyggstleggja fram frumvarp til að stytta afgreiðslutíma þessa fólks hér. Eins og hún bendir á þá er þetta mikilvægt enda taka þessi mál lengri tíma hér en í öðrum löndum, sem er ekki ásættanlegt fyrir Ísland og verður óhjákvæmi- lega til þess að fólk komi hingað þó að það eigi ekkert erindi og valdi hér óþarfa kostnaði. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Brýnt frumvarp STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Malasíski kaupsýslumaðurinn Vincent Tan hefur ekki áhuga á því að byggja lúxushótel á Fiskislóð í Örfirisey. Faxaflóahafnir bentu á þessar lóðir sem mögulegan kost um leið og tekið var neikvætt í óskir Tans um að byggja hótelið á Miðbakkanum. Í umsögn Magnúsar Þórs Ásmundssonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, til skipulagsfulltrúa Reykjavíkur vegna umsóknar Tans bendir hann á að Faxaflóahafnir eigi aðrar lóðir sem gætu hent- að undir hótelstarfsemi. Aðspurður segir Magnús að um sé að ræða lóðirnar Fiskislóð 33-37 í vestur- hluta Örfiriseyjar. Þessar lóðir eru milli bíla- þvottastöðvarinnar Löðurs og olíubirgðastöðv- arinnar, gegnt húsi Forlagsins, bókaútgáfu. Magnús segir í umsögninni að þessar lóðir séu óbyggðar með óhindruðu útsýni. Faxaflóahafnir sjái sóknarfæri í auknum byggingarheimildum í Vesturhöfn Gömlu hafnarinnar með því að hækka nýtingarhlutfall lóðanna úr 0,5 í 1,0 og jafnvel meira á einhverjum lóðum. Lóðirnar á Fiskislóð eru í eigu Faxaflóahafna en þeim hefur verið úthlutað, þ.e. lóðarleigusamn- ingur er á bak við þær. Magnús segir að uppbygg- ing þar verði væntanlega ekki nema að undirlagi lóðarhafa. „Það er hins vegar svo að aðilinn sem hefur áhuga á hótelbyggingu á Miðbakkanum hef- ur ekki áhuga á þessari staðsetningu,“ segir Magnús. sisi@mbl.is Tan vill ekki byggja á Fiskislóð Morgunblaðið/sisi Fiskislóð Lóðirnar sem hafnirnar benda á eru óbyggðar og með óheft útsýni yfir Faxaflóann. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Nær sex milljónir króna hafa safn- ast í góðgerðarverkefni á vegum verslunarkeðjunnar Nettó. Verk- efnið ber heitið „Notum netið til góðra verka“ en í því felst að 200 krónur af hverri pöntun í netversl- un Nettó renna til góðgerðarmála. Verkefnið fór af stað fyrir um þremur vikum og mun standa yfir út nóvembermánuð. Þá hafa þús- und viðskiptavinir komið með til- lögur að góðgerðarverkefnum í gegnum heimasíðu verslunarinnar. „Það er einkar ánægjulegt að sjá hversu margir hafa tekið þátt í þessu verkefni og það er greinilegt að fólk hugsar hlýlega til annarra á tímum sem þessum. Menntamál og mannúðarmál hafa verið vinsælli en aðrir málaflokkar til að byrja með en hver veit nema það breytist enda lýkur könnuninni ekki fyrr en í lok mánaðarins,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmda- stjóri verslunarsviðs Samkaupa. Hafa safnað á sjöttu milljón króna Morgunblaðið/RAX Nettó Góðgerðarverkefni fyrirtækisins hefur gengið mjög vel til þessa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.