Morgunblaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 22
VIÐTAL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Það er í mörg horn að líta á stóru
heimili og þegar blaðamaður nær
sambandi við Karl Andreassen, for-
stjóra Ístaks, er á hann á milli funda.
Fyrirtækið stendur nú m.a. í stór-
ræðum á Melunum þar sem Hús ís-
lenskra fræða er nú risið og fyrir-
tækið vinnur að fullnaðarfrágangi á
því. Í framtíðinni verða mestu dýr-
gripir íslensku þjóðarinnar varð-
veittir í rammgerðum hvelfingum
hússins. Flestum þætti nóg um að
hafa yfirsýn yfir framkvæmd af
þessu tagi en ekki Karli.
„Við vorum núna í september að
hefjast handa við að breikka þjóð-
veginn um Kjalarnes, þ.e. fyrsta
hluta hans. Þá erum við í brúarfram-
kvæmdum og mörgu fleira.“ Um
þessar mundir starfa um 320 manns
hjá félaginu. Aðstæður í þjóðfélaginu
hafa kallað á nokkurn samdrátt en
um nýliðin áramót voru starfsmenn-
irnir um 400.
Margt í pípunum
„Það hefur dregið úr framkvæmd-
um á einkamarkaði en útboðsmark-
aðurinn er nokkuð kraftmikill og við
sjáum mörg stór verkefni við sjón-
deildarhringinn. Það eru t.d. stórir
verkþættir varðandi Nýja Landspít-
alann framundan. Þá eru einnig
framundan PPP-verkefni [sam-
vinnuverkefni einka- og opinberra
aðila] á borð við tvöföldun Hvalfjarð-
arganga, Hornafjarðarbrú, jarðgöng
í Reynisfjalli og vegur um Öxi.“
Líkt og fjallað hefur verið um í
Morgunblaðinu áður eru verkefni Ís-
taks ekki aðeins bundin við Ísland.
Þannig hefur fyrirtækið m.a. gert sig
gildandi við stórframkvæmdir á
Grænlandi þar sem Karl þekkir
mjög vel til en fyrir þremur árum
lauk framkvæmdum við nýja stór-
skipahöfn í Nuuk og var það stærsta
fjárfesting í sögu landsins. Var að-
koma Ístaks að verkefninu í sam-
starfi við danska móðurfélagið sem
keypti það fyrrnefnda árið 2015. Það
var svo undir árslok í fyrra sem Ístak
varð hlutskarpast í útboði á alverki
nýrrar skóla- og menningarbygging-
ar í Nuuk sem kosta mun ríflega 13,5
milljarða króna.
„Verkefninu miðar vel. Við erum
búin að steypa mest af botnplötunum
fyrir veturinn og höldum svo áfram
með verkið eins og hægt er í vetur en
gerum eitthvert hlé á framkvæmd-
unum um skamma hríð og byrjun svo
aftur og fullur kraftur næst svo aftur
þegar fer að vora í Nuuk en vænt-
anlega verður núna hlé á fram-
kvæmdum yfir vetrarmánuðina og
munum við svo halda verkinu áfram
þegar vorar.“
Horfa til fleiri verkefna
Er skólabyggingin á Grænlandi
stærsta einstaka verkefnið sem Ístak
fæst við um þessar mundir en þá hef-
ur fyrirtækið einnig boðið í uppbygg-
ingu nýrrar flugstöðvarbyggingar
sem fyrirhugað er að reisa í Nuuk í
tengslum við nýjan og stærri flugvöll.
Síðustu tvo áratugi hefur Ístak
einnig komið að stórum verkefnum í
Noregi og sótti það mörg slík í kjölfar
efnahagshrunsins þegar lítið var um
framkvæmdir hér á landi. Gerði Ístak
m.a. tíu jarðgöng, reisti tvær vatns-
aflsvirkjanir og fjölmarga vegi og
önnur mannvirki í landinu.
Það er hins vegar ekki svo að
starfsfólki Ístaks sé alltaf kalt á hönd-
unum við framkvæmdir í Noregi, á
Grænlandi og hér heima. Á árunum
2009-2011 reisti fyrirtækið t.d. 17 hús
á Jamaíku og því er ljóst að fyrirtækið
sækir verkefni þar sem þau gefast og
þar sem hægt er að bjóða í spennandi
stórframkvæmdir.
Og Karl segir að Ístak eigi gott með
að fóta sig á útboðsmarkaði þar sem
hagstæðustu og traustustu boðum er
tekið.
„Fyrirtækið er í raun stofnað í
tengslum við útboðsmarkaðinn. Það
voru feðgarnir Kay og Sören Langvad
sem höfðu frumkvæðið ásamt þeim
Gunnari Möller, Einari Sigurðssyni,
Páli Sigurjónssyni og Jónasi Frí-
mannssyni. Það gerðu þeir í framhaldi
af því að Alþingi samþykkti lög um að
opinberar framkvæmdir skyldu boðn-
ar út,“ útskýrir Karl og segir að laga-
setningin hafi orðið til þess að öflug og
sjálfstæð verktakafyrirtæki hafi tekið
að mótast hér á landi. Fyrstu stóru
verkefni Ístaks voru miðlunarfram-
kvæmdir við Þórisvatn, Vantsfell-
sveita og stækkun Búrfellsvirkjunar
og því var ekki ráðist á garðinn þar
sem hann var lægstur. Í áranna rás
hefur svo hvert stórverkefnið rekið
annað. Hefur félagið m.a. komið að
stórum verkefnum varðandi upp-
byggingu á Keflavíkurflugvelli.
„Fyrsta aðkoma Ístaks að flugvell-
inum var fyrsti áfangi flugstöðvarinn-
ar, hinnar svokölluðu Norðurbygg-
ingar sem reist var á árunum 1985-87.
Þá unnum við líka að byggingu Suð-
urbyggingarinnar í samstarfi við
Højgaard & Shultz á árunum 2000-
2001.“
Þar með var saga Ístaks á vellinum
ekki öll því á árunum 2004-2005 vann
fyrirtækið að stækkun norðurbygg-
ingarinnar, innanhússfrágangi við
stækkun suðurbyggingar á árunum
2014-16 og stækkun tengibyggingar
2017-2019.
„Loks komum við að stækkun á
steyptum flughlöðum austan flug-
stöðvarinnar á árunum 2016-2018,“
segir Karl. Spurður hvort hann telji
að Ístak muni koma að frekari upp-
byggingu flugvallarins á komandi ár-
um segir hann allt óljóst í þeim efn-
um þar sem um útboðsverk er að
ræða, „en við tökum að sjálfsögðu
þátt og ættum að eiga möguleika á
fleiri verkum.
Það er hins vegar ánægjulegt að
sjá að uppbyggingin eigi að halda
áfram á vellinum þrátt fyrir bak-
slagið sem nú hefur orðið.“
Framfarir í byggingariðnaði
Spurður út í framtíð byggingar- og
farmvæmdaiðnaðarins á Íslandi seg-
ir Karl að flest bendi til þess að hún
sé björt. Mikil framþróun sé að verða
á mörgum sviðum sem mikilvægt sé
að hagnýta og að Ístak láti ekki sitt
eftir liggja í þeim efnum.
Nefnir hann í því sambandi hina
svokölluðu BIM-tækni (e. Building
Information Managment).
„Það er tækni sem við nýtum í
okkar starfsemi við hönnun og stjórn
framkvæmda. Með henni er m.a.
hægt að skoða allar teikningar í
sýndarveruleika. Það er mikilvægt á
kynningarstigi en einnig meðan á
hönnun stendur. Þannig er t.d. hægt
að nýta tæknina til þess að kanna
hvort flóknar járnabindingar passi í
steypumót og eins hvort t.d. loft-
ræstibúnaður rekist utan í aðrar
lagnir sem búið er að teikna, svoköll-
uð árekstragreining. Þetta getur
sparað mikla fjármuni og tryggt að
framkvæmdir gangi hnökralaust fyr-
ir sig.“
Þarf að gefa því tíma
Karl ítrekar þó að tækni af þessu
tagi sé ekki sjálfsögð viðbót í starf-
semi eins og hjá Ístaki. Það taki tíma
að vinna hlutina með þessari nálgun
og þar megi ekki slá slöku við. For-
senda þess að hún nýtist sem skyldi
sé að vanda til verka á því sviði sem
öðrum. Einkunnarorð Ístaks eru
„frumkvæði í fyrirrúmi“ og það má
augljóslega greina á tali Karls þegar
hann ræðir sögu félagsins og fram-
tíðartækifæri að þar fer maður sem
nýtur augnabliksins. Það hlýtur að
vera gefandi að koma að stórum
verkefnum sem brúa ár, tengja sveit-
ir landsins saman eða þeim sem rísa
upp af grunni til þess að standa um
ókomna tíð.
Mörg stór framkvæmda-
verkefni eru í farvatninu
Morgunblaðið/Eggert
Framkvæmd Ístak vinnur nú að uppbyggingu Húss íslenskra fræða á Melunum og mun skila því fullbúnu.
Ístak fagnar 50 ára afmæli Tvöfalda nú fyrsta hluta Kjalarnessvegar
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
21. nóvember 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 136.32
Sterlingspund 180.47
Kanadadalur 104.05
Dönsk króna 21.652
Norsk króna 15.091
Sænsk króna 15.804
Svissn. franki 149.4
Japanskt jen 1.3105
SDR 193.95
Evra 161.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 196.0141
Hrávöruverð
Gull 1857.4 ($/únsa)
Ál 1978.0 ($/tonn) LME
Hráolía 43.96 ($/fatið) Brent
● Hagnaður
Landsvirkjunar á
þriðja ársfjórðungi
nam 17,6 millj-
ónum dollara, jafn-
virði 2,4 milljarða
króna og lækkaði
um 17,5% miðað
við sama tímabil í
fyrra þegar hagn-
aðurinn nam 21,4
milljónum dollara.
Raforkusala dróst saman um 10,4
milljónir dollara, jafnvirði 1,4 milljarða
króna og nam 79,7 milljónum dollara.
Rekstrarkostnaður jókst á sama tíma
um 4% og nam 64,6 milljónum dollara,
jafnvirði 8,8 milljarða króna. Það sem af
er ári nemur hagnaður Landsvirkjunar
61,2 milljónum dollara, jafnvirði 8,3
milljarða króna. Er hagnaðurinn 32%
minni það sem af er ári miðað við fyrstu
níu mánuði ársins 2019.
Í tilkynningu frá félaginu segir Hörð-
ur Arnarson forstjóri að veirufarald-
urinn setji áfram mark sitt á reksturinn.
„Skórinn kreppir að hjá viðskipta-
vinum fyrirtækisins, með minnkandi
eftirspurn og lækkandi afurðaverði. Eft-
ir mikla lækkun skulda á síðasta áratug
er Landsvirkjun þó í ágætri stöðu til að
standa af sér storminn og standa með
viðskiptavinum sínum á þessum krefj-
andi tímum.“
Hagnaður Landsvirkj-
unar dregst saman
Hörður
Arnarson
STUTT
Forsögu Ístaks má í raun rekja allt
aftur á fjórða áratug síðustu aldar.
Þá kom til landsins ungur maður
að nafni Kaj Langvad á vegum
danska verktakafyrirtækisins
Höjgaard & Schultz sem vann að
uppbyggingu Ljósafossvirkjunar í
Sogi. Var honum einnig falið að
hafa umsjón með lagningu hita-
veitu milli Mosfellsbæjar og
Reykjavíkur og þegar stríðið skall
á varð úr að fjölskylda hans dveldi
með honum hér á landi. Það var
kona hans, Selma Gudjohnsen, og
sonur þeirra Sören Langvad. Lauk
hann stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík og fyrri hluta
verkfræðináms við HÍ.
Síðar keypti Kaj múrverks-
fyrirtækið E.Phil & Sön sem hasl-
aði sér nýjan völl á framkvæmda-
markaði, m.a. við hafnargerð í
Danmörku og vatnsaflsvirkjanir
hér á landi. Kom Sören að starf-
seminni með föður sínum og
tengdust þeir m.a. byggingu Búr-
fellsvirkjunar þar sem fyrirtæki
þeirra vann að framkvæmdum
ásamt hinu sænska SENTAB. Var
það gert í gegnum Almenna bygg-
ingarfélagið, sem var í raun eigin-
legur grunnur að Ístaki.
Sören Langvad ann mjög ætt-
jörð sinni í norðri og vann ötullega
að auknu samstarfi dansks og ís-
lensks athafnalífs. Lét hann sig
mjög varða útbreiðslu íslenskrar
menningar í Danmörku. Var hann
sæmdur riddarakrossi fálkaorð-
unnar 1977, stórriddarakrossi árið
1981 og stórriddarakrossi með
stjörnu árið 1999.
Danskt ævintýri varð íslenskt
ÆVINTÝRI SEM TÓK ÓVÆNTA STEFNU
Sören Langvad fæddist í Danmörku
1924 og lést árið 2012, á 88. aldursári.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum