Morgunblaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ég skal vera ljósið nefnist nýútkomin
bók Þorsteins J. Vilhjálmssonar. Bók
er kannski ekki rétta orðið þar sem
verkið er vissulega bók en um leið
miklu meira. „Þetta er eiginlega
svona sögusvið með raunveruleika og
skáldskap sem er slippurinn og svo
einhvern veginn
prjóna ég í kring-
um það, bæði fyrir
bókverkið sem er
gefið út í 300 ein-
tökum og er
ákveðið svið og
svo er hljóðbókin
annað með músík og umhverfis-
hljóðum. Í þriðja lagi er það rafbókin
og skemmtilegt að geta setið og
stækkað myndirnar og flett,“ svarar
Þorsteinn.
– Svo er líka hlaðvarp og það er
sérstakt verk eða hvað?
„Það var í raun ferlið. Þegar ég var
að skrifa bókina birti ég efni úr henni
jafnóðum, bæði í stuttum hljóð-
brotum og svo sendi ég líka síður og
stutta kafla úr bókinni á ákveðinn
hóp. Sumir svöruðu og aðrir ekki en
þá var ég að skrifa fyrir áheyrendur
og lesendur og það hjálpaði mér tölu-
vert. Ég fékk slatta af hugmyndum í
gegnum það, fólk sem ég rakst á eða
svaraði, skrifaði eða sagði mér eitt-
hvað þannig að þetta ár sem ég tók
mér í að búa til verkið mótaðist tölu-
vert líka af umhverfinu.“
Vantaði sögu á sviðið
Blaðamaður hlustaði á hlaðvarpið
áður en hann kynnti sér bókina og
segir Þorsteini að hann hafi upplifað
varpið eins og útvarpsleikhús. Þegar
hann fór að fletta bókinni var ljós-
mynd af leiksviði svo það fyrsta sem
blasti við. Þorsteinn segir að þar sé
kominn uppbúinn salur á ljósmynd
sem hann hafi keypt í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur. „Þar byrjaði þessi
hugmynd um leiksviðið, hvort það
væri hljóðheimur eða hljóðverk eða
bara bíó, hreinlega,“ útskýrir Þor-
steinn og segist hafa fengið sér sæti í
salnum og gerst þátttakandi í verk-
inu.
Fjöldi ljósmynda prýðir bókverkið
og segist Þorsteinn hafa verið undir
áhrifum frá þeim vinum sínum sem
hafa menntað sig í ljósmyndun og
starfa við hana. Hann segist sjálfur í
flokki áhugamanna í þeirri list en þótt
aðkallandi að vera ekki eingöngu með
texta þar sem myndirnar segi líka svo
mikla sögu. „Mér fannst mjög mikil-
vægt líka, þegar ég fór að skoða og
hugsa hvernig þetta verk gæti orðið
til, að taka ljósmyndir, eins og í
slippnum, til að fá hugmyndir. Marg-
ar hugmyndir komu út frá ljósmynd-
unum og svo var erfitt líka að velja
myndir í bókina til að fylgja eftir text-
anum, passa sig að taka ekki of mikið
frá textanum eða segja of mikið með
þeim.“
Varað við vanrækslu
– Slippurinn er myndlíking fyrir
manninn eða lífið?
„Já, þetta er auðvitað sögusvið og
tenging við lífsins sjó sem við siglum
og troðum marvaðann í og mótar
okkur, hvert með sínum hætti. Þetta
er líka þessi hugmynd um viðhald,
einhvers konar viðhaldsvinnu og að
við hættum vanrækslu á eigin lífi og
förum að hugsa aðeins betur um okk-
ur.“
Þorsteinn segir að í sínum huga sé
slippurinn hjarta Reykjavíkur.
„Þetta er höfnin og þaðan komum við
að stórum hluta. Að sjá skip dregið á
land er stórbrotið, að sjá hvernig
þessi dráttarbraut getur dregið þetta
flikki á land og svo drífur að her
manna, lagar bátinn til og síðan er
honum bara rennt út aftur,“ segir
Þorsteinn. Skipin snúi svo aftur í yfir-
halningu eftir nokkur ár. „Það er
mjög áhrifamikið að fylgjast með því
sem er gert í slippnum og það hjálp-
aði mér gríðarlega í þessu verki að
skrifa og tengja það við sögurnar,“
segir Þorsteinn. Honum hafi þótt
mikilvægt að tengja saman hljóðin í
hljóðbókinni, ljósmyndirnar og text-
ann og mynda eina heild.
Atburðir líkt og álög
– Í verkinu ertu að gera upp mik-
inn harm í þinni fjölskyldu og í því er
fólgin ákveðin hreinsun, er það ekki?
„Bæði er þetta möguleiki á ein-
hvers konar endurvinnu á gömlum
hlutum, einmitt, bæði að skoða sög-
una, hvað hafi gerst og annað slíkt en
líka tækifæri til að endurskrifa sög-
una í bókstaflegri merkingu og það er
líka hlutur sem ég hef verið svolítið að
skoða og vinna með út frá því að það
sé hægt. Mín reynsla er sú að það sé
hægt vegna þess að hugur manns er
alltaf að endurskrifa söguna, það ger-
ist eitthvað á ákveðnum tíma og svo
líður ár, tíu ár eða tuttugu og allt í
einu er ég kominn með nokkurn veg-
inn sama atburð en ekki alveg þann
sama. Þetta er það sem hugurinn ger-
ir, held ég, og þá lífssjórinn,“ svarar
Þorsteinn.
Hann segist hafa einbeitt sér að því
að láta ekki söguna stjórna lífi sínu.
„Það var eitthvað sem ég hafði í huga
líka og þar eru skírskotanir í mitt eig-
ið líf og mína persónulegu reynslu
sem maður. Auðvitað er auðvelt að
setja fram heimspekilegar vangavelt-
ur og segja fólki að þær eigi svo bara
að ganga upp í raunverulegu lífi en
mín reynsla er sú að þær geri það,“
útskýrir Þorsteinn. Ákveðnir atburð-
ir úr fortíðinni verði eins og álög og
leggist á heilu fjölskyldurnar en ekki
bara þá sem voru persónur og leik-
endur í þeim. Þorsteinn líkir þessu
við genetísk álög en atburðurinn sem
kemur við sögu í verkinu er banaslys.
Móðurbróðir Þorsteins, Jens Krist-
inn Þorsteinsson, varð fyrir her-
bifreið á Kaplaskjólsvegi þar sem
hann bjó, 4. desember árið 1943.
Hann var þá fimm ára og er Þor-
steinn skírður í höfuðið á honum, Þor-
steinn Jens Vilhjálmsson.
Líkt og kvikmyndahandrit
Þorsteinn segir andlát Jens hafa
tekið mjög á alla fjölskylduna, eins og
gefur að skilja. „En hvað gerist svo?“
spyr hann og svarar því til að þá taki
skáldskapurinn við í verkinu því hann
hafi ekki verið á staðnum og viti ekki
nákvæmlega hver atburðarásin var í
kjölfar slyssins og hvað fór fólks á
milli. Þá taki slippvinnan við, að sjóða
saman atburði og persónur, búa til
þrívíða frásögn.
„Þetta er svolítið eins og kvik-
myndahandrit að því leyti að það eru
nokkur sögusvið og það er klippt á
milli sjónarhorna, nánast eins og í
bíómynd og við fylgjum eftir
ákveðnum persónum. Í byrjun er
þessi söguhetja, slippsstjórinn, sem
virðist vera að skrifa endurminningar
sínar og eiga í einhvers konar samtali
við blaðamann um þær, líf sitt og
starf. En svo kemur í ljós að hann er
líka að nota endurminningar annarra,
og þá þessarar konu, sem hann hefur
komist í einhvern veginn, og er að
leiðrétta þær stöðugt. Svo koma aðrir
að líka eins og útfararstjórinn sem
tengist þessu á einhvern hátt og síðan
bein ræða konunnar úr leiðréttum
dagbókum. Þannig að ég veit að frá-
sagnarhátturinn er krefjandi en ef
fólk sýnir smá þolinmæði held ég að
þetta komi til með að renna úr slipp í
lokin,“ segir Þorsteinn kíminn.
Raddirnar séu nokkrar og ólíkar
og í hljóðbókinni ákveðin músík sem
tilheyri hverri rödd en höfundur tón-
listar er tónlistar- og útvarpsmað-
urinn Pétur Grétarsson. „Það er
ótrúlega mikil dýpt og mikið í mús-
íkinni sem bætir við hljóðheim verks-
ins sem mér finnst skipta miklu
máli,“ segir Þorsteinn.
Að máta eigið líf við slippinn
Þorsteinn segir ákveðinn leik fólg-
inn í þessu marghliða verki sínu og
líkir því við gamaldags tölvuleik með
ólíkum borðum. „Þú þarft að finna
einhverja vísbendingu til að komast
áfram og það eru slíkar vísbendingar
í bókinni ef fólk kýs,“ segir hann
glettinn. Undir lok bókarinnar er gef-
ið upp símanúmer og einfaldlega
skrifað að hægt sé að hafa samband
með því að hringja í það. Tilgang-
urinn liggur ekki fyrir en Þorsteinn
ábyrgist að alltaf verði svarað. „Ég
held að tækifærið í þessu verki, fyrir
þann sem er að lesa eða hlusta á það,
sé að máta eigið líf inn í slippinn og
sjá hvað er að gerast,“ segir hann.
„Eru einhverjar spurningar sem ég
þarf að spyrja mína nánustu og fá
svör við eða þarf ég að spyrja sjálfan
mig spurninga og fá svör við þeim?
Að því leyti vona ég að þetta sé hvatn-
ing og einhvers konar veganesti og
næring ef fólk kýs að fara í þessa
slippvinnu.“
Ljósmynd/Atli Már Hafsteinsson
Hugurinn endurskrifar söguna
Slippurinn verður að sögusviði og tengingu við lífsins sjó í marghliða verki Þorsteins J., Ég
skal vera ljósið „Ég veit að frásagnarhátturinn er krefjandi,“ segir Þorsteinn um textann
Í slipp Þorsteinn J. hefur
sent frá sér marghliða
verk, innblásið af slippn-
um í Reykjavíkurhöfn þar
sem myndin var tekin.