Morgunblaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
✝ Þórður JakopSigurðsson
fæddist á Ketils-
eyri við Dýrafjörð
21. júní 1946.
Hann lést á fjórð-
ungssjúkrahúsinu
á Ísafirði 5. nóv-
ember 2020.
Foreldrar hans
voru þau Sigurður
Friðfinnsson bú-
fræðingur frá
Kjaransstöðum, f. 26.3. 1916,
d. 19.2. 2002, og Björnfríður
Ólafía Magnúsdóttir frá Stóra-
Galtadal á Fellsströnd, f.
14.12. 1926, d. 11.5. 2006.
Þórður var elstur af 17
systkinum. Hann eignaðist
þrjár dætur með fyrrverandi
eiginkonu sinni, Ólínu Sigríði
Jónsdóttur, f. 14.6. 1946. Það
eru Björnfríður Fanney, f.
5.11. 1965. Hún eignaðist fjór-
ar dætur með fyrrverandi eig-
inmanni sínum, Jóni Kjerúlf, f.
1963. Þær eru Ingiborg Jó-
hanna, f. 1991, börn hennar
eru Óskar Jón, f. 2016, og
Ágústa Fönn, f. 2019. Karín
Mist, f. 1993, Salóme Björt, f.
1995, Viktoría Fönn, f. 1996.
Núverandi sambýlismaður er
Lars Hallsteinsson, f. 1955, og
eiga þau eina dóttur, Evu
Katrínu, f. 2004.
Sigríður Fjóla, f. 9.12. 1966.
leiðin í Reykjanesskóla og
kláraði hann þar 1. og 2.
bekk. Eftir það gerðist hann
gröfumaður í tvö sumur.
Hann vann um tíma í smiðj-
unni og við beitingar. Var
hann til sjós nokkrar vertíðir
á MB Þorgrími og Framnes-
inu. Þórður hóf ásamt Frið-
finni bróður sínum sína eigin
útgerð og fjárfestu þeir í
trillubát sem nefndur var
Dýrfirðingur. Sá bátur slitn-
aði frá bryggju í vonskuveðri,
rak upp í fjöru og eyðilagðist.
Fékk hann þá bátsskrokk frá
Noregi sem hann byggði upp
sjálfur, enda var hann mikill
hagleiksmaður. Stundaði hann
veiðar á honum næstu árin,
meðal annars frá Sandgerði
og Rifi, auk þess að reka um
tíma fiskvinnsluna Unni á
Þingeyri. Hann var mikill
harmonikkuunnandi og byrj-
aði snemma að spila á harm-
onikku og var hann virkur í
félagi Harmonikkukarlanna á
Þingeyri frá upphafi.
Þórður veiktist hastarlega í
byrjun febrúar á þessu ári en
náði sér ágætlega á strik og
átti gott sumar en veiktist síð-
an aftur fyrir nokkrum vik-
um.
Útför Þórðar fer fram í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
Vegna fjöldatakmarkana
verða aðeins nánustu aðstand-
endur viðstaddir en streymt
verður frá athöfninni á:
https://youtu.be/t7WFWoDhNw4
Virkan hlekk á streymi má
einnig finna á:
https:/www.mbl.is/andlat
Hún eignaðist tvo
syni með fyrrver-
andi sambýlis-
manni sínum,
Birki Marteins-
syni, f. 1965. Það
eru Þormar Snær
Birkisson, f. 1987,
og Aron Örn
Birkisson, f. 1990.
Aron á 3 syni, Al-
exander Óðin, f.
2016, Hafþór Ými,
f. 2018, og Heimi Tý, f. 2020.
María Dagrún, f. 06.01.
1970. Sambýlismaður hennar
er Vigfús Jónsson, f. 1971.
Þau eiga tvo syni. Það eru Jón
Vigfússon, f. 1992, og Jakob
Daníel Vigfússon, f. 1998.
Þórður ólst upp við ýmis
sveitastörf eins og tíðkaðist í
þá daga. Hann tók virkan þátt
í ræktunarframkvæmdum á
Ketilseyri og víðar. Hann var
ekki hár í loftinu þegar hann
var farinn að vinna á trak-
tornum við að plægja og herfa
til að bylta móum og mýrum í
gróin tún. Hann var einn vet-
ur í barnaskólanum á Þing-
eyri og eftir það var haldinn
farskóli, bæði á Ketilseyri og í
Haukadal. Hann lauk fulln-
aðarprófi vorið 1960 frá
Haukadalsskóla. Eftir það fór
hann að vinna ýmis störf, fisk-
vinnslu og fleira. Síðan lá
Elsku pabbi. Það ótrúlega
hefur gerst. Þú ert farinn frá
okkur allt of fljótt. Við systurnar
vorum svo vissar um að þú næðir
þér eins og í vetur þar sem þú
varst svo ótrúlega seigur og lífs-
glaður maður. Verst þykir okkur
að hafa ekki geta verið með þér
síðustu andartökin. Ég er svo
þakklát fyrir að hafa eytt með
þér sumrinu að mestu leyti, og
guð minn góður, það vantaði
ekki upp á plönin hjá þér að gera
þetta og gera hitt og þú ætlaðir
sko að fara á sjóinn aftur. Þú
varst búinn að ná þér svo vel.
Mér er minnisstæð ferðin okkar
til Reykjavíkur í sumar til augn-
læknis en þú áttir að fá nýja
augasteina núna í lok nóvember
og það sem þú hlakkaðir til, það
yrði nýtt líf fyrir þig. En á ferða-
laginu gerðist margt skondið og
skemmtilegt sem ég geymi. Þú
þurftir að fara á Ísafjörð nokkuð
oft í blóðgjöf síðustu vikurnar og
dvelja þar í 2-3 daga. Í lok ágúst
var ég að sækja þig eftir slíka
ferð, en hafði misstigið mig illa
tveimur dögum fyrr og ákvað að
láta líta á fótinn í leiðinni og kom
þá í ljós að ég var brotin og var
sett í gifs og þú, sjúklingurinn
sem ég var að sækja, þurftir að
keyra mig út í hjólastól. Hlógum
við að þessu og fólkið á sjúkra-
húsinu líka, en þetta stytti dvöl
mína að þessu sinni. Þú varst
ekki bara sjómaður, mér fannst
þú geta allt. Gerðir við bíla,
smíðaðir ýmsa hluti, verkaðir
harðfisk sem var alveg dásam-
legur, nýttir alla hluti og hentir
helst engu. Að ógleymdri harm-
onikkunni sem þú unnir, sem
hljómaði allan minn uppvöxt
ásamt spilinu á orgelið.
Mér um hug og hjarta nú
hljómar sætir líða.
Óma vorljóð, óma þú
út um grundir víða.
Hljóma þar við hús þú sér
hýrleg blómin skína.
Fríðri rós, er fyrir ber,
færðu kveðju mína.
(Steingrímur Thorsteinsson)
Blessuð sé minning þín.
Þín dóttir,
Sigríður Fjóla Þórðardóttir.
Elsku pabbi, þá ertu farinn í
sumarlandið, allt of snemma að
mínu mati, líkami þinn var orð-
inn veikur og hjartað þreytt.
Lífsvilji þinn var sterkur sem
sýndi sig í vor þegar þú veiktist
í seinna skiptið og þér vart hug-
að líf en þú komst öllum á óvart
og áttir nokkrar góðar vikur.
Ég kom vestur í lok maí og var
út júní og er ég mikið þakklát
fyrir það. Þú varst heima á
Fjarðargötunni í nokkra daga
en fluttir um miðjan júní á dval-
arheimilið Tjörn þar sem þú
dvaldir fram í októberlok. Þú
fékkst skutlu sem þú gast
ferðast um þorpið á og var það
mikið frelsi fyrir þig og þú fórst
nánast daglega heim á Fjarð-
argötuna, þar sem þú vildir
helst vera. Þú varst ótrúlega
minnugur og víðlesinn og
þekktir Dýrafjörðinn vel og
sögu hans, sem gaman var að
hlusta á. Þú varst pabbi sem gat
allt og allt lék í höndunum á þér.
Músíkalskur varstu og elskaðir
að spila á harmonikkuna þína
og var hún þér mikil sáluhjálp.
Þú kenndir mér að keyra á
Land-Roverinn þinn og var
hann í miklu uppáhaldi hjá mér.
Ég var alltaf mikil pabbastelpa
þótt örlögin hafi gert það að
verkum að ég ólst upp hjá móð-
urömmu. Ég skottaðist mikið í
kringum þig á bryggjunni, í
bátnum þínum Dýrfirðingi, í
beitingaskúrnum og smiðjunni
þinni sem var algjört ævintýri.
Mig langaði að verða sjómaður
og fór einn túr með þér en varð
svo hrikalega sjóveik að sá
draumur varð að engu. Ég er
nokkuð viss um að þú fannst og
heyrðir meira en við hin og það
hafi ekki alltaf verið gott að lifa
við. Ég vildi óska þess að styttra
hefði verið á milli okkar og stelp-
urnar mínar fengið að kynnast
þér betur en alltaf var gaman að
fara til afa Dúdda á Þingeyri
sem gerði besta harðfiskinn.
Nýtinn varstu á allt og allt end-
urnýtt sem hægt var. Þú hringd-
ir alltaf í mig á afmælinu mínu til
þess að óska mér til hamingju og
sagðir mér hvernig veðrið væri.
Hvort það væri eins og daginn
sem ég fæddist eða hvort það
væri öðruvísi, svo sagðir þú með
glettni: viltu vita hvenær þú
varst búin til? Lífsspeki þín var
einföld; að sjá það besta og já-
kvæða í fari hverrar manneskju
og lagðir ekki í vana þinn að
hallmæla eða dæma fólk og
mættu fleiri taka það sér til fyr-
irmyndar. Pabbi, þú varst góður
maður, með góða nærveru sem
er eftirsóknarvert. Þakkir til
allra sem sýndu samhug og
stuðning í veikindum hans, s.s.
bræðra hans og starfsfólks
sjúkrahússins á Ísafirði.
Hver minning dýrmæt perla að lífsins
liðnum degi
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem
gleymist eigi
og gæfa var það öllum sem fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Takk fyrir allt, pabbi minn.
Sjáumst síðar.
Þín dóttir,
Björnfríður Fanney.
Elsku pabbi minn, hér sit ég
ein og skrifa til þín minningar-
orð sem mér finnst alls ekki
tímabær. En svo er víst raunin
því miður. Mér fannst við eiga
nægan tíma saman eftir og þú
áttir eftir að gera svo ótal margt,
en það er víst ekki alltaf spurt að
því þegar veikindi banka upp á.
Þung eru skrefin sem aldrei
fyrr sem nú eru tekin, nú þegar
þú ert farinn frá okkur.
Þú ert nú kominn í faðm
margra ástvina þinna í sumar-
landinu sem muna hlúa að þér og
faðma og veikindin þín horfin,
þú orðinn hress og kátur eins þú
alltaf varst.
Síðasta símtal okkar geymi ég
í hjartastað. Þegar þú varst orð-
inn mjög lasburða en þú varst
mjög æðrulaus í þínum veikind-
um og sagðist bara vera rólegur
því það þýddi ekkert annað. Í
vor þegar við hittumst á sjúkra-
húsinu á Ísafirði varstu mikið
veikur en þú komst til baka og
hresstist mjög bara við það að
hitta okkur og loks útskrifaður,
þó með hléum. Þú varst mikill
sjómaður og alltaf mjög fiskinn
á bátnum þínum Dýfirðingi, átt-
ir meira að segja útgerðina Unni
ehf., verkaðir mikinn harðfisk.
Þú varst snillingur í öllu sem þú
tókst þér fyrir hendur, harmon-
ikkuspilari varstu alla tíð og
elskaðir að spila á nikkuna hvort
sem var á tyllidögum eða upp á
gamanið og á orgelið spilaðir þú
líka.
Man þegar við systur vorum
oft að syngja með þér þegar þú
spilaðir undir oft um jólin. Man
líka þegar þú varst sjómaður á
litla framnesinu þegar þú hafðir
verið í siglingu og komst heim
og færðir mér risabók sem ég
gat staðið innan í með höfðið upp
úr. Ég var nú ekki há í loftinu þá
og þetta fannst mér alveg svaka-
lega skemmtilegt og spennandi
því engin af mínum vinkonum
átti svona spennandi bók.
Ég fór nú oft með þér í stuttar
sjóferðir, t.d. yfir fjörðinn þegar
þú varst að sækja Handasveita-
fólkið til vinnu í sláturhúsið á
haustmánuðum á hverju ári.
Elsku pabbi minn, það eru svo
ótal margar spurningar sem
vakna og mörgum spurningum
enn ósvarað.
En þangað til við hittumst á
ný: Hvíl þú í friði, elsku pabbi
minn.
Þín dóttir,
María Dagrún.
Þórður Jakop
Sigurðsson
✝ Þórey ErlaRagnarsdóttir
fæddist 27. júní
1941 í Reykjavík.
Erla andaðist á
Landspítalanum við
Hringbraut 8. nóv-
ember 2020. For-
eldrar Erlu eru
Ragnar Þor-
steinsson, f. 1895, d.
1967 og Alda Jenný
Jónsdóttir, f. 1911,
d. 1998.
Systkini Erlu eru Þorsteinn
Guðni Þór, f. 1939, d. 1998, Hall-
dór S. Hafsteinn, f. 1942, Ragn-
heiður Sigurrós, f. 1946 og Guð-
mundur Ragnar, f. 1954.
Hálfsystkini Erlu eru föður-
megin Gunnar Aðalsteinn, f.
1922, d. 1954 og móðurmegin
Unnur Lilja, f. 1930, Oddný Þor-
gerður, f. 1931, d. 2017 og Sig-
og á hún 2 dætur, Selmu og So-
fíu. Sonur Ragnars er Rögnvald-
ur Ágúst.
3) Rögnvaldur Þór, f. 1965,
maki Rakel Sigurðardóttir. Son-
ur þeirra er Bjartur. Fyrir átti
Rögnvaldur Daníel og Rakel Ei-
rík Atla.
4) Alda Jenný, f. 1967, maki
Arne Sólmundsson og eru börn
þeirra Alex Berg og Jana Ruth.
Erla ólst upp í Reykjavík og
vann við ýmis störf við verslun,
eigin heildsölu og á leikskól-
anum Múlaborg en síðustu
starfsárin var hún hjá fjár-
málaráðuneytinu. Erla og Rögn-
valdur bjuggu lengst af í Reykja-
vík fyrir utan 3ja ára búsetu á
Dalvík. Rögnvaldur andaðist 12.
ágúst 1992.
Erla giftist Finnboga Guð-
mundssyni 26.6. 2008 en hann
andaðist 1. janúar 2018. Börn
hans eru Ágústa, Guðmundur,
Arnbjörg og Ragnhildur.
Erla var mikil hannyrðakona
og hafði mikinn áhuga á bæði út-
saum og prjónaskap.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
rún Hanna, f. 1934,
d. 1986. Erla giftist
Rögnvaldi Ólafssyni
26. desember 1962,
foreldrar hans voru
Ólafur Haraldur
Stefánsson, f. 1908,
d.1986 og Sólrún El-
ín Rögnvaldsdóttir,
f. 1906, d. 1972.
Erla og Rögnvaldur
eignuðust fjögur
börn:
1) Sólrún Elín, f. 1960, maki
Sigurður Ingason og eru dætur
þeirra Þórey Erla, sambýlis-
maður hennar er Atli Vignisson
og eiga þau tvo syni, Róbert Inga
og Silla Þór, og Hulda Sigrún,
sambýlismaður hennar er Arnar
Freyr Þrastarson og eiga þau tvo
syni, Elmar Elís og Viktor Helga.
2) Ragnar, f. 1962, dóttir
Ragnars er Emilía Ruth, f. 1989
Mamma okkar hefur kvatt
þessa jarðvist og haldið á braut í
sumarlandið þar sem ástvinir
hennar hafa tekið vel á móti
henni. Mamma var kletturinn í lífi
okkar systkinanna, hún kenndi
okkur heiðarleika, réttsýni og að
vera góðar manneskjur. Mamma
hafði mikla réttlætiskennd, ól
okkur þannig upp og minnti okk-
ur reglulega á að koma fram við
aðra eins og við vildum að aðrir
kæmu fram við okkur. Við höfum
alltaf reynt að hafa það að leið-
arljósi og gátum ekki fengið betra
uppeldi. Við vitum að hún var
stolt af okkur og okkar fjölskyld-
um.
Í bæninni fann mamma frið og
ró og hún spjallaði oft við okkur
um kærleikann og ljósið sem
fylgdi henni alla tíð. Mamma var
næmari en flestir og skynjaði
hluti sem við hin sáum ekki. Oft-
ar en ekki var hún búin að
hringja í okkur ef eitthvað var
að, þar sem hún var búin að finna
það á sér.
Mamma var mikill dugnaðar-
forkur sem kvartaði aldrei þrátt
fyrir veikindi og áföll sem hún
þurfti að takast á við í lífinu. Hún
var mjög sjálfstæð manneskja
sem tókst á við sín verkefni í líf-
inu af krafti, eljusemi og æðru-
leysi er við átti. Fallegur engill
hefur nú kvatt okkur og við minn-
umst mömmu með þakklæti,
hlýju og söknuði og yljum okkur
yfir fallegum minningum sem
aldrei gleymast.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Ómar Ragnarsson/Gísli á Uppsölum)
Ef sérð þú gamla konu, þá minnstu
móður þinnar,
sem mildast átti hjartað og þyngstu
störfin vann
og fórnaði þér kröftum og fegurð
æsku sinnar
og fræddi þig um lífið og gerði úr
þér mann.
Þú veist, að gömul kona var ung og
fögur forðum
og fátækasta ekkjan gaf drottni
sínum mest.
Ó, sýndu henni vinsemd í verki og
í orðum.
Sú virðing sæmir henni og móður
þinn best.
Því aðeins færð þú heiðrað og metið
þína móður,
að minning hennar verði þér alltaf
hrein og skír,
og veki hjá þér löngun til að vera
öðrum góður
og vaxa inn í himin – þar sem
kærleikurinn býr.
(Davíð Stefánsson)
Elsku mamma, minning þín er
ljós í lífi okkar og við þökkum þér
fyrir allt sem þú gerðir fyrir okk-
ur. Við erum mjög stolt og þakk-
lát fyrir að hafa fengið að vera
börnin þín. Takk mamma.
Sólrún, Ragnar,
Rögnvaldur og Alda.
Elsku amma okkar lést á
Landspítalanum eftir stutt en
erfið veikindi.
Amma var sú sem hægt var að
leita til, alltaf svo skilningsrík og
heiðarleg. Hún kenndi manni
margt í gegnum árin. Ömmu
þótti vænt um fólkið sitt og átti
fjöldann allan af barna- og barna-
barnabörnum sem munu sakna
hennar nú þegar hún er farin.
Minningarnar um ömmu munu
lifa hjá okkur öllum, takk fyrir
allt elsku amma okkar.
Við kveðjum þig, kæra amma,
Við kveðjum þig, kæra amma,
með kinnar votar af tárum.
Á ást þinni enginn vafi,
til okkar, við gæfu þá bárum.
Horfin er hönd þín sem leiddi
á hamingju- og gleðifundum,
ástúð er sorgunum eyddi,
athvarf á reynslustundum.
Margt er í minninga heimi
mun þar ljósið þitt skína.
Englar hjá guði þig geymi,
við geymum svo minningu þína.
(Höf. ók.)
Þórey Erla og
Hulda Sigrún.
Látin er elsku Erla okkar.
Það var sárt að missa þessa
yndislegu konu, sem var hluti af
okkar lífi.
Þegar við rifjum upp þann
tíma sem við áttum samleið þá
situr eftir þakklæti og heiður að
hafa fengið að njóta allra þeirra
stunda sem við áttum saman.
Erla kom inn í líf okkar systk-
ina og fjölskyldna fyrir 25 árum
þegar pabbi og Erla felldu hugi
saman. Þau áttu yndisleg ár sam-
an og nutu lífsins enda komin á
þann aldur að kunna að njóta og
geta leyft sér að njóta.
Eftir því sem við kynntumst
Erlu betur þá var augljósara
hvernig hún vildi búa að hlutun-
um til lengri tíma og að mikil-
vægt væri að gefast aldrei upp,
hlusta ekki á úrtölur eða dvelja of
lengi við yfirborðið.
Hún horfði fram á veginn og
var aldrei að velta sér upp úr
hlutum sem skiluðu engu.
Það var áhugavert að sjá
hversu Erla og pabbi áttu samleið
með þessa lífssýn.
Margar eru sögurnar af góðri
nærveru hvort heldur sem farið
var í ferðalag hér heima eða er-
lendis, svo ekki sé minnst á stang-
veiði eða bústaðaferðirnar þar
sem ávallt var nóg fyrir stafni.
Hefðbundnar rammíslenskar
matarstundir með Erlu og pabba
áttu sinn sess og dreifðust jafnt
út árið því bæði voru þau miklir
matgæðingar.
Síðustu árin þegar faðir okkar
var á lífi nutu þau þess að dvelja
vetrarlangt á Spáni. Erlu fannst
yndislegt að komast þar í birtuna
og hlýjuna.
Erla var einstök á svo marga
vegu. Hún var umfram allt kær-
leiksrík, skemmtileg, hörkudug-
leg og traust kona, sem ávallt var
tilbúin að rétta hjálparhönd.
Það var dýrmætt að hafa átt
hana að og gott að minnast henn-
ar.
Nú kveðjum við Erlu og erum
þakklát fyrir það sem hún kenndi
okkur.
Við biðjum fyrir góðri leið í
sumarlandið og vitum að vel verð-
ur tekið á móti henni en við hin í
jarðríki munum reisa henni minn-
isvarða í hugum okkar.
Gulli og perlum að safna sér
sumir endalaust reyna.
Vita ekki að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina.
En viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
(Hjálmar Freysteinsson)
Hvíl í friði,
Finnbogabörn,
Ágústa, Guðmundur,
Arnbjörg, Ragnhildur
og fjölskyldur.
Þórey Erla
Ragnarsdóttir