Morgunblaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Toppnum hefur verið náð í annarri
bylgju kórónuveirusýkinga í Frakk-
landi, að sögn heilbrigðisstofnunar
landsins, Sante Publique. Hún varar
þó við og segir að ekki skuli slakað í
bráð á verndaraðgerðum í stríðinu
við veiruna.
Með útgöngubanni á almenning og
umfangsmikilli lokun fyrirtækja hafa
nýsmit dregist saman um 40% und-
anfarna viku, innlagnir á sjúkrahús
skruppu saman um 13% og nýjum
sjúklingum á bráðadeildum fækkaði
um 9%, að sögn Sante Publique.
Tölfræðin var vatn á myllu versl-
unareigenda sem sótt hafa hart að fá
að hafa búðir sínar opnar fram til jóla
þegar umsvifin margfaldast. Velta
menn vöngum á stjórnarheimilinu yf-
ir hvað gera skuli við svarta föstudag-
inn svonefnda sem hefur verið versl-
uninni góð búbót.
„Þótt mælingarnar séu enn háar
gefa þær samt til kynna að toppurinn
á bylgju tvö sé að baki,“ sagði heil-
brigðisstofnunin. Þá er jafnvægi
komið á í dauðsföllum eftir mikla
fjölgun í nokkrar vikur. Í þessari viku
var fjöldi þeirra 3.756 en 3.817 vikuna
áður.
Bein áhrif
Franskar borgir sem fyrstar tak-
mörkuðu útivist fólks sjá þessa dag-
ana árangur þess í snörpum sam-
drætti nýsýkinga, að sögn Sante
Publique sem bætir við að alla jafna
taki samdrátturinn kipp eftir um 10
daga innilokun. Hinn 17. október lýsti
ríkisstjórnin yfir útgöngubanni í Par-
ís og nokkrum stærstu borgum
landsins – og aðrar borgir og bæir
sigldu í viku seinna. Hefur útgöngu-
bann því verið í landinu öllu – og um-
talsverður fjöldi fyrirtækja lokaður –
frá 30. október. Bannið hefur ekki
verið eins strangt og sl. vor því ólíkt
og þá eru skólar nú starfandi og auk
þess verslanir með brýnar nauðsynj-
ar.
Heilbrigðisráðherrann Olivier
Veran sagði í fyrradag að sem stæði
væri ekki á dagskrá að létta á varn-
araðgerðunum gegn kórónuveirunni.
Í gær sagði svo samgönguráðherrann
Jean-Baptiste Djebbari að alltof
snemmt væri að segja til um hvort
fólk gæti ferðast milli landshluta um
hátíðarnar því fækkun sýkinga væri á
viðkvæmu stigi.
Frönsku ríkisjárnbrautirnar hafa
fækkað ferðum um 70% en áforma að
framboð lestarferða verði komið í
eðlilegt horf frá og með 15. desember.
Metdagur í verslun
Fjármálaráðuneytið í París boðaði
til fundar í gær með fulltrúum versl-
unarinnar um föstudaginn svarta,
sem fellur á 27. nóvember, eftir viku.
Þessi bandaríska verslunarhátíð hef-
ur unnið á um heim allan og segir til
að mynda lúxusverslunarhúsið Galer-
ies Lafayette að enginn annar við-
skiptadagur gefi eins mikið af sér og
þessi. Til stóð að ræða þann mögu-
leika á fundinum að fresta svarta
föstudeginum um viku. Embættis-
menn sögðust óttast að áhlaup al-
mennings á verslunarhúsin í næstu
viku gæti skaðað árangurinn af fækk-
un nýsmita upp á síðkastið.
Franska verslunin segir að fáist
verslanir ekki opnaðar 27. nóvember
muni netverslunarrisum eins og
Amazon fært í hendur ósanngjarnt
viðskiptalegt forskot. Forstjóri Ama-
zon í Frakklandi, Frederic Duval,
hefur lýst fyrirtæki sitt fylgjandi því
að færa svartkaupadaginn aftur til 4.
desember.
Spánverjar sögðust í gær stefna að
því að hafa bólusett „mjög stóran
hlut“ þegna sinn á miðju næsta ári,
2021, en þeir telja 47 milljónir. Pedro
Sanchez forsætisráðherra sagði í gær
að ríkisstjórnin hefði samið yfirgrips-
mikla áætlun um bólusetningu þjóð-
arinnar. Eru Spánverjar ásamt Þjóð-
verjum fyrsta aðildarríki Evrópu-
sambandsins (ESB) til að kortleggja
allsherjarbólusetningu vegna Covid--
veirunnar.
Bandaríski lyfjarisinn Pfizer og
þýskt samstarfsfyrirtæki hans BioN-
Tech sóttu í gær um neyðarheimild til
að hefja bólusetningu með bóluefni
þeirra. Skírskotaði fyrirtækið til auk-
inna sýkinga sem leitt hefðu til lok-
unar skóla í New York og útgöngu-
banns að næturþeli í Kaliforníu.
Heimsbyggðin mænir nú til vís-
indamanna eftir hjálp gegn kórónu-
veirufaraldrinum og annarri sýkinga-
bylgju sem undanfarna daga hefur
leitt til afturhvarfs til takmarkana á
útiveru fólks og lokunar í athafnalífi.
„Hlutverk okkar er að leggja til
öruggt og skilvirkt bóluefni og vinna
okkar í því efni hefur aldrei verið jafn
aðkallandi,“ sagði Albert Bourla, for-
stjóri Pfizer. „Umsóknin um notkun-
arheimild í Bandaríkjunum er merk-
ur áfangi á þeirri vegferð okkar að
leggja heimsbyggðinni allri til bólu-
efni gegn Covid-19-veirunni.“ Yfir-
maður vísindateymisins sem þróað
hefur bóluefnið væntir þess að leyfi
matvæla- og lyfjastofnunar Banda-
ríkjanna (USFDA) fáist í jólamánuð-
inum.
Bóluefni BioNTech/Pfizer og ann-
að í þróun hjá bandaríska fyrirtækinu
Moderna virðast hafa tekið forystu í
kapphlaupi lyfjarisa að þróa lyf gegn
kórónuveirunni. Forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, Ursula von
der Leyen, sagði í gær að ESB gæti
samþykkt bæði tvö til bólusetningar
fyrir árslok.
Kórónuveirufaraldurinn hefur alls
kostað 1,4 milljónir manna lífið og 57
milljónir sýkst. Raunveruleikinn
kann að vera annar og meiri vegna
mismunandi skráninga, og einnig
sakir þess að mörg tilfelli sleppa
framhjá eftirliti. Ríkisstjórnir um
heim allan reiða sig nú á bóluefnin
sem hillir undir. Þess er vænst að á
nýju ári geti notkun þeirra afstýrt
lokun fyrirtækja og almennum hæga-
gangi samfélagsins.
Breska stjórnin ákvað í dag að
framlengja aðgerðir gegn kórónu-
veirunni á Norður-Írlandi um tvær
vikur. Áfram verða verslanir, krár og
veitingahús lokuð til 11. desember en
kaffihús, hárgreiðslustofur og snyrti-
stofur fá að hafa opið í viku en verða
síðan að skella í lás 27. nóvember.
Auk þessa verður samgangur fólks
áfram háður takmörkunum og allir
sem stundað geti fjarvinnu að heiman
notfæri sér það.
Í Bandaríkjunum hafa ekki fleiri
smitast eða látist en í fyrradag. Dóu
2.239 manns og rúmlega 200.000
sýktust. Verst var ástandið í Kali-
forníu. Hafa bandarísk heilbrigðis-
yfirvöld hvatt landsmenn til að sleppa
ferðalögum í kringum þakkargjörð-
arhátíðina.
Önnur veirubylgjan yfir toppinn
Aðgerðir framlengdar á Norður-Írlandi Í Bandaríkjunum dóu 2.239 manns og rúmlega 200.000
sýktust í gær Hvetja landsmenn til að sleppa ferðalögum í kringum þakkargjörðarhátíðina
AFP
Verslun Vegna mikils slagkrafts kórónuveirunnar er óttast að takmarka verði umsvif almennings. Jólaverslun gæti
verið í uppnámi. Ræðst það á næstu tveimur vikum, en hér virðist verslun í London tilbúin að taka við viðskiptavinum.
AFP
Aðgerðir Pedro Sanchez forsætis-
ráðherra Spánar skýrir frá stórtæk-
um áformum um bólusetningar.
Emmanuel Macron Frakklands-
forseti hefur boðið múslimaleiðtog-
um í landinu að samþykkja „skrá yfir
lýðveldisgildi“ en það er liður í að-
gerðum hans gegn róttækni meðal
múslima.
Macron veitti leiðtogum stærstu
samtaka múslima, CFCM, hálfan
mánuð til að samþykkja réttinda-
skrána. Franska múhameðstrúar-
ráðið hefur fallist á að stofna þjóð-
arráð bænapresta til að gefa út
starfsskírteini þeim til handa, sem
hægt verður að kippa til baka.
Í réttindaskránni nýju segir að ísl-
am sé trúarbrögð en ekki pólitísk
stefna. Bann er lagt við „erlendri
íhlutun“ í hópa félög og samtök
múslima.
Í framhaldi af ódæðum í haust hef-
ur Macron sterklega varið aðskilnað
ríkis og kirkju í Frakklandi. Þeir
Gerald Darmanin innanríkisráð-
herra funduðu með átta helstu leið-
togum franska múhameðstrúarráðs-
ins í Elysee-höll.
Macron boðaði nýjar aðgerðir til
að takast á við „íslamskan aðskilnað“
í Frakklandi. Verið er að skrifa víð-
tækt lagafrumvarp sem ætlað er að
sporna við trúarlegri róttækni.
Kveðið er á um þungar refsingar
þeirra sem ögra og hóta opinberum
embættismönnum á trúarlegum for-
sendum.
Heimafræðsla barna múslima
verður bönnuð og gefnar út kennitöl-
ur fyrir skólabörn svo fylgjast megi
með því hvort þau sæki skóla. For-
eldrar sem brjóta lögin geta átt von á
allt að hálfs árs fangelsi og þungum
fjársektum. agas@mbl.is
AFP
Gildi Emmanuel Macron herðir
þumalskrúfur trúarleiðtoga múslima.
Setur múslim-
um úrslitakosti
Gert að samþykkja „lýðveldisgildin“
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt