Morgunblaðið - 21.11.2020, Side 24

Morgunblaðið - 21.11.2020, Side 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020 Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Toppnum hefur verið náð í annarri bylgju kórónuveirusýkinga í Frakk- landi, að sögn heilbrigðisstofnunar landsins, Sante Publique. Hún varar þó við og segir að ekki skuli slakað í bráð á verndaraðgerðum í stríðinu við veiruna. Með útgöngubanni á almenning og umfangsmikilli lokun fyrirtækja hafa nýsmit dregist saman um 40% und- anfarna viku, innlagnir á sjúkrahús skruppu saman um 13% og nýjum sjúklingum á bráðadeildum fækkaði um 9%, að sögn Sante Publique. Tölfræðin var vatn á myllu versl- unareigenda sem sótt hafa hart að fá að hafa búðir sínar opnar fram til jóla þegar umsvifin margfaldast. Velta menn vöngum á stjórnarheimilinu yf- ir hvað gera skuli við svarta föstudag- inn svonefnda sem hefur verið versl- uninni góð búbót. „Þótt mælingarnar séu enn háar gefa þær samt til kynna að toppurinn á bylgju tvö sé að baki,“ sagði heil- brigðisstofnunin. Þá er jafnvægi komið á í dauðsföllum eftir mikla fjölgun í nokkrar vikur. Í þessari viku var fjöldi þeirra 3.756 en 3.817 vikuna áður. Bein áhrif Franskar borgir sem fyrstar tak- mörkuðu útivist fólks sjá þessa dag- ana árangur þess í snörpum sam- drætti nýsýkinga, að sögn Sante Publique sem bætir við að alla jafna taki samdrátturinn kipp eftir um 10 daga innilokun. Hinn 17. október lýsti ríkisstjórnin yfir útgöngubanni í Par- ís og nokkrum stærstu borgum landsins – og aðrar borgir og bæir sigldu í viku seinna. Hefur útgöngu- bann því verið í landinu öllu – og um- talsverður fjöldi fyrirtækja lokaður – frá 30. október. Bannið hefur ekki verið eins strangt og sl. vor því ólíkt og þá eru skólar nú starfandi og auk þess verslanir með brýnar nauðsynj- ar. Heilbrigðisráðherrann Olivier Veran sagði í fyrradag að sem stæði væri ekki á dagskrá að létta á varn- araðgerðunum gegn kórónuveirunni. Í gær sagði svo samgönguráðherrann Jean-Baptiste Djebbari að alltof snemmt væri að segja til um hvort fólk gæti ferðast milli landshluta um hátíðarnar því fækkun sýkinga væri á viðkvæmu stigi. Frönsku ríkisjárnbrautirnar hafa fækkað ferðum um 70% en áforma að framboð lestarferða verði komið í eðlilegt horf frá og með 15. desember. Metdagur í verslun Fjármálaráðuneytið í París boðaði til fundar í gær með fulltrúum versl- unarinnar um föstudaginn svarta, sem fellur á 27. nóvember, eftir viku. Þessi bandaríska verslunarhátíð hef- ur unnið á um heim allan og segir til að mynda lúxusverslunarhúsið Galer- ies Lafayette að enginn annar við- skiptadagur gefi eins mikið af sér og þessi. Til stóð að ræða þann mögu- leika á fundinum að fresta svarta föstudeginum um viku. Embættis- menn sögðust óttast að áhlaup al- mennings á verslunarhúsin í næstu viku gæti skaðað árangurinn af fækk- un nýsmita upp á síðkastið. Franska verslunin segir að fáist verslanir ekki opnaðar 27. nóvember muni netverslunarrisum eins og Amazon fært í hendur ósanngjarnt viðskiptalegt forskot. Forstjóri Ama- zon í Frakklandi, Frederic Duval, hefur lýst fyrirtæki sitt fylgjandi því að færa svartkaupadaginn aftur til 4. desember. Spánverjar sögðust í gær stefna að því að hafa bólusett „mjög stóran hlut“ þegna sinn á miðju næsta ári, 2021, en þeir telja 47 milljónir. Pedro Sanchez forsætisráðherra sagði í gær að ríkisstjórnin hefði samið yfirgrips- mikla áætlun um bólusetningu þjóð- arinnar. Eru Spánverjar ásamt Þjóð- verjum fyrsta aðildarríki Evrópu- sambandsins (ESB) til að kortleggja allsherjarbólusetningu vegna Covid-- veirunnar. Bandaríski lyfjarisinn Pfizer og þýskt samstarfsfyrirtæki hans BioN- Tech sóttu í gær um neyðarheimild til að hefja bólusetningu með bóluefni þeirra. Skírskotaði fyrirtækið til auk- inna sýkinga sem leitt hefðu til lok- unar skóla í New York og útgöngu- banns að næturþeli í Kaliforníu. Heimsbyggðin mænir nú til vís- indamanna eftir hjálp gegn kórónu- veirufaraldrinum og annarri sýkinga- bylgju sem undanfarna daga hefur leitt til afturhvarfs til takmarkana á útiveru fólks og lokunar í athafnalífi. „Hlutverk okkar er að leggja til öruggt og skilvirkt bóluefni og vinna okkar í því efni hefur aldrei verið jafn aðkallandi,“ sagði Albert Bourla, for- stjóri Pfizer. „Umsóknin um notkun- arheimild í Bandaríkjunum er merk- ur áfangi á þeirri vegferð okkar að leggja heimsbyggðinni allri til bólu- efni gegn Covid-19-veirunni.“ Yfir- maður vísindateymisins sem þróað hefur bóluefnið væntir þess að leyfi matvæla- og lyfjastofnunar Banda- ríkjanna (USFDA) fáist í jólamánuð- inum. Bóluefni BioNTech/Pfizer og ann- að í þróun hjá bandaríska fyrirtækinu Moderna virðast hafa tekið forystu í kapphlaupi lyfjarisa að þróa lyf gegn kórónuveirunni. Forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, Ursula von der Leyen, sagði í gær að ESB gæti samþykkt bæði tvö til bólusetningar fyrir árslok. Kórónuveirufaraldurinn hefur alls kostað 1,4 milljónir manna lífið og 57 milljónir sýkst. Raunveruleikinn kann að vera annar og meiri vegna mismunandi skráninga, og einnig sakir þess að mörg tilfelli sleppa framhjá eftirliti. Ríkisstjórnir um heim allan reiða sig nú á bóluefnin sem hillir undir. Þess er vænst að á nýju ári geti notkun þeirra afstýrt lokun fyrirtækja og almennum hæga- gangi samfélagsins. Breska stjórnin ákvað í dag að framlengja aðgerðir gegn kórónu- veirunni á Norður-Írlandi um tvær vikur. Áfram verða verslanir, krár og veitingahús lokuð til 11. desember en kaffihús, hárgreiðslustofur og snyrti- stofur fá að hafa opið í viku en verða síðan að skella í lás 27. nóvember. Auk þessa verður samgangur fólks áfram háður takmörkunum og allir sem stundað geti fjarvinnu að heiman notfæri sér það. Í Bandaríkjunum hafa ekki fleiri smitast eða látist en í fyrradag. Dóu 2.239 manns og rúmlega 200.000 sýktust. Verst var ástandið í Kali- forníu. Hafa bandarísk heilbrigðis- yfirvöld hvatt landsmenn til að sleppa ferðalögum í kringum þakkargjörð- arhátíðina. Önnur veirubylgjan yfir toppinn  Aðgerðir framlengdar á Norður-Írlandi  Í Bandaríkjunum dóu 2.239 manns og rúmlega 200.000 sýktust í gær  Hvetja landsmenn til að sleppa ferðalögum í kringum þakkargjörðarhátíðina AFP Verslun Vegna mikils slagkrafts kórónuveirunnar er óttast að takmarka verði umsvif almennings. Jólaverslun gæti verið í uppnámi. Ræðst það á næstu tveimur vikum, en hér virðist verslun í London tilbúin að taka við viðskiptavinum. AFP Aðgerðir Pedro Sanchez forsætis- ráðherra Spánar skýrir frá stórtæk- um áformum um bólusetningar. Emmanuel Macron Frakklands- forseti hefur boðið múslimaleiðtog- um í landinu að samþykkja „skrá yfir lýðveldisgildi“ en það er liður í að- gerðum hans gegn róttækni meðal múslima. Macron veitti leiðtogum stærstu samtaka múslima, CFCM, hálfan mánuð til að samþykkja réttinda- skrána. Franska múhameðstrúar- ráðið hefur fallist á að stofna þjóð- arráð bænapresta til að gefa út starfsskírteini þeim til handa, sem hægt verður að kippa til baka. Í réttindaskránni nýju segir að ísl- am sé trúarbrögð en ekki pólitísk stefna. Bann er lagt við „erlendri íhlutun“ í hópa félög og samtök múslima. Í framhaldi af ódæðum í haust hef- ur Macron sterklega varið aðskilnað ríkis og kirkju í Frakklandi. Þeir Gerald Darmanin innanríkisráð- herra funduðu með átta helstu leið- togum franska múhameðstrúarráðs- ins í Elysee-höll. Macron boðaði nýjar aðgerðir til að takast á við „íslamskan aðskilnað“ í Frakklandi. Verið er að skrifa víð- tækt lagafrumvarp sem ætlað er að sporna við trúarlegri róttækni. Kveðið er á um þungar refsingar þeirra sem ögra og hóta opinberum embættismönnum á trúarlegum for- sendum. Heimafræðsla barna múslima verður bönnuð og gefnar út kennitöl- ur fyrir skólabörn svo fylgjast megi með því hvort þau sæki skóla. For- eldrar sem brjóta lögin geta átt von á allt að hálfs árs fangelsi og þungum fjársektum. agas@mbl.is AFP Gildi Emmanuel Macron herðir þumalskrúfur trúarleiðtoga múslima. Setur múslim- um úrslitakosti  Gert að samþykkja „lýðveldisgildin“ Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.