Morgunblaðið - 21.11.2020, Blaðsíða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 2020
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Draumar eru stór hluti af vitundar-
lífi okkar og þeir eru enn samofnir
menningunni. Draumar lýsa upp
djúpið innra með okkur og allt sem
þeim tengist er ekki svo fjarlægt í
nútímanum, ég hef fengið símtöl eft-
ir að bókin mín kom út þar sem fólk
segir mér frá draumum sínum, að
bókin hafi opnað á þá,“ segir Ófeigur
Sigurðsson rithöfundur sem nýlega
sendi frá sér bókina Váboðar, en þar
koma draumar og fuglar m.a. mikið
við sögu. „Þetta eru smásögur og
sagnaþættir úr fortíð, nútíð og fram-
tíð, ég var að vinna með hefð alþýðu-
skrifa og frásagna en þessa bók
langaði til að verða skáldsaga. Ég
reyndi að halda henni í skorðum, en
sögurnar vildu tengjast og sama
fólkið og atburðir koma fyrir í fleiri
en einni sögu.“
Þegar Ófeigur er spurður að því
hvort hann lesi í sína eigin drauma,
segist hann vera að æfa sig í því.
„Okkur á heimilinu finnst gaman
að rýna í drauma, ég reyni líka að
lesa hvað Kol dreymir, hann er oft á
harðahlaupum í svefni og að berjast
við ketti og aðrar forynjur. Ég fór
einu sinni á draumanámskeið hjá
miðli og á tímabili skrifaði ég
draumadagbók, en ég hef líka áhuga
á hvernig hefur verið skrifað um
drauma og hvernig þeir birtast í
bókmenntum og alþýðuskrifum. Það
er ákveðin list að gera drauma
áhugaverða. Nítjándu aldar maður-
inn Brynjúlfur Jónsson frá Minna-
Núpi ferðaðist um sveitir og skráði
drauma fólks. Bókin hans, Dulrænar
smásögur, hefur lengi verið nálægt
mér. Fyrsti draumurinn sem Brynj-
úlfur skráði er draumur langalang-
ömmu minnar, en hana dreymdi fyr-
ir hver yrði eiginmaður hennar, sem
kom fram mörgum árum síðar. Þá
var viðhorfið gagnvart draumum að
þeir væru hluti af veruleikanum og
sannleikanum, sem var rökstutt með
því hvernig draumar raungerðust.
Það er svo frjór skáldskapur í
draumum og einmitt þar er sann-
leikann að finna. Hinar leyndu víddir
innan drauma geyma mögulega eitt-
hvað í sér um framtíðina eða baksvið
veruleikans, hvort sem það er smá-
vægilegt eða stórvægilegt og það má
lesa í drauma til að koma í veg fyrir
sársauka eða að minnsta kosti vinna
úr honum,“ segir Ófeigur og bætir
við að draumar, fyrirboðar og fjar-
skyggni hafi alltaf verið hluti af bók-
menntum okkar.
„Ég heillaðist mikið af draumi
Flosa í Brennunjálssögu, þegar
bergrisinn gengur út úr Lómagnúp
og kallar fram nöfn hinna feigu
manna. Ég hafði aldrei lesið neitt
jafn flott. Þegar draumar koma fyrir
í bókmenntum þá fer textinn inn á
svið hins sammannlega, varðandi
tákn og fyrirboða og eitthvað hand-
an við líf og dauða. Sömu tákn og
sömu merkingar finnast í óskyldum
menningarsamfélögum. Ég hrífst af
þessu.“
Krækja augu úr skuldunautum
Í Váboðum varpar Ófeigur ljósi á
ýmislegt úr samtímanum sem betur
mætti fara. Neyslufirring nútímans
kemur þar við sögu, hégómi og yfir-
borðsmennska efnishyggjunnar þar
sem naumhyggjuheimili „bergmála
eymd þeirra sem þar búa“. Angist,
kvíði og kúgun ríkja meðal mann-
fólks sem titrar að innan í velmegun-
inni og á einum stað talar hann um
öld heiladauðans. Femínisma, karl-
mennsku og ótal margt fleira ber á
góma og náttúran og tengsl okkar
mannfólksins við hana eða öllu held-
ur tengslaleysið er ætíð nærri. Í sög-
unum bregður fyrir handrukkurum
sem „krækja augu úr vorum skuldu-
nautum“ og þar er einnig komið inn
á kynþáttahyggju og mansal hjá
starfsmannaleigu. Ófeigur segir að
sagan um starfsmannleiguna sé
byggð á draumi sem hann dreymdi.
„Ég skrifaði drauminn niður og
gerði hann að smásögu.“ En þó víða
sé dauði handan við horn í sögunum
þá er þar líka gáski, margt er fyndið
á óþægilegan hátt. Yfir öllu ríkir
ísmeygilegur óhugnaður, en þar er
líka hlýja og áminning um að við
megum ekki hætta að hlusta á
drauma og taka eftir táknum.
Covid kemur eins og áminning
Eyðilegging mannsins á heim-
kynnum sínum kemur við sögu og
þegar Ófeigur er spurður að því
hvort hann óttist að við mannskepn-
urnar séum að tortíma okkur, segir
hann að vissulega séu svartir tímar í
tengslum við loftslagsbreytingar, líf-
ríkið og dýraríkið.
„Covid kemur eins og áminning.
Mér finnst óhuggulegt þegar við bíð-
um eftir að aftur komist á „eðlilegt“
ástand, sem var í raun orðið mjög
óeðlilegt ástand. Við virðumst ætla
að snúa til baka af tvöföldum þunga
og ég get alveg dottið í svartsýnis-
köst út af þessari vegferð okkar. Ég
viðurkenni að ég hneigist að dekkri
bókmenntatextum, ég er til dæmis
hrifnastur af köflum í Biblíunni þar
sem Guð er reiður og hefnigjarn eins
og í Nahúm, en þá hrífst ég í raun af
tungumálinu og hughrifum textans,
orðsnilldinni. Eldklerkurinn Jón
Steingrímsson var með annan fótinn
í gamla tímanum í rétttrúnaðinum,
hann skildi Skaftáreldana sem við-
reisn siðferðisins. Ég held við ættum
að temja okkur þess háttar hugsun.
Núna þegar við mannfólkið komum
svo illa fram við aðrar lífverur sem
raun ber vitni, þá sendir Guð til okk-
ar minnstu lífveru veraldar, veiru, til
að kollvarpa heiminum okkar. Það
er svartur húmor í því.“
Hrifnæmir vísindamenn
Engum sem les Váboða ætti að
koma á óvart að Ófeigi finnst fuglar,
þegnar himinsins, vera stórkostlegt
fyrirbæri. Hann er líka heillaður af
fyrri tíma fuglafræðingum.
„Gömlu náttúrufræðingarnir, þeg-
ar fræðin voru ung, voru hrifnæmir
vísindamenn sem lögðu hjartað und-
ir þegar þeir rannsökuðu náttúruna.
Finnur Guðmundsson kemur við
sögu í bókinni, var stílfimur maður
og þegar hann þýddi Fugla Íslands
og Evrópu bjó hann til 420 ný fugla-
nöfn sem standa öll enn í dag. Það er
svolítið mikið afrek.“
Þegar Ófeigur er spurður að því
hvað hann sé að segja með bók sinni
Váboðum, svarar hann að einna
helst fjalli bókin um mannlega sam-
veru. Og jafnvel bakhlið mannlegrar
samveru í gegnum drauma og hið
yfirskilvitlega.
„Til dæmis dýrmæti þess að læra
af öðrum að meta steina eða fugla
eða skeljar og finna um leið gáttina
inn í aðrar víddir. Það er einhver ró-
semd í slíkri samveru, sem svo auð-
veldlega er fjarverandi. Þeir sem
hafa fengið mikið af slíkri miðlun eru
yfirleitt stórar manneskjur sem geta
gefið mikið af sér, í stóru og smáu,
hvort sem það er í vísindaheiminum
eða innan fjölskyldu. Ég fékk áhuga
á fuglum þegar ég var lítill, en ég tók
ekki upp á því sjálfur, því var miðlað
til mín. Gleðin er á báða bóga, ef
maður getur miðlað til annarra, þeg-
ar maður finnur áhugann, þekking-
una og gleðina.“
Dýrmæti mannlegrar samveru
Váboðar heitir ný bók Ófeigs Sigurðssonar „Það er svo frjór skáldskapur í draumum og einmitt
þar er sannleikann að finna,“ segir höfundur sem byggir eina söguna í Váboðum á eigin draumi
Morgunblaðið/Eggert
Höfundur og hundur hans Ófeigur og Kolur í stofunni heima. „Draumar, fyrirboðar og fjarskyggni hafa alltaf verið hluti af bókmenntum okkar.“
Nefnd um stofnun þjóðaróperu hefur
tekið til starfa. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá mennta- og menning-
armálaráðuneytinu. Samkvæmt nýj-
um sviðslistalögum, sem tóku gildi í
júlí, er markmið nefndarinnar að
styðja sérstaklega við óperustarf-
semi hér á landi ásamt því að kanna
kosti og galla stofnunar þjóðar-
óperu.
Nefndina skipa Páll Baldvin Bald-
vinsson, sem er formaður og skip-
aður án tilnefningar, Vilborg Soffía Karlsdóttir, til-
nefnd af Íslensku óperunni, Þóra Einarsdóttir, Hjálmar
H. Ragnarsson og Arnbjörg María Daníelsen, sem öll
eru tilnefnd af Bandalagi íslenskra listamanna, og Gísli
Rúnar Pálmason, tilnefndur af mennta- og menningar-
málaráðuneyti. „Hugmyndir um þjóðaróperu sem
ræddar voru í tengslum við gerð [nýju sviðslistalag-
anna] miða m.a. að því að styrkja umgjörð um óperu-
flutning og málefni þess listforms hér á landi,“ er haft
eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmála-
ráðherra, í tilkynningu og áréttað að hún hlakki til að
kynna sér tillögur nefndarinnar síðar í vetur.
Nefnd um stofnun þjóðar-
óperu hefur tekið til starfa
Páll Baldvin
Baldvinsson
Skoski rithöfundurinn Douglas
Stuart hlýtur Booker-bókmennta-
verðlaunin fyrir frumraun sína sem
nefnist Shuggie Bain. Skáldsagan
gertist á níunda áratug síðustu ald-
ar í Glasgow og fjallar um strákinn
Shuggie sem reynir að hjálpa móð-
ur sinni, Agnes Bain, sem glímir
bæði við fátækt og fíkn. Í frétt BBC
um málið er haft eftir Margaret
Busby, formanni dómnefndar, að
það hafi aðeins tekið dómnefndina um klukkustund
að komast að samhljóða niðurstöðu. Segir hún skáld-
söguna ekki vera auðvelda aflestrar, en „lesturinn
felur í sér von, sagan er krefjandi, persónuleg og
grípandi“ og að „sérhver sá sem les hana verður aldr-
ei samur eftir“. Stuart, sem hlýtur um níu milljónir
króna að launum, tileinkaði móður sinni bókina og
verðlaunin, en hún lést úr alkóhólisma þegar hann
var aðeins 16 ára. Í þakkarræðu sinni sagði Stuart
það „stærstu gjöfina“ að fá tækifæri til að „hafa áhrif
á líf lesenda“. Að hans sögn er bókin „ástarsaga sem
rannsakar skilyrðislausa ást barna á ófullkomnum
foreldrum sínum og hvernig reynir á þessa ást“.
Skotinn Douglas Stuart
hlýtur Booker-verðlaunin
Douglas Stuart